Morgunblaðið - 19.11.1974, Page 40

Morgunblaðið - 19.11.1974, Page 40
nucivsmcnR <±t ,^22480 ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1974 1250 þús. króna sekt Afli og veiðarfæri upptæk að verðmæti 5,3 milljónir IJm hádegisbil á laugardag skar varðskipið Þór á togvfra vestur-þýzka skuttogarans Flensburg SK 124, þar sem skipið var að veiðum 10 sjómflur innan fiskveiðitakmarkanna á Halanum. Skip og 'oátar, sem orðið höfðu þýzkra togara varir á þessum slóðum létu Landhelgisgæzluna vita og var varðskip raunar Iagt af stað á svæðið áður cn tilkynningar fslenzku skipanna bárust. Annar þýzkur togari var á sömu slóðum, en hffði og sigldi á haf út, er hann sá, hvernig fór fyrir félaga hans. Myndin er tekin, þegar Þór klippti. DOMUR f máli skipstjórans á skuttogaranum Snorra Sturlusyni RE, er tekinn var á laugardags- kvöld að meintum ólöglegum veiðum á alfriðaða svæðinu norð- ur af Kögri, var kveðinn upp við bæjarfógetaembættið á Isafirði f gær klukkan 16. Skipstjórinn, sem ekki viðurkenndi mælingar varðskipsins og kvað þær stangast á við sfnar mælingar, var dæmdur f 1.250 þúsund króna sekt f Land- helgissjóð, en afli og veðarfæri, sem metin voru á 5.294,- krónur voru gerð upptæk. Síðdegis á laugardag kom varðskipið Þór að Snorra Sturlu- syni, togara Bæjarútgerðar Reykjavíkur, og samkvæmt mæl- ingum varðskipsins var togarinn að veiðum innan áðurnefnds friðaðs svæðis. Þór tók togarann inn til Isafjarðar, þar sem málið var tekið fyrir. Við vitnaleiðslur komu fyrir dóminn skipherra varðskipsins og þrfr stýrimenn, skipstjóri togarans, Guðbjörn Jensson og 1. stýrimaður hans. Guðbjörn benti á að mælingar varðskipsins stönguðust á við Hert lánakiör frá stofnlána- _ V a 5% og jafnframt varð sú breyl ™ J m * á, að 30% af lánsupphæð sjooum atvinnuvega SAMKVÆMT heimild bráða- birgðalaga nr. 28 frá 21. maí 1974, sem síðar hafa verið staðfest af Alþingi, er rfkisstjórn heimilt að ákveða lánakjör stofnlánasjóða atvinnuveganna. Hefur rfkis- stjórnin nú með bréfi dagsettu 17. október falið Seðlabanka Is- EITT IIIINORAt) ÍOO Einn hinna þriggja seðla án númera og undirskrifta sem komizt hafa f umferð. Ljósm. Mbl. Friðþjófur. Seðlar án númera og undirskrifta í umferð VEGNA mistaka seðlaprent- smiðju f London, sem Seðlabanki tslands skiptir við, hafa á undan- förnum dögum komizt hér f um- ferð 100 króna seðlar sem vantar á númer og undirskriftir. Að sögn Sigurðar Arnar Einarssonar, skrifstofustjóra Seðlabankans, veit bankinn um 3 slfka seðla. Sigurður Örn sagði ennfremur, að ekki væri vitað um dæmi þess að svona seðlar hefðu áður komizt f umferð hér á landi. Erlendis hef- ur þetta einstaka sinnum komið fyrir, og f siíkum tilfellum hafa seðlarnir orðið mjög verðmætir. Sigurður Örn sagði, að 100 seðl- ar væru i hverju seðlabúnti. Vegna mistaka í prentsmiðjunni hefði einn seðill til viðbótar farið i búntið, og væru seðlarnir því 101. Hann sagði, að þarsem seðill- inn væri ónúmeraður og óundir- skrifaður, teldist hann ekki útgef- inn af bankanum, þótt hann væri frá honum kominn. Fyrir bank- ann væri hann einskis virði, þótt safnarar litu kannski öðrum aug- um á hann. Sigurður Örn sagði að lokum, að búið væri að hafa samband við seðlaprentsmiðjuna í London, og væri málið nú i at- hugun. Þá hafði Mbl. samband við þekktan myntsafnara. Hann sagði, að mjög erfitt væri að geta til um verðmæti seðlanna, það færi eftir þvi hver margir kæm- ust í umferð. Myntsafnarafélagið héldi uppboð mánaðarlega, og væri það eini ákvörðunaraðilinn. Safnarinn sagði að iokum, að er- lendis kæmu svona afbrigði af og til á uppboð, og næðu þeir oft mjög háu verði. lands að tilkynna breytingu á lánakjörum Stofnlánadeildar landbúnaðarins, Fiskveiðasjóðs og Iðnlánasjóðs. Hefur hluti lána verið vfsitölutryggður og vextir hækkaðir. Áður hafði fyrrverandi ríkisstjórn ákveðið að vfsitöiu- tryggja hluta af útlánum Bygg- ingasjóðs rfkisins og hækka vexti. Með bréfi, sem sent var um mánaðamótin júní/júlí ákvað fyrrverandi ríkisstjórn hækkun vaxta húsnæðismálalána úr 4% í breyting var verðtryggt miðað við bygginga- vísitölu. Eins og áður segir hefur núverandi ríkisstjórn nú með bréfi, ákveðið að verðtryggja 25% af lánsfjárhæð frá Stofnlánadeild landbúnaðarins og er miðað Við byggingavísitölu. Nær verðtrygg- ingin til lána, sem fara til íbúðar- húsabygginga, vinnslustöðva, ræktunarsambanda, verkstæða og annarra hliðstæðra málaflokka. Undanþegin verðtryggingu eru lán til almennra fjárfestinga bænda, þ.e.a.s. til ræktunar, úti- húsabygginga, dráttarvélakaupa, bústofnskaupa, gróðurhúsa og einnig eru útlán Veðdeildar Framhald á bls. 39 mælingar sínar, en einnig kom fram að á þessum slóðum væri mjög erfitt um vik meó staðar- ákvörðun, þar sem svæðið væri mjög djúpt úti eða um 40 sjómílur frá landi. Útgerð skipsins setti í gær tryggingu fyrir afla og veiðar- færum skipsins og lét það úr höfn við svo búið. Dómari i málinu var Þorvarður Þorsteinsson bæjar- fógeti, en meðdómendur voru Símon Helgason, fyrrum skip- stjóri og Guðmundur Guðmunds- son, fyrrum skipstjóri. Flokksþing Alþýðuflokks: Dr. Kjartan felldi BENEDIKT Gröndal var kjörinn formaður Alþýðuflokksins á þingi flokksins sl. sunnudag. Rit- ari Alþýðuflokksins var kjörinn Björn Jónsson, forseti A.S.l. Björn fékk 77 atkvæði en Jón Þorsteinsson 46 og Björgvin Guðmundsson 7. Dr. Kjartan Jóhannsson var kjörinn varafor- maður með 84 atkvæðum, en Eggert G. Þorsteinsson, fyrrver- andi ritari Alþýðuflokksins, fékk 48 atkvæði. Við kjör f flokks- stjórn, sem skipuð er 56 mönnum, gerðist það m.a., að Björgvin Guðmundsson, borgarfulltrúi Alþýðuflokksins, féll með miklum atkvæðamun ásamt fleiri forystumönnum. Við formannskjör var Benedikt Gröndal einn í kjöri. Hann fékk 121 atkvæði, Jón Þorsteinsson fékk 3, Örlygur Geirsson fékk 1 og Björgvin Guðmundsson fékk 1 og auðir seðlar voru 13. Gjaldkeri Alþýðuflokksins var kjörin Kristín Guðmundsdóttir, for- maður Landsambands Alþýðu- flokkskvenna, með 107 atkvæðum. Garðar Sveinn Árna- son fékk 28 atkvæði. Vararitari var kjörinn Karl Steinar Guðna- son meó 126 atkvæðum. Vilmund- ur Gylfason, Ólafur Harðarson og Jón Þorsteinsson fengu eitt at- kvæði hver. Varagjaldkeri var kjörinn Eyjólfur Sigurðsson með 116 atkvæðum. Auðir seðlar og ógildir voru 20. Vilmundur Gylfa- son, Jón Þorsteinsson og Elin Eggert Guðjónsdóttir fengu eitt atkvæði hvert. Svokölluð nefndarnefnd flokksþingsins gerði tillögur um menn í æðstu stjórn flokksins. Formaður nefndanefndar var Gylfi Þ. Gíslason. Allar tillögur nefndarinnar voru samþykktar eins og að ofan greinir, að þvi undanteknu, að við varafor- Framhald á bls. 39 Gengishækkun gagnvart dollar GENGI islenzkrar krónu breyttist gagnvart Bandaríkja- dollar um helgina. Við sfðustu skráningu krónunnar fyrir helgi, föstudag, var sölugengi dollars 118,10 krónur, en þegar gjaldeyrisdeild bankanna skráði gengi klukkan 13 í gær var sölugengi dollarsins fallið niður í 117,40 krónur. Þvf hefur orðið gengishækkun krónunnar gagnvart dollar, sem nemur 0,59%. Eins og margoft hefur komið fram í fréttum er gengi krónunnar fljótandi sem kallað er. Bandaríkjadollar hefur undanfarna viku staðið höllum fæti á alþjóðagjald- eyrismörkuðum og hefur það nú komið fram á gengisskrán- ingu hériendis. Kaupgengi doll- arsins er nú sléttar 117 krónur. Síðast þegargengi krónunnar breyttist var það 9. október sið- astliðinn og hækkaði þá krónan um 0,51%. Hækkun krónunnar gagnvart dollar nemur þvi 1,1% á siðustu 5 vikum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.