Morgunblaðið - 19.11.1974, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 19.11.1974, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1974 Kristinn óstövandi er IR sigraði Val Kristinn Jörundsson var hreint óstöðvandi fyrir Valsmenn þegar tR og Valur mættust um helgina. Ekki aðeins að hann skoraði 48 stig ( leiknum, heldur var hann með mjög góða skotnýtingu, sér- staklega f fyrri hálfleik, en þá missti hann varla skot framhjá. Þetta, ásamt samstilltum leik annarra leikmanna IR, gerði það að verkum, að Vaiur varð að horfa á eftir tveim dýrmætum stigum, en iR-ingar hljóta að vera ánægð- ir með árangur helgarinnar, sigur gegn UMFN og Val. Kolbeinn Kristinsson lék ekki með IR í þessum leik, og mun ekki leika meira með liðinu i vetur vegna meiðsla. í hans stöðu kom Jón Jónasson, og skilaði hlut- verki sínu með mikilli prýði. Þá hafði það ekki Iítið að segja fyrir IR, að Birgir Jakobsson lék aftur með, og þrátt fyrir, að hann sé æfingalítill, þá styrkir hann liðið greinilega. — Valsmenn tefldu fram öllu sínu sterkasta í þessum leik, og liðið er greinilega á réttri leið þrátt fyrir þetta tap. Ef við lítum á gang leiksins, þá komst ÍR yfir í byrjun 10:5, en Valsmenn skoruðu næstu 10 stig og höfðu yfir þar til undir lok hálfleiksins að IR jafnaði og komst yfir, 49:41 í hálfleik. Valsmenn jöfnuðu siðan fljót- lega í byrjun s.h. en þá léku þeir maður gegn manni i vörninni ( stað svæðisvarnarinnar, og eftir þetta var leikurinn i járnum. Liðin skiptust á um að vera 1—4 stig yfir, og rétt fyri'r leikslok var jafnt 82:82. En þá var það sem úthaldsyfirburðir Kristins Jörundssonar komu glögglega í ljós, hann virtist óþreyttur og geystist í hraðaupphlaup hvað eftir annað og skoraði 13 stig fyrir IR lokakaflann gegn aðeins þremur stigum Valsmanna, sem virtust þá orðnir þreyttir, a.m.k. ef miða má við það hversu oft þeir töpuðu boltanum lokamínútur leiksins. Sigur IR 95:85 má því telja fylli- lega verðskuldaðan, og þeir eru nú efstir í 1. deild og eru eina liðið, sem ekki hefur tapað leik. IR liðið lék þenna leik líkt og leikinn gegn UMFN mjög vel, þó þáttur Kristins Jörundssonar væri nú yfirgnæfandi í leik liðs- ins. Varnarleikurinn var góður allan tímann þrátt fyrir 85 stig Vals, en þau voru að miklum meirihluta skoruð úr skotum fyr- ir utan. Það eina, sem má gagn- rýna I leik liðsins, var, að Agnar virðist „frystur" á stundum, en það komast ekki allir að þegar Kristinn er í stuði. Valsliðið lék þennan leik að mörgu leyti vel, en gaf sig þó í lokin. Þeir Torfi og Kári voru bestu menn liðsins, og Þórir Magnússon var góður i síðari hálf- leik. 1R 3 3 0 255:223 6 KR 4 3 1 384:320 6 IS 3 2 1 229:219 4 Valur 4 2 2 347:334 4 Armann 2 1 1 169:163 2 UMFN 3 1 2 224:241 2 Snæfell 4 1 3 247:298 2 HSK 3 0 3 195:252 0 STIGHÆSTU LEIKMENN: Kolbeinn Pálsson KR 98. Stefán Bjarkason UMFN 79. Einar Sigfússon Snæfell 77. Kristján Agústsson Snæfell 73. Kári Marísson Val 73. Torfi Magnússon Val 73. Kristinn Jörundsson IR 69. Bjarni Jóhannsson KR 68. Þórir Magnússon Val 66. Jóhannes Magnússon Val 62. VITASKOTANVTING (8 SKOT EÐA FLEIRI). Kolbeinn Kristinsson, IR 10:9=90% Jón Jörundsson, lR 12:10=83,3% Sófur Guðjónsson, KR 8:6=75%. Eirikur Jónsson, Snæfell 8:6=75%. Simon Olafsson, Ármann 22:16=72,7% Bjarni Gunnar, tS 10:7=70%. Kolbeinn Pálsson, KR 18:12=66,6% Ingi Stefánsson, IS 15:10=66,6%. Kristinn Jörundsson IR 20:23=65% —gk—. KR vann HSK eftir Stighæstir: IR: Kristinn 48, Agnar 17, Jón Jörundsson 10. jafnan fyrri hálfleik KR VANN 30 stiga sigur yfir botnliðinu, HSK, á laugardag. Lengi vel framan af leiknum leit þó ekki út fyrir neinn yfirburða- sigur. HSK hafði nefnilega forustuna lengi vel framan af fyrri hálfleik, og það var ekki fyrr en um miðjan siðari hálfleik sem KR liðið náði afgerandi for- skoti og sigraði siðan með 107 stigum gegn 77. HSK liðið sýndi mjög góðan leik í byrjuninni á meðan allt mistókst hjá KR-ingum, og voru margir farnir að velta því fyrir sér hvort nú myndi eitthvað óvænt ætla að gerast þegar HSK hafði yfir 23:15 um miðjan fyrri hálfleik. Bræð- urnir í HSK liðinu þeir Bjarni og Birkir Þorkelssynir voru aðal- menn HSK, en þegar hér var komið sögu tók Kolbeinn Pálsson til sinna ráða. Hann skoraði 14 stig í röð, og kom KR yfir, staðan í hálfleik var 53:45. Þegar 6 mín. voru liðnar af seinni hálfleik var 7 stiga munur fyrir KR, en það sem eftir var leiksins var eins og eitt lið væri á vellinum. KR-ing- ar tóku öll völd i sínar hendur, og unnu mikinn yfirburðasigur, 107 stig gegn 77. Kolbeinn Pálsson bar af í KR- liðinu í þessum leik, og var sama hvort var i vörn eða sókn. Bjarni var og góður þann tíma, sem hann gat leikið, en hann var í miklum villuvandræðum í leiknum. Þá kom Sófus Guðjónsson aftur á óvart, og virðist nú vera betri en áður. Árni Guðmundsson var einnig mjög góður. HSK liðið lék ágætlega meðan úthaldið entist, en greinilegt er, að liðið er ekki f góðri úthalds- æfingu. Birkir er sem fyrr aðal- maður liðsins, en Bjarni bróðir hans og Gunnar Arnason komu einnig mjög sæmilega frá leikn- um. STIGIN: KR: Kolbeinn 40, Bjarni 22, Arni 14, Kristinn og Sófus 10 hvor. HSK: Birkir 21, Bjarni 14, Gunnar Jóakimsson 11, Gunnar Arnason 12. Valur: Torfi Magnússon 26, Kári og Þórir 22 hvor, Hafsteinn Hafsteinsson 7 stig. gk- Eftir mjög góðan leik um fyrri helgi gegn IS, var almennt reikn- að með, að UMFN myndi veita IR talsverða keppni, og liðið ætti e.t.v. einhverja sigurmöguleika. En það fór á annan veg. IR-Iiðið mætti mjög ákveðið til þessa leiks, og með sinum Iangbesta leik á keppnistfmabilinu hafði það algjöra yfirburði yfir Njarð- vfkinga og vann auðveldan og öruggan sigur 94:77. A annað hundrað áhorfendur frá Njarðvík fylgdu liðinu til þessa leiks, og var mikil og góð stemning á áhorfendapöllunum þegar leikurinn hófst. Var þá greinilegt, að iR-ingar ætluðu sér ekkert nema sigur i þessum leik, og eftir að Stefán Bjarnason hafði skorað fyrstu körfu leiksins fyrir UMFN skoruðu bakverðir IR þeir Kristinn og Kolbeinn 4 stig. Stefán bætti einu stigi við fyrir UMFN úr viti, en aftur svaraði ÍR með 4 stigum. Um miðjan hálf- leikinn var IR með 7 stiga forskot 17:10, og sá munur hélst út hálf- leikinn, sem endaði 43:35. Nokk- uð sæmileg forusta, en þó ekki það mikil, að UMFN gæti ekki átt möguleika í seinni hálfl. En leikur ÍR í seinni hálfleik var mun betri en í fyrri hálfleik mikil og góð barátta í vörninni þar sem boltinn var miskunnar- laust hirtur af Njarðvíkingum, og síðan sérlega vel útfærð hraða- upphlaup. Staðan breyttist líka úr 47:39 i 63:45 og síðan í 75:51. Fimm mín. fyrir leikslok var IR með 29 stig yfir, en Njarðvikingar skoruðu þá 14 stig í röð og löguðu stöðuna. Lokatölur urðu sem fyrr sagði 94:77 fyrir IR. Þeir fimm leikmenn, sem léku mestan hluta leiksins fyrir IR, Kristinn, Kolbeinn, Agnar, Þor- steinn og Jón, áttu allir mjög góðan leik á þessu sinni, og liðið verður ekki auðunnið ef það leikur á þennan hátt í mótinu. Vörnin er mjög góð, t.d. var Stefáni Bjarkasyni haldið niðri lengst af, og hraðaupphlaup liðs- ins hafa fengið á sig allt annan svip við afturkomu Kristins í liðið. Jón Jörundsson á hvern leikinn öðrum betri þessa dagana, og réðu Njarðvíkingarnir ekkert við hann. Þá átti Þorsteinn mjög góðan leik, svo og Agnar. Gunnar Þorvarðarson varð langbestur Njarðvfkinganna, enda var talsvert lausara um hann heldur en Stefán Bjarkason sem var í strangri gæslu. Báðir bakverðirnir hafa oft leikið betur, sérstaklega Brynjar. En þetta var yfir höfuð ekki neitt afar slakur leikur hjá liðinu, ÍR-ingarnir voru bara mun betri aðilinn. STIGIN: IR: Kristinn 21, Agnar 20, Jón og Kolbeinn 18 hvor, Þorsteinn 17. UMFN: Stefán 27, Gunnar 26, Brynjar 12, Einar Guðmundsson 8, Guðbrandur Lárusson og Sigurður Hafsteinsson 2 hvor. Þórir Magnússon hefur betur f baráttu við Agnar Friðriksson og skorar körfu. Ljósm. Mbl. Friðþjófur Helgason. Toppleikur ÍS gegn KR og þeir sigruðu 90:85 „Það er ekki að spyrja að þvf,“ sagði Einar Bollason þjálfari KR eftir leik KR og IS, „þeir eiga ávallt toppleik gegn okkur, og allsæmilegur leikur okkar dugði ekki gegn þeim. Mér er það algjör ráðgáta hvernig UMFN fór að þvf að vinna þá, þeir hlióta að hafa átt algjöran botnleik þá.“ — Já, það er rétt. ÍS liðið átti mjög glæsilegan leik gegn KR um helgina, og allt virtist heppnast hjá þeim, bæði körfuskot og annað. KR-Iiðið lék þennan leik alls ekki illa, en greinileg þreyta frá leiknum daginn áður virtist sitja í sumum leikmönn- um liðsins. Það var Ijóst strax f upphafi, að stúdentarnir ætluðu að selja sig dýrt, þeir mættu til leiksins fullir baráttuvilja, og það var aldrei gefið neitt eftir. Þeir tóku Ifka forustuna strax f sfnar hendur, héldu henni allan hálf- leikinn, og höfðu yfir 44:37 f leikhléi. Fljótlega f sfðari hálfleik jafnaði svo KR, og komst reynd- ar yfir. Þeir náðu þó aldrei nema tveggja stiga forskoti, þá sigu stúdentar framúr á ný. Um miðjan hálfleikinn var IS 7 stig yfir, en 5 mfn. fyrir leikslok var jafnt 80:80, og spenna gífurleg. Stúdentar skoruðu sfðan 8:1, og þrátt fyrir stffa pressu KR-inga lokakaflann tókst þeim ekki að rétta sinn hlut að neinu ráði. Lokatölur urðu 90:85 fyrir IS, og þeir fögnuðu mikíð enda finnst þeim ekki jafn gaman að sigra neitt lið eins og KR. Allir leikmenn IS léku þenn- an leik mjög vel, og engin veila var finnanleg f liðinu. Mest komu þeir þó á óvart Þórður Óskarsson og Ingi Stefánsson, sem báðir áttu sinn besta leik f vetur, sérstaklega þó Þórður, sem varla missti skot allan leik- inn. Ingi er algjör „vinnuhest- ur“, sem gefur sig aldrei. Þá er þáttur Steins Sveinssonar ekki lftill. en hann stjórnar öllum leik liðsins. Albert Guðmunds- son var mjög sterkur f fráköst- unum, og fáir ieikmcnn eru fljótari að skila frá sér boltan- um eftir varnarfráköst en hann, en það er mjög mikið atriði upp á hraðaupphlaupin. Það var greinilegt f þessum leik, að þreyta frá leiknum dag- inn áður sat f þeim Kolbeini Pálssyni og Kristni Stefáns- syni. Sérstaklega átti þetta við um Kolbein, en hann var nán- ast sem skugginn af sjálfum sér. Langbesti maður liðsins f þessum leik var Bjarni Jóhannsson, sem átti stórleik. Þá kom Gunnar Gunnarsson skemmtilega á óvart, og átti mjög góðan leik. Birgir Guð- björnsson lék þennan leik meiddur, en Þröstur Guð- mundsson virðist vera búinn að jafna sig eftir meiðsli og styrkir liðið. Stighæstir. 1S: Bjarni Gunnar 21, Þórður og Ingi 16 hvor, Steinn 15, Jón Héðinsson 10, Albert Guðmundsson 7, Jón Indriðason 3 og Guðni Kolbeins 2. — KR; Bjarni 23, Gunnar 22, Þröstur 15, Kolbeinn 10, Krist- inn Stefánsson 6, Hilmar Viktorsson 4, Sófus Guðjónsson 3 og Bragi Jónsson 2. STAÐAN UMFN átti ekki möguleika gegn ÍR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.