Morgunblaðið - 19.11.1974, Page 17

Morgunblaðið - 19.11.1974, Page 17
Tvær brey tingar í kvöld BIRGIR Björnsson, landsliðsþjálfari og einvaidur, ákvað að gera tvær breytingar á landsliðinu, sem leikur við Þjóðverja f kvöld, frá leiknum á sunnudaginn. Ragnar Gunnarsson, markvörður úr Armanni, kemur inn f liðið í stað Hjalta Einarssonar, FH, og Páll Björgvinsson úr Vfkingi kemur f stað Gunnars Einarssonar, FH. Er þetta f þriðja sinn, sem Páll er valinn f landsliðið, og Ragnar á einnig tvo landsleiki að baki. Leikurinn f kvöld hefst kl. 20.30. Hin ágæta frammistaða fslenzka liðsins f leiknum á sunnudags- kvöldið gefur vonir um möguleika á sigri f leiknum f kvöld. En til þess að þær vonir megi rætast þarf fslenzka liðið að fá góðan stuðning frá áhorfendum, sem það reyndar fékk á sunnudagskvöldið. Forsala aðgöngumiða að Iandsleiknum verður f Laugardalshöll frá kl. 18.00 f dag og er fólki ráðlagt að tryggja sér miða f tfma, þar sem búast má við, að uppselt verði á leikinn. tSLENZKG bandmintonleik- mennirnir sóttu ekki gull f greip- ar andtæðinga sinna á hinum Norðurlöndunum á NM f band- minton, sem fram fór f Ösló nú um helgina. Friðleifur Stefáns- son komst að vfsu f aðra umferð f einliðaleiknum en aðrir leikir töpuðust bæði í einliðaleik og tvf- liðaleik, þannig að um frekari þátttöku tslendinganna var ekki að ræða. Þó svo að þeir Haraldur Kornelíusson, Steinar Pedersen, Friðleifur Stefánsson og Óskar Guðmundsson séu sennilega okk- ar sterkustu badmintonleikmenn þá eiga þeir þó enn langan veg ófarinn áður en þeir standa jafn- fætis beztu mönnum Dana og Svía. Þeir félagarnir sem og aðrir islenzkir badmíntonáhugamenn geta þó glatt sig við þá staðreynd, að 1976 verður Norðurlanda- meistaramótið í badminton haldið á íslandi. Búast má við þátttöku allra beztu badmintonleikmanna Norðurlanda, manna eins og Sveind Pri, sem telja verður ann- an sterkasta badmintonleikmann í heimi um þessar mundir. Haraldur Kornelíusson mætti fyrrnefndum Svend Pri í fyrstu umferð og hafði lítið að gera í gin ljónsins. 1 fyrri lotunni náði Har- aldur þó fimm punktum, betri árangri en búizt hafði verið við. Seinni lotuna vann svo hinn sterki Dani 15—1. Gegn Noregsmeistaranum Thoresen gekk Steinari Pedersen nokkuð vel framan af og var kom- inn í 12—5 þegar úthaldið brást. 1 framlengdum leik sigldi Norð- maðurinn örugglega fram úr og vann 18—13. Seinni lotan endaði 15—6, þeim norska í vil. Óskar Guðmundsson átti aldrei möguleika gegn Svianum Hellein, sem er Evrópumeistari unglinga. i fyrri hrinunni fékk Óskar ekki punkt, en einn f þeirri síðari, 15—0 og 15—1. Friðleifur Stefánsson hafði yf- irburði í fyrri leik sínum við Dahl frá Noregi og vann 15—6. Seinni hrinan var svo jafnari en Friðleif- Haraldur Kornelíusson — lenti á móti hinum óopinbera heims- meistara Svend Pri frá Dan- mörku f fyrsta leik, og stóðst honum eðlilega ekki snúning. ur hafði betur í framlengingunni og vann 18—16. 1 næstu umferð mætti Friðleifur Dananum Flemming Delfs, geysilega sterk- um og skemmtilegum leikmanni. Úrslitin gátu ekki orðið nema á einn veg. Daninn hlaut að sigra. 1 fyrri leiknum fékk Friðleifur 4 punkta og 2 f seinni. í tvíliðaleiknum slógu Svein Pri og Poul Pedersen þá Óskar og Friðleif út strax í fyrstu umferð- inni. Úrslitin urðu 15:2 og 15:5 fyrir Danina. Haraldur og Steinar mættu hins vegar Norðmönnunum Thoresen og Ringdal og hefðu átt að geta sigrað en frammistaða þeirra var slök og sigurinn varð Norðmann- anna: 15—6 og 15—9, án mikilla átaka. Þar með var islenzki þátttöku Iokið i þessu Norðurlandamóti, og það, sem eftir var mótsins, máttu Islendingarnir gera sér að góðu að fylgjast með úr áhorfendastúk- unni. Finnunum gekk þó ekkert betur og eins og landinn unnu þeir aðeins eínn leik. Allir meistaratitlarnir fóru til hinna snjöllu Dana og má með sanni segja, að mótið hafi verið í einkaeign þeirra. Úrslitaleikirnir fóru sem hér segir: Einliðaleikur karla: Svend Pri vann Flemming Delfs 9—15, 15—10 og 15—5. Tvíliðaleikur karla: Svend Pri og Poul Pedersen unnu Flemm- ing Delfs og Eglo Hansen 15—10 og 15—6. Einliðaleikur kvenna: Lena Koppen, Danmörku, vann Annettu Börgesen, Svíþjóð, 11—1 og 11—6. Tviliðaleikur kvenna: Lena Koppen og Imre Nielsen unnu Termille Kaargard og Önnu Flint 10—15 — 15—10 og 18—15. Tvenndarleikur: Eglo Hansen og Termille Kaargard unnu Poul Pedersen og Önnu Flint 15—12 og 15—12. Axel Axelsson meö verðlaunagrip þann er Morgunblaðið veitti honum sem markakóng Islandsmótsins 1974. Rætt við Axel Axelsson um veru hans í Þýzkalandi — Ég kann sérstaklega vel við mig í Þýzkalandi og er ánægður hjá Dankensen, sagði Axel Axels- son, handknattleiksmaðurinn góðkunni f viðtali, sem Morgun- blaðið átti við hann um helgina en þá tók Axel við verðlaunum markakóngs Islandsmótsins f handknattleik 1974, sem Morgun- blaðið veitti honum. — Þetta hefur verið okkur nýtt og skemmtilegt líf, sagði Axel, — og ég hef getað helgað fþróttinni þann tfma, sem mig hefur lengi langað til. Auk þess hefur maður kynnzt nýjum viðhorfum og nýju fólki, sem hefur verið okkur ein- staklega alúðlegt og almennilegt. Axel hefur nú leikið fjóra leiki með liöi sinu í 1. deildar keppn- inni þýzku og hefur það sigrað i öllum leikjunum og hefur forystu i riðlinum. I þessum fjórum leikj- um liðsins hefur Axel skorað 20 mörk, eða fimm mörk að meðal- tali í leik, sem erglæsileg frammi- staða, ekki sízt þegar tekið er tillit til þess, að v-þýzk lið eru þekkt fyrir að leika harðan og góðan varnarleik. Nokkur þessara marka hefur Axel skorað úr víta- köstum, en hann tekur öll vita- köst fyrir lið sitt. — Það er mjög skemmtileg stemmning i iiðinu, sagði Axel. Við æfum þrisvar sinnum í viku, tvo tima í senn, og leikum svo yfirleitt einu sinni til tvisvar í viku. Eftir æfingarnar borðum við saman og ræðum við þjálf- arana um æfinguna og árangur liðsins og leikmanna á henni. Menn eru hvattir til þess að segja það umbúðalaust, sem þeir meina, og það er jafnan reynt að komast strax til botns i þeim vanda- málum, sem kunna að skjóta upp kollinum. Axel sagði, að gifurlegur munur væri á æfingunum hjá Dankensen og þeim, sem hann hefði kynnzt áður. Fyrst og fremst hefði liðið æft í allt sumar, og leikmennírnir ekki fengið nema hálfsmánaðarhlé. Var sumartiminn mest notaður til þess að byggja upp líkamann, enda væri likamsstyrkur leik- manna í þýzka handknattleiknum áberandi miklu meiri en islenzkra leikmanna. Þegar að keppnistima- bilinu leið var svo farið að æfa upp leikkerfi, en Axel sagði, að lið hans legði mikið upp úr „taktik" og væri réyndar talið það lið i Þýzkalandi, sem léki mest með leikkerfum. Leikkerfin voru síðan reynd og mótuð í æfinga- leikjum, oftast við lið i þrióju og f jórðu deild. Þegar Axel var að þvi spurður hver væri megin munurinn á því að leika handknattleik i Þýzka- Iandi og á Islandi, svaraði hann að þar kæmi margt til. Fyrst og fremst hefði það komið sér á óvart hversu miklu harðari hand- knattleikurinn væri i Þýzkalandi, og þar væri ekki óalgengt, að leik- menn gerðu sig seka um hreinan ruddaskap i leik. — Maður fær ósjaldan beinlínis á kjaftinn, sagði Axel, — og menn kunna hin ótrúlegustu brögð, sem þeir hika ekki við að beita, ef þvi er að skipta. Það eina, sem heldur þessu svolítið niðri, er, að dóm- ararnir eru yfirleitt mjög góðir og ákveðnir. Þá kom það mér nokkuð á óvart hversu gífurlegur munur er að leika á heimavelli og á úti- velli. Það heyrir til algjörrar undantekningar ef ekki er upp- selt á leiki, og geta áhorfendur því skipt þúsundum, og þeir láta sannarlega til sin heyra, og hjálpa liðum sinum ótrúlega mikið. Eftir fyrsta leik okkar á heimavelli í vetur, þótti forráðamönnum liðsins sem áhorfendur hefðu ekki tekið nógu virkan þátt i leiknun, og í viðtölum við blöðin eftir leikinn hundskammaði þjálf- arinn okkar áhorfendur. Sagði að það væri alltaf eins. Áhangendur Dankensen væru verstu áhang- endur í Þýzkalandi og gerðu ekkert til þess að hjálpa liðinu. Og það var eins og við manninn mælt. Næst þegar við lékum heima var slík stemmning í hús- inu, að ég hef aldrei kynnzt öðru eins. Ekki einu sinni i leiknum góða á móti Frakklandi í fyrra- vetur, þegar áhorfendur i Laugar- dalshöllinni komu okkur þá meira til hjálpar en ég man eftir að hafi gerzt hér heima áður. Nei — heimavöllurinn hefur ótrúlega mikið gildi, þar sem þannig áhorf- endur eru. Eins og allir, sem fylgzt hafa með handknattleik og ferli Axels Framhald á bls. 23 Landsliðsmennirnir og félagarnir úr Fram: Pétur Jóhannesson, Axel Axelsson og Björgvin Björgvinsson. Nýtt og skemmtilegt líf FRIÐLE3FUR SÁ EENI, SEM VANN LEIK Nwðurlandamótið í badminton á Lslandi 1976

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.