Morgunblaðið - 19.11.1974, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1974
5. ársfundur Hafnasambandsins:
Gunnar B. Guðmundsson
endurkjörinn formaður
FIMMTI ársfundur Hafnasam-
bands sveitarfélaga var haldinn f
Iðnaðarmannahúsinu, Hafnar-
firði, föstudaginn 15. nóvember
sl. Fundinn sátu fulltrúar yfir 40
hafna, sem sveitarfélög reka, full-
trúar frá samgönguráðuneyti,
Hafnarmálastofnun og fleiri gest-
ir.
Gunnar B. Guðmundsson, hafnar-
stjóri, formaður Hafnasambands
sveitarfélaga.
Gunnar B. Guðmundsson,
hafnarstjóri formaður sambands-
ins, flutti ársskýrslu. Samgöngu-
ráðherra, Halldór E. Sigurðsson,
ávarpaði samkomuna. Erindi
fluttu: Gunnar H. Agústsson,
hafnarstjóri í Hafnarfirði, og
verkfræðingarnir Gisli Viggós-
son og Gylfi Isaksson. Erindi
Gylfa fjallaði um meginverkefni
fundarins, fjárhagsstöðu hafna og
gjaldskrármál. Erindi Gylfa var
stórfróðlegt og í það lögð mikil
vinna. Erindið leiddi í ljós, að
hafnirnar 40 skorti 44 milljónir í
tekjur til að mæta útgjöldum
1973, og var þá framkvæmda-
kostnaður ársins ekki meðtalinn,
sem var um 100 milljónir i kostn-
aðarhluta hafnanna. Hlutur hafn-
anna í greindum rekstrar halla
var mjög mismunandi og afkoma
hinna smærri fiskihafna stórum
verst.
Gunnar B. Guðmundsson var
endurkjörinn formaður Hafna-
sambandsins. Aðrir i stjórn sam-
bandsins voru kjörnir: Bolli
Kjartansson, bæjarstjóri Isafirði,
Pétur Bjarnason, hafnarstjóri Ak-
ureyri, Sigurður Hjaltason,
sveitarstjóri Höfn, Hornafirði, og
Alexsander Stefánsson, sveitar-
stjóri, Ólafsvík (tilnefndur af
stjórn sambands isl. sveitar-
félaga).
Valduppbygging leikhúsa
Norræn ráðstefna haldin á næsta ári
AKVEÐIÐ er að á næsta sumri
verði haldin f Helsingfors norræn
leikhúsráðstefna fyrir leikhús-
starfsfólk á vegum svonefndrar
VASA-nefndar. Efni ráðstefn-
unnar verður: Valduppbygging
r
Akæran
— ný skáldsaga Ulf
ars Þormóðssonar
KOMIN er út hjá bókaútgáfunni
Skuggsjá skáldsagan Akæran og
með undirtitlinum Sóknarnefnd-
in gegn séra Páli eftir (Jlfar Þor-
móðsson. Er þetta önnur skáld-
saga Ulfars en bókin er alls 157
bls.
Á bókarkápu segir m.a. um efni
bókarinnar: „Hver er réttur þinn
til að lifa lífinu eins og þér
sjálfum hentar? Hvert er viðhorf
almennings, ef þú gengur aðrar
brautir en honum eru þóknan-
legar? Hefur þú þrek til að ganga
í berhögg við það álit? Það gerði
séra Páll, og því fór sem fór.“
og stjórnunarfyrirkomulag leik-
húsa og áhrif þeirra á listrænan
árangur.
A VASA-námskeiði, sem haldið
var i fyrra, kom fram að þörf væri
á að breyta stjórnunarfyrirkomu-
lagi leikhúsa í þá átt, að starfs-
fólkið fengi meiru ráðið um starf-
semina en verið hefði. Gerðu þátt-
takendur að tillögu sinni að hald-
ið yrði ráðstefna um þessi mál.
Nú hefur verið ákveðið að ráð-
stefna þessi verði haldin i
Helsingfors dagana 13. — 19. júni
næsta ár, og er hún ætluð full-
trúum allra starfsgreina innan
leikhússins.
VASA-námskeiðin, sem hófust
1963 í Vasa i Finnlandi, eru
undirbúin af norrænni nefnd,
sem skipuð er af menntamálayfir-
völdum hvers lands. I nefndinni
eiga nú sæti: Holger Perfort
leikari (Danmörku), Heikki
Mákelá leikstjóri (Finnlandi),
Kristin Olsoni leikhússtjóri
(Finnlandi), Stefán Baldursson
leikstjóri (Islandi), Knut
Rhomassen leikhússtjóri
(Noregi) og Káre Santesson leik-
stjóri (Sviþjóð).
Hin nýja þjónustumiðstöð Véladeildar S.l.S. við Höfðabakka.
r
Véladeild S.I.S. opnar nýja
þjónustumiðstöð
Véladeild Sambands
fslenzkra samvinnufélaga opn-
aði nýja þjónustumiðstöð að
Höfðabakka 9 í Reykjavík s.l.
föstudag. Þar eru nú til húsa
undir einu þaki varahlutaverzl-
un fyrir alla GM-bifreiðavara-
hluti, verkstæði til standsetn-
ingar á nýjum bflum, ryð-
varnarstöð og almennt þjón-
ustuverkstæði fyrir allar teg-
undir bfla, frá General Motors,
sem deildin flytur inn.
Að sögn Jóns Þórs Jóhanns-
sonar framkvæmdastjóra Véla-
deildarinnar, þá er langþráðu
takmarki náð með tilkomu
þessarar nýju og fuilkomnu
þjónustumiðstöðvar, þvf hér
eftir mun Véladeildin hafa að-
stöðu til að veita viðskipta-
vinum sínum mun betri þjón-
ustu en áður.
og matstofa fyrir starfsfólk og
fundastofa til námskeiðahalda
á samtals 480 fermetrum. Á
neðri hæðinni er þjónustuverk-
stæðið, ryðvörn og standsetn-
ingarverkstæði á 1248 fermetra
gólffleti. Þar er hægt að koma
fyrir 25 bifreiðum samtímis.
Nær allur tækjabúnaður verk-
stæðisins er nýr og aðstaða öll
eins nýtizkuleg og fullkomin og
kostur er á.
Starfsmenn þjónustumið-
stöðvarinnar eru um 20 talsins,
og forsvarsmenn eru þessir:
Bjarni Ölafsson þjónustufull-
trúi, Guðmundur Helgi Guð-
jónsson, verkstjóri þjónustu-
verkstæðis og ryðvarnarstöðv-
ar, Sveinbjörn Jónsson,
verzlunarstjóri amerískra GM-
varahluta, og Sveinn Matthías-
son, verzlunarstjóri evrópskra
GM-varahluta.
Þjónustumiðstöðin er í nýju
iðnaðarhverfi í útjaðri Reykja-
víkur. Húsið, sem Islenzkir
aðalverktakar og Sameinaóir
verktakar byggðu stendur ör-
skammt frá vegamótum Vestur-
’ lands- og Suðurlandsvegar. Tók
Véladeildin bygginguna á leigu
tilbúna undir tréverk, en hefur
sjálf annast innréttingu i sam-
ráði við Teiknistofu S.Í.S. og
sérfræðinga General Motors.
Á efri hæðinni er varahluta-
verzlun á 1100 fermetra gólf-
fleti svo og skrifstofur, eldhús
Yfirmenn Véladeildarinnar og forsvarsmenn þjónustumiðstöðv-
arinnar talið f.v.: Jón Þór Jóhannsson, Sören Jónsson, Geir Gunn-
arsson og Bjarni Ólafsson.
Ljósm. Mbl.: ÓI.K.M.
Háskólafyrirlestur um lyfjafræði
DR. PHARM. Jens G.Harald.for-
stöðumaður lyfjarannsóknadeild-
ar A/S Dumex í Kaupmannahöfn,
mun halda þrjá gestafyrirlestra í
boði læknadeildar Háskóla ís-
lands sem hér segir:
Þriðjudaginn 19. nóvember kl.
20,15: Urenheder som ársag til
uönskede virkninger af lægemidl-
er.
Fimmtudaginn 21. nóvember
kl. 20,15: Historien bag Antabus.
Laugardaginn 23. nóvember kl.
14.15: Udviklingen af den
industrielle fremstilling af læge-
midler (Hringborðsumræða).
Allir fyrirlestrarnir verða
haldnir i hátíðasal Háskólans og
eru öllum opnir, en eru sérstak-
lega ætlaðir iæknum og lyfjafræð-
ingum.
Þess skal getið, að dr. Harald
hefur flestum lyfjafræðingum
meiri reynslu á sviði lyfjafram-
leiðslu þar eð hann hefur starfað
að henni í heimalandi sínu sam-
fleytt um 40 ára skeið fyrst hjá
A/S Medicinalco og síðar hjá A/S
Dumex.
Dr. Hald, sem er eínn þeirra
dönsku vísindamanna, er upp-
götvuðu Antabus, hefur starfað
mikið i samtökum danskra iðnað-
arlyfjafræðinga og er nú heiðurs-
félagi þeirra. Þá er dr. Hald ís-
lenzkum lyfjafræðingum að góðu
kunnur því að hann starfaði hér á
landi í Laugavegs Apóteki á árun-
um 1932—34 og er kvæntur ís-
lenzkri konu, frú Hildi Grimsdótt-
ur.
23 ára stúlka
með Samvinnuskólapróf óskar eftir
vinnu. Tilboð merkt: 8773 sendist Mbl.
fyrir hádegi á laugardaginn 23. nóv. n.k.
Trésmiðir
2—3 trésmiði vantar í uppslátt á raðhúsi,
einnig vantar menn í innivinnu. Uppl. í
síma 1 7481 kl. 1 9—20.
Húsbyggjendur
athugið
Tek að mér allskonar múrverk utan sem innanhúss ennfremur
uppáskrift vegna nýbygginga. Vönduð og ábyggileg vinna.
Gunnar B. Johansen, múrarameistari, símar 73217 og
22778.
Kona óskast
Kona óskast til að dvelja að kvöldi til og
um nætur hjá sjúklingi (konu), sem hefur
fótavist, og þarfnast lítillar hjálpar.
Frítt fæði og húsnæði.
Laun skv. samkomulagi.
Engin húsverk.
Þær, sem áhuga hafa á þessu starfi, leggi
inn umsókn merkt: „8772" til afgr.
Morgunblaðsins fyrir 22. nóvember n.k.
Ungur maður
með Verzlunarpróf og sérhæft verzlunar-
próf úr framhaldsdeild óskar eftir fram-
tíðarstarfi. Tilboð sendist afgr. Mbl.
merkt: „A—8775".
Vanur skipstjóri
óskast á 200 tonna bát til netaveiða frá
Þorlákshöfn og til loðnuveiða. Upplýsing-
ar hjá
Sjófangi h.f., síma 24980 og 32948.