Morgunblaðið - 26.01.1975, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JANUAR 1975
Allur súrmatur er útbúinn í
Nausti af Ib Westman og starfs-
fólki hans og hefst það verk f
októbermánuði.
Þorratrog Nausts hafa notið
mikilla vinsælda og eru forráða-
menn veitingahússins ákveðnir í
að halda þessari hefð áfram
meðan svo er. Þorratrogið kostar
nú 1.450 krónur.
ToUaafgreiðslureglum breytt
Á FUNDI framsóknarfélaganna
sl. fimmtudag lýsti Ólafur
Jóhannesson viðskiptaráðherra
yfir því, að i undirbúningi væri
endurskoðun á reglum um toll-
afgreiðslu á innfluttum vörum.
Ráðherrann sagði, að þessi endur-
skoðun miðaði að því að setja
ákveðnari reglur um þann tíma,
sem líða mætti þar til vörur, er
fluttar eru til landsins, væru toll-
afgreiddar og leystar út. Ráð-
herrann sagði, að takmörk væru
fyrir því, hversu lengi vörur
mættu biða þar til þaer væru toll-
afgreiddar og leystar út.
Nökkvi rær enn
NÖKKVI — rækjubáturinn frá
Blönduósi — reri í fyrradag og
landaði afla sfnum á Hvamms-
tanga. Að sögn Kára Snorrasonar,
framkvæmdastjóra rækjuvinnsl-
unnar á Blönduósi, var f gær
verið að vinna afia Nökkva í
vinnslunni. Kvaðst Kári ekki hafa
heyrt frá skipverjum Nökkva f
gær en taidi fulivfst, að Nökkvi
væri þá einnig á sjó, þar eð veður
var hið fegursta.
Kári kvað þá skipverja á
Nökkva enn ekki hafa orðið vara
við varðskip i flóanum, en ráðu-
neytisstjóri dómsmálaráðuneytis-
ins hefur lýst þvf yfir, að til
greina komi að varðskip verði
sent á staðinn til að taka Nökkva
fyrir ólöglegar rækjuveiðar f
flóanum. Kvaðst Kári mundi bíða
átekta eftir aðgerðum dómsmála-
ráðuneytisins gegn Nökkva.
Nökkvi hefur eftir sem áður
landað afla sfnum á Hvamms-
tanga og þar hefur ekki dregið til
neinna tiðinda, að sögn Kára.
Þvert á móti hefðu sjómenn og
allur almenningur á Hvamms-
Oskipt loðnu-
verð kr. 3,95
EINS og skýrt var frá i
Morgunblaðinu f fyrradag, þá
segjast Færeyingar geta
bórgað rösklega 4 kr. fyrir
hvert kg af loðnu á meðan hún
er 12—13% feit. Auglýst
loðnuverð á íslandi er hins
vegar ekki nema kr. 2.80 fram
til 8. febrúar n.k. Þetta verð er
þó aðeins það verð, sem kemur
til skipta, og við það má bæta
41% sem þýðir, að fyrir hvert
kg af loðnu eru greiddar kr.
3.95 um þessar mundir. Það,
sem dregst frá þessu verði
áður en til skipUa kemur, er
framlag útgerðar í stofnlána-
sjóð fiskiskipa, útflutnings-
gjöld og olíusjóður. Ekki er þó
hér með-sagt að verksmiðjurn-
ar borgi þetta verð, þvf
reiknað er með að 200 millj. kr.
verði greiddar til hráefnis-
kaupa úr Verðjöfnunarsjóði.
— eða eins og einn útgerðar-
maðurinn sagði er við ræddum
við hann: Þetta er allt orðið
svo flókið að við skiljum það
vart.
Þá má geta þess, að verk-
smiðjurnar greiða ákveðna
upphæó í fluíningasjóð sem
nær J>ví sennilega að verða um
12 aurar að meðaltali fyrir
hvert kg og kemur þessi tala
ofan á skiptaverðið.
Þorri 1
Nausti
VEITINGAHtJSIÐ Naust býður
nú gestum sfnum sautjánda árið f
röð upp á þorramat f trogum.
Þessi þjónusta hófst á bðndadag-
inn og lýkur á þorraþræl, sem nú
er 23. febrúar.
í þorratrogi Nausts eru 15 teg-
undir þorrarétta eins og venju-
lega. Óskammtað er í trogin og er
unnt að fá ábót að vild.
tanga verið sérstaklega hjálp-
legur og gat í því sambandi, aó
þegar Nökkvi hefði landað sl.
föstudag, hefðu sjómenn á
Hvammstanga fært báta sina til
aó Nökkvi gæti lagzt þar beint að
bryggju. Taldi Kári, að ekki væri
kurr nema í 2—3 mönnum á
Hvammstanga, sem teldu sig hafa
hagsmuna að gæta.
Myndin er tckin er verið var að
landa úr Nökkva f höfninni á
Hvammstanga á dögunum. Kári
Snorrason, framkvæmdastjóri
rækjuvinnslunnar á Blönduósi,
ræðir hér við Grétar, skipstjóra
áNökkva.
Línuútgerð að mestu
niðurlögð í Sandgerði
30-40 bátar gerðir þaðan út á vetrarvertíðinni
Sandgerói, 24. jan.
I SANGERÐI hefur tíðarfar verið
mjög rysjótt það sem af er árinu
og má raunar segja, að síðan á
milli jóla og nýárs hafi hvert stór-
viðrið á fætur öðru gengið hér
yfir. Mjög miklum snjó kyngdi
niður f þorpið í norð-
austanáttinni á dögunum og hér
eru nú hærri snjóskaflar en verið
hafa um langt árabil. Ekki hefur
þetta þó svo mjög raskað lffi
manna þvf t.d. hafa rafmagns-
truflanir verið sáralitlar.
Hafnarframkvæmdir sem hér
standa yfir hafa þó gengið mjög
erfiðlega undanfarið, aðallega
sökum veðurs, en þær fram-
kvæmdir hófust í ágústmánuði s.l.
og er unnið að gerð tveggja grjót-
garða samtals hátt i 4000 metra
langa. Siðan er hugmyndin að
gera 90 metra langa bryggju við
enda annars þeirra með viðlegu-
plássi báðum megin og er fjárveit-
ing fengin til aö ljúka því verki á
þessu ári. Einnig fyrir talsverðri
dýpkun inni i höfninni.
tJtlit er fyrir, að héðan verði
gerður út svipaður bátafjöldi og
undanfarin ár á vetrarvertíð, á
milli 30 og 40 bátar. En mikil
breyting hefur orðið á útgerðar-
háttum frá því sem áður var. Héð-
an voru ávallt gerðir út á vetrar-
vertfð milli 20 og 30 bátar á línu
allt fram til 1974. Þá fækkaði
þeim niður í 11 og nú verða þeir
aðeins 6. Lfnubátum hefur þannig
fækkað nálega um helming frá ári
til árs núorðið. Stafar þetta mikið
af aflabresti línubáta undanfarin
ár, sem aftur kemur kannski mik-
ið til að þvf að lína hefur hvergi
„griðland“ fyrir öðrum veiðarfær-
um, og einnig að nokkru af ört
stækkandi bátum, því á stærri
skipum snúa menn sér frekar að
stórvirkari veiðarfærum svo sem
netum og botnvörpu eða þá loðnu-
veiðum. 7 bátar verða héðan á
loðnu f vetur og eru þeir flestir
farnir til veiða. Aðrir bátar héðan
verða á neta- eða botnvörpuveið-
um nema smæstu bátarnir, sem
verða á handfærum. Vertíó hófst
hér 6. janúar og eru 13 bátar
þegar byrjaðir veiðar. Afli hefur
verió fremur rýr og gæftir mjög
slæmar. Togbátar öfluðu þó allvel
fyrstu daga vertíðarinnar, en síð-
an hefur verið mjög tregt. Línu-
bátar hafa yfirleitt verió með
3—4 lestir í róðri og komist hæst f
6 lestir. Einn bátur, Bergþór, er
Ráðstefna um
kjör láglauna-
kvenna
RAÐSTEFNA um kjör láglauna-
kvenna verður haldin f Lindarbæ
í dag og hefst kl. 10. Til ráðstefn-
unnar boða Starfsstúiknafélagið
Sókn, ASB, félag afgreiðslu-
stúlkna f brauð- og mjólkurbúð-
um, Iðja, félag verksmiðjufólks,
Starfsmannafélag rfkisstofnana
og Rauðsokkahreyfingin.
Gert er ráð fyrir að ráðstefnan
starfi allan daginn fram undir kl.
19. Stutt framsöguerindi munu
flytja Guðrún Agústsdóttir, SFR,
Asdis Guðmundsdóttir, Iðju, Sig-
rún Clausen, Verkalýðsfélagi
Akraness, Aðalheiður Bjarnfreðs-
dóttir, Sókn, Stella Stefáhsdóttir,
Framsókn, Herdis Helgadóttir,
VR, Hallveig Einarsdóttir, ASB,
Ingibjörg G uðmundsdóttir, SFR,
og Guðrún Emilsdóttir. Sókn.
Að framsöguerindum loknum
verður starfað i hópum og síðan
verða almennar umræður. Mark-
miðið með ráðstefnu þessari er
fyrst og • fremst að draga fram
sérstöðu kvenna f atvinnulífinu
og hvatning til þeirra að krefjast
úrbóta, segir f fréttatilkynningu.
búinn að draga net 12 sinnum og
fá 90 lestir, sem má teljast mjög
góður afli miðað við árstíma.
Afli sem landað var hér á síð-
asta ári var meiri að magni til en
nokkru sinni áður, 35.193 lestir,
en var 32.280 lestir f hitteðfyrra.
Loðnan er stærsti þátturinn í
þessum afla, þvi gæðafiskurinn
fer stöðugt minnkandi og munar
þar mest um hvað vetrarvertiðir
hafa brugðizt hér undanfarin ár,
þvi fiskafli sumar og haust er
alltaf að aukast. Rækju- og
humarafli var einnig mjög léleg-
ur s.l. ár enda stóðu þær veiðar
mjög stutt yfir og mun færri bát-
ar stunduðu þær veiðar en oft
áður. Skiptingin á aflanum að
öðru leyti varð sem hér segir (I
sviga tölur frá fyrra ári):
Loðna 20,836 lestir (14,765)
bolfiskur 13,295 lestir (14,356)
spærlingur 817 lestir (2,309)
rækja 211 lestir (760)
humar 34 lestir (90)
— Jón
Bústaðakirkja
Barnasamkoma verður kl. 11
og helgileikur fluttur. Gtiðs-
þjónusta kl. 2 — barnagæzla
meðan á messu stendur.
Sr. Ólafur Skúlason.
Læknirfræð-
irumgetnað-
arvamir
Heilsuverndarstöð Reykjavfk
ur hefur nú ákveðið að auka
við þjónustu sína á sviði getn-
aðarvarna og hefst það starf í
næsta mánuði. Mun læknir
verða til viðtals tvisvar í viku,
tvo tfma f senn, og veita upp-
lýsingar og fræðslu um notkun
getnaðarvarna og verja og leið-
beina um val á slíkum verjum.
Skýrir Marfa Þorgeirsdóttir,
félagsráðgjafi við Heilsu-
verndarstöðina, frá þessu f við-
tali, sem birtist á Slagsíðunni í
Morgunblaðinu. f dag, en þar
er fjallað um vandamál ung-
lingsstúlkna, sem verða barns-
hafandi.
w
Islenzkur tannlæknapró-
fessor í Bandaríkjunum
SIGFUS Þór Elíasson tannlæknir
frá Vestmannaeyjum var nýlega
skipaður prófessor í Operativ
Dentistry við Tannlæknaháskól-
ann í Minnesota í Bandaríkjun-
um. Sigfús Þór er 31 árs gamall.
Hann lauk tannlæknaprófi frá
Tannlæknadeild Háskóla Islands
1971 og vann sfðan við almennar
tannlækningar og skólatannlækn-
ingar í Reykjavík í eitt ár. Hann
hélt sfðan til Bandarikjanna til
framhaldsnáms og lauk Masters-
prófi i Operativ Dentistry
Materials og Preventive Dentistry
frá Indiana University. Skipun
Sigfúsar í þetta embætti er mikill
heiður fyrir íslenzka tannlækna-
stétt þar sem Tannlæknaskóli
Minnesota er einn virtasti og full-
komnasti tannlæknaskóli f veröld-
inni.
sigfús Þór Elfasson