Morgunblaðið - 14.01.1975, Side 33

Morgunblaðið - 14.01.1975, Side 33
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JANUAR 1975 STAÐAN Staðan f 1. þessi: Haukar FH Valur Fram Víkingur 6 Ármann 7 Grótta 7 ÍR 7 deild karla er nú 139—118 10 146—132 10 130—116 104—102 112—106 112—131 136—145 133—155 1 hafa Eftirtaldir ieikmenn skorað flest mörk: Hörður Sigmarsson, Haukum67 Björn Pétursson, Gróttu 49 Jón Karlsson, Val 32 Einar Magnússon, Vfkingi 30 Geir Hallsteinsson, FH 30 Viðar Símonarson, FH 29 Agúst Svavarsson, lR 27 Ólafur H. Jónsson, Val 27 Pálmi Pálmsson, Fram 27 Stefán Halldórsson, Vfkingi 26 Brynjólfur Markússon, IR 24 Halldór Kristjánsson, Gróttu 21 Ólafur Ólafsson, Haukum 21 Björn Jób-i >ness., Ármanni 20 Þðrarinn Ragnarsson, FH 20 Skoraði 25 mörk 1 einum leik UM HELGINA voru leiknir tveir leikir f Suðurlandsriðli 3. deildar. A Seltjarnarnesi lék Leiknir við Víði í Garði og lauk leiknum með sigri Leiknis 47:23, en staðan f hálfleik vai 19:10. I Hafnarfirði lék Aftur elding f Mosfellssveit gegn Akranesi og sigraði Aftureld- ing 22:21, eftir að hafa haft yfir f hálfleik 13:10. Það bar til tíðinda í leik Leiknis og Víðis, að Hermann Gunnarsson skoraði 25 mörk, en hann er bæði þjálfari og leikmaður hjá Leikni. Hafliði Pétursson skoraði 10 mörk og þeir Jón Ólafsson og Guðgeir Leifsson 4 mörk hvor. Allt eru þetta íþróttamenn þekktari fyrir afrek á knattspyrnusvið- inu. Keppni f Suðurlandsriðli 3. deildar er nú langt komin, en keppni f Austur- og Norður- landsriðlinum fer brátt að hefjast. Leiknir stendur bezt að vfgi, en Afturelding á einnig möguleika á sigri. Annars er staðan f riólinum þessi: Leiknir 3 3 0 0 111:66 6 Aftureld. 4 3 0 1 J 10:108 6 Vfðir 4 1 0 3 88:125 2 Akranes 5 10 4 '03:113 2 <v1K ý' Jón Karlsson var ÍR-ingunum erfiður í leiknum á sunnudaginn og skoraði mörg mörk með fallegum langskotum. Þarna er Jón að hleypa af, án þess að Þórarinn (nr. 6), Ásgeir og Gunnlaugur fái rönd við reist. Valsmenn komust slysalaust yfir hinn örðuga ÍR-hjalla VALSMENN unnu mikilsverðan sigur f 1. deildar keppninni í handknattleik á sunnudags- kvöldið, en þá sigruðu þeir ÍR- inga 26—19. Nú eru ÍR-ingar botnliðið f 1. deildinni, og þvf eðlilegt að álfta það fyrirfram að þetta yrði ekki erfiður leikur fyrir Vaismenn. En það er gömul saga og ný, að jafnvel þegar Vals- menn hafa verið allra beztir, hafa þeir átt f miklum erfiðleikum með IR, og enn munu bæði þejr og margir aðrir minnast þess, er Ir-ingar hreinlega „stálu“ Is- landsmeistaratitlinum frá Val f mjög eftirminnilegum leik, þar sem m.a. níu vftaköst Valsmanna fóru forgörðum. Valsmenn höfðu greinilega fyrri harmasögur sínar í viður- eignum við ÍR í huga, er þeir hófu leikinn á sunnudagskvöldið, þar sem þeir lögðu alla áherzlu á að reyna að ná forystu i leiknum strax og keyrðu þá á öllu útopn- uðu. Þetta tókst, þar sem staðan var 5—1 fyrir Val, þegar aðeins 7 mínútur voru liðnar af leiktíman- um. Eftir þessa ágætu byrjun Valsmanna var engin spenna í leiknum, ef undan er.skilinn smá- kafli í seinni hálfleiknum, er IR- ingar náðu sér bærilega á strik og tókst að minnka markamuninn niður í þrjú mörk í stöðunni 18—15. Voru menn farnir að gera því skóna að Valur væri að missa unninn leik út úr höndunum á sér, er Ólafur H. Jónsson tók af skarið og skoraði tvö mörk I röð og breytti stöðunni í 20:15. Mátti þar með segja að gert hefði verið út um leikinn, og sá handknatt- leikur sem liðin sýndu á loka- mínútunum var engan veginn yfirvegaður, né rismikill. 1 fyrri hálfleiknum lék Valslið- ið hins vegar með ágætum, og þá ekki hvað sfzt i vörninni, þar sem barizt var af miklum krafti, og skottilraunir iR-inga kæfðar strax í fæðingu í flestum tilvikum. Þannig gerði t.d. Ágúst Svavars- son, stórskytta Ir-inga, aðeins eitt einasta mark í leiknum, fyrst og fremst fyrir þá sök að Valsmenn gættu hans mjög vel, og náðu alltaf skrefinu út á móti honum, til þess að stöðva. Þeim gekk hins vegar verr að ráða við Brynjólf Markússon og sérstaklega Jóhannes Gunnarsson, sem kom þarna verulega á óvart með því að skora lagleg mörk með langskot- um, en hingað til hefur Jóhannes fyrst og fremst gengt hlutverki línumanns í IR-Iiðinu, og reyndar náð athyglisverðum árangri sem slíkur. Annars var þessi leikur stór- leikur félaganna í Valsliðinu, Jóns Karlssonar og Ólafs H. Jóns- sonar, sem skoruðu 15 af mörkum Valsmanna. Ólafur var þó með daufasta móti f vörninni, og fékk nokkur mörk í gegnum sig. Þá var þáttur Gísla Blöndals mikils- verður fyrir Valsliðið, þótt ekki ætti hann eins góðan leik að þessu sinni og á möti Ármanni á dög- unum og Stefán Gunnarsson og Gunnsteinn Skúlason eru nú að ná sér á vel á strik, sérstaklega sá siðarnefndi sem vex greinilega með hverjum leik, eftir slaka frammistöðu í upphafi keppnis- tímabilsins, sem stafaði m.a. af meiðslum hans. Þeir fimm menn sem hér hafa verið nefndir eru burðarásar Valsliðsins,-og virðist svo að töluvert langt bil sé á milii þeirra og annarra leikmanna í lið- inu. Fór strax að ganga verr hjá Valsmönnum,' er skipta þurfti þessum leikmönnum út af til hvíldar. Staða ÍR-inga í 1. deildar keppninni er nú orðin mjög alvar- leg. Hefur liðið aðeins hlotið eitt stig til þessa, og virðist sem fallið í 2. deild blasi við þvi. Það er of mikill tröppugangur á leik liðsins til þess að það geti náð bærilegum árangri. Öðru hverju nær það að leika með miklum ágætum, og gera hina laglegustu hluti, en þess á milli gengur allt á aftur- fótunum, og leikmennirnir grípa tæplega knöttinn hvað þá meira. Það voru t.d. ótaldar þær sóknir ÍR-inga í þessum leik, sem end- uðu með því að þeir töpuðu knett- inum fyrir hreinan klaufaskap, eða reyndu skot, sem telja varð algjörlega vonlaus. Hið sama er uppi á teningnum í varnarleik liðsins. Þegar bezt tekst til er þar allt á fullri ferð, og erfitt að finna smugur, en síðan koma kaflar, þar sem leikmennirnir hreyfa sig tæpast og eru aðeins áhorfendur að því sem andstæðingarnir eru að gera. í STUTTU MÁLI: Laugardalshöll 12. janúar. íslandsmótið 1. deild URSLIT: Valur (14—7) Gangur leiksins: IR 26—: Mfn. Valur ÍR 2. Gfsli (v) 1:0 4. Gunnsteinn 2:0 5. 2:1 Bjarni 5. Jón K. 3:1 6. Stefán 4:1 7. Gísli 5:1 14. 5:2 Þórarinn 14. Ölafur 6:2 17. Ólafur 7:2 21. Jón K. 8:2 23. 8:3 Brynjólfur 22. Jón K. 9:3 23. Jón K. 10:3 25. 26. Jón K. 11:4 10:4 Brynjólfur 26. Jón K. 12:4 27. 12:5 Bjarni 28. 12:6 Jóhannes 29. Ágúst 13:6 29. Ágúst 14:6 30. 14:7 Ágúst HÁLFLEIKUR 32. Ólafur 15:7 32. 15:8 Jóhannes LIÐ VALS: Ólafur Benediktsson 2, Jón Breiðfjörð Ólafsson 1, Gunnsteinn Skúlason 2, Ólafur H. Jónsson 4, Glsli Blöndal 2, Ágúst Ögmundsson 2, Jón Karlsson 4, Jón P. Jónsson 1, Steindór Gunnarsson 2, Jóhann Ingi Gunnarsson 1, Bjarni Guðmundsson 1, Stefán Gunnarsson 3. LIÐ IR: Hákon Arnórsson 2, Hörður Ilákonarson 2, Sigurður Svavarsson 1, Brynjólfur Markússon 3, Bjarni Hákonarson 2, Þórarinn Tyrfingsson 2, Agúst Svavarsson 2, Hörður Árnason 2, Gunnlaugur Hjálmarsson 2, Jóhannes Gunnarsson 2, Guð- mundur GunnarssOn 1. 34. Gfsli (v) 16:8 34. 16:9 Hörður 35. 16:10 Gunnlaugur 37. Gfsli 17:10 38. 17:11 Brynjólfur 40. 17:12 Jóhannes 40. Gunnsteinn 18:12 41. 18:13 Hörður 43. 18:14 Gunnlaugur 46. 18:15 Brynjólfur 47. ólafur 19:15 50. Ólafur 20:15 52. 20:16 Gunnlaugur 53. Bjarni 21:16 54. Ólafur 22:16 55. 22:17 Jóhannes 57. Ólafur 32:17 58. Jón K. 24:17 59. 24:18 Þórarinn 59. Jón K. ?5:18 60 25:19 Brynjólfur 60. Jóhann 26:19 Mörk Vals: Jón Karlsson 8, Ólafur H. Jónsson 7, Gísli Blöndal 4, Gunnsteinn Skúlason 2, Ágúst JÖgmundsson 2, Stefán Gunnars- son 1, Bjarni Guðmundsson 1, Jóhann Ingi Gunnarsson 1. Mörk ÍR: Brynjólfur Markússon 5, Jóhannes Gunnars- son 4, Gunnlaugur Hjálmarsson 3, Bjarni Hákonarson 2, Þórarinn Tyrfingsson 2, Hörður Hákonar- son 2, Ágúst Svavarsson 1. Brottvísanir af velli: HÖrður Arnason, Brynjólfur Markússon, Asgeir Elíasson og Ágúst Svavarsson, IR, í 2 min. Jón Karlsson, Ágúst Ögmundsson, Stefán Gunnarsson og Jóhann Ingi Gunnarsson Val, í 2 min. Dómarar: Hannes Þ. Sigurðsson og Karl Jóhannsson. Ef frá eru skilin örfá atvik dæmdu þeir leikinn með miklum ágætum. — stjl. Ágúst Ögmundsson skoraði tvö mörk í ieiknum á sunnudaginn á sfðustu mínútu fyrri hálfleiks. Þarna er annað markanna í uppsigl- ingu. Agúst Svavarsson reynir að stöðva nafnasinn. MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JANUAR 1975 19 'í Stórgóður handknattleikur Hauka færði þeim 22:13 sigur ÞAÐ var öðru fremur prýðilega útfærður handknattleikur sem færði Hafnarfjarðarliðinu Haukum stórsigur, 22:13, yfir Ármenn- ingum er liðin mættust f deildar keppninni I handknattleik f Laugardalshöllinni á sunnudagskvöldið. Sá sigur hefði ef til vill getað orðið enn stærri, hefðu Haukarnir lagt áherzlu á að fylgja 9 marka forskoti sem þeir voru komnir með um miðjan seinni hálfleik, en undir lokin virtist það vera orðið keppikefli að gefa sem flestum leikmönnum tækifæri til þess að skora. A.m.k. heyrðíst Viðar Símonarson, þjálfari Haukanna, kalla til sinna manna að leika ákveðinn mann vel upp — hann væri ekki búinn að gera mark f leiknum. Það fer tæpast mála lengur, að Haukarnir hafa nú á að skipa einu bezta liðinu í 1. deildar keppninni. Samvinna leikmanna liðsins er til mikillar fyrir- myndar og vinnslan með knöttinn góð. Þannig var það td. í fyrri hálfleik hjá Haukunum, er knötturinn gekk leiftursnöggt frá manni til manns, og stöðugar ógnanir náðu oft að galopna Ármannsvörnina. Hitt liggur líka ljóst fyrir, að Hauk- arnir hafa tæplega yfir eins mörg- um einstaklingum að ráða sem sum önnur lið i deildinni, og verður fröðlegt að sjá, þegar þar að kemur hvort má sín betur. I þessum leik skoraði Hörður Sig- marsson eigi færri en 11 mörk, og er hann þar langmarkhæsti leik- maður Islandsmótsins til þessa. Er sannarlega ánægjulegt til þess að vita að við eigum nú svo gott landslið, að ekki er talin þörf á leikmanni eins og Herði í það, — manni sem skorar að jafnaði tíu mörk í leik á móti beztu liðum á Islandi! Hörður gerði 9 af þessum mörk- um í fyrri hálfleik, en i seinni hálfleiknum tóku Ármenningar það til bragðs að taka hann úr umferð. Þar með var mesta snerpan úr sóknarleik Haukanna, eða öllu heldur breyttist hann töluvert, og meira var „keyrt" inn í vörn andstæðinganna en áður. Sennilega er það mjög tvieggjað fyrir andstæðinga Haukanna að taka Hörð úr umferð, þar sem liðið hefur yfir góðum línumönn- um að ráða, og það sem meira er — leikmann sem getur sent á þá. Sá er Ólafur Ólafsson en hann átti | þarna mjög góðan leik, og átti drjúgan þátt i mörgum mörkum, auk þess sem hann skoraði sjálfur, þegar Hörður tepptist. Tæpast leikur á tveimur tung- um, að Viðar Símonarson, þjálfari Haukanna, á drjúgan þátt í vel- gengni liðsins i vetur, og ætlar hann að standast vel fyrstu þol- raun sína sem þjálfari. Áður hefur verið á það minnzt hversu vel Viðar stjórnar liði sínu í leikj- unum, og leikurinn á sunnudags- kvöld var þar engin undantekn- ing. Einhvern veginn var það þannig, að Haukunum tókst að ná öllu því bezta fram í leikmönn- um sínum, og hverjum og einum þegar mest á hann reyndi. I leikj- unum sjálfum er hlutverk þjálfar- ans ekki lítið, og jafnvel hinir ágætustu þjálfarar geta brugðizt illa ,,á bekknum". Það hefur ekki komið fyrir Viðar. Ekki verður það sagt að Ár- mannsliðið hafi staðið sig verr í þessum leik en það hefur gert til þessa í vetur, þrátt fyrir að 9 marka ósigur sé nokkuð mikill, þegar einungis er litið á tölurnar. Vörn liðsins var ekki eins hreyfanleg og hún var fyrst í haust og breytir þar töluverðu að Stefán Hafstein hefur ekki leikið með liðinu að undanförnu, en hann er mjög harðskeyttur og laginn varnarmaður. Það er Ragnar Gunnarsson, hinn ágæti markvörður liðsins, sýnilega í nokkrum öldudal. Hann verður ekki sakaður um mörg markanna í þessum leik, en miðað við það sem hann gerði fyrr í vetur, hefði hann átt að geta komið í veg fyrir nokkur þeirra. Sóknarleikur Ámenninganna er einnig nokkuð einhæfur og gekk of mikið upp á miðjuna, með til- liti til þess að i liðinu eru leik- menn sem geta vel farið inn úr hornunum og skorað þannig. Komu reyndar flest marka Ármenninga á þann hátt, en eigi að síður fengu hronamennirnir of litla aðstoð frá félögum sínum í leiknúm, og voru á tíðum hrein- lega svelltir. Og víst verður það að teljast sennilegt að þótt staða Ármenn- inga I deildinni sé ekki slæm, þá megi þeir taka betur á til þess að vera tryggir með sæti sitt. Enn eru margir leikir eftir og ólíklegt annað en botnliðin fari að sækja á af meiri hörku en til þessa. Það er mjög dýrmætt fyrir Ármenninga að halda sér í deildinni í ár, þar sem margir leikmenn liðsins eru ungir að árum, og eiga töluvert í sitt bezta. Þeir þurfa að öðlast meiri reynslu og yfirvegun, og þessi atriði koma með leikjunum. 1 STUTTU MÁLI: Laugardalshöll 12. janúar Islandsmótið 1. deild URSLIT: Ármann — Haukar 13—22 (9—14) Gangur leiksins: Mín. Ármann Haukar 3. 0:1 Hörður (v) 5. Pétur (v) 1:1 7. 1:2 Arnór 7. 1:3 Hörður 8. 1:4 Stefán 11. 1:5 Iförður (v) 12. Hörður H. 2:5 15. 2:6 Arnór 17. 2:7 Elías 18. 2:8 Hörður 20. 2:9 Hörður (v) 21. Hörður H. (v) 3:9 22. Jens 4:9 23. Jens 5:9 24. 5:10 Elías 26. 5:11 Hörður 26. Jns 6:11 27. 6:12 Hörðui 28. 6:13 llörður (v) 28. Hörður H. 7:13 30. 7:14 Hörður 30. Björn 8:14 30. Jens 9:14 HAUFLEIKUR 32. 9:15 Stefán 33. 9:16 Arnór 34. 9:17 Hörður 40. 9:18 Ólafur (v) 42. Björn 10:18 42 10:19 Ölafur 44. Kristinn 11:19 45. 11:20 Frosti 46. Kristinn 12:20 48. 12:21 Hörður 57. Kristinn 13:21 58. 13:22 Ölafur Mörk Ármanns: Jens Jensson 4, Hörður Harðarson 3, Kristinn Ingólfsson 3, Björn Jóhannesson 2, Pétur Ingólfsson 1. Mörk Hauka: Hörður Sigmars- son 11, Arnór Guðmundsson 3, Ólafur Ólafsson 3, Stefán Jónsson 2, Elías Jónasson 2, Frosti Sæmundsson 1. Brottvísanir af velli: Pétur Ingólfsson og Gunnar Traustason, Armanni, i 2 min. og Frosti Sæmundsson og Logi Sæmunds- son, Haukum, i 2 mín. Misheppnað vítakast: Hörður Sigmarsson skaut í stöng og út á 39. min. Dómarar: Sigurður Hannesson og Kristján Örn Ingibergsson. Var dómgæzla þeirra að heita mátti óaðfinnanleg. — stjl. LIÐ ÁRMANNS: Ragnar Gunnarsson 2, Olfert Naabye 1, Gunnar Traustason 1, Björn Jóhannesson 2, Hörður Harðarson 2, Pétur Ingólfsson 2, Jón Astvaldsson 2, Jens Jensson 2, Hörður Kristins- son 2, Kristinn Ingólfsson 3, Skafti Halldórsson 1, Hreinn Halldórsson 1. LIÐ HAUKA: Gunnar Einarsson 3, Sturla Haraldsson 1, Ingimar Haraldsson 1, Arnór Guðmundsson 3, Logi Sæmundsson 2, Ólafur Ólafsson 4, Stefán Jónsson 3, Guðmundur Haraldsson 2, Frosti Sæmundsson 2, Hörður Sigmarsson 4, Elías Jónasson 3. Það er „stíll“ yfir Stefáni Jónssyni er hann stekkur inn í teiginn hjá Armenningum, en þrumuskot hans lenti í stöng og út. Armenning- arnir sem misst hafa Stefán framhjá sér eru Olfert Naabve, Jón Astvaldsson og Hörður Kristinsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.