Morgunblaðið - 19.11.1974, Page 21
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. NÖVEMBER 1974
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. NÖVEMBER 1974
21
Góð skotnvting
en markvarzla slök
MBL. lét gera yfirlit yfir
frammistöðu einstakra
leikmanna íslenzka lands-
liðsins f leiknum gegn
Austur-Þjóðverjum. Þegar
þetta yfirlit er skoðað, vek-
ur slök frammistaða mark-
varðanna mesta athygii, en
að öðru leyti virðast leik-
menn hafa staðið sig ágæt-
lega, með örfáum undan-
tekningum þó.
Birgir Finnbogason stóð i
markinu nokkru lengur en félagi
hans, Hjalti Einarsson. Birgir
fékk á sig alls 13 mörk. Hann
varði 4 skot, eitt langskot og 3
llnuskot. Hjalti fékk á sig 11 mörk
og varði aðeins eitt skot af lln-
unni. Hvorugum markvarðanna
tókst að verja þau vítaskot, sem
Þjóðverjarnir fengu.
I sókninni á Axel Axelsson flest
skot, 7 talsins, og uppskeran varð
4 mörk. Eitt af skotum. Axels
varði markvörðurinn, eitt vörnin
og eitt fór i stöng. Þá tapaði Axel
boltanum þrisvar og átti tvær
línusendingar, sem gáfu mark.
Björgvin Björgvinsson átti 6 skot
að marki, þar af lentu 4 I markinu
en 2 I stöng. Þá krækti hann i eina
vftið, sem Island fékk. Björgvin
tapaði þrisvar boltanum. Einar
Magnússon kom bezt allra út úr
sókninni, átti 6 skot að marki og 5
mörk. Eitt skota hans fór fram-
hjá. Þá átti hann eina lfnusend-
ingu, sem gaf mark. Einar glaðaði
aldrei boltanum. Ólafur H. Jóns-
son átti 4 skot að marki og 2 mörk,
eitt skot varði markvörðurinn og
annað fór framhjá. Þá átti Gunn-
ar eina línusendingu, sem gaf
mark. Viðar Simonarson átti 2
skot og 2 mörk, en á móti tapaði
hann boltanum fimm sinnum,
sem er mjög slakt. Arni Indriða-
son, nýliðinn byrjaði vel, gerði 2
mörk I byrjun úr jafnmörgum til-
raunum, en fékk lítið að vera með
í sókninni eftir það. Pétur
Jóhannsson átti eitt skot og eitt
mark. Jón H. Karlsson og Stefán
Halldórsson áttu ekki skot að
marki. Hér að framan er aðeins
getið sókna, sem gengu upp, ann-
að hvort með marki eða á annan
hátt.
Annars er athyglisvert, að nýt-
ingin í sókninni er nú betri en í
mörgum fyrri landsleikjum. þótt
við svo sterkan andstæðing hafi
verið að etja. Þannig varði hinn
frægi markvörður liðsins ekki
nema 3 skot í leiknum, önnur
rötuðu í markið, og þá flest
þrumuskot, fóru framhjá, í stöng
eða þá að þau voru varin af vörn-
inni. Skotnýtingin er þvi með
bezta móti. Hins vegar tapast bolt-
inn óþarflega oft vegna skrefa,
rangra sendinga eða annars, eða
alls 14 sinnum. Þá var markvarzl-
an afar slök eins og fram kemur í
byrjun.
Björgvin Björgvinsson sýndi glæsileg tilþrif f leiknum. Þarna er hann að skora eitt marka sinna, eftir Hnusendingu frá Axel Axelssyni, sem sjá má bak
við Pétur Jóhannesson. Ljðsm. Friðþjófur.
Glœsilegur sóknarleikur vó ekki
upp á móti lekri vörn og opnu marki
Jan Christensen
ísland — A-Þýzkaland 21:24
ÞAÐ duldist engum, sem horfði á
handknattleikslandsleik Islands og
Austur-Þýzkalands i Laugardalshöll-
inni á sunnudagskvöldið, að það er
engin tilviljun, að þýzka liðið hefur
tvísvar f röð staðið á næst efsta þrepi
verðlaunapallsins þegar verðlaun
fyrir heimsmeistarakeppnina f hand-
knattleik hefur verið útdeilt. A.m.k.
hefur maður tæpast séð lið leika öllu
betur á fjölum Laugardalshallar-
innar en Þjóðverjarnir gerðu á
sunnudagskvöldið, og stundum hafði
maður það á tilfinningunni, að þeir
gætu nánast allt. Að margra dómi
eiga þeir nú á að skipa bezta hand-
knattleiksliði heims. Þeir hafa lítið
sem ekkert breytt liði sfnu frá
sfðustu heimsmeistarakeppni, og
ætla ekki að gera það fyrr en eftir
Olympíuleika, en liðið hefur þegar
hafið undirbúning fyrir þá, og vann
t.d. nýlega sigur f mjög sterku hand-
knattieiksmóti.
Það verður því aö teljast góð út-
koma hjá islenzka landsliðinu að tapa
ekki fyrir þessu liði nema með
þremur mörkum, en úrslit leiksins
urðu 24—21 fyrir Þjóðverjana, enda
má mikið vera ef íslenzka liðið hefur í
annan tíma sýnt eins góðan sóknar-
leik og það gerði í þessum ieik. Flest
markanna, sem íslenzka liðið skoraði
i leiknum, voru stórglæsileg — sum
skoruð með svo föstum skotum að
tæpast var hægt að koma auga á
knöttinn fyrr en hann lá i marki
Þjóðverjanna. Var ekki nema von að
markvörðurinn Siegfried Voigt, sem
af mörgum er talinn einn sá bezti í
heimi, hristi höfuðið stundum.
En þessi ágæti sóknarleikur ís-
lenzka liósins, sem undir venjulegUm
kringumstæðum hefði átt að nægja til
sigurs, gerði það ekki að þessu sinni,
fyrir þá sök, að varnarleikur islenzka
liðsins var ákaflega óöruggur og
markvarzlan var nákvæmlega engin.
Þeir Birgir og Hjalti vörðu samtals 5
skot í leiknum og þar af tvö fyrir
hreina tilviljun. Þettá var sannarlega
ekki þeirra dagur, en það verður að
segjast, þeim til afsökunar, að oftast
skutu Þjóðverjarnir úr galopnum
færum. Var það stundum næstum
grátlegt að sjá hvernig þeir skoruðu
og unnu jafnan upp það sem íslenzka
liðið hafði afrekað með sóknarleik
sínum. Og ennfremur ber auðvitað að
taka það með i reikninginn að það er
mjög erfitt að hemja Þjóðverjana,
sóknarleikur liðsíns er mjög fjöl-
breytilegur og ógnandi, þannig að það
var ekki við því að búast, að lið, sem
aðeins hefur fengið eina stutta sam-
æfingu, megnaði að stöðva hann að
neinu marki.
Það, sem fslenzku vörnina vantaði
fyrst og fremst í þessum leik, var
meiri hreyfing og samvinna. Þjóð-
verjarnir fengu aó láta knöttinn
ganga of mikið, óhindraðir, og þegar
komið var út á móti þeim, voru leik-
mennirnir nær undantekningarlaust
of seinir að bakka aftur inn i vörnina,
þannig að þeir misstu menn á bak við
sig. Þetta breytir þó engu um það að
allmörg mörk, — nóg til að ráða úr-
slitum í leiknum, voru hálfgerð
klaufamörk. Sum jafnvel skoruð með
skotum langt fyrir utan punktalínu.
Það, sem gerði sóknarleik íslenzka
liðsins svo góðan sem raun bar vitni,
var, að tveir einstaklingar komu þar
stórkostlega vel út. Þetta voru þeir
Axel Axelsson og Einar Magnússon,
en Einar lék þarna sinn bezta lands-
leik fyrr og síóar, og gerði ýmsa hluti,
sem maður var farinn að halda að
honum myndi aldrei takast aó gera í
landsleik. Ögnunin hjá Einari var
stórkostleg í þessum leik. Hann var á
tiðum hreint óstöðvandi fyrir Þjóð-
verjana. Það eina, sem var að hjá
Einari í þessum leik, var, að hann
hefði gjarnan mátt reyna að skjóta
meira sjálfur. Vonandi verður þessi
gállinn á Einari eftirleiðis, og þarf þá
ekki að sökum að spyrja. Hann veróur
ein bezta skytta, sem nokkurt lið
hefur yfir að ráða.
Leikstill Axels Axelssonar hefur
tekið nokkrum breytingum frá því í
fyrra. Axel er greinilega harðari i
horn að taka en áður og hreyfingar
hans bera því glöggt vitni, að hann er
í góðri æfingu, og að skothörku hans
þarf ekki að spyrja. Öryggi hans í
skotum virðist einnig meira en áður.
Sum skot hans voru gjörsamlega
óverjandi i þessum leik, ýmist
stöngin inn eða þversláin inn. Þá var
þáttur Björgvins Björgvinssonar ekki
lítill f þessum leik. Bæði skoraði hann
falleg mörk, og eins var stöðug hætta
af honum, þannig að Þjóðverjarnir
gátu aldrei leyft sér að sleppa honum
úr gæzlu eitt andartak. Sumar send-
ingarnar, sem Björgvin fékk inn á
linuna í þessum leik, voru ekki
vandaðar, en oftast hafði hann knött-
inn í þeirri viðureign, þó ekki væri til
annars en að fá dæmt aukakast.
Þeir, sem einna slakast komu út úr
sóknarleiknum, voru þeir Viðar
Símonarson og Gunnar Einarsson.
Gunnar var ekki eins ákveðinn og
hann er venjulega með FH-liðinu,
enda skortir hann enn reynslu í
landsleikjum, og Viðar gerði alltof
mikið til þess að dempa niður
hraðann í leik Islendinga með stöðug-
um niðurstungum og hnoði inn í
vörnina. Viðar hefur oft fengið hrós
og það með réttu fyrir þann hæfileika
sinn að róa spil, sem er að lenda út í
vitleysu, en að þessu sinni notaði
hann of mikinn tíma og gaf knöttinn
stundum alltof seint frá sér. Auk
þess átti Viðar svo of margar send-
ingar i tvisýnu i þessum leik. Beztu
menn þýzka liðsins í leiknum voru
þeir Reiner Ganshow og Volfgang
Lakenmacheer. Þarf engan að undra
að þessir tveir leikmenn skyldu
valdir í heimslið það, sem lék í Júgó-
slaviu á dögunum í tilefni afmælis
júgóslavneska handknattleikssam-
bandsins. En þegar á heild þýzka
liðsins er lítið, má segja, aó þar sé
hvergi veikan blett að finna. Þetta er
greinilega þrautþjálfað lið, sem bíður
upp á stórkostlega fjölbreytni í sókn-
inni, og hraðan og ákveðinn varnar-
leik. Gífurleg leikreynsla hjálpar líka
þessum mönnum, en þeir Lacken-
macheer og Ganschow eiga nú 160 og
168 landsleiki að baki. Mikið má vera
ef þetta verður ekki liðið, sem á eftir
að heyrast mikið frá á Olympíuleik-
unum 1976 og i næstu heimsmeistara-
keppni. Stjórn liðsins virðist einnig
vera mjög góð og innáskiptingar
Birgir Björnsson
Handknattleiks-
skóli stofnaður
Handknattleikssamband Is-
lands hefur ákveðið að gangast
fyrir stofnun Handknattleiks-
skóla, sem verður sennilega starf-
ræktur að Laugarvatni.
A fundi með fréttamönnum
fyrir skömmu skýrði Hilmar
Björnsson, umsjónarþjálfari HSt,
frá þvi, hvernig fyrirkomulag
skólans væri hugsað, en sagði að
enn væri þó starf hans ekki full-
mótað. Skólinn er ætlaður fyrir
unglinga sem leika í 4. flokki, 3.
flokki og 2. flokki karla annars
vegar og fyrir 3. flokk kvenna, 2.
flokk kvenna og stúlkur sem eru i
unglingalandsliðinu hins vegar.
— Hugmyndin er að taka f skóla
þennan 20—30 nemendur úr
hverjum aldursflokki, og verður
sá háttur hafður á við val þeirra,
að viðkomandi félag tilnefnir það
fólk sem það vill verðlauna sér-
staklega annaðhvort fyrir getu i
iþróttinni og/eða félagsanda. Ætl-
unin er að skólinn standi í viku
fyrir hvern flokk, og hann verði
síðan kallaður saman eina til tvær
helgaryfir vetrarmánuðina.
Tilgangurinn með þessu, sagði
Hilmar, — er fyrst og fremst að
reyna að byggja upp frá grunni
með framtiðarsjónarmið í huga.
Skólar sem þessi tíðkast viða er-
lendis, þar sem áherzla er lögð á
að fá fram toppfólkið i íþróttinni
snemma.
Mfn. tsland
A-Þýzkaland
1. 0:1 Ganshow
2. 0:2 Lakenmacheer
2. Einar 1:2
5. Einar 2:2
7. Ární 3:2
8. Ami 4:2
9. 4:3 Ganshow
10. Axel 5:3
11. 5:4 Engel
13. Viðar 6:4
13. Björgvin 7:4
14. 7:5 Lakenmacheer
15. 7:6 Böhme
18. 7:7 Engel
21. Einar 8:7
21. 8:8 Lakenmacheer
22. Axel 9:8
25. 9:9 Lakenmacheer
25. Björgvin 10:9
26. 10:10 Kahlert
27. Viðar 11:10
29. 11:11 Lakenmaeheer
30. Pétur 12:11
30. 12:12 Ganshow
Hálfleikur
31. 12:13 Böhme
32. 12:14 J. Rost (v.)
33. Axel 13:14
34. 13:15 Hildebrand
34. Axel 14:15
35. 14:16 Engel
38. Olafur 15:16
39. 15:17 Kahlert
43. 15:18 Ganshow
44. Einar 16:18
44. 16:19 Lakenmacheer
45. Einar (v.) 17:19
48. 17:20 J. Rost (v.)
49. 17:21 Ganshow
51. Björgvin 18:21
Axel Axelsson stekkur upp og án þess að markvörðurinn fái komið við vörnum hafnar knötturinn í
markinu.
Heinz Seiler
Wolfgang Lakenmacker
Wolfgang Lakenmacker no. 6.
— Lið ykkar leikur hraðann og
harðan handknattleik. Þið leikið
mun hraðar en t.d. Danir og Svi-
ar. Markvarzlan var ykkar höfuð-
verkur í þessum leik. Beztir Is-
lendinganna i þessum ieik voru
Axel og Björgvin.
Við erum á leið til Svíþjóðar,
þar sem fara mun fram keppni
Brottvísanir af velli: Pétur Jó-
hannesson og Ólafur H. Jónsson í 2
mín., Klaus Gruner og Dietmar
Schmidt í 2 mín.
Misheppnuð vítaköstÆngin.
Dómarar:Henning Svensson og Jan
Christensen frá Danmörku. Þeir
dæmdu leikinn rétt sæmilega. Er
greinilegt, að þeir eru mjög ragir við
að dæma vítaköst og slepptu Þjóð-
verjunum við þrjú slík, og Islending-
um við eitt. En þeir misstu aldrei
leikinn úr höndum sér, eins og þeir
gerðu, er þeir dæmdu leik SAAB og
FH í Sviþjóð á gögunum. Eitt geta þó
íslenzkir dómarar af þeim la^rt: Að
vera fljótir að koma sér á sinn stað á
vellínum, t.d. þegar hraðupphlaup
eru á ferðinni.
— stjl.
Ólafur H. Jónsson
ólafur og Svíinn hlutu hjá Al-
þjóðahandknattleikssambandinu,
og reyndar ekki vitað um dóminn
fyrr en þeir komu hingað til
lands
einnig, en þjálfarinn breytti greini-
lega mikið liðinu eftir því hvaða
menn voru inná hjá íslendingunum,
einkum er líða tók á leikinn.
Stundum fundust manni Þjóð-
verjarnir vera nokkuð harðir í
varnarleiknum, en áberandi var
hversu fljótir þeir voru að brjóta á
manninum og stöðva hann, þannig að
þeir fengu ekki dæmd á sig vitaköst.
Það var helzt Björgvin, sem þeir náðu
ekki að taka i tima, og var hann
stundum nokkuð hart leikinn.
52.
55.
56.
57. Gunnar
58. Björgvin
60. Olafur
18:22
18:23
18:24
19:24
20:24
21:24
Hildebrand
J. Rost (v.)
Engel
Mörk Islands: Einar Magnússon 5,
Björgvin Björgvinsson 4, Axel
Axelsson 4, Ólafur H. Jónsson 2, Árni
Indriðason 2, Viðar Sfmonarson 2,
Pétur Jóhannesson 1, Gunnar Einars-
son 1.
1STUTTU MALI: Mörk A-Þýzkalands: Wolfgang
Landsleikur I Laugardalshöll 17. Lakenmacheer, 6, Reiner Ganshow 5,
nóv. Hans Engel 4, Jiirgen Rost 3, Wolf-
URSLIT: ISLAND — A ÞÝZKA- gang Böhme 2, Axel Káhlert 2,
LAND 21—24 (12—12). Jiirgen Hildebrand 2.
Gangur leiksins:
Æthim að fá það út sem unnt er
sögðu Þjóðverj
EFTIR landsleikinn á
sunnudaginn ræddi
Morgunblaðið við nokkra
leikmenn og dómara leiks-
ins. Allir voru þeir sam-
mála um að þetta hefði
verið góður og skemmti-
legur leikur, en umsagnir
þeirra fara hér á eftir:
Henning Svensson og Jan
Christensen, dómarar.
— tslenzka liðið spilaði mjög
vel fyrstu 40 minúturnar. Eftir
það var eins og og af liðinu drægi.
I fyrri hálfleiknum byggði liðið
mikið upp á langskotum, en þau
sáust allt of lítið I þeim síðari.
Islenzka liðið er í mikilli framför,
þó var markvarzlan ef til vill veik-
asti punkturinn. —
Þeir Svensson og Christensen
dæmdu leik F.H. og Saab í Svf-
þjóð, en sem kunnugt er var Ólaf-
ur Einarsson dæmdur frá þátt-
töku í alþjóðaleikjum um þriggja
mánaða skeið eftir þann leik.
Dómararnir kváðust aldrei hafa
heyrt eins strangan dóm og
Heinz Seiler, aðalþjálfari þýzka
liðsins:
— Þetta er bezti leikur, sem ég
hef séð til islenzkra handknatt-
leiksmanna. Að vísu var mark-
varzlan ekki nægjanlega góð, þótt
þeir hafi góðar hreyfingar. Það er
fljótlegt að læra á þá. Það lió, sem
við erum með hér á landi, er
okkar sterkasta lið. Á þessum
kjarna munum við byggja okkar
handknattleikslið á Olympiuleik-
unum 1976.
Henning Svensson
armr
þeirra átta lióa, sem efst urðu í
siðustu Heimsmeistarakeppni.
Það verður góður prófsteinn á
getu okkar. Við lögðum hart að
okkur i kvöld, og það munum við
einnig gera á þriðjudaginn. Við
ætlum okkur að fá allt það út úr
leik okkar, sem unnt er.
Birgir Björnsson, þjálfari.
Já ég er ánægður með úrslitin.
Það er ekki mikið að tapa fyrir
þessu stórkostlega liói með
þriggja marka mun.
Okkur tókst það sem við
ætluðum okkur, að gefa þeim
ekki frið til að stilla upp sókninni.
Að vísu sköpuðust þeim oft
ákjósanleg færi fyrir vikið, færi
sem markverðirnir höfðu ekki
minnstu möguleikaað verjaskot
úr. Hraði Þjóðverjanna er stór-
kostlegur, og i liðinu er enginn
veikur hlekkur.
Ja, ég var bara ánægður með
dómgæzluna, þó alltaf megi deila
um einstök atvik.
Ólafur Jónsson, fyrirliði ís-
lenzka liðsins:
— Eðlilega er ég ánægður.
Þjóðverjarnir eru gífurlega
sterkir. Þeir hafa snjallar skyttur
og mjög góða línumenn, sem sagt
hvergi veikur hlekkur. Við höfum
verið að þreifa fyrir okkur með
lið, og ég held að úrkoman úr
þessum leik megi taljast bærileg.
Mér þóttu þeir Ganschow (nr.
2) og Lakenmacheer (no. 6) bezt-
ir Þjóðverjanna. Ég hef alls ekki
út á dómgæzluna að setja svona i
heild.
Björgvin Björgvinsson:
— Nei, ég gaf aðeins kost á mér
I þessa tvo leiki. Það er svo ekki
að vita um framhaldið, ég er
önnum kafinn við að koma' þaki
yfir höfuðið.
Það kom margt gott fram I
þessum leik, og reyndar einnig
neikvætt. Varnarleikurinn var
alls ekki nógu sterkur hjá okkur,
það vantar „center“. Sóknar-
leikurinn var aftur á móti oft
góður, einkum i fyrri hálfleik.
Mér finnst mjög ánægjulegt að
hafa Axel aftur við hlið mér.
Dómararnir voru hreint ágætir,
ekkert út á þá að setja.
Frakkar náðu jafntefli
TVÖ mörk á sfóustu 10 mfnútun-
um færðu Frakklandi algjört
heppnisjafntefli f leik við
Austur-Þýzkaland f Evrópubikar-
keppni landsliða f knattspyrnu,
en leikið var f Parfs á laugardag-
inn. Sem kunnugt er þá eru þessi
lið með tslandi f riðli f Evrópu-
keppnínni. Jafntefli f þessum
leik eykur mjög sigurlfkur
Belgfumanna f riðlinum, en þeir
hafa unnið báða leikina, sem þeir
hafa leikið til þessa — við Islend-
inga og Frakka. Vinni Belgfu-
mennirnir A-Þjóðverja í næsta
mánuði, er liðin leika sinn fyrri
leik, verður að telja Belgfumenn-
ina nokkuð örugga að komast f
úrslitakeppnina.
t leiknum á laugardaginn var
staðan 1:0 fyrir Austur-Þýzkaland
i hálfleik. Var það Jurgen
Sparwasser, sem markið skoraði á
25. mínútu. I þessum hálfleik átti
Þjóðverjarnir að auki tvö algjör-
lega opin marktækifæri, sem þeir
misnotuðu klaufalega. Frakkarn-
ir komust hins vegar ekkert áleið-
is í gegnum vörn Þjóðverjanna og
þau skot þeirra, sem komu á
markið, varði Júrgen Croy, mark-
vörður, næsta auðveldlega.
Þegar svo Hans-Júrgen
Kreische skoraði annað mark
Þjóðverja á 57. mín. áttu flestir
hinna 50.000 áhorfenda, sem
fylgdust með leiknum í Paris, von
á því, að þar með væri gert út um
leikinn. Við þetta bættist svo, að
leikmenn franska liðsins virtust
bæði vera orðnir þreyttir og von-
lausir.
Á 80. mínútu varð svo skyndileg
breyting er Jean-Marc Guillou
slapp allt í einu i gegnum vörn
Þjóðverjanna og skoraði. Eftir
það reyndu Frakkarnir að keyra
hraðann upp og jafna. Tókst það á
síðustu mínútu leiksins er Jean
Gallice skoraði.
Staðan í riðlinum er nú þessi:
Belgía 2 2 0 0 4:1 4
A-Þýzkaland 2 0 2 0 3:3 2
Frakkland 2 0 11 3:4 1
Island 2 0 11 1:3 1
Á laugardaginn léku einnig lið
Frakklands og A-Þýzkalands í
Evrópubikarkeppni unglinga i
knattspyrnu. Sá leikur fór fram í
Erfurt og lauk með jafntefli 1:1.
Mark Frakkanna skoraði Berdoll
í fyrri hálfleik, en Krebs jafnaði
fyrir Þjóðverjana úr vitaspyrnu i
seinni hálfleik. Frakkar verða að
teljast sigurstranglegir i þessum
riðli, þar sem þeir unnu Belgiu á
dögunum með einu marki gegn
engu, á útivelli.