Morgunblaðið - 07.12.1974, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 07.12.1974, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1974 I minningu skipverjanna á bv. Guðbjörgu En þegar öflugir ungir falia sem sígi í ægi sól á dagmálum. (BThX Laugardagur og síðustu korn nóvembermánaðar voru að renna úr stundaglasi tímans. Mannfjöld- inn á hafnarbakkanum á ísafirði stóð þögull álengdar. Skuttog- arinn Guðbjörg IS var að leggja að landi. Fáni skipsins blakti í hálfa stöng, sem og hvarvetna í bænum. Þetta nýja og glæsilega skíp var að þessu sinni skip sorg- arinnar, hönd dauðans hvíldi yfir. Þrír skipverja voru ekki lengur í tölu lifenda. Að morgni laugardags 30. nóv. s.l. flaug sú helfregn um Isa- fjarðarkaupstað, að daginn áður hefði b/v Guðbjörg orðið fyrir brotsjó er skipið var að veiðum um 50 sjómilur út af Bjargi og þrír skipverja drukknað. Menn setti hljóða. Enn einu sinni hafði maðurinn með ljáinn lostið is- lenzkt sjávarpláss ægi höggi og skilið eftír blæðandi und; enn einu sinni hafði Ægir konungur krafist fórna. Með skipinu voru lík tveggja hinna látnu, einn gisti hina votu gröf. Það er á slíkum stundum, sem við mannanna börn óskum þess eins, að við getum stöðvað hjól timans, já, að við mættum snúa því örlítið til baka og breyta rás viðburða. Við verðum svo óendan- lega smáir og stöndum vanmátt- ugir frammi fyrir óbreytanleik mannlegs lífs. Þrír sjómenn eru skyndilega burtkallaðir frá eigin- konum og börnum, það er klippt á þráðinn og ekkert virðist eftir nema auðnin og tómið, þar er, sem sfgi I ægi sól á dagmálum Guðmundur Gíslason var fæddur á Isafirði 19. maí 1935, sonur þeirra hjóna Gisla heitins Guðmundssonar og Þorbjargar Likafrónsdóttur konu hans. Guðmundi heitnum var sjávar- seltan í blóð borin og ungur að árum tók hann sér stöðu i fram- sveit þeirra, er sækja gull í greip- ar hafsins. Hann var viðurkennd- ur dugnaðar maður að hverju, sem hann gekk. Guðmundur Gíslason var félagshyggjumaður. Hann tók virkan þátt í samtökum stéttar- bræðra sinna og valdist þar til trúnaðar- og forystustarfa. Hann gegndi margvíslegum trúnaðar- störfum innan Sjómannafélags ís- firðinga, varaformaður þess varð hann 1969 og ári síðar formaður og þeirri stöðu gegndi hann til hins síðasta. Þá átti hann sæti í Sjómannadagsráði, húsnefnd Al- þýðuhúss Isfirðinga, fyrir samtök sín sat hann á þingum A.S.V., A.S.I. og sjómannasambandsins. Þá hafði hann um árabil verið varafulltrúi í bæjarstjórn Isa- fjarðar. Guðmundur heitinn var einn f frumkvöðlum þess, að isfirzkum sjómönnum var reistur veglegur minnisvarði s.l. sumar. Bar hann það mál mjög fyrir brjósti og ein- læg var gleði hans er hann sá þann draum sinn rætast. Sem fyrr segir valdist Guð- mundur til forystu í Sjómanna- t Hugheilar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og jarðarför, ÖNNU PÁLSDÓTTUR, Holtahólum. Vandamenn. félagi Isfirðinga. Við leiðarlok eru honum færðar einlægar þakkir fyrir störf hans í þágu félagsins og ísfirzkrar sjómanna- stéttar. Orðum hættir til að verða fátækleg, en af heilum huga er honum nú þakkað samstarf og leiðsögn. Skarð hans verður vand- fyllt, en minning hans mun lifa I sögu félagsins. Hafi hann þökk fyrir öll þau ótöldu störf, sem hann lét félaginu í té. Guðmundur kvæntist eftirlif- andi konu sinni, Rögnu Sólberg, frá Súgandafirði, 31. des. 1964. Þau eignuðust tvö börn, en áður en til hjónabands þeirra var stofnað höfðu þau hvort um sig eignast afkomanda. Stjupson sinn ól Guðmundur upp, sem eigin sonur væri. Ari Auðunn Jónsson var fædd- ur á Hvammstanga hinn 16. ágúst 1933. Foreldrar hans voru þau Jón heitinn Ölafsson, úrsmiður og kona hans Vilborg Guðmunds- dóttir, sem lifir son sinn. Um 17 ára að aldri fluttist hann til Reykjavikur þar sem hann átti heima þar til hann fluttist búferl- um með fjölskyldu sina til lsa- fjarðar í sept. 1973 og hafði hann þvi dvalist hér rúmt ár. Ari heitinn hafði stundað sjó- mennsku yfir tveggja áratuga skeið, verið í siglingum og á tog- urum. Hann var dugandi sjó- maður og vel liðinn af samstarfs- mönnum. Er þar skarð fyrir skildi. Sem fyrr segir var hann nýflutt- ur til Isafjarðar, en eigi að síður hafði hann fest hér rætur, hann hafði byrjað byggingu íbúðarhúss og hér átti framtíðarheimili hans að standa. En skjótt brá sól sumri. Ari kvæntist 8. sept. 1956 Kol- brúnu Sigurðardóttur, Bents- sonar, sem ættuð er frá ísafirði. Lifir hún mann sinn ásamt fjór- um börnum, sem þeim varð auðið. Garðar Jónsson var fæddur á Isafirði 28. sept. 1950 og var því aðeins 24 ára að aldri. Hann var sonur þeirra hjóna Jóns Helga- sonar, matsveins, og Þorgerðar Gestsdóttur, sem búsett eru á Isa- firði. Strax að lokinni skólagöngu fór hann til sjós og stundaði þau störf ætíð síðan. Fyrir hart nær tveim- ur árum varð hann fyrir því slysi við störf á hafi úti, að hnífur hrökk í andlit haris, svo hann missti sjón á öðru auga. Atti hann í langvinnum erfiðleikum sakir þessa, en nú fyrir skömmu virtist lífið blasa við á ný og hafði hann tekið upp fyrri störf, er kallið kom svo óvænt. Er að honum mikill sjónarsviptir og með honum er genginn góður drengur. Hinn 20. nóvember 1971 gekk Garðar að eiga eftirlifandi konu sína Sesselju Ingólfsdóttur frá Bolungarvík. Áttu þau tvö börn, bæði í æsku. t Faðir okkar og tengdafaðir, JÓN SIGTRYGGSSON, fyrrv. dómvörður verður jarðsettur frá Fossvogskirkju mánudaginn 9 desember kl 10 30 Ingibjörg P. Jónsdóttir, Steingrímur Pálsson, Sigurlaug Jónsdóttir, Árni Jónsson, Sigrún Jónsdóttir, Ingólfur Lilliendahl I dag er í fyrsta sinni lagður blómsveigur að minnismerki ís- firzkra sjómanna, „til heiðurs þeim, sem horfnir eru“ eins og letrað er á fótstall styttunnar. Hljóðir stöndum við álengdar og drjúpum höfði. Við drjúpum höfði í hljóðri þökk og bæn. Við biðjum aðstandendum hinna látnu félaga okkar, eiginkonum, börnum, foreldrum og öðrum ætt- ingjum blessunar Guðs. Megi hinn algóði himnafaðir halda sinni mildu verndarhendi yfir þeim og leiða þau og styrkja á ókomnum dögum. Megi minning- in um góða drengi vera þeim huggun i þeirra sára og mikla harmi. Við biðjum hinum látnu félög- um blessunar, er þeir hafa nú lagt út á djúpið mikla. Hafi þeir þökk fyrir allt og allt. Sjómannafélag tsfirðinga. Garðar Jónsson háseti—Minning Fæddur 28. september 1950. Dáinn 29. nóvember 1974 Þegar mér barst sú hörmulega fregn að frænda minn Garðar Jónsson hefði tekið fyrir borð á B/v Guðbjörgu IS 46 ásamt tveim félögum sínum, setti mig hljóðan. Gat það verið að búið væri að taka hann aðeins 24 ára frá ungri eiginkonu sinni og tveim litlum börnum. Garðar Gunnar Jónsson eins og hann hét fullu nafni var fæddur hér á Isafirði. Foreldrar hans voru þau hjónin Þorgerður Gests- dóttir og Jón Helgason matsveinn hér i bæ. Hann hóf ungur sjó- mennsku og stundaði hana til dauðadags, að undanskildu rúmi einu og hálfu ári, því um haustið 1972 varð hann fyrir því slysi við vinnu sína á sjónum að fá hnif í annað augað svo að taka varð það burt og hann varð að vera stöðugt undir læknishendi allan timann. Þær voru margar ferðirnar sem hann þurfti að fara milli ísa- fjarðar og Reykjavíkur I þessum miklu veikindum sinum. Það var honum mikil stoð hvað hann átti elskulega eiginkonu, sem stóð fast við hliðiria á honum i þessum miklu veikindum hans. Hann gekk að eiga Sessilíu Ingólfsdótt- ur frá Bolungarvík og þau gengu í hjónaband 20. nóvember 1971. Þau eignuðust tvær dætur, Helgu sem er 3 ára og Gerði, á öðru ári. Það er mikill harmur kveðinn að ungri eiginkonu og litlu dætr- unum að sjá eftir ungum eigin- manni og föður. Ennfremur er mikill söknuðurinn hjá foreldrum hans og systkinum sem nú verða að sjá eftir ungum syni og bróður. Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka Gæja allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Minning- unni frá okkar bernskuárum mun ég aldrei gleyma. Ég bið guð að geyma frænda minn og styrkja elskulega eiginkonu hans, litlu börnin þeirra, foreldra hans og systkini og aðra aðstandendur í þessari miklu sorg. Gestur Halldórsson. Guðmundur Gísla- son — Minning Fæddur 19. maf 1935. Dáinn 29. nóv. 1974. MIG setti hljóðan er ég frétti um hið hörmulega slys um borð í skuttogaranum Guðbjörgu IS 46, er þrír skipverjar drukknuðu er þeir voru við störf sín, eftir að brotsjór reið yfir skipið. Einn af þessum þremur mönnum var minn góði og tryggi vinur Guðmundur Gislason, sem ég vil minnast með nokkrum orðum. Þar sem ég veit að það var frekar að skapi Guðmundar að láta verkin tala, en að hafa um þau mörg orð mun ég ekki vera langorður. Ég hafði fylgst með ferli hans frá tólf ára aldri, og fljótlega uppúr því þótti mér sýnt hvert stefndi varðandi hans lífsstarf. Enda byrjaði hann mjög ungur á sjónum, og starfaði þar allt til dauðadags. Guðmundur var há- seti á ýmsum skipum héðan frá lsafirði og einnig frá Hafnarfirði til ársins 1958, en þá tekur hann fiskimannapróf hér á Isafirði. Er síðan stýrimaður og skipstjóri á m/b Asbirni eign Samvinnufé- lags Isfirðinga, og í því starfi lágu leiðir okkar fyrst saman i starfi, en ég var þá starfsmaður sama félags á öðrum bát. Síðan höfum við átt náið samstarf í gegnum félagsstörf sjómanna. Við störf- uðum saman i Skipstjóra og stýri- mannafélaginu Bylgjunni i nokkur ár, og nú síðustu árin í sjómannadagsráði Isafjarðar. Siðasta samvinna okkar var í framkvæmdanefnd minnisvarða sjómanna á ísafirði, en því verk- efni lauk er minnisvarðinn var vígður 15. sept. s.l. Við öll störf sín að málefnum sjómanna lagði Guðmundur á sig mikið og óeigingjarnt starf, sem okkur ber að virða og þakka. Það var skemmtilegt að vinna með svo áhugasömum og dreng- lunduðum manni sem Guðmundi, og félagsmál sjómanna áttu hug hans allan. Allir sem til þekkja vita að skoðanir okkar féllu þó ekki saman i þjóðmálum, og oft rædd- um við þau mál hispurslaust, en aldrei urðu þau mál þó til þess að kasta skugga á okkar vináttu eða okkar samstarf vegna þessara mála. Við vorum alltaf sammála um að halda þessum ágreiningi okkar utan við félagsstörf okkar, og ég vil láta þess getið nú að það er ánægjulegt að geta minnst þess að þetta héldum við báðir. Guðmundar Gíslasonar mun ég ætíð minnast sem sérstaks góð- vildarmanns. Mér er vel ljóst að þeir sem þekktu Guðmund lítið gat við fyrstu sýn virst hann hrjúfur í viðmóti, en þegar betur var að gáð var nú samt hlýtt hjarta á bak við. Hann var ávallt reiðubúinn að leggja góóum mál- um lið, og þá sér í lagi þeim er snerta þá sem minna máttu sín í þjóðfélaginu. Ég veit ég mæli fyrir munn okkar allra sem störfuðum með honum bæði í félagsmálum sem öðru, er ég segi að vandfyllt verði í hans starf. En eigi má sköpum renna. Vegir Guðs eru órannsakanlegir. Mest hefur þó misst kona hans og börn, öldruð móðir og aðrir ástvinir. Ragna mín, um leið og ég þakka ykkur alla þá vinsemd sem ég hef alltaf mætt á heimili ykkar, vil ég segja við þig og börnin, minnist alltaf, og takið til eftirbreytni það góða sem var í fari Guðmundar. Að endingu kveð ég þennan góða vin með trega, um leið og ég vil þakka honum fyrir margar ógleymanlegar samverustundir. Minningarathöfn um Guðmund, ásamt jarðarför þeirra tveggja fé- laga hans er fórust með honum fer fram í ísafjarðarkirkju i dag. Ég, kona mín og börn sendum aðstandendum öllum dýpstu sam- úðarkveðjur. Blessuð sé minning þessara góðu drengja. Kristján J. Jónsson. ÉG vil í nokkrum fátæklegum orðum minnast vinar míns Guð- mundar H. Gíslasonar, sem hvarf í hafið djúpt af Jökli á næst síð- astadegi nóvembermánaðar. Hann byrjaði ungur að stunda sjó eins og títt er um margt sjó- mannsefnið, og eftir nokkura ára sjómennsku lauk hann 120 tonna fiskimannaprófi á Isafirði 1958. Var hann síðan skipstjóri eða stýrimaður á ýmsum skipum héðan, ásamt öðrum fleirum störfum á sjó, eftir því sem að- stæður hæfðu honum hverju sinni. Guðmundur mun jafnan verða minnst, sem eins eftirtektarverð- asta manns í ísfirskri sjómanna- stétt. Persónuleiki hans var slíkur, að menn löðuðust ósjálf- rátt að honum. Þegar hann sagði eitthvað þá var eftir því tekið. I kringum hann ríkti engin logn- molla. Oftar en einu sinni heyrði ég hann segja þessi orð. „Það er að þora að vera manneskja". Hann þorði að vera manneskja og segja það umbúðalaust, sem hon- um þótti að. Mér verður það gjarnan minnis- stætt hve unglingar og ungir menn virtust hafa ánægju af ná- vist hans. Aldrei þreyttist hann á því að hvetja unga sjómenn til þess að leita sér menntunar í sambandi vió störf sln. Fáa þekkti ég sem höfðu betra hjartalag til þeirra sem minna máttu sin, enda var hann ávallt fyrstur manna til þess að hvetja til aðstoðar, ef einhver átti i erfið- leikum eða um sárt að binda. Þær voru margar samkomurnar sem hann stóð fyrir til ágóða í hjálpar- skyni við aðra. Guðmundur stóð í fylkingar- brjósti sjómanna hér í mörg ár, enda var hann formaður Sjó- mannafélags Isfirðinga. Þarer nú skarð fyrir skildi sem vandfyllt verður. Konu hans Rögnu, og börnum þeirra Gfsla og Sóleyju, ásamt Rafni stjúpsyni hans bið ég bless- unar á þessum þungbæru timum. Einnig sendi ég móður hans og systkinum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Þann 15. september s.l. var af- hjúpað hér minnismerki fsfirskra sjómanna. Ég held að ég kasti ekki rýrð á neinn, þó ég segi að Guómundur hafi verið aðal hvata- og framkvæmdamaður þessa at- burðar. Megi minning hans lifa í þessu merki ásamt allra þeirra ísfirsku sjómanna, sem farnir eru, að höfum eilífðarinnar. Halldór Hermannsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.