Morgunblaðið - 07.12.1974, Page 39

Morgunblaðið - 07.12.1974, Page 39
 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1974 39 I ÍÞI RÖTT/ iFRÉTTIB Ml »RGUNBLá»SINS | | KR átti stórleik gegn atvinnu- mönnunum en tapaði samt 78:122 ÞAÐ HEFUR oft verið þannig með ísl. fþróttamenn, að þegar við minnstu hefur verið búist frá þeirra hendi, þá hafa þeir sýnt mest. Þannig var það með KR- inga þegar þeir mættu UBSC f síðari leiknum. „Kokteillinn" frá Austurrfki hlaut samt að sigra f leiknum, enda þrautþjálfaðir at- vinnumenn. Þeir sigruðu f ieikn- um með 122 stigum gegn 78 stig- um KR, og það er glæsileg frammistaða að skora svo mikið hjá þessum körlum. Enda var það svo á köflum, að KR-ingar hittu í nær hverju skoti, og skipti þá ekki miklu máli hvernig færið var. Ötrúlegustu skot lengst utan af velli fóru beina leið í körfuna og banda- rísku risarnir voru farnir að svara með því að verja körfuna fyrir ofan svo boltinn kæmist ekki f. Neyóarvörn, — enda fengu þeir ávallt dæmdar á sig körfur af góðum dómurum leiksins sem voru frá Skotlandi og Hollandi. Góð sending frá FIBA — en dýr. Þótt tvo af aðalleikmönnum UBSC vantaði — annar þeirra er víst til sölu vegna agabrots — þá var greinilegt að liðið er geysilega vel þjálfað. Miðherjarnir, blökku- maðurinn Marioneaux kattliðug- ur (2,12), og Taylor (2,14) eins og jarðýta þegar hann var kominn af stað — framherjarnir með stór- skyttuna Pawelka og tékkann Tecka í broddi fylkingar, og bak- verðirnir snöggir og útsjónar- samir. Við þetta réð „litla“ KR að sjálfsögðu ekki. Þeir héldu þó alveg i við þá fram yfir miðjan fyrri hálfleikinn og staðan var 30:24 á 13. min. I hálfieik 51:30. KR lék þennan leik mjög skemmtilega. Vörnin var leikin þannig að skytturnar fengu mikið til næði, en vörninni „pakkað" saman inn á miðjuna. Þetta gafst mjög vel framan af, þótt Pawelka hitti úr hverju skoti, því ef bolt- inn komst í hendur risanna inn á miójunni varð karfa ekki um- flúin. Þetta breyttist dálítið þegar Taylor kom inn á, en hann „heimtaði“ boltann inn á miðjuna og var svo ekki í vandræðum með að setja hann i körfuna. Hann er 2,14 m á hæð og um 120 kg. Bolt- ann tók hann í höndina eins og handbolta, og „tróð“ honum svo i körfuna með tvo eða þrjá leik- menn hangandi á sér. Gekk á stundum svo mikið á fyrir honum að hinn miðherjinn, Marioneaux hrökklaðist undan þegar hann kom askvaðandi inn með hálft KR liðið á herðunum. Annars var framherjinn Pawelka bestur leik- manna UBSC i þessum leik, skor- aði 28 stig og sýndi ótrúlegt öryggi í skotunum. KR-liðið lék þennan leik mjög vel eins og áður sagði — datt niður á toppleik — þó vissulega kæmu slæmir kaflar. Kolbeinn, Birgir, Bragi og Bjarni voru allir góðir í sókninni og rugluðu leik- menn UBSC oft í ríminu, og Krist- inn Stefánsson gerði stóra hluti í vörninni þar sem hann „náði oft upp á 2. hæð“ til að stöðva mið- herjana stóru. — Kolbeinn skor- aði mest fyrir KR 23 stig, Bjarni og Þröstur 13 hvor, og Birgir 10 stig. Pawelka var stighæstur hinna með 28 stig, Taylor 27. Það er alveg óhætt að spá þessu liði góðu gengi í Evrópukeppninni, og kæmi ekki á óvart þótt það kæmist í úrslitin. Halda Haukarnir sínu striki? Aðeins tveir meiri háttar hand- knattleiksleikir fara fram nú um helgina. Verða þeir háðir í Laugardalshöllinni annað kvöld og er þarna um að ræða leiki milli Víkings og Hauka og lR og Fram í 1. deildar keppni karla. Þá fer fram einn leikur í 2. deild karla um helgina, einn í þriðju deild og einn í 2. deild kvenna. Báðir leikirnir annað kvöld ættu að geta orðið hinir skemmti- legustu. Athyglin mun þó fyrst og fremst beinast að viðureign Víkings og Hauka, en siðarnefnda félagið er nú i öðru sæti í deild- STAÐAN Staðan f 1. deild er nú þessi: FII 4 4 0 0 84:74 8 Haukar 3 3 0 0 60:50 6 Fram 3 2 1 0 49:42 5 Ármann 4 2 0 2 66:69 4 Víkingur 3 10 2 50:50 2 Valur 4 10 3 63:68 2 Grótta 4 0 13 73:81 1 IR 3 0 0 3 54:65 0 Markhæstu leikmenn eru eftirtaldir: Ilörður Sigmarsson, Haukum 30 Björn Pétursson, Gróttu 23 Viðar Sfmonarson, FH 22 Geir Hallsteinsson, FH 15 Jón Astvaldsson, Ármanni 14 Einar Magnússon, Vfkingi 13 Jón P. Jónsson, Val 13 Þórarinn Ragnarsson, FH 13 Þorbjörn Guðmundsson, Val 13 Agúst Svavarsson, iR 12 Framhald á bls. 22 KR-IRá TVEIR leikir fara fram í 1. deild f körfuboltanum um helgina, þeir verða báðir á morgun, og hefst sá fyrri á Seltjarnarnesi. Fyrst leika HSK og IS. Flestir munu eflaust telja IS sigur- stranglegri f þessum leik, og vissulega eru þeir það, en HSK-lið ið hefur styrkst mikið við komu Antons Bjarnasonar í það. Hvort það nægir hins vegar gegn lS skal ósagt látið. — Og svo er það aðalleikurinn, leikur erkióvinanna IR og KR. Oft hefur mikió verið í húfi þegar þessi lið hafa mætst, og svo er einnig nú. iR-sigur myndi styrkja stöðu liðsins mjög, og væri þá farið að hilla undir Islandsmeist- aratitilinn fyrir liðið. IR hefur ekki tapað leik í mótinu, en á auk inni, og hefur ekki tapað leik til þessa. Hafa Haukarnir sigrað Gróttu, IR og Val, en Víkingar hafa sigrað Val en tapað fyrir FH og Ármanni. Þetta verður örugg- lega mikill átakaleikur, þar sem eitt stig eða tvö úr honum geta haft úrslitaáhrif á stöðu þessara liðaí 1. deildar keppninni. Þannig minnka t.d. vonir Víkinga um að blanda sér í baráttuna verulega ef þeir tapa þessum leik. Tveir leikir voru leiknir i undankeppni Islandsmótsins i blaki sl. miðvikudag. Breiðablik og Biskupstungur léku i Voga- skólanum og Víkingur og HK léku i Réttarholtsskólanum. I fyrri leiknum var spilað ágætis blak og þurfti þrjár hrinur til að úrslit fengjust, og sigruðu Biskups- tungnamenn 2—1. Tungnamenn tóku strax forystu í fyrstu hrin- unni, 4—0, en Breiðablik jafnaði og komst yfir, 10—7, og sigraði örugglega 15—7. I þessari hrinu átti Þórhallur Bragason stórleik og átti mörg frábær smöss og fjölda uppgjafa, sem gáfu stig. I morgun þessa leiks eftir að leika gegn IS i fyrri umferðinni. KR hefur hins vegar tapað einum leik, einmitt gegn IS, og KR á eftir að leika við Armann. Það væri því afar slæmt fyrir KR að tapa þessum leik, og vissulega minnkar spennan í mót- inu talsvert við sigur ÍR, í bili a.m.k. Fyrri leikurinn hefst kl. 18, en leikur KR og iR um kl. 19.30. — Þetta verða síðustu leikir í 1. deild fyrir áramót, en landsliðið hefur nú æfingar og verður æft 4 sinnum í viku þangað til liðið heldur utan til 4 landa keppni í Danmörku strax eftir áramót (Danmörk, tsland, V-Þýskaland og Luxemborg). Þaðan verður haldið til Oslo og leiknir tveir landsleikir auk U-landsleikja. gk. iR-ingar eru nú eina félagið, sem ekki hefur hlotið stig í 1. deildar keppninni til þessa, og ef marka má leiki liðsins það sem af er mótinu, er harla ólíklegt, að því takist að ná stigi af Fram, sem er nú að berjast á toppnum í 1. deildinni og hefur aðeins einu stigi tapað. Leikir milli liðanna, sem leika annað kvöld, fóru þannig i fyrra, Framhald á bls. 22 annarri hrinu snerist dæmið við, Tungnamenn tóku strax forystu og sýndu nú mun betri leik. Upp- spil Þorkels var gott og Böðvar Helgi átti mörg góð smöss. Þeir sigruðu örugglega 15—7. Urslita- hrinan var nokkuð spennandi og er Tungnamenn voru komnir í 12—5 tók Þórhallur fimm upp- gjafir í röð, sem gáfu stig, þannig að staðan var orðin 12—10 Tungnamönnum i vil, og þeir reyndust sterkari á endasprettin- um og sigruðu 15—10. Siðari leik- ur kvöldsins var á milli Víkings og HK og þar sem HK hafði tapað ansi stórt á móti IS töldu Víkingar sigur vísan sem og varð en HK hafói nær ógnað honum í fyrri hrinunni, en Víkingar unnu báðar hrinur: 2—0. Víkingar fóru strax i 7—0 og lítil mótstaða HK dró þá niður í meðalmennskuna og er staðan var orðin 12—5 vann HK nokkur stig í röð og „skyndi- lega" var staðan orðin 12—10. Víkingar tóku sig þá saman í and- litinu og björguðu sigri og unnu 15—11. HK vann sín stig inn mest fyrir klaufaskap Víkinga en ekki fyrir snilli sinna manna, en í síðari hrinunni sigruðu Víkingar öruggt 15—3 en sárafá falleg smöss sáust í leiknum enda upp- spil mjög lélegt hjá Víkingi og ekkert hjá HK. Dómari var Guómundur Pálsson og dæmdi hann ágætlega en ef allt hefði verið dæmt sem rétt var hefði það orðið flautukonsert. Skúli ritari skilaði skýrslunni um leikinn þannig, að hún verður ekki skilin. Næstu leikir verða á laugardag og sunnudag á milli Þróttar og Laug- dæla og IS og UMFB. UMFB vann UBK og Víkingur vann HK Sá minnsti og stærsti... Kolbeinn Pálsson 1,80 metrar að hæð og bandaríski hlökkumaðurinn Marioneaux 2,14 metr. f liði UBSC. Kol- beinn átti glæsilegan leik í fyrrakvöld og gaf atvinnumönnunum ekkert eftir. Einstætt tilboð fyrir alla getraunaglaða 6 getraunabækur meö meira en 200 frábærum kerfum fyrir aöeins D. kr. 44.50. Þér getið fengið eina af þeim fyrir D. kr. 9.85 = hálfvirði Hin fræga norska getraunabók er mest selda getrauna- bókin á Norðurlöndum. Hún hefir nú komið út í 10 ár í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi og fengið frábærar mót- tökur. Kerfin eru útfærð af háskólalærðum vísindamönn- um. Við fórum til Noregs og keyptum allt sem eftir var af fyrri árgöngum sem við nú — og við undirstrikum TAKMÖRKUÐU UPPLAGI — bjóðum á hagstæðu verði. Ef þér pantið 6 bækur í einu 1968/69 til 1973/74 þá fáið þér þær allar fyrir aðeins D. Kr. 44.50 — eða um D.kr. 7.40 hverja bók. Ef þér pantið eina og eina af bókunum þá er verðið D.Kr. 9.85 eintakið. Með því, að kaupa allar 6 bækurnarfáið þér: 9 Meira en 200 frábær kerfi. Fræðandi efni um ensku knattspyrnuna í áraraðir og marga aðra fróðleiksmola. Við afgreiðum pantanir svo lengi sem við eigum bækur. 1965/66, 1966/67, og 1967/68 eru allar uppseldar. Fást aðeins á þennan hátt. PANTIÐ í DAG. DANSK-NORSK FORLAG 8620 Kjellerup, Danmark. Já! Ég panta gegn eftirkröfu og 8 daga fullum rétti til endursendingar, Jí eftirfarandi: 6 mismunandi getraunabækur, samtals aðeins D Kr. 44 50. oó □ TIPPEBOKEN 1 968/69 D.Kr 9 85 □ TIPPEBOKEN 1969/70 Kr 9 85 j lTIPPEBOKEN 1 970/71 Kr 9 85 Na,n □ TIPPEBOKEN 1971/72 Kr 9 85 □ TIPPEBOKEN 1972/73 Kr 9 85. Heimilisfang ............. □ TIPPEBOKEN 1973/74 Kr. 9 85. Burðargjald bætist við verðið .........................

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.