Morgunblaðið - 19.11.1974, Page 16

Morgunblaðið - 19.11.1974, Page 16
\0 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. NÖVEMBER 1974 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjóm og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthias Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. simi 10 100. Aðalstræti 6, simi 22 4 80. Áskriftargjald 600.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 35.00 kr. eintakið. Kosningarnar í Grikk- landi sl. sunnudag marka óneitanlega þátta- skil í stjórnmálasögu lands- ins. Þar hefur ekki setið þing, kjörið á lýðræðis- legan hátt, síðan herfor- ingjarnir gerðu byltingu 1967. Og væntanlega mun nú í kjölfar kosninganna verða mynduð á nýjan leik þingbundin ríkisstjórn í Grikklandi. Þegar herfor- ingjarnir hrökkluðust frá völdum sl. sumar og borg- araleg ríkisstjórn tók við völdum, fengu Grikkir á ný að njóta lýðréttinda og pólitískum föngum var sleppt. Þessir atburðir í Grikklandi eru því fagnaðarefni meðal allra lýðræðisþjóða. 1 flestra augum virtist herforingjastjórnin svo föst í sessi, að menn áttu almennt ekki von á því, að lýðræðislegir stjórnar- hættir yrðu endurreistir í Grikklandi í bráð. Síst gátu menn vænst þess, að hún hrökklaðist frá völdum án átaka eins og raunin varð á. Sumir höfðu haldið því fram, að Grikkir væru ekki nægilega þroskaðir til þess að halda uppi lýðræðislegu stjórnkerfi, og einmitt af þeim sökum stæði herfor- ingjastjórnin föstum fótum. Allt þetta reyndist á misskilningi byggt. Inn- viðir herforingjastjórn- arinnar voru ekki sterkari en svo, að hún féll á sjálfs síns bragði. Það var mikið áfall fyrir lýðræðisþjóðir í Evrópu og einkum þó Atlantshafs- bandalagsþjóðirnar, þegar herforingjarnir tóku með hernaðarofbeldi völdin í Grikklandi. Margir Grikkir háðu hetjulega baráttu fyrir frelsi landsins í neðanjarðarhreyfingum heima fyrir og á opin- berum vettvangi erlendis. Og innan Atlantshafs- bandalagsins reyndu Norð- urlandaþjóðirnar m.a. að beita pólitískum þrýstingi til þess að veita lýðræðis- öflunum stuðning. Þær raddir heyrðust oft og ein- att að rétt væri að vikja Grikkjum úr bandalaginu, þar sem einföldustu lýð- réttindi voru þar fótum troðin. Atlantshafsbanda- lagið hefur á hinn bóginn ekki hlutast til um innan- ríkismálefni aðildarþjóð- anna og var því ávallt í erfiðri aðstöðu gagnvart Grikklandi. Nú hafa herforingja- stjórnir fallið bæði í Grikk- landi og Portúgal. í Portú- gal er þó enn allt í óvissu um það, hvort lýðræðis- öflin verða ofan á, þegar upp verður staðið. I Grikk- landi gerist það á hinn bóg- inn, aö það eru traustustu lýðræðisöflin, sem taka við stjórnartaumunum eftir fall herforingjastjórn- arinnarogleiðaþjóðina úr fjötrum til frelsis. Mikill kosningasigur Karamanlis forsætisráðherra staðfestir á afar skýran hátt hug þjóðarinnar í þessum efnum. Ýmsir höfðu búist við, að sósíalistar undir forystu Papandreu myndu sópa að sér fylgi i þessum kosningum. Sú varð hins vegar ekki raunin á og kosningaúrslitin eru veru- legt áfall fyrir sósíalista. Karamanlis er gamall og rótgróinn stjórnmála- maður í Grikklandi. Hann var forsætisráðherra 1955 til 1963 og margir líta svo á, að það hafi verið timabil stöðugleika og heilbrigðra stjórnarhátta í Grikklandi. Þegar Karamanlis kemur nú úr sjálfskipaðri útlegð setja Grikkir á ný traust sitt á hann. Þessi úrslit grísku kosninganna hljóta að vera fagnaðarefni meðal lýðræðisþjóðanna og von- andi eiga þau eftir að styrkja lýðræðislega stjórnarhætti í sessi þar í landi. Hinu er ekki að leyna, að aðstaða Grikkja er mjög erfið eins og sakir standa. Það verkefni bíður þings- ins, sem nú hefur verið kjörið, og þeirrar ríkis- stjórnar, er við tekur, að semja nýja stjórnarskrá fyrir landið og á grundvelli hennar verður efnt til nýrra þingkosninga síðar. Þá verður það og viðkvæmt mál, þegar tekin verður ákvörðun í þjóðaratkvæða- greiðslu um framtíð kon- ungdæmisins, en hún mun fara fram innan skamms. Spurningin um endur- reisn konungdæmisins snýr einvörðungu að Grikkjum sjálfum. Á hinn bóginn verður fróðlegt að fylgjast með því, hvernig hin nýja stjórn tekur utan- ríkismálefnum og hver af- staða hennar verður til annarra þjóða. Kýpurævin- týri herforingjanna og sú auðmýking, sem Grikkir urðu þar fyrir, hefur greinilega rist djúpt i hugi fólksins. Grikkir þurfa því að endurheimta sjálfsvirð- ingu sína á ný eftir þær ófarir. Þeir hafa að miklu leyti skellt skuldinni á Bandaríkjamenn. í því sambandi er þó athyglis- vert, að sósíalistar er höfðu forystu um þær ásakanir, skyldu bíða slíkan ósigur, sem raun varð á. Eigi að síður er hér um að ræða atriði, sem haft getur veru- leg áhrif á utanrikisstefnu Grikkja á næstunni. Hvað sem slíkum innan- landserfiðleikum viðvíkur, skiptir hitt mestu, að lýð- ræði hefur nú verið endur- reist á rústum herforingja- veldis. Sú þróun og ein- dreginn sigur lýðræðisafl- anna í kosningunum sl. sunnudag eru Grikkjum til mikils álitsauka og víst mun virðing þeirra vaxa í augum þjóðanna. Ur fjötrum til frelsis jT Islenzka formúlan Kommúnistar á útifundi I Lissa- bon. WASHINGTON — Þrálátur orðrómur um samsæri CIA um að veikja portúgölsku stjórnina vekur þá spurningu hvað dr. Kissinger átti við þegar hann sagði. „Ég fæ ekki séð hvers vegna við þurfum að halda að okkur höndum og horfa upp á það að land gangi kommúnist- um á hönd vegna ábyrgðarieys- is þjóðarinnar." Dr. Kissinger gerði þessa at- hugasemd samkvæmt skjölum, sem birt voru nýlega, í umræð- um „fjörutíu manna nefndar- innar“ 1970 um leynilegar að- gerðir í Chile. Erfitt er að leggja trúnað á orðróminn frá Lissabon, þótt ekki væri nema vegna þess að fróðir heimildarmenn í Wash- ington eru sammála um, að það væri heimska á hæsta stigi að róa undir byltingu í Portúgal. En Kissinger hefur aðrar leiðir til að framfylgja markmiðum sínum og ýmsir stjórnmála- menn í NATO-löndum eru ugg- andi um að hann geti gengið of langt. Þeir halda að hann reyni að nota NATO með kænsku- brögðum til að hafa áhrif á inn- anlandsstjórnmál aðildarland- anna. Kommúnistarnir, sem nú sitja f ráðherrastólum í Portú- gal, og kommúnistar á Italíu segja að þeir vilji ekki úrsögn landanna úr NATO. Ef þeir beiti sér fyrir úrsögn úr NATO liti út fyrir að færzt væri nær sovézku herbúðunum og beir muni glata stuðningi almenn- ings. Ymsir telja aðild að NATO tryggingu fyrir lýðræði og þar með forsendu þess, þótt öfugsnúið sé, að lönd þeirra geti veitt sér að hleypa komm- únistum í ríkisstjórn. Með samþykki við aðild Portúgals að NATO getur því virzt að Washington-stjórnin gefi ráðamönnum í Róm bend- ingu um að ítalía geti einnig verið áfram f NATO og jafn- framt haft nokkra kommúnista í stjórn. Vitaskuld er þetta ekki sá boðskapur sem Washington- stjórnin vill koma á framfæri °g hún hefur stundað býsna fiókið baktjaldamakk til þess að kynna sjónarmið sín. Nú hefur fundi landvarna- ráðherra NATO og kjarnorku- skipulangsnefndar bandalags- ins verið frestað. Ein ástæðan, sem stjórnin í Washington nefndi, var sú að ekki væri hægt að ljóstra upp stórmikil- vægum leyndarmálum í áheyrn ríkisstjórnar, sem kommúnistar ættu sæti í og gæti komið þeim áleiðis til Moskvu. Hún gerði einnig þeim itölsku stjórnmálamönnum, sem eru hlynntir samsteypu- stjórn með aðild kommúnista, viðvart um að verið gæti að þeir yrðu að lokum að velja milli slíkrar samteypustjórnar og NATO-aðiIdar. Þetta var alls ekki eins ófág- uð íhlutun um innanrfkismál annarra landa og stjórninni f Washington hefur oft verið borið á brýn. Hana var hægt að réttlæta og hún var réttlætt á þeirri einföldu forsendu að í Bandaríkjunum gilda viss lög um meðferð leynilegra upplýs- inga og að þjóðþingið tæki stjórnina til bæna ef hún færi ekki eftirþeim. Bak við þetta allt býr marg- slungin saga samningaumleit- ana n.illi Bandaríkjanna og samherja þeirra í NATO er hófst með leit að lausn, sem sum aðildarrfki aðhylltust og hefði getað komið í veg fyrir frestun. Þau kynntu sér ræki- lega „íslenzku formúluna" sem eitt sinn leyfði samsteypustjórn f Reykjavik, er kommúnistar áttu sæti í, að meðhöndla leyni- legar NATO-upplýsingar. En ísland ræður ekki yfir eig- in varnarliði og var fúst að láta sér lynda takmarkað flóð upp- lýsinga frá NATO. Um ákvarð- anir í utanríkismálum, er tóku til gagna frá NATO, var fjallað samkvæmt samkomulagi milli utanríkisráðherrans og forsæt- isráðherrans og þær voru ekki ræddar í ríkisstjórninni. Jafn- vel þótt Portúgal gæti sætt sig við þessa formúlu — en svo er ekki — mundi hlutverk vinstri- sinnaðra hermanna f stjórn- rnálakerfinu og f varnarbákn- inu valda frekari vandkvæðum. „Islenzka formúlan" var því lögð á hilluna og stjórninni I Lissabon gefið til kynna að hún gæti hjálpað upp á sakirnar ef hún tæki ekki þátt f Rómar- fundinum af fúsum vilja. Portúgal hefur aldrei áður átt aðild að kjarnorkuskipulags- nefndinni en skömmu fyrir fall Caetano-stjórnarinnar sóttu Portúgalar um þessa aðild, sem þeir höfðu alltaf haft rétt á, og nú þóttust þeir ekki taka eftir þvf að þeim var gefið í skyn að þeir skyldu halda sig í burtu. Beiðni Portúgala um efna- hagsaðstoð þegar Gomes forseti var nýlega f heimsókn f Wash- ington kallaði einnig fram kur- teislegan fyrirlestur frá Kiss- inger um vandkvæðin á því að fá þjóðþingið til þess að sam- þykkja fjárveitingar nú orðið, einkum til landa sem eru bendl- uð við kommúnisma. Portúgalskir embættismenn halda því fram, af jafnmikilli kurteisi, að efnahagsaðstoð mundi afstýra yfirvofandi at- vinnuleysi f stórum stíl og sam- farandi stjórnmálaólgu sem gæti hrundið landinu lengra til vinstri. Með þvf að draga að- stoðina á langinn og nota hana sem pólitískt vopn geti verið að Washington-stjórnin flýti fyrir einmitt þeim afleiðingum sem hún vilji koma í veg fyrir. Engar þær ferðir, sem hafa verið farnar á vegum CIA og bandaríska utanríkisráðuneyt- isins til Portúgals til að kanna hvert vindurinn blæs, engar heimsóknir háttsettra sósíal- demókrata frá Vestur-Evrópu Framhald á bls. 31

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.