Morgunblaðið - 19.11.1974, Page 39

Morgunblaðið - 19.11.1974, Page 39
22. skákin 1 22. einvfgisskákinni brá Karpov í fyrsta skipti út af vanan- um og lék nú 1. Rf3. Upp kom katalónsk byrjun og náði Kortsnoj að jafna taflið án mik- illa erfiðismuna. Snemma urðu allmikil uppskipti og eftir 30 leiki urðu keppendur sammála um að þýðingarlaust væri að tefla lengur. Hvítt: A. Karpov Svart: V. Kortsnoj Katalónsk byrjun 1. Rf3 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. g3 — d5, 4. d4 — dxc4, 5. Da4 — Rbd7, 6. Dxc4 — b6, 7. Rg2 — Bb7, 8. 0-0 — c5, 9. Hdl — a6, 10. dxc5 — Bxc5, 11. b4 —Be7, 12. Bb2—b5, 13. Dd4 — Hc8, 14. Rd2 — 0-0, 15. a3 - Hc2, 16. Rcl - Hc7, 17. Bxb7 — Hxb7, 18. Rb3 — Da8, 19. Hacl — Hc8, 20. e4 — Hbc7, 21. Hxc7 — Hxc7, 22. f3 — Dc8, 23. Hcl — Hxcl, 24. Rxcl — Bd8, 25. Dc3 — Da8, 26. Dd3 — Rb6, 27. Rc2 — Rc4, 28. Bd4 — Dc8, 29. Dc3 — Dd7, 30. Rd3 — h5, jafntefii. 23. skákin Þegar 22. einvfgisskák Karpovs og Kortsnoj hafði Iokið með jafn- tefli munu flestir hafa búizt við þvf að Kortsnoj tefldi stfft til vinnings f þcirri 23. Sú varð þó ekki raunin á: Karpov valdi held- ur fáséð afbrigði drottningar- indverskrar og náði fljótlega að jafna taflið. Eftir 29 leiki var ljóst að ekki var eftir neinu að slægjast og sömdu keppendur þá um jafntefli. Heldur sviplítil skák, en hvað gerist í þeirri síð- ustu? Hvftt: V. Kortsnoj Svart: A. Karpov Drottningarindversk vörn 1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rf3 — b6, 4. g3 — Bb7, 5. Bg2 — Be7, 6. Rc3 — Re4, 7. Bd2 — Bf6, 8. 0-0 — 0-0, 9. Dc2 — Rxd2, 10. Dxd2 — d6, 11. Hadl — Rd7, 12. Rel — Bxg2, 13. Rxg2 — De7, 14. Rel — c5, 15. Rc2 — Hac8, 16. b3 — Hfd8, 17. e4 — Rb8, 18. Hfel — cxd4, 19. Rxd4 — Db7, 20. He3 — a6, 21. De2 — Rc6, 22. Rxc6 — Dxc6, 23. Hed3 — h6, 24. a4 — Dc5, 25. Dd2 — b5, 26. axb5 — Bxc3, 27. Dxc3 — axb5, 28. Hd4 — Dc7, 29. Db4 — e5, jafntefli. Vantar vitni FÖSTUDAGINN 15. nóvember var ekið á fólksbifreið K 1470, sem er Mercedes Bens dókk- græn að lit, þar sem hún stóð í Reykjahlíð. Þetta gerðist milli kl. 17 á föstudag til klukkan 18 á laugardag. Vinstra frambretti og framstuðari beygluðust. Vitni, ef einhver eru, vinsamlegast hafi samband við lögregluna. Um borð í Ægi ekki Óðni Skýrt var frá því hér í blaðinu sl. laugardag að varningur, sem tekinn hefði verið úr brezka togaranum Port Vale er hann strandaði á dögunum, hefði verið um borð í varðskipinu Öðni. Hér misritaðist nafn varðskipsins því það var um borð i varðskipinu Ægi sem varningur þessi var varðveittur. — Ford í Japan Framhald af bls. 1 sem nú á mjög i vök að verjast vegna hneykslismáls i sambandi við fjárreiður forsætisráðherrans og telja flestir að hann muni neyðast til að segja af sér innan skamms. Heimsókn Ford til Japans hefur sætt mikilli gagnrýni heimafyrir, svo og heimsókn hans til S-Kóreu og Sovétríkjanna. Stafar gagnrýnin einkum af því, að enginn varaforseti er í Banda- ríkjunum, þar sem Nelson Rocke- feller hefur enn ekki hlotið stað- festingu í embættið. Kæmi eitt- MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. NÖVEMBER 1974 39 hvað fyrir Ford þýddi það, að Carl Albert, forseti fulltrúadeildarinn- ar, yrði næsti forseti Bandarfkj- anna. Forsetinn varði ákvörðun sina, er hann sagði við brottförina frá Washington: „Ég fer nú i fyrsta skipti i opinbera heimsókn til erlendra ríkja eftir að ég tók við forsetaembætti og fer þessa för fullviss um það, að hún er mjög mikilvæg fyrir bandariska þjóðar- heill.“ Henry Kissinger utanrikisráð- herra er i föruneyti forsetans og eitt helzta viðfangsefni forsetans og Kissingersfyrirutan viðræður um öryggislnál, er að reyna að fá Japani til að fallast á tillögur Kissingers um aðgerðir til að lækka oliuverð og tryggja efna- hagslegt öryggi vestrænna þjóða. Japanir sem flytja inn nær alla sina oliu hafa þegar lýst yfir stuðningi við franska tillögu um fund oliuframleiðenda, neytenda og þróunarlandanna. Kissinger er þeirrar skoðunar að slikan fund eigi ekki að halda fyrr en oliu- neysluþjóðirnar hafi komið sér saman um aðgerðir til að spara oliu og tillögur um að veita oliu- gróða Arabarikjanna til Vestur- landa i formi lána og fjárfestinga. Ford forseti sagði í einkaviðtali við U.S. News and World Report, sem birt var i dag, að síðar i vetur mundi koma i ljós hvort sjálfvilj- ugar aðgerðir til að spara oliu bæru árangur, en varaði við, að ef vetur yrði harður, myndi þurfa að gripa til harkalegra aðgerða til að spara olíu. — Grikkland Framhald af bls. 1 ar eftir stjórnmálalegri ró og stöð- ugleika fremur en róttækum breytingum í efnahags- og stjórn- málum landsins. Karamanlis var ómyrkur i máli í kosningabarátt- unni, er hann varaði Grikki við þeim hættum sem framundan gætu verið og hann lagði mikla áherzlu á, að aðeins styrk stjórn gæti komið í veg fyrir að herfor- ingjaklika gæti hrifsað til sin völdin á nýjan leik. Meðal þekktustu frambjóðenda vinstri flokkanna, sem ekki náðu kosningu, voru þau Melina Mercuri og Mike Theodorakis, sem bæði voru i framboði i Pirreus. Formenn andstöðuflokkanna lýstu þvi yfir, er úrslitin voru kunn, að kjósendur hefðu fallið í þá gildri að trúa þvi að flokkur Karamanlis væri eini flokkurinn, sem gæti hindrað að herforingj- arnir hötuðu kæmu aftur fram á sjónarsviðið. Mavros sagði að sú áróðurslina Karamanlis hefði ráð- ið úrslitum, svo og klofningur i sínum flokki, er Andreas Papandreous gerðist leiðtogi Samgríska sósíalistaflokksins. Mavros sagði að það ástand sem nú hefði skapast væri aðeins millibilsástand. Papandreous tók i sama streng varðandi kosningaáróður Kara- manlis, en sagði að úrslitin hefðu valdið sér vonbrigðum. Hann sagði hins vegar að töluverður fjöldi griskra kjósenda hefði látið í ljós vilja til að láta framkvæma stefnu sósialista i landinu. Hrakfarir kommúnista I kosn- ingunum hafa vakið hvað mesta athygli, en þeir fengu innan við 10% atkvæða og segja stjórnmála- fréttaritarar að þessi úrslit rétt- læti ákvörðun Karamanlis um að leyfa flokknum að starfa á ný eftir að hafa verið i banni í 27 ár. 5,8 milljónir voru á kjörskrá i Grikklandi, en skylda er að fólk á aldrinum 21—70 ára neyti kosn- ingaréttar sins. Karamanlis hefur heitið þvi að beita sér fyrir umfangsmiklum breytingum á stjórnarskrá lands- ins og verður sú fyrsta undirbúin er þjóðaratkvæðagreiðsla um framtíð konungdæmis í Grikk- landi verður haldin 8. desember n.k. Karamanlis hefur forðast að taka afstöðu i málinu, en hefur sagt að griska þjóðin verði sjálf að taka ákvörðunina. Þó er vitað að hann vill að komið verði á stofn lýðveldi, þar sem forsetinn verð- ur valdamesti maður landsins og hyggst hann sjálfur bjóða sig fram, ef slík verða úrslit þjóðarat- kvæðagreiðslunnar. — Viktor Borge Framhald af bls. 28 þetta er meðfæddur eiginleiki eins og svo margt annaS, eitt af því sem ekki verSur Isert. Sumir hafa mikla tækni og geta geystst meS drama- tlskum áhrifum um hljómborSiS — en hafa kannski ekki góSan tón, og njóta sln þá e.t.v. ekki I veikum leik. Ýmislegt annaS bar á góma I sam- taiinu, sem of langt yrSi aS rekja. m.a. afstaSa hans til bama — hann hafSi viS orS á hljómleikunum, aS hann hefSi andúS á börnum en sýndi svo allt annaS I samtaii sfnu viS þau — einnig ást, þetta útjaskaSa hug- tak. sem svo margir sveipuSu hræsn- isfullu fórnarhjali en væri I raun og veru runnin aS hreinni eigingirni. „MaSurinn elskar sjálfan sig fyrst og fremst — og aSra sjélfs sln vegna. Hann aShyllist eitthvaS, dáir eitt- hvaS og girnist þaS vegna þess, aS hann telur sjálfan sig betur kominn meS þvl aS eignast þaS. Og viS ræddum um eigingirni manneskj- unnar, sem hann sagSist telja hennar sterkasta afl. „Jafnvel I góS- gerSarstarfsemi er eigingirnin meginhvötin," sagSi hann, „fólk gefur af þvl þaS hefur sjálft af þvl ánægju — og þaS er ágætt. Sumir gefa opinskátt, vegna þess aS þeir hafa ánægju af þvl, aS lýSum sé Ijóst. hve góSgjarnir þeir eru; aSrir án þess aS láta nafns slns getiS vegna gleSinnar yfir aS gefa án þess aSrir viti — en trúSu mér til, meS- vitaS eSa ómeSvitað liggur aS baki ósk eSa hugmynd um aS búa I hag- inn fyrir sig hinum megin. aS ónafn- greind gjöf sé guSi þóknanleg." Borge sagSist ekki hugsa mikiS um trúmál — þaS væri til svo lltils aS velta þvl fyrir sér, hvort Iff væri eftir þetta líf og hann hefSi ekki tekiS til þess afstöSu. „LffsviShorf mitt er ákaflega einfalt." sagSi hann, „ég llt á mennina llkt og Ijósaperur. ViS erum öll tengd viS orkugjafa og gefum Ijós, sum lltil, aSrir sterk. enn aSrir allt þar á milli. Oft eru aSstæSurnar þannig, aS skin hinna einstöku Ijósa njóta sln ekki sem skyldi, en það er annaS mál. Ljósin sklna misjafnlega lengi og sá dagur kemur aS þau slökkna, öll — og þar meS búiS? Ekki veit ég þaS." — Lánakjör- mb) Framhald af bls. 40 Búnaðarbankans undanþegin verðtryggingu. Almennir vextir stofnlánadeildaripnar eru nú 12%, en voru 8,5%. Verðtrygging á lánum frá Fisk- veiðasjóði, sem voru hærri en 500 þúsund krónur voru að 1/10 hluta vísitölutryggð miðað við vísitölu byggingarkostnaðar. Þessi regla er óbreytt, þegar um kaup á fiski- skipum er að ræða, en sé lánað til frystihúsa eða vinnslustöðva eru 25% lána verðtryggð. Þá hækka vextir um 3,5% á lánum úr sjóðn- um og verða 9% á lánum til skipa- kaupa, en 10,5% á lánum til frystihúsa og vinnslustöðva. Utlán Iðnlánasjóðs til bygginga voru verðtryggð fyrir. 25% láns- ins voru verðtryggð miðað við byggingarvísitölu, en nú mun helmingur lánsfjárupphæðarinn- ar verða vísitölutryggður. Vextir hækka einnig á byggingalánum úr 11% í 12,5%. Þá hækka vextir af vélalánum úr 11,5% i 13%. — Sjávarútvegur Framhald af bls. 38 slikri hækkun fyrst í stað, en seinna mundi fiskverð hækka aftur þar sem margir sjómenn mundu neyðast til þess að hætta störfum. Jafnframt hefur J.G. Fulton, fulltrúi sjávarútvegsins i Skot- landi kvartað yfir þvi að sjómenn frá Islandi, Noregi og Færeyjum stundi síldveiðar við Hjaltlands- eyjar og selji aflann í breskum höfnum á sama tíma og veiðar Breta þar hafi verið stöðvaðar þar sem þeir hafi að mestu fyllt upp sinn kvóta, sem sé minni en kvóti útlendinganna. Formaður félags er kallast Fisheries Organistations Society, Greville Howards ofursti, heldur því enn fremur fram að rússnesk- ir og pólskir togarar ógni fisk- stofnum við suðvestanvert Bret- land með „ryksuguaðgerðum". Laing hvatti jafnframt til endurskoðunar á fiskimálastefnu Efnahagsbandalagsins. Hann sagði að þar sem Bretar gætu ekki beitt sjómenn aðildarlandanna misrétti mundi 200 mílna út- færsla bitna á brezkum sjó- mönnum. — Dr. Kjartan Framhald af bls. 40 mannskjör komu tvær tillögur frá nefndinni þ.e.a.s. um dr. Kjartan Jóhannsson og Eggert G. Þor- steinsson. Flokksstjórn Alþýðuflokksins er skipuð 56 mönnum. Sex æðstu embættismenn flokksins eru kjörnir sérstaklega eins og að ofan greinir. Þá eru kjörnir 30 menn úr einstökum kjördæmum og voru þeir allir sjálfkjörnir. Síðan eru kjörnir í almennum kosningum 20 menn til viðbótar. Alls voru 63 i framboði við kjör þessara 20 flokksstjórnarmanna. Af þeim, sem féllu, má nefna auk Björgvins Guðmundssonar, Sig- urð Ingimundarson, Björgvin Sig- hvatsson, Jón Axel Pétursson, Óskar Hallgrimsson og Ragnar Guðleifsson, sem allir hafa setið i flokksstjórninni um árabil. Kosn- ingu hlutu: Árni Gunnarsson, Magnús H. Magnússon, Asgeir Jóhannsson, Jón Þorsteinsson, Haukur Helgason, Jóhann Möller, Sigurður Guðmundsson, Vil- mundur Gylfason, Örlygur Geirs- son, Finnur Torfi Stefánsson, Bragi Sigurjónsson, Sigþór Jóhannsson, Helgi Skúli Kjartansson, Baldvin Jónsson, Jón Sigurðsson, Arnbjörn Krist- insson, Stefán Gunnlaugsson, — Lítið brot Framhald af bls. 27 fimmtán manna sem sóttu málið gegn einum séu þar ekki útfærð- ar. Á öórum stað í bréfi Guðmund- ar Öla segir hann orðrétt: „þá kynni að vera til sú barnatrú, sem væri svo sérgóð og lítið kristin að hún vildi aðeins leggja net sín til fiskidráttar i eigin þágu og alls ekki veita öðrum minnsta hlut í gjöfum Guðs“. Já nærri er nú höggvið sumum. Ætli barnatrú sr. Halldórs hafi verið þessi? Þá fer nú að skiljast hvers vegna prófessorar Háskólans tættu hana af honum að sjálfs hans sögn, og þá skilst líka þeir þegja yfir þeim þætti greinar Vig- fúsar er að þeim lýtur. Það skyldi þó ekki vera að séra Halldór sé farinn að tina til ein- hverja hnullunga í stað þeirra sem hann sá á bak og sé byrjaður að byggja aftur upp sinar fyrri trúarskoðanir og sé orðinn leiður á hinum nöktu kirkjuveggjum? — Það furðulega við „bréf- korn“ Guðmundar Óla er þó það að hann reynir hvergi að gagn- VEGNA viðtals við hjónin Helgu Kristjánsdóttur og Arnór Sigur- jónsson i Morgunblaðinu fyrir nokkru kom Helga aó máli við blaðið og baðst leiðréttingar á því, að foreldrar Stephans G. Stephanssonar hafi dvalið á Mýri í Bárðardal á árunum 1870—1873. Þann tíma dvaldi Stefán G. 1 Mjöadal, sem var bær fyrir innan Mýri, en nú í eyði, hjá Jóni, frænda föður Helgu, og Sigur- björgu, föðursystur hennar. Varðandi nokkur önnur atriði i viðtalinu vill Helga taka fram, að það, sem segir um dagbókarskrift- ir hennar, sé einkum minningar frá starfsemi hennar i kvenfélags- og heimilisiðnaðarmálum fyrr á árum, en ekki um atburði liðandi stundar. Þá segir Helga einnig um dag- bókarskrif sín, að maður sinn fái aldrei annað en tímaákvarðanir úr dagbókum hennar. Hún tekur fram viðvikjandi bókasafninu i Ási, að þar hafi verið rúmlega þúsund bindi, þegar þau hjónin tóku við umsjón þess i byrjun maímánaðar sl. Seinna bættust við nokkur hundruð ágætra bóka. Helga getur þess að gefnu tilefni, að hún hafi aðeins einn mann i enskutima og segir ennfremur um önnur atriði: „Hér vinn ég engin húsverk, ég sé aðeins um morgunverð okkar hjóna og bý um rúrnin. Ég les aldrei iþróttafréttir eða hlusta á þær, en það gerir maðúrinn minn. Ekki veit ég, hvaða bók „I for- Guðríður Eliasdóttir, Gunnar Eyjólfsson og Björgvin Vilmundarson. Á þinginu var samþykkt að kjósa fimm manna nefnd til þess að endurskoða stefnuskrá flokks- ins og hugmyndafræði. Tillögur nefndarinnar á að leggja fyrir aukaflokksþing, sem halda skal á næsta ári. 1 þessa hugmynda- fræðinefnd voru kjörnir Vil- mundur Gylfason, Árni Gunnars- son, Finnur Torfi Stefánsson, Helgi Skúli Kjartansson og Jón Þorsteinsson. Þá samþykkti flokksþingið viljayfirlýsingu um að taka upp forkosningar við val á fram- bjóðendum flokksins við alþingis; bæjar- og sveitarstjórnarkosn- ingar. Flutningsmenn voru Vii- mundur Gylfason o.fl. Ennfremur var samþykkt að kjósa sérstakt verkalýðsmálaráð á flokksþing- inu, en starfsemi þess hefur legið niðri undanfarin ár. Á flokksþinginu voru sam- þykktar breytingar á flokks- stjórninni í því skyni að fjölga í forystusveit flokksins eins og það var kallað. Áður voru sérstaklega kjörnir i flokksstjórn: formaður, varaformaður og ritari. Eftir breytinguna eru sérstaklega kjörnir: Formaður, ritari, gjald- keri, varaformaður, vararitari og varagjaldkeri. rýna grein Vigfúsar, en þess í stað bregður honum um heift og ódrengskap. Þar kemur vopnið allnærri þeim er leggur. Ég held honum sé hollt að lesa 234—237. grein xxv. kafla refsi- laga áður en hann tæki svona til orða aftur. Svona níðhögg lýsa oft betur þéim sem sendir en þeim sem höggið á að fá. Annars væri fróðlegt að fá að vita hvar og hverjir þessir ein- földu prestar eru sem náttúru hafa til lýðskrums og Guðmundur Óli óttast mest að ekki kunni að þegja og tækju nú opinbert og upp úr þurru til við að berja á stétt sinni og samherjum, eins og Guðmundur Oli orðar það. Við hvað er maðurinn hræddur? Á að múlbinda alla presta nema þá kannski hempuklædda hrossa- bændur? Ef svo er væri illa farið. Því miður hefur Guðmundur Öli Ólafsson ekki getið staðar síns né stöðu, vona ég því að hann mis- virði ekki við mig, þó ég nefni hann aðeins skirnarnafni án nokkurs titils. Virðingarfyllst, Berjanesi 26.10.1974. Andrés Andrésson sæiudal" er og ég hef aldrei lesið hana.“ Helga Kristjánsdóttir bætir sið- an við: „Fyrst tilefni gefst hefi ég ánægju af að rifja upp dvöl mina hér og aðstöðu i Dvalarheimili aldraðra i Ási í Hveragerði. Innan dyra lætur stofnunin gera allt, sem við þurfum með fyrir okkur, svo sem að gera hreint og ryksuga. Þvottinn fáurn við heim til okkar þveginn, strok- inn og viðgerðan. Utan dyra er allt snyrt og þrifið, séð um blórn runna og grasbala. A vetrum er mokaður snjór af stéttum, oft dag- lega í snjóatið. Hér eru tvær glæsilegar setu- stofur, í sambandi við borðstof- urnar, sín i hvoru húsi. Þar liggja blöð frammi og þar eru útvörp og sjónvörp, sem þeir geta notið, sem vilja. Póst fær maóur við mat- borðið og eigin blöð, þeir, sem þau kaupa. Hárgreiðsla, rakstur og fóta- snyrting er hér ókeypis fyrir vist- fólkið. Svo er hér hjúkrunarkona og ókeypis lyf og læknishjálp. Fæði er hollt og gott og veizlu- matur um helgar og hátiðir. Ég hef aldrei fundið mig frjálsari en hér. Við getum bland- að geði við aðra þegar við viljurn, en höfurn fullkomið næði og njót- um þess eftir vild. Þökk sé þeini, sem gera okkur kleift að búa við slíkar aðstæður i ellinni," segir Helga Kristjáns- dóttir að lokum. Athugasemd vegna viðtals — og fáein orð um As í Hveragerði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.