Morgunblaðið - 07.12.1974, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1974
Iðunn gefur út mynda-
bækur fyrir börn
Samkoma í Fíladelfíu
KOMNAR eru út hjá bókaútgáf-
unni Iðunni eftirtaldar mynda-
bækur fyrir börn:
Tumi fer til læknis og Tumi
bregður á leik eftir Gunilla
Wolde. Bækur fyrir yngstu les-
endurna eftir sænskan höfund
en þær hafa þegar komið út i 10
löndum fyrir utan ísland. Eftir
þessum bókum hafa verið gerðir
sjónvarpsþættir og hafa nokkrir
þeirra verið sýndir i barnatíman-
um i islenska sjónvarpinu undir
nafninu „Tóti“.
Má ég eiga hann eftir Steven
Kelloggs. Bók um lítinn snáða og
ferfætta vini hans. Þessi bók
hlaut alþjóðlega viðurkenningu
sem besta barnabók ársins 1974.
Nýja húsið hans Barbapapa og
Örkin hans Barbapapa eftir
Annette Tison og Talus Taylor.
Þriðja og fjórða bókin um
Barbapapa og fjölskyldu hans.
Fyrri bókin fjallar um hvernig
Barbafjölskyldan leysir húsnæðis
vanda sinn en í síðari bókinni
kynnumst við hvernig hún bjarg-
ar dýrum jarðar frá mengun og
ofveiði. Gerðir hafa verið sjón-
varpsþættir um Barbapapa, sem
teknir verða til sýningar í
íslenska sjónvarpinu.
Töfrahesturinn Glófaxi. Gamalt
rússneskt ævintýri í þýðingu Þor-
steins frá Hamri. Bókin er mjög
fallega myndskreytt af þekktum
hollenskum listamanni, Adrie
Hospes.
SÖNG- og hljómlistarsamkoma
verður haldin í Ffladelffu að
Hátúni 2 næstkomandi sunnudag
kl. 20.
Dagskrá er fjölbreytt.
Fíladelfíukórinn ásamt
karlakór safnaðarins munu
syngja undir stjórn Árna
Arinbjarnarsonar, en
undirleikarar eru Daníel
Jónasson og Marianna
Glad. Lúðrasveit safnaðar-
ins mun koma fram undir
stjórn Sæbjörns Jónsson-
ar. Svavar Guðmundsson
mun syngja einsöng, enn-
fremur munu 6 ungmenni
syngja. Þá mun Árni Arin-
bjarnarson leika á orgel.
Söngsamkoma þessi er
haldin til styrktar orgel-
sjóði safnaðarins.
______________________27_
Nýstárleg barna-
bók Iðunnar
KOMIN er út hjá bókaútgáfunni
Iðunni nýstárleg myndabók fyrir
börn, Selur kemur f heimsókn,
eftir Gene Deitch og Vratislav
Hlavatý. Vratislav Hlavatý, sem
teiknar myndir bókarinnar, hefur
teiknað 15 barnabækur og 1969
fékk hann virta alþjóðlega viður-
kenningu fyrir fallegustu barna-
bók ársins.
í orðsendingu til foreldra aftast
í bókinni segir meðal annars:
í fyrstu virðist þessi bók ekki
vera neitt annað en spaugileg bók
fyrir lítil börn en að lestri loknum
verður ljóst, að hún er í rauninni
fyrsta kynning á máli og málnotk-
un.
Njörður P. Njarðvik þýddi bók-
ina en hún er prentuð i Belgíu.
Með bókinni fylgir plakat.
■jj.tnmiW.1 i.u WJAjJjjMftúU-1 ««»***>
Á þessari mynd eru öll þau heimilistæki, sem við höfum
upp á að bjóða, og á þessari mynd eru flest þau heimilis-
tæki, sem gera má ráð fyrir að heimili hafi þörf fyrir.
_ Kæliskápar, frystiskápar, frystikistur. Hraðsuðukatlar, brauðristar, vöfflujárn
Eldavélar, eldavélasamstæður, grillofn- Pottar, kaffikvörn, sjálfvirk kaffikanna.
ar. Uppþvottavélar, þvottavélar, strau- Rafmagns brauð- og skurðhnífar.
vélar. Hrærivélar ásamt fylgihlutum. Rafmagnsbrýni, rakvélar o. fl.
Hvað sem þig vantar af heimilistækjum, þá liggur leiðin í Heklu
miðstöð með úrval heimilistækja á hagstæðu verði.,
föenwood
Laugavegi 170-172. Sími 21240 og 11687