Morgunblaðið - 14.01.1975, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 14.01.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JANUAR 1975 3 Skólar lokaðír víða um land — Rafmagns- skortur um allt Norðurland og verður áfram Vélsleðar duga bezt Akureyri, 13. janúar. Í GÆR var ekki mikil fannkoma, en í nótt og í dag hefur fannburðurinn verið geysilegur. Flestar götur á Akureyri eru orðnar ófærar bílum og umbrotafæri fyrir gangandi fólk. Starfsmenn Akureyrarbæjar hafa reynt að halda opnum nokkrum aðal- leiðum, svo sem Glerárgötu, Þór- unnarstræti, Hafnarstræti og Eyrar- landsvegi, þannig að sæmilega fært yrði að sjúkrahúsinu, en þetta verk hefur gengið illa, enda bilaði annar af tveimur heflum Akureyrarbæjar i morgun. Fáförult hefur verið i bænum i dag og fáir farið út úr húsi nema nauðsyn bæri til. Helztu farartækin, fyrir utan hesta postulanna, eru vélsleðar, jeppar og fjallabilar, en vélsleðarnir duga þó bezt enda komast bílarnir ekki nema um örfáar götur. Kennsla hefur fallið niður i dag i öllum skól- um bæjarins vegna óveðurs, rafmagnsleysis og ófærðar. Veðrið hefur aðeins lægt síðari hluta dags á Akureyri, og þegar bezt lætur grillir á milli húsa. Um kl. 16.30 var orkuframleiðsla Laxárvirkjunar um 10 megawött eða um helmingur af venjulegri fram- leiðslu. Þá var verið að tengja dísil- rafstöðina á Oddeyri inn á veitukerf- ið í þeirri von að háspennulinan frá Laxá væri hætt að slá saman, en hún hafði þá lafað inni frá þvi um hádegi. Þá voru horfur þær, að á orkuveitu- svæði Laxárvirkjunar yrði skömmtun hagað þannig, að straumur yrði i 2 tima á hverjum stað en straum- leysi i 6, en nú vona menn að dæmið geti snúist við, þannig að menn hafi rafmagn i 6 tíma, en missi það i 2. Sv. P. 0 0 0 Hliðin lagðist inn Vopnaf irði, 1 3. janúar. HÉR ER nú vitlaust veður af norð- austri, snjókoma og haugabrim. Sjór hefur gengið á land og lagði sjávar- gangurinn saman úthlið söltunar- húss Hafbliks hf, Annars er ófærð hér mikil og engin mjólk hefur borizt hingað siðan fyrir helgi. Reyna á að opna vegi á morgun, en ekki vitað hvernig til tekst. Vegna veðurs var gefið fri i öllum skólum í dag. Fréttaritari. 0 0 0 40 togarar undir Grænuhlíð ísafirði 13. jan. HÉR hefur verið kolbrjálað veður síðan á laugardaginn og má sem dæmi nefna, að skipverjar á skut- togaranum Páli Pálssyni, sem liggur hérna i höfninni, mældu i gærkvöldi 14—15 vindstig á mæli um borð i togaranum. Höfnin er sneisafull af togurum, 8 islenzkir og 3 brezkir, og undir Grænuhlíð líggur mikill fjöldi togara á vari, líklega einir 30—40 togarar, islenzkir og brezkir. Þá liggur Brúarfoss hér og mun hann taka frystan fisk þegar hægt verður að afgreiða skipið vegna veðurs. Veðrinu fylgir mikil snjókoma og hefur óhemju mikill snjór hrannast upp. Á sunnudaginn var hér allt ófært, og má sem dæmi nefna, að ég þurfti að fara á skiðum heiman að frá mér og niður að höfn til að afgreiða brezkan togara sem var að koma inn. Helztu vegir voru ruddir i morgun. — Ólafur. 0 0 0 Sér 5 metra frá sér Hvammstanga, 13 janúar. HÉR HEFUR verið glórulaus stórhrið og ofsarok frá þvi i gærdag, sunnu- dag. Allt rafmagn fór af á tíunda timanum i gærkvöldi og um kl. 1 i dag fór öll Vatnsneslinan út. Um leið og rafmagn fer af. má heita að við séum simasambandslausir bæði innan bæjar og við önnur byggðarlög nema hvað lina er til Blönduóss, sem getur komið okkur í samband við umheiminn þegar bezt lætur. Samt sem áður teljum við okkur allvel setta, þar sem hitaveitan er í lagi — enn sem komið er að minnsta kosti. Slik er hriðin að þegar horft er út um glugga, sér maður ekki nema i mesta lagi 5 metra frá sér. Eins er rokið slikt að varla er stætt úti, og þykir fólki tryggast að halda sig inn- an dyra. Sjálfur hef ég verið verzlunarstjóri hér á Hvammstanga undanfarin tiu ár og hefur það aldrei komið fyrir fyrr en nú að við höfum orðið að loka versluninni á virkum degi sakir veðurs. Mikinn snjó hefur sett niður, og má talja vist að ýmsir þorpsbúar verði að moka sig út úr húsum þegar veðrinu slotar. — Karl 0 0 0 Hitaveitan óháð rafmagninu Húsavik, 1 3. jan. NOROAN stórhrið hefur verið hér siðastliðna tæpa tvo sólarhringa, og um bæinn hefur sett niður mikinn snjó, en um færð á vegum i héraðinu er ekkert vitað, þar sem mjólkurbilar hafa ekkert reynt að hreyfa sig i dag. Rafmagn hefur verið skammtað í dag en Húsvikingar eru svo heppnir að hitaveitan hér er óhað rafmagni, svo heitt er i húsum þótt dimmt sé öðru hverju. Sjónvarp hefur ekki sést hér siðan á laugardag. Enga skaða eða óhöpp hefur heyrst um að fylgt hafi þessum veðurofsa en óþægindin eru margvisleg. — Fréttaritari. 0 0 0 10—12 vindstig Siglufirði, 13. jan. Á SIGLUFIRÐI skall veðrið á um kl. 2 i fyrrinótt, og siðan hefur verið hifandi rok, svona 10—12 vindstig. Snjókoma hefur fylgt þessu veðri og ófærð er mikil orðin á götum, skafl- arnir 2—3 metrar. Vitað er að togarinn Hólmatindur frá Eskifirði fór frá Grimsey um mið- næturskeið, en var ekki kominn að Langanesi um hádegisbilið i gær og Framhald á hls. 35 Samkeppni um gæðamerki íslenzks útflutningsiðnaðar: Tíu tillögur valdar til úrslita VALIN hafa verið tfu beztu merkin f samkeppni þeirri, sem ÍJtflutningsmiðstöð iðnað- arins og Félag fsl. iðnrekenda gekkst fyrir í samvinnu við Fé- lag fsl. teiknara um gerð gæða- merkis fyrir fslenzkar iðnaðar- vörur til útflutnings. Um met- þátttöku var að ræða f þessari samkeppni, þar eð um 300 manns sendu inn milli 700 og 800 tillögur. Þrjú af þessum tfu merkjum munu hljóta verð- laun, en almenningi verður gef- inn kostur á að taka þátt í vali þeirra þriggja merkja. Að lok- inni slfkri almennri atkvæða- greiðslu mun dómnefnd koma saman að nýju og ákveða enda- anlega hvaða merki hljóta verð- laun með hliðsjón af úrslitum atkvæðagreiðslunnar. A fundi með fréttamönnum lýstu aðstandendur samkeppn- innar yfir ánægju sinni með hina miklu þátttöku og höfðu þeir á orði hversu mikla vinnu margir þátttakenda hefðu lagt í tillögur sínar. Einnig kom fram, að gerð gæðamerkis af þessu tagi hafi allt frá stofnun Útflutningsmiðstöðvarinnar verið eitt af áhugamálum for- ráðamanna hennar, þótt málinu hafi ekki verið hrundið í fram- kvæmd fyrr en nú. Nú er áformað að skipa nefnd á næst- unni sem skal kveða á um notk- un merkisins og er ætlunin að sú nefnd hafi eftirlit með því að gæði vörunnar haldist þau sömu og þegar leyft var að nota merkið. Fyrstu verðlaun í þess- ari samkeppni ásamt greiðslu höfundarréttar nema kr. 150 þúsundum en önnur og þriðju verðlaun kr. 25 þúsund. Atkvæðagreiðsla um merkin mun standá fram til 3. febrúar og munu atkvæðaseðlar birtast í auglýsingum í dagblöðum auk þess sem hægt verður að fá seðla á skrifstofu Útflutnings- miðstöðvarinnar. Aðeins er heimilt að greiða atkvæði einu 1. Punktur yfir i. Bókstafurinn I er tákn þess, sem fs- lenzkt er. Útfærslan á punktinuni (fingra- farið) er tákn fyrir það, sem skilur á milli þess, sem íslenzkt er «g annars. Kngin tvenn fingraför eru eins. Dulnefni: F.H.B. 2. Knörr. Aðalinntak þessa merkis er bókstafur- inn I, sem stendur fyrir orðin iðnaður eða Island. Þjóðleg einkenni merkisins er knörrinn, sem heldur að I-inu sem tákn útflutnings. Dulnefni: Knörr. 3. Trjóna og segl. Trjóna og segl eru tákn vfkingaaldar- innar, herferða og strandhögga. Beinast liggur við að taka þessi tákn upp aftur sinni en þátttaka er öllum heimil sem náð hafa sextán ára aldri. A næstunni er svo fyrir- hugað að efna til sýningar í Norræna húsinu á öllum þeim tillögum sem bárust í keppnina. sem merki fyrir „herferð44 á friðsamlegu sviði; viðskiptasviðinu. Dulnefni: 4785. 4. ts og eldur. Merkið sýnir tákn fssins, fskristalinn, umvafinn eldtungum. Táknrænt merki fyrir Island, land fss og elda. Dulnefni: Eldur og ís. 5. tsland Merkið er upprunalega teiknað út frá formi vfkingaskips en hefur orðið óhlut- rænt (abstrakt). Merkið minnir þó óneit- anlega á útlfnur lslands. Dulnefni: Mamma náttúra. 6. Trjóna (ifnandi trjóna var höfð uppi í herferð- Þar munu atkvæðaseðlar liggja frammi þannig að gestum gefst tækifæri að greiða atkvæði þar um þrjú hinna tíu beztu merkja. I dómnefndinni eiga sæti: um og strandhöggum. Að baki trjónu, sem gein við landi, bjó frumkvæði, hugrekki og hugmyndaflug vfkinganna. stutt verk- menningu á háu stigi. m.a. á sviði skipa- smfða, vopnasmfða og siglingaþekkingar. Dulnefni: 4783. 7. Bryntröll Merkið sýnir bryntröll, vopn forn- manna. Merkið tengist sögu Islands, þar sem þetta er eitt þeirra vopna, sem notað var á landnámsöld og söguöld. Merkið getur verið lóðrótt eða lárótt. Dulnefni: Bryntröll. 8. Úi Bókstafirnir ii. sem mynda skip með tveimur seglum og minna á landið og norræn tengsl. Bókstafirnir ii standa fyrir orðin íslenzkur iðnaður eða Icelandic Helga B. Sveinbjörnsdóttir aug- lýsingateiknari, Gisli B. Björns- son skólastjóri Myndlista- og handíðaskólans, Gunnar Arna- son, fulltrúi Kassagerðar Reykjavíkur, Orri Vigfússon, framkvæmdastjóri Glits hf., og Jón Sigurðsson, framkvæmda- stjóri íslenzks markaðar, sem er formaður nefndarinnar. Hér á eftir fer greinargerð dóm- nefndarmanna með hinum tíu merkjum sem valin voru til úr- slita: industri. Jafnframt má lesa bókstafinn u út úr merkinu þ.e. útflutningur eða l't- flutningsmiðstöð iðnaðarins. Dulnefi: Ui. 9. Stjarna Kross. sem fjórar örvar stefna á og mynda íslenzka fánann í formi stjörnu. Fáninn er tákn þjóðarinnar og santeign allra íslendinga. Dulnefni: Mergur. 10. Horn Þetta merki sýnir bókstafinn i. sem stendur fyrir orðin iðnað eða lslands. I-ið myndar drvkkjarhorn og er tákn vikinga og handiðnaðar. sem tengist tveimur hjól- um. tákn nútíma iðnaðar. Dulnefni: Víkingur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.