Morgunblaðið - 14.01.1975, Page 36
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JANUAR 1975
ARMANN r.l,ATAW l)VR-
MÆTU STICITILKR
ARMANNSSTÚLKURNAR glöt-
uðu dýrmætu stigi til KR er liðin
mættust 11. deild á laugardaginn.
Leiknum lauk með jafntefli,
11:11, eftir að Armann hafði haft
yfir I hálfleik 5:4. Um tíma Ieit út
fyrir að Armann ætlaði að vinna
örugglega, en staðan var þá 10:7
Armanni I vil. En þá náðu KR-
stúlkurnar góðum leikkafla og
höfðu náð yfirhöndinni skömmu
fyrir leikslok, 11:10. En Armann
átti síðasta orðið og náði að jafna.
Ef Armannsstúlkurnar ætla að
vera með í kapphlaupinu um ts-
landsbikarinn mega þær ekki við
þvf að tapa fleiri stigum á þennan
hátt. 1 þessum leik hafði það
greinilega sfn áhrif, að Erlu
Sverrisdóttur vantaði f lið Ar-
manns, og veikti það liðið til
muna.
Leikurinn gat ekki hafizt fyrr
en nokkru eftir auglýstan leik-
tima, þar eð annar dómaranna lét
ekki sjá si Soint um síðir tókst
að útvega dómara með full rétt-
indi og gal leikurinn þá hafizt.
Ámann komst yfir í byrjun 2:0 en
Hjördís Sigurjónsdóttir jafnaði
metin.
Um miðjan fyrri hálfleik
náði KR forystunni 4:3 en
Armann skoraði tvö síðustu
mörk hálfleiksins, 5:4, og hélt
forystunni fram á loka-
mfnúturnar. Þegar vel var liðið á
seinni hálfleikinn hafði Ármann
yfir 10:7 og voru menn nú farnir
að sjá fram á öruggan sigur liðs-
ins. En það var nú öðru nær, KR
skoraði 4 næstu mörk, þær Helga
Sigþórsdóttir og Hansfna Melsted
sín tvö mörkin hvor og staðan var
skyndilega orðið 11:10 KR f vil og
Ármann í slæmri stöðu. En Jó-
hanna Ásmundsdóttir átti sfðasta
orðið fyrir Armann og tryggði
jafnteflið 11:11.
Hjá Ármanni bar mest á þeim
Guðrúnu Sigurþóvsdóttur og Jó-
hönnu Ásmund'd 'ttur, en greini-
legt að liðið saknaði sfns
aðalmarkaskorara, Erlu Sverris-
dóttur, sem ekki gat leikið með að
þessu sinni. KR-liðið er
á uppleið eftir frekar slaka
byrjun í mótinu, og munar
mikið um að Hjördís Sigurjóns-
dóttir er sem óðast að komast í sitt
gamla form. Auk hennar bar mest
á þeim Hansinu Melsted og Helgu
Sigþórsdóttur í liði KR en sú
siðastnefnda er ein þeirra mörgu
Húsavíkurmeyja sem lífgað hafa
upp á handknattleikinn hér syðra
að undanförnu.
Dómarar voru Ölafur Stein-
grímsson og Guðmundur Þor-
björnsson, sem hljóp f skarðið
fyrir Hauk Hallsson sem mætti
ekki til leiks. Ölafur dæmdi af
röggsemi en sama slenið var yfir
Guðmundi og í fyrri leiknum.
Mörk Ármanns: Guðrún 5, Jó
hanna 3, Anna, Auður og Katrín
eitt mark hver.
Mörk KR: Hansína 5 (4 v),
Helga 3, Hjördís 3.
— SS.
Björg Jónsdóttir, skorar f leik Vals og Fram á sunnudagskvöldið.
V alur sigr aði Fr am í
uppgjöri toppliðanna
VALUR sigraði Fram 16:13 f upp-
gjöri toppliðanna f 1. deild
kvenna á sunnudagskvöldið, en
bæði lióin voru taplaus fyrir leik-
inn. Og hætt er við að Valsstúlk-
urnar verði ekki stoppaðar á leið
sinni að enn einum Islands-
meistaratitli, allavega ef þær
leika eins vel og þær gerðu á móti
Fram. Potturinn og pannan f leik
Valsliðsins var eins og svo oft
áður Sigrún Guðmundsdóttir.
Hún var hreint óstöðvandi og
skoraði 12 af þessum 16 mörkum
Vals. Þvf verður ekki móti mælt,
að Sigrún er mesta skytta sem
fslenzkur kvennahandknattleikur
hefur átt fyrr og sfðar.
Framstúlkurnar eru núverandi
handhafar Islandsbikarins og á
Víkingur fékk sín
fyrstu stig gegn Þór
VÍKINGUR krækti í sín
fyrstu stig í 1. deiid
kvenna á laugardaginn en
þá mættu Víkingsstúlkurn-
ar Þór frá Akureyri. Loka-
tölurnar urðu 11:7, verð-
skuldaður sigur betra liðs-
ins. Leikurinn var slakur
að beggja hálfu og greini-
legt, að þessi tvö lið verða í
neðri helmingi deildarinn-
ar nema leikur þeirra
breytist þess meira til
batnaðar. En hörku vant-
aði ekki í liðin og fengu
þau að beita hinum fjöl-
breyttustu glfmutökum
leikinn út óáreitt af linum
og áhugalitlum dómurum
þessa leiks.
Vfkingur komst í 3:1 í byrjun og
skoraði Agnes Bragadóttir öll
mörk Vxkings, en hún er sú eina í
liðinu sem virðist þess megnug að
skjóta svo eitthvað púður sé í.
Þórsstúlkurnar skoruðu 3 næstu
mörk og komust yfir í fyrsta og
eina skiptið í leiknum, 4:3. Staðan
í hálfleik var 4:4. Agnes skoraði
tvö fyrstu mörk Vfkings í seinni
hálfleik og breytti stöðunni í 6:4.
Eftir það var sigur Víkings aldrei
í hættu og lokatölurnar urðu sem
fyrr segir 11:7 Víkingi I vil.
Hjá Vfkingi bera tvær stúlkur
af öðrum, þær Agnes Bragadóttir,
sem í þessum leik skoraði 8 mörk
af 11, og Þórdís Magnúsdóttir
landsliðsmarkvörður, sem varði
flestöll skot sem að markinu
komu mjög auðveldlega, þar á
meðal tvö vítaköst. Þá má nefna
Guðrúnu Hauksdóttur, sem er
drjúg i spilinu en alltof rög við að
skjóta. Erfitt er að dæma Þórslið-
ið eftir þessum leik, sem var ákaf-
lega slakur af hálfu liðsins. Mest
áberandi voru Hanna Jóhanns-
dóttir og Magnea Friðriksdóttir
auk ónefndra valkyrja í vörninni,
sem létu sér ekki allt fyrir brjósti
brenna.
Dómarar voru Guðmundur Þor-
björnsson og Jón Sigurðsson og
voru hreint út sagt hörmulegir. ,
Mörk Víkings: Agnes 8 (4 v),
Ástrós, Guðrún og Guðbjörg eitt
hver.
Mörk Þórs: Hanná 3 (1 v),
Magnea 3 (1 v), Harpa eitt mark.
— SS.
fyrstu mínútum leiksins gegn Val
var ekki annað að sjá en þær
ætluðu að halda þeim titli auð-
veldlega. Framstúlkurnar léku
mjög vel þessar fyrstu mínútur
leiksins og nýttu sér út í yztu æsar
veilur á vörn Vals. Og eftir aðeins
fimm mínútna leik var staðan orð-
in 6:1 Fram i hag. En þá urðu
kaflaskil í leiknum. Valsvörnin,
sem hafði verið opin og baráttu-
laus, fór framar á völlinn og Odd-
gerður Oddgeirsdóttir f markinu
fór að verja með ágætum. Þetta
setti Framsúlkurnar úr stuði.
Sigrún skoraði nú fimm mörk í
röð og hafði jafnað metin þegar
17 mínútur voru af leik og í leik-
hlé hafði Valur eitt mark yfir, 9:8.
Framan af seinni hálfleik hélzt
leikurinn nokkuð í jafnvægi en
brátt fóru Valsstúlkurnar að síga
framúr og um miðjan hálfleikinn
var staðan orðin 15:11 og sigur
Valsstúlknanna í höfn. Þær léku
afar sterkan varnarleik í hálf-
leiknum og komust Framstúlk-
urnar lítið áfram f sókninni.
Lokatölurnar urðu sem fyrr segir
16:13, verðskuldaður sigur Vals.
Sigrún Guðmundsdóttir átti al-
gjöran stjörnuleik í sókninni hjá
Val og skoraði úr öllum möguleg-
um og ómögulegum færum. Það
var ekki fyrr en í lokin að Fram
setti Sigrúnu f gæzlu, en þá var
það um seinan. Annars er óvfst
hvort nokkuð hefði þýtt að setja
Sigrúnu í gæzlu, hún var í slikum
ham, að hún hefði líklega hlaupið
allar gæzlukonur af sér. Vegna
stjörnuleiks Sigrúnar í sókninni
féllu aðrar túlkur í Valsliðinu
nokkuð i skuggann en þær áttu
margar prýðisgóðan leik, einkum
í vörninni, og þar var Sigrún
reyndar eins grimm og hver önn-
ur. Er helzt ástæða til að nefna
Oddgerði í markinu sem oft varði
með miklum ágætum.
Framliðið byrjaði með miklum
glæsibrag en síðan kom mjög
slakur kafli og var eins og liðið
næði sér aldrei á strik eftir þann
slæma kafla. Fjórar stúlkur skor-
uðu öll mörk liðsins og á þeim
byggðist allt spil, þeim Arnþrúði
Karlsdóttur, Jóhönnu Halldórs-
dóttur, Oddnýju Sigsteinsdóttur
og Sylviu Hallsteinsdóttur. Er
gaman til þess að vita hvað Sylvia
stendur sig alltaf vel. Oddný skor-
aði nokkur mörk með miklum
þrumuskotum, en var helzt til rög
við skotin. Þá stóð markvörður
Fram sig ágætlega.
Dómarar voru Kjartan Stein-
back og Gunnar Kjartansson og
dæmdu yfirleitt vel, þótt stund-
um mætti finna að dómgæzlu
þeirra. En þannig er það líka allt-
af. Það er enginn fullkominn í
þessu frekar en öðru.
Mörk Vals: Sigrún 12 (4 v),
Elín 2, Björg J. og Björg G. eitt
hvor.
Mörk Fram: Arnþrúður 4 (2 v),
Oddný 4, Sylvía 3(1 v), Jóhanna
2.
— SS.
• %
Norðanstúlkurnar náðu stigimum af Breiðabliki
HÆJGT væri að lýsa leik Breiða-
bliks og Þórs í 1. deildar keppni
kvenna, sem fram fór í Garða-
hreppi á sunnudaginn, með
tveimur orðum: Hrein hörm-
ung. Stúlkurnar, sem þessi lið
skipa, virðast kunna harla lítið
fyrir sér f handknattleik, og
áhuginn virtist í lágmarki, sér-
staklega hjá Breiðabliksstúlk-
unum, sem eru í mikilli fall-
hættu, eftir að hafa tapað leik
þessum 9:12. Hjá liði Þórs sást
þó stöku sinnum einstaklings-
framtak sem gladdi augað, og
það var aldrei vafi á þvf að
Þórsliðið var betra en Breiða-
bliksliðið, og sigur Norðan-
stúlknanna var fyllilega réttlát-
ur. Það blés þó ekki byrlega
fyrir þeim f upphafi leiksins,
þar sem Breiðablik komst fljót-
lega í 3:0. í hálfleik var staðan
hins vegar orðin 4:4, og hafði
Breiðablik þá misnotað eitt
vítakast.
Seinni hálfleíkurinn var til
muna betur leikinn en sá fyrri
og náði Þórsliðið snemma
þriggja marka forystu, er stað-
an var 7:4. Tókst Þór að trufla
mjög sóknarlotur Breiðabliks-
liðsins með þvf að senda
Magneu Friðriksdóttur fram á
völlinn, og enduðu ófáar send-
ingar Kópavogsstúlknanna
beint í höndum hennar.
Beztar i liði Þórs voru þær
Guðrún Stefánsdóttir, Magnea
Friðriksdóttir og Hanna
Jóhannsdóttir, sérstaklega þó
sú fyrstnefnda. 1 Breiðabliks-
liðinu var tæpast hægt að tala
um að ein væri annarri betri.
Helzt voru það þær Kristin
Jónsdóttir og Sigurborg Daða-
dóttir sem upp úr stóðu.
Mörk Breiðabliks: Kristín
Jónsdóttir 5 (öll úr vftaköst-
um), Sigurborg Daðadóttir 3 (1
v) og Arndfs Björnsdóttir 1.
Mörk Þórs: Guðrún Stefáns-
dóttir 5, Magnea Friðriksdóttir
3 (1 v), Hanna Jóhannsdóttir 3
(2 v) og Soffia Hreinsdóttir 1.
Leikinn dæmdu vel þeir Þór-
arinn Sigurðsson og Magnús
Arnarson.
— stjl.
1. deild kvenna