Morgunblaðið - 14.01.1975, Side 19

Morgunblaðið - 14.01.1975, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚ AR 1975 27 ræðu eitt og annað úr minningum sínum frá langri starfsævi sinni. Það var slður en svo, að á hon- um né máli hans mætti greina nein merki þess, að áður en næsti árshelmingur væri allur, yrði Jón fluttur úr okkar sýnilega heimi. Hann var hress sem ungur væri og lét sig ekki muna um að skreppa upp á Valahnjúk áður en haldið var til byggða, þrátt fyrir veðurgjóst og hálku. En „ég geng í hættu hvar ég fer“ geta þeir ekki síður sagt, sem á götum borgarinnar ferðast, og sannast það hér á sorglegan hátt. I haustferðum Ferðafélagsins, þegar stjóri þess, velunnarar og blaðamenn brugðu sér út úr borg og byggð I því skyni að rabba saman á góðum stað um starf lið- ins sumars og næstu framtíðar- málefni félagsins, höfðum við jafnan þá ánægju að hafa Jón Víðis með í hópnum. Og á hverju hausti höfðum við honum eitt og annað sérstaklega að þakka. Hann reyndist félaginu hinn ágætasti stuðningsmaður frá fyrstu árum þess og til hinstu stundar. Frá því að Ferðafélagið hófst fyrst handa um sæluhúsbygg- ingar á hálendi Islands, hefir Jón Víðis teiknað langflest slfk hús. Og þau eru orðin allmörg. I því starfi liggur mikil vinna. En fyrir alla þá vinnu hefur Jón aldrei tekið eyrisvirði. Þau verk hefir hann ávallt gefið félaginu. Og Jón Víðis hefur unnið annað mikilsvert starf i þágu félagsins af sömu ósérplægni. Ferðafélagið hefur reist hring- sjár eða útsýnisskífur allvíða á landinu, bæði í byggð sem á öræf- um. Voru til þess valdir staðir, þar sem útsýn er mikil og fögur. A slíkar skffur eru rist I málm öll helstu nöfn fjalla og örnefna innan sjónvíddar hvers staðar. Með því er ferðafólki gert auðvelt að átta sig og glöggva á umhverfi öllu, fjær og nær, út í ystu línur sjóndeildar. Teikningar að öllum hringsjám félagsins gerði Jón Víðis. Til þess að inna slíkt af hendi þurfti mikla nákvæmni og ekki sfður kunnug- leik á landi og örnefnum. Yfir þessari kunáttu bjó Jón flestum framar. Og fyrir allt það verk tók hann aldrei gjald. Það var gjöf til félagsins, sem hann unni eins og landi sínu. Hann var því kunn- ugri en flestir landar hans. Meginævistarf sitt vann hann hjá Vegagerð ríkisins, eða frá 1922 til þess tíma er látið var af opin- berum störfum fyrir aldurs sakir. Það starf mun rekið af öðrum, er þar kann á full skil. Svo mun og um ætt hans og uppruna. Hann var Þingeyingur frá Þverá í Laxárdal. Hann var oft nefndur mælingamaður, enda var hann, auk menntaskóla og háskólanáms, sérmenntaður i landmælingum og kortagerð. Með athugun sinni á vegaleið- um og vegastæðum um fjöll og heiðar sem og byggðir, þróaðist þekking hans á landinu. Hann var einn af þeim, sem fyrstum tókst að koma bil yfir Sprengisand. Hann gerði mælingar og upp- drætti af fjölda kauptúna og kaupstaða, auk vegamælinganna svo að segja hvarvetna um landið. Sem áður er á drepið rita aðrir menn um uppruna Jóns Viðis og ævistörf. Það er viðhorf hans til Ferða- félags Islands og verk hans í þágu þess, sem gamlan mann, er senn siglir líka út úr kortinu, langar til að þakka honum, þakka honum fyrir hönd félagsins og okkar allra, sem þar höfum starfað ofur- litið undanfarna áratugi. Það er mikil eftirsjá að ágætis- mönnum, en gæfa að hafa átt þá. Hallgrfmur Jónasson. Þegar Jón J. Víðis réðst til starfa hjá vegamálastjóra árið 1922, hafði hann um fjögurra ára skeið unnið hjá vitamálastjóra við dýptarmælingar og gerð upp- drátta af fjölda hafna og lend- ingarstaða víða um land. Fyrstu 20 árin var aðalstarf Jóns hjá Vegagerðinni mælingar og kortagerð af skipulagsskyldum stöðum, enda kortlagði hann á þessum árum alla kaupstaði landsins nema Reykjavík og Vest- mannaeyjar. Auk þess kortlagði hann fjölda sjávarþorpa. Til skamms tima hafa uppdrættir hans verið þeir einu nothæfu i mörgum kapptúnum, þó að víða hafi verið aukið við þá að Sjálf- sögðu. Eftir að embætti skipulags- stjóra var stofnað á stríðsárunum, starfaði hann nær eingöngu að vegmælingum hjá Vegagerðinni til ársloka 1969, en þá hafði hann liðlega fimm um sjötugt. Hér verða ekki taldir upp þeir fjölmörgu vegir, sem Jón mældi fyrir og gerði áætlanir um, en nefna má Austurveg, sem nú heit- ir að hluta Þrengslavegur, flesta vegi á Vestfjörðum, sem lagðir voru fram til 1970, og marga vegi I öllum landshlutum. Auk vegmælinganna teiknaði Jón flest hús, sem Vegagerðin lét reisa, meðan hann starfaði þar. Auk þess teiknaði hann fjölda bygginga í Reykjavík og úti um land, þar á meðal nær öll sæluhús Ferðafélags Islands, en starfi hans fyrir það félag verða gerð skil af öðrum. Jón var teiknari af Guðs náð og gat á skammri stund rissað lands- lag eftir minni, þegar rætt var um Fædd 22.9 1953 Dáin 3.1 1975. Að Helga sé horfin frá hinu jarðneska lífi, er erfitt að sætta sig við og fyllir okkur, sem eftir Iifum, tómleika og söknuði. Allt frá því að hún leit fyrst dagsins ljós þann 22. september 1953, flutti hún með sér birtu og hlýju. Ég minnist þess, hve gleði mín var mikil, þegar hún fæddist og hve hreykinn ég var að eiga svo fallega litla systur. Þegar fram liðu stundir komu í ljós margir góðir kostir, bæði við umgengni og í framkomu, sem urðu henni til góðs á hinni alltof stuttu jarð- nesku göngu. Það er sagt, að mannkostir komi best í ljós, þegar erfiðleikar steðja að og sannaðist það hér, í baráttu við þungan sjúkdóm og á löngum sjúkrahúslegum. Aldrei var gefist upp og stöðugt trúað á bata og voru heimsóknir til henn- ar á sjúkrahús ávallt til ánægju. En enginn fær ráðið við manninn með ljáinn, þó að ótrúlegur lifs- þorsti og kraftur sé fyrir hendi. En þó margar torfærur væru á veginum, lifði hún samt skemmti- legu og fjölbreyttu lífi og eignað- ist frábærar vinkonur og vini, sem voru henni traustir, bæði i veikindum og á gleðistundum. Ég flyt þeim sérstakar þakkir okkar aðstandenda, þó að vináttu þurfi ekki að þakka, því hún er sjálf- þökkuð, þegar hún er gagnkvæm. Þá flyt ég læknum og starfsliði sjúkrahúsa alúðarþakkir. Aðfangadagskvöld síðustu jóla verður okkur öllum ógleyman- legt, þvi þar rikti gleði og ánægja og yfir Helgu var fegurð, ró og hamingja, þvi gat engan grunað að svo stutt væri til kveðjustund- ar, sem þó er runnin upp. Litlu bróðurbörnin munu sakna henn- ar, þó lítil séu og hugur okkar hinna er dapur. Ég og konan min þökkum fyrir ánægjulegar sam- verustundir og biðjum guð að blessa minningu hennar. Bróðir. I dag er til grafar borin hjartkær vinkona okkar, Helga Óskars- dóttir, sem lézt 3. janúar s.l. aðeins 21 árs að aldri. Eftir margra ára baráttu við sjúkdóm, sem reyndist banvænn, er hún kölluð héðan í blóma lifsins, þegar glæst framtíð virtist blasa við sökum mannkosta hennar, hugrekkis og trygglyndis. Við vin- konurnar stöndum eftir og fáum vart trúað þvi, að Helga sé okkur horfin, sem ætíð var miðdepillinn á gleðistundum okkar og ávallt varð til þess að koma öðrum í gott skap, ef einhvér var leiður. Glað- lyndi hennar var eins og ljósgeisli legu vegar. Skýrslur sinar og áætlanir prýddi hann oft slíkum teikningum, sem sýndu legu veg- ar i landslaginu, og minnist ég þess ekki að hafa séð aðra mæl- ingamenn eða verkfræðinga leika slikt eftir. Næmleiki Jóns fyrir linum og formi gerði honum auð- velt að átta sig fljótt á því, hvar veglina færi vel í Iandslagi, og bera margir vegir þess glögg merki eins og t.d. Vestfjarðaveg- urinn um Dynjandisheiði. Leikni Jóns I teikningu var snemma kunn, og var hann feng- inn til að kenna teikningu við Menntaskólann i Reykjavík árið 1919. Kenndi hann þar til ársins 1929, en varð þá að hætta sökum annrikis hjá Vegagerðinni. Af kennslunni hafði hann mikla ánægju. Ég kynntist Jóni fyrst, er ég hóf störf hjá Vegagerðinni fyrir nær 30 árum, þá ungur og óreyndur verkfræðingur með öllu óvanur mælingum. Fyrsta árið fór ég margar ferðir með Jóni í mæling- ar við Markarfljót og víðar. I þess- um ferðum lærði ég margt af hon- um um hagsýni og skipuleg vinnubrögð, sem hann hafði tam- ið sér i áralöngu starfi. Hann var hinn mesti dugnaðarforkur og í lífi okkar. Við eignuðumst marg- vislega lifsreynslu, bæði í gleði og sorg, en Helga hugsaði ætíð svo fallega, að þegar við nú höfum misst hana, finnum við til ein- manaleikans, því skarð hennar verður aldrei fyllt. Minningarnar sækja á huga okkar, minningar frá samveru- stundum og ferðalögum, en mest hugsum við til þess, hve hún háði sjúkdómsbaráttu sina af mikilli hugprýði og reyndi að láta ekkert skyggja á gleðina, þvi með henni bjó einhver yndisleg innri þrá, einhver ljósneisti lífsins sem brá birtu sinni á líf okkar. Þótt við kveðjum Helgu nú, verður minn- ing hennar okkur geymd ævin- lega. Við vottum ástkærum foreldr- um hennar, systur og bróður dýpstu samúð og hugsum með hluttekningu til ömmu hennar á Djúpavogi, þar sem Helga átti margar ánægjulegar stundir á yngri árum. Guð blessi og geymi okkar kæru vinkonu. Jónina og Birna. I DAG er til moldar borin Helga Antonia Óskarsdóttir, rúmlega tvitug að aldri. Okkur finnst það alltaf undar- legt, þegar ungt fólk, sem virðist vera að byrja sína lifsgöngu, er kallað á brott úr þessu jarðneska lífi. Hvað þekkjum við ekki marga, sem komnir eru á efri ár og eru búnir að skila sinu lífs- starfi, sem þrá og jafnvel biðja um að fá hvíldina, en fá hana ekki, meðan margir yngri, sem þrá að lifa, fá það ekki og eru kallaðir héðan, þó ekki alltaf án fyrirfara. A siðast liðnu hausti kenndi Helga sér þess meins, sem leiddi hana til dauða á aðeins örfáum mánuðum, og held ég, að maður taldi ekki alltaf tímana eins og nú tíðkast. Hann var óhemju dugleg- ur göngumaður, og þó kominn væri á áttræðisaldur, áttu margir af hinum ungu aðstoðarmönnum hans fullt í fangi með að fylgja honum eftir. ' Jón hafði mikið yndi af ferða- lögum á öræfum, og minnist ég enn vikuferðar um Sprengisand 1958, en sú ferð var farin til að kanna hugsanlega vegagerð þá leið. Jón lék þá á als oddi og mundi í smáatriðum flest, sem hent hafði hann og félaga hans á fyrstu bílferðinni yfir Sprengi- sand sumarið 1933, en sú ferða- saga er fyrir löngu þjóðkunn orð- in. Frábær reglusemi og samvizku- semi einkepndu öll störf Jóns. Voru honum því snemma falin ýmis aukastörf, sem kröfðust mik- illar natni. Hann var t.d. af- greiðslumaður Tímarits Verk- fræðingafélagsins um áratuga skeið. I viðurkenningarskyni fyr- ir störf sin í þágu félagsins og störf sín við land- og vegmælingar var hann kjörinn félagi i Verk- fræðingafélaginu árið 1954. Eitt af mörgum verkefnum, sem Jón vann að i frístundum sinum, var að teikna hringsjár verði að þakka góðum Guði fyrir að lengja ekki hennar dauðastrið umfram það, sem orðið var, sér- staklega eftir að séð var, að hverju stefndi. Undirritaður kynntist Helgu, eftir að hafa aug- lýst eftir afgreislustúlku í búð. Hvað, sem menn vilja kalla það, þá ákvað ég að ráða Helgu til starfans, eftir að hafa farið yfir um 50 umsóknir og áður en rætt var við nokkra þeirra er um sóttu. Þó virtust margar þeirra hafa meiri starfsreynslu og kannski meiri vöruþekkingu en hennar hógværa og prúða umsókn bar með sér. Varla þarf ég að taka það fram, að ekki varð ég fyrir vonbrigðum með hana. Henni var hægt að treysta til hins ýtrasta, og lipurð hennar og hógværð i umgengni við viðskiptamenn verzlunar- innar voru að allra dómi, sem henni kynntust, lýtalaus, enda hafa margir óviðkomandi spurt um líðan hennar eftir að það fréttist, að hún gengi ekki heil til skógar og sýnir það hvað best, hvern mann hún hafði að geyma. Ekki veit ég með vissu hvort Minning: Fæddur 27. nóvember 1951 Dáinn 21. desember 1974. Með nokkrum fátæklegum orð- um langar mig til að minnast vin- ar mínsGrétars. Leiðir okkar lágu fyrst saman austur á Astjörn og þar hófst vin- átta okkar. Grétar undi sér vel, og ekki minnist ég þess að honum hafi nokkru sinni leiðst. Hann var starfsamur og hafði alltaf nóg að gera. Hann var mjög geðgóður og hjálpsamur, og oft sá er fyrstur rétti upp höndina þegar ég var að biðja um hjálp. Hann var kraft- mikill og þolinn og ég minnist gleði hans þegar hann vann svo- kallað Astjarnarhlaup og var langfyrstur í mark. Bátarnir heill- uðu hann mikið og reri hann oft af miklu kappi. Grétar stundaði mikið íþróttir, og nú voru það lyftingar sem heilluðu huga hans, árangur hans varð svo góður að hann varð Islandsmeistari i sín- um þyngdarflokki. Grétar spurði oft um Astjörn og fylgdist með öllu sem þar gerðist. Oft hafði hann orð á því að gaman væri að getað dvalið i ró og næði hjá okkur nokkra daga, og einmitt nú fyrir nokkru sagði hann að sennilega léti hann verða af því næsta sumar. Sem unglingur vann hann nokkurn tíma á Skógerð Iðunnar og var þar undir minni stjórn, þar reyndist hann bæði duglegur og hlýðinn. Þá heillaði sjórinn hann fyrir Ferðafélagið og ýmsa aðra aðila. Var sú fyrsta sett upp á Valhúsahæð á Seltjarnarnesi sumarið 1937. A sumri komanda verður þeirri seinustu komið fyr- ir á Kambabrún við nýja veginn yfir Hellisheiði. Á þessu sviði hef- ur Jón unnið mjög merkilegt starf, allt í hjáverkum af áhuga einum saman. Seinast hitti ég Jón hinn 19. des. á fyrirlestri um umhverfis- mál í Háskólanum. Hafði hann sótt þessa fyrirlestra vikulega í haust og vetur. Sýnir það, hve vakandi áhugi hans var á náttúru- verndarmálum, þótt kominn væri á níræðisaldur. Tveimur dögum síðar lenti hann i umferðarslysi, sem dró hann til dauða hinn 6. þ.m. Jón var mikið prúðmenni í allri framgöngu og einstakt ljúfmenni i daglegri umgengni. Minnist ég þess ekki að hafa séð hann skipta skapi í þau 25 ár, sem við unnum saman. Samstarfsmenn Jóns hjá Vegagerðinni í nær hálfa öld eru orðnir margir. Ég veit, að ég mæli fyrir munn okkar, sem eftir erum, er ég þakka honum samstarfið og kveð hann með söknuði. Sigurður Jóhannsson hún vissi hvert stefndi, en grun hefi ég um það, en hvernig sem því hefur verið farið, þá tók hún því sem að höndum bar, með jafnaðargeði. Hún hlakkaði mjög til að fá að vera heima um jólin, umvafin hlýju og ástúð foreldra sinna og heimilis. Að visu var það skamm- vinn dvöl, en samt. Foreldrar Helgu eru hjónin Svava Árnadóttir og Óskar Emils- son til heimilis að Bólstaðarhlið 42 hér i bæ. Þar hlýtur söknuður- inn og sorgin að vera mest, og eins hjá 11 ára systur Helgu, Haf- disi, sem sér á eftir elskulegri systur og félaga. Einnig hjá hálf- bróður Helgu, Birgi, sem hún mat mikils og var henni einkar kær og góður. Sá sem þetta ritar, svo og samstarfsfólk hennar i Óculus, þakkar Helgu innilega fyrir sam- veruna og óskar henni góðrar ferðar yfir móðuna miklu. Megi góður Guð styrkja og blessa ástvini hennar og vera með þeim i þeirra þungbæru sorg. Reynir Sigurðsson. eins og marga unga menn og lengst var hann á garnla Svalbak. einnig þar fékk hann góðan vitnisburð. Grétar var ókvEbntur, en hann átti 5 ára dóttur. Fyrir rúmu ári hóf hann störf hjá ullar- verksmiðju Gefjunar, leiðir okkar lágu oft saman því við höfðum verið nágrannar síðan hann var drengur. Grétar verður mér minnisstæð- ur fyrir hversu fallegt bros hann átti og hina fölskvalausu frarn- komu. Eg votta fjölskyldunni i Kambsmýri 10 mina dýpstu sam- úð og einnig öðrum ættingjum og ég bið Guð að styrkja ykkur öll. Bogi Pétursson. HelgaAntonía Óskarsdóttir Bernharð Grétar Kjartansson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.