Morgunblaðið - 07.12.1974, Síða 12

Morgunblaðið - 07.12.1974, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1974 Hörður Einarsson: Það hefur lengi verið eitt um- deíldasta atriði i stjórnmálabar- áttunni, hér á landi sem annars staðar, hver vera skuli afstaða ríkisins til atvinnustarfseminnar í þjóðfélaginu. í flestum vest- rænum lýðræðisríkjum hefur verið fylgt þeirri meginstefnu, að einstaklingar og félög þeirra hafi frelsi til atvinnustarfsemi. Þessi frjálsræðisstefna í atvinnumálum kemur m.a. fram i 69. gr. íslenzku stjórnarskrárinnar, þar sem sú meginregla er orðuð, að engin bönd megi leggja á atvinnufrelsi manna. í sósíaliskum ríkjum hefur ann- arri stefnu verið fylgt, þeirri, að atvinnustarfsemi skuli vera í höndum ríkisins sjáifs. Þriðja meginstefnan i þessum efnum er svo atvinnumálastefna fasismans og nazistanna, en í þeim ríkjum, þar sem þessi stefna hefur ráðið, hafa einstaklingarnir og félög þeirra að visu fengið að eiga atvinnufyrirtæki, en orðið að lúta ströngu eftirliti og umsjá handhafa ríkisvaldsins. Hér á landi hafa áhangendur síðast- nefndu stefnunnar þó ekki kallað hana sínu rétta nafni, heldur skírt hana skipulagshyggju eða „samræmingu". Ekki þarf að fara mörgum orð- um um það, hver þessara stefna hefur leitt til mestrar farsældar fyrir borgarana. í ríkjum frjáls- ræðisstefnunnar hefur hagvöxtur til langframa orðið mestur og lifs- kjör borgaranna bezt. 1 þeim ríkj- um hefur líka dreifing efnahags- valdsins verið víðtækust, svo að hvorki ríkisvald né aðrir einstak- ir aðilar hafa í krafti fjármála- valds náð að brjóta borgarana undir veldi sitt gagnstætt því, sem við þekkjum frá þeim ríkj- um, þar sem ríkisvaldið hefur öll tök á atvinnulífinu í skjóli eignar- réttar síns eða allsherjarforsjár. Frjálsræðisstefna í efnahags- og atvinnumálum er þannig for- senda lýðræðislegra stjórnar- hátta. Hér á Islandi hefur Sjálfstæðis- flokkurinn verið kyndilberi frjálsræðisstefnunnar. Hún hefur verið grundvöllur stefnu hans og starfs. Á siðasta stjórnartímabili sínu, viðreisnartímanum, tókst flokknum að létta af íslenzku þjóðinni fargi ýmiss konar leyfa- og nefndakerfis, sem þá hafði um langt skeið hvílt á athafnalifinu eins og mara. Þáverandi forystu- menn flokksins, sem líka höfðu kynnzt boða- og bannakerfinu af eigin raun, lýstu því þá oft með eftirminnilegum hætti, hver um- skipti til batnaðar hefðu orðið í stjórnmálalífinu, þegar frjáls- ræðisstefnan var tekin upp á ný, því að þá þurftu stjórnvöld ekki lengur að helga starfskrafta sína sifelldri „úthlutunarstarfsemi“, sem i raun og veru hefðu verið ákvarðanir um það, „hver mætti lifa og hver mætti deyja“. EINOKUNARSTEFNAN Sjaldan hefur verið brugóið upp gleggri mynd af andstæðum ríkisforsjárstefnunnar (skipu- lagshyggjunnar) og frjálsræðis- stefnunnar heldur en þeirri, sem Bjarni Benedíktsson brá upp í áramótagrein í Morgunblaðinu 31. desember 1965. í greininni sagði ni.a.: „Löngum heíur verið talið, að sagan af Hólmfasti Guðmunds- syni, hjáleigumanni á Brunna- stöðum, skýrði betur niðurlæg- ingu Islendinga á einokunartím- unum og orsakir eymdar þeirra, eri Itarlegar frásagnir af lagaboð- um og þjóðháttum. Að sögn Jóns Aðils í Einokunarsögu hans, gerði Hólmfastur „sig sekan I því ódæði aö selja í Keflavík 3 löngur, 10 ýsur og 2 sundmagabönd árið 1698 í stað þess að láta Hafnar- fjarðarverzlun sitja fyrir kaup- unum. Var hann hýddur við staur i návist Múllers amtmanns fyrir þetta tiltæki, af því hann átti eigi annað upp í sektirnar en gamalt bátskrifli, sem kaupmaður vildi eigi líta við.“ Með svipuðum hætti varpa málaferli valdstjórnarinnar gegn Ingvari Guðjónssyni, sem frá er greint í Hæstaréttardómum árs- ins 1941, siðu 38 o.s.frv., ljósi yfir stjórnarhætti á árunum fyrir síð- ari heimsstyrjöldina." Síðan rekur Bjarni nokkuð frásögn dómsins, en brot Ingvars var í því fólgið, að hann keypti hingað til lands fiskiskip og greiddi það að nokkru leyti á árinu 1938 með gjaldeyri, sem hann fékk vegna síldarútflutnings á þvi ári. Hins vegar fékk Ingvar ekki heimild gjaldeyrisyfirvalda til kaupanna og ráðstöfunar á gjaldeyri fyrr en á árinu 1939 og hagnaðist því um nokkur þúsund krónur vegna gengislækkunar, sem gerð var 1939. Var því dæmt, að Ingvar hefði gerzt brotlegur við gjald- eyrislögin frá 1937, og var hann af þessum sökum dæmdur í 1.500.00 króna sekt í rikissjóð, og skyldi koma 45 daga varðhald í stað sekt- arinnar, ef hún greiddist ekki á tilskildum tíma. Að lokinni frásögninni af mála- ferlunum af Ingvari Guðjónssyni segir Barni Benediktsson í grein sinni: „Ekki verður um það deilt, að Hólmfastur Guðmundsson og Ingvar Guðjónsson höfðu báðir brotið á móti landslögum. Fyrir einvaldskonunginn danska, sem lögfesti einokunina, og Eysteini Jónssyni, sem bar stjórnskipulega ábyrgð á gjaldeyrislögunum frá 1937 og var viðskiptamálaráð- herra, þegar Hermann Jónasson hóf málareksturinn gegn Ingvari Guðjónssyni, hefur og áreiðan- lega fyrir báðum vakað það, að verða Islandi að gagni. Einok- unar- og haftapostularnir eru og hafa ætíð verið sannfærðir um, að án þeirra forsjár muni allt fara úr skorðum. Um hörmungar einokunarinnar þarf ekki að ræða. Allir þykjast nú i orði kveðnu sannfærðir um, að þær hömlur og höft, sem þá voru í góðu skyni lögð á landsfólk- ið, hafi haft þveröfug áhrif og valdið miklu um þá afturför, sem hér varð öldum saman og nærri hafði leitt til landauðnar. En var það nokkru skynsam- legra að elta menn með lögsókn á árinu 1939 fyrir það, að hafa án nægilegrar heimildar ráðstafað fé til kaupa á fiskiskipi til landsins? Að vísu var það borið fyrir, að kaupandi hefði hagnazt nokkrar þúsundir á því að hafa borgað hluta af skipinu fyrr en leyfið heimilaði loksins, þegar það fékkst og þar með tryggt sér skipið nokkrum mánuðum eða misserum fyrr en ella. Menn hljóta þó að velta því fyrir sér, hvort á þessum árum hafi verið slíkur ofvöxtur í skipakaupum Is- lendinga og skortur á sjó- mönnum, að ástæða hafi verið til að hundelta þá, sem vörðu fé sinu til að auka fiskiflota þjóð- arinnar.“ 1 framhaldi af þessu gerir Bjarni Benediktsson grein fyrir þvi. hve vöxtur fiskiskipastólsins var miklu meiri á frjálsræðis- árunum 1959—1964 heldur en á löngu timabili þar á undan og segir siðan: „Oft er sagt og vissulega með réttu, að veðurfar, gróður og fiski- göngur séu ekki að þakka ríkis- stjórn. Gamalkunnugt er, að jafnt rignir á réttláta sem rangláta. En ríkisstjórn ræður því, hvernig hún bregst við atburðunum. Treystir hún eingöngu á forsjá sína og bannar þegnunum að bjarga sér eftir því sem þeirra eigin vit og þroski segir til um? Eða treystir hún fyrst og fremst á frumkvæði, manndóm og dug borgaranna og telur skyldu sína að greiða fyrir framkvæmdum þeirra, en leggur ekki á þær höml- ur og hindranir? Aukið lánstraust þjóðarinnar erlendis og athafnafrelsi, fyrir- greiðsla til handa borgurunum um lánaútveganir, ekki sízt hjá Fiskveiðasjóði og Stofnlánadeild sjávarútvegsins, eiga sinn mikla hlut að því, að lslendingar hafa nú getað hagnýtt sér fiskigöngur, og þá einkum síldaraflann mun betur en áður. Vísindi, tækni og dugnaður sjómanna og fram- kvæmdamanna hefur fengið að njóta sin vegna frelsisins. Þeim aflvaka framfara og hagsældar megum við aldrei gleyma. An hans hefðu aflabrögð Islendinga orðið lítil siðari árin. Hin ólíka afstaða ríkisstjórna fyrr og siðar hefur verið rakin svo ítarlega vegna þess, að hún lýsir afleiðingunum annars vegar af viðleitninni til að hafa vit fyrir öllum og hins vegar af því að heimila mönnum að hafa vit fyrir sér sjálfir. Ákvörðun rikisstjórn- arinnar að hverfa frá allsherjar- forsjá til frjálsræðis er forsenda þeirra umskipta, sem hér hafa orðið.“ STEFNUBREYTING HJÁ SJÁLFSTÆÐIS- FLOKKNUM? Hér lýkur tilvitnun i grein Bjarna Benediktssonar. Ég hefi rakið hana svo Itarlega, þar sem ég tel þarna lýst viðhorfi Sjálfstæðis- flokksins á siðustu áratugum til ríkisforsjár og einkaframtaks í at- vinnumálum. En nú hafa ný við- horf skotið upp kollinum innan flokksins í þessum efnum, því að svo virðist vera, sem a.m.k. ein- hverjir af forystumönnum Sjálf- stæðisflokksins treysti betur sjálfum sér og þeim mönnum, sem siðar kunna að fá þeirra nú- verandi völd, hvar í flokki þeir standa, til að vera forsjá lands- fólksins í atvinnumálum heldur en landsfólkinu sjálfu. Ríkisstjórnin i heild hefur að frumkvæði sjálfstæðisflokksráð- herra, sjávarútvegsráðherra, lagt fram á Alþingi frumvarp til laga „um samræmda vinnslu sjávar- afla og veiðar, sem háðar eru sér- stökum leyfum“. Efni frumvarps- ins er það, að eftir samþykkt þess skuli þurfa leyfi sjávarútvegs- ráðuneytisins til þess að koma á fót rækjuvinnslu- og skelfisk- vinnslustöðvum, sem og til aukn- ingar á afkastagetu slíkra vinnslustöðva. Fyrirsögn frum- varpsins og röksemdafærsla i greinargerð með þvi bendir þó til, að þarna sé aðeins ætlunin að stíga fyrsta skrefið til stórauk- inna ríkisafskipta af fiskvinnsl- unni í landinu. Ekki þarf nema að fella fjögur orð úr fyrstu grein frumvarpsins til þess að það nái til vinnslu á öllum sjávarafla, sem veiddur er samkvæmt sérstökum leyfum, en það eru margar af þýðingarmestu greinum fiskveiða hér við land. Og ekki þyrfti að bæta nema einni grein inn í frum- varpið til þess að öll fiskvinnsla í landinu væri komin undir út- hlutunarkerfi skrifstofubáknsins. E.t.v. er ekki rétt að gera of mikið úr því, þó að frumvarp þetta hafi komið fram á Alþingi. Það er ekki þar með orðið að lögum. Að minnsta kosti verður því ekki að óreyndu trúað, að nokkur verulegur hluti af þing- mönnum Sjálfstæðisflokksins muni ljá því fylgi sitt, því að nái það fram að ganga, þó aðeins sé í óbreyttri mynd, væri með þeirri lagasetningu stigið stærra skref í átt til ríkisafskipta af atvinnulíf- inu heldur en gert var með nokk^ urri ráðstöfun, sem siðasta vinstri stjórn beitti sér fyrir á sinum óheillaferli. Miklu alvarlegra en framlagn- ing þessa lagafrumvarps er það, að ríkisstjórnin með sjávarútvegs- ráðherra í broddi fylkingar hefur með dæmafáum klunnaskap haft uppi tilburði til þess að fram- fylgja ákvæðum frumvarpsins áður en það er orðið að lögum. Það er orðið landsfrægt, að sjávarútvegsráðuneytið hefur í því skyni að koma i veg fyrir starfrækslu nýrrar rækjuvinnslu- stöðvar á Blönduósi beinlínis bannað tveimur Blönduósbátum, sem stunda rækjuveiðar í Húna- flóa, að láta vinna afla sinn í heimahöfn. Þessar aðfarir minna helzt af öllu á aðfarir einokunar- valdsins gegn Hólmfasti hjáleigu- manni á Brunnastöðum. Hann mátti ekki selja afla sinn í Kefla- vik, heldur átti hann að láta Hafnarfjarðarverzlun „sitja fyrir kaupunum". Á sama hátt er nú reynt að meina Blönduósbátunum að selja afla sinn á Blönduósi, þeir eiga að láta Hólmavik, Hvammstanga eða Skagaströnd „sitja fyrir kaupunum". Að einu leyti ganga þó núver- andi stjórnvöld lengra en danski einvaldskonungurinn. Konungur hafði a.m.k. lagaboð fyrir ofbeld- isaðgerðum sínum, þótt ranglátt væri, en þó að leitað sé með log- andi ljósi um allt íslenzka laga- safnið er þar ekki að finna hina minnstu lagastoð fyrir einveldis- tilburðum hinna innlendu stjórn- arherra. GANGALENGRA EN LÚÐVÍK Það er ekki nóg með, að stjórn- völdum okkar takizt að slá út forna einvaldskonunga í ríkisfor- sjánni. Þeim tekst líka að láta fyrrverandi sjávarútvegsráð- herra, Lúðvík Jósepsson, lita út sem hreinasta krossfara fyrir einkaframtakinu, þegar saman er borið við þau. Á siðasta þingi kom fram fyrirspurn frá Steingrími Hermannssyni til sjávarútvegs- ráðherra, sem m.a. fjallaði um það, hvað sjávarútvegsráðuneytið gæti gert til þess að koma í veg fyrir, að fleiri rækjuvinnslustöðv- ar yrðu starfræktar á Húnaflóa- svæðinu og hvort ráðuneytið hyggðist beita sér gegn sliku. Það kom fram hjá Steingrími, að til- efni fyrirspurnarinnar voru fregnir i fjölmiðlum um væntan- lega rækjuvinnslu á Blönduósi. Lúðvík Jósepsson svaraði þess- ari fyrirspurn á fundi Sameinaðs þings 5. febrúar 1974. Þá sagði Lúðvik m.a.: „Ráðuneytið telur sig ekki hafa vald til þess að banna mönnum að setja á stofn rækjuvinnslustöðvar — og þetta vil ég undirstrika, þvi að um þetta hefur verið rætt all- mikið í ráðuneytinu — ráðuneytið telur sig ekki hafa vald til þess að banna mönnum að setja á stofn rækjuvinnslustöðvar, —„. Og nokkru síðar sagði Lúðvik: „ ... . og það er álit þeirra, sem um þessi mál fjalla í sjávarútvegs- ráðuneytinu, og ég tel einnig fyrir mitt leyti, að það sé i rauninni alveg óvinnandi vegur að kveða upp úr um það, að tilteknir menn eða tiltekin fyrirtæki á ákveðnu svæði skulu sitja einn að afla.“ Það er ekki að furða, þó að almenningi gangi oft illa að átta sig á því, hvað snýr upp og hvað snýr niður í islenzku stjórnmála- lífi. Hverjir eru t.d. hér einka- framtaksmennirnir? Og hverjir gefa sig hér út fyrir að vera alvitr- ingarnir, sem geti haft vit fyrir öllum? ER RÆKJUSTOFNINN í HÆTTU? Sumir þeirra manna, sem gerzt hafa talsmenn bolabragðanna gegn hinni nýju rækjuvinnslu á Blönduósi, halda því fram, að þótt aðgerðir ríkisvaldsins kunni að vera andstæðar lögum, þá séu til þeirra viss málefnaleg rök. Því er t.d. haldið fram, að rækjustofninn í Húnaflóa sé þegar fullnýttur og í bráðri hættu, ef ein vinnslustöð enn tekur til starfa á Húnaflóasvæð- inu. Hér skiptir engu máli í sam- bandi við áganginn á rækjustofn- inn, í hve mörgum vinnslustöðv- um aflinn er unninn. Sjávarút- vegsráðuneytið hefur, lögum sam- kvæmt heimild til þess að ákveða, hve mikið má veiða. Þetta er vald, sem eðlilegt er, að sé i höndum ríkisvaldsins til þess að varna of- veiði, og þar með er með full- nægjandi hætti tryggt, að ekki verði of nærri rækjustofninum gengið. Hvorki bátafjöldi né vinnslustöðvafjöldi skipta i þessu sambandi nokkru máli. Þó að fyrrnefnd fullyrðing sé þannig alveg út í hött, þá er það engu að siður til fróðleiks að huga að því, hvort gengið hafi verið of nærri rækjustofninum í Húnaflóa. Ekkert álit liggur fyrir frá Haf- rannsóknastofnuninni í þessa átt, FRJÁLSRÆÐI EÐA RÍKISFORSJÁ? I tilefni Blönduóssmálsins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.