Morgunblaðið - 26.01.1975, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 26.01.1975, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JANUAR 1975 Hafréttarráðstefnan Framhald á bls. 23 BRÓMBERIN STÓÐU í ÞEIM Þegar nú Bandaríkjamenn höfðu gengið svo langt sem raun bar vitni í samningunum um sundamálin lýstu þeir því yfir, að enn annar þáttur í hafréttar- stefnuskrá þeirra væri ófrá- víkjanlegur. Það atriði stóð i þriðja heiminum og ráðstefnan small í baklás. Það vekur furðu að svo af- dráttarlaus afstaða skyldi tekin til þessa atriðis, þar sem um er að ræða auðlind, sem enginn hefur enn unnið sem neinu nemur, nefnilega hin furðulegu, svörtu, kartöflulöguðu djúpsjávarfyrir- brigði, sem víða liggja eins og hráviði á hafsbotni og kallast manganvölur. Uppruni þessara fyrirbrigða hefur aldrei verið skýrður til fulls. En hafrannsóknamenn hafa komizt að því, að tilteknar tegundir — kallaðar brómberjavölur, vegna litarins, sem er svartur, og lög- unar, en þær líkjast helzt litlum kekki eða beri — innihalda all- mikið af kopar, nikkeli og kóbalti fyrir utan dálítið magn margra annarra málma. Stærstu og auðugustu brómberjavölumiðin liggja á löngu, mjóu belti á alþjóðahafsvæðinu á Kyrrahafi og teygjast vestur undir Marshall- eyjar frá svæði, sem er nokkur hundruð mílur undan strönd Mexico. Um nokkurt árabil hafa tvö bandarísk fyrirtæki, Deepsea Ventures (deild úr Tenneco) og Kennecott Copper kannað þetta svæði. Þau hafa reynt að finna upp tæknibúnað til að ná völun- um upp, þaðan sem þær liggja á 3—5 mílna dýpi og sömuleiðis til að skilja sundur og hreinsa málm- oxyðblöndurnar. Til þessa hafa fyrirtækin Deepsea Ventures og Kennecott sennilega varið í þessu skyni um það bil 20 milljónum dollara, hvort um sig. Fyrirtæki frá sex öðrum þjóðum eru einnig að kanna þessar auðlindir. En til þessa hafa manganvölurnar ekki verið unnar til sölu. Þann tækni- búnað, sem til vinnslu þeirra og hreinsunar þarf, hefur ekki enn tekizt að fullkomna — og almennt er álitið að fjárfestingarkostn- aður við manganvöluframleiðslu verði einhversstaðar á bilinu 250—400 milljónir dollara, sem er geypimikið fyrir svo áhættusamt fyrirtæki. Enda þótt sumar áætlanir bendi til þess, að arður af fjárfestingu í völuvinnslu gæti komizt upp i 36% á ári eða meira, hafa hugsan- legir fjárfestingaraðilar eða lána- stofnanir ekki beinlínis dottið hver um annan þveran í kapp- hlaupi um bita af vöiukökunni. Þeir halda meóal annars að sér höndum vegnaþessaðfyrir þeim vefst sú hin sama spurning, sem fulltrúar á hafréttarráðstefnunni í Caracas veltu sem mest fyrir sér sl. sumar, þ.e. hver eigi þessar siðustu leifar af hinum sameigin- lega arfi mannkyns, hvernig verður vinnslu þeirra háttað og hvernig verður arðinum skipt? ÓTTAST AÐ VERÐA SETTIR HJÁ Um kjarna þessa máls er grund- vallarágreiningur milli iðnríkja heims og vanþróuðu ríkjanna. Hann er hvert verða skuli eðli alþjóðastofnunar þeirrar, sem gert er ráð fyrir að hafi yfirstjórn vinnslunnar með höndum. Iðnríkin eru afdráttarlaust á því, að slík stjórnarstofnun skuli vera leyfisveitandi, það er að segja að hún skipti einungis völu- miðunum upp í hólf og veiti vinnsluleyfi þeim sem hafa vill, annað hvort með því að bjóða leyfin upp eða á þeim grundvelli að þeir fái fyrst, sem fyrstir koma. Þar sem iðnríkin gera sér grein fyrir því, að slik stofnun mundi væntanlega falla undir stjórn hins vanþróaða þjóðameiri- hluta, býður þeim í grun, að vinnslufyrirtæki þeirra verði höfð útundan og þeim verði þannig meinaður aðgangur að þessari nýju málmgnótt. Þau hafa því sett fram kröfur um, að í samningi um hafréttarreglur verði skýr og nákvæm ákvæði og reglur um þessa vinnslu. 77-ríkja hópurinn hefur haldið jafnstíft fram allt öðru fyrir- komulagi. Upphaflega vildi hópurinn að alþjóðlega stjórnar- stofnunin annaðist sjálf vinnsluna. Þegar ljóst varð að slík stofnun mundi sennilega ekki vera fær um að koma sér upp því fjármagni og þeirri sérþekkingu, sem til þyrfti, féllst 77-ríkja hópurinn á að leyfa þátttöku einkafyrirtækja með þjónustu- samningum eða samvinnusamn- ingum en eftir sem áður skyldi stofnunin geta stjórnað fram- kvæmdum að eigin geðþótta, ekki einasta framleiðslunni sjálfri heldur og verðlagningu afurð- anna og dreifingu þeirra á markað. Upphaflega kom þessi hug- mynd frá nokkrum þjóðanna, sem hafa mikla námavinnslu, svo sem Chile, Perú, Zaire og Zambiu, sem litu svo á, að með eftirliti með framleiðslu og verðlagningu málma, sem unnir væru á hafs- botni, mætti draga úr verð- lækkunum á málmum á heims- markaði. En nú er svo komið, að önnur ríki í hópnumtelja stjórn völuvinnslunnar eðlilega og rök- rétta afleiðingu af eignarréttin- um, sem felst í hugtakinu sameig- inlegur arfur. Bandaríkjamenn og aðrar iðnaðarþjóðir reyndu að slá á ótt- ann út af málmverðinu með þeim rökum, að málmvinnsla af hafs- botni yrði aldrei nema lítið brot af heimsframleiðslu þeirra málma, sem mestu máli skipta í þessu sambandi, en það eru einkum nikkel og kopar. Bandaríkjamenn reyndu að kljúfa 77-ríkja hópinn með því að benda á að einungis sex þeirra væru meiri háttar málmút- flytjendur og að iðnríkin fram- leiddu I raun og veru meira af mangan, kopar, nikkel og kóbalti en vanþróuðu ríkin. Flestar þjóðir í 77-rfkja hópn- um eru innflytjendur málma og eru að reyna að iðnvæðast. Þeim yrði tjón að minnkandi málm- framleiðslu og hærra málmverði, því það kæmi fram í dýrari fram- leiðslutækjum. Bandaríkjamenn héldu þvf fram, að sú málmvinnslustjórn, sem 77-rfkja hópurinn mælti með, myndi fæla menn frá málm- vinnslu á hafsbotni. Loks héldu Bandáríkjamenn opnum þeim möguleika, að sérstakar uppbæt- ur yrðu greiddar málmframleið- endum meðal vanþróuðu ríkj- anna, ef þeir yrðu fyrir efnalegu tjóni. FRUMVARP IBAKGRUNNI Þess ber að gæta, að aðrar þjóðir, þar á meðal Vestur- Þjóðverjar, Japanir og Frakkar hafa unnið að því að ná Banda- ríkjamönnum í völuvinnslutækni og rannsóknum og samtök banda- rfskra námavinnslufyrirtækja hafa verið að reyna að brjótast úr sjálfheldunni. Árið 1971 fengu samtökin talið öldungadeildar- þingmanninn Lee Metcalf frá Montana á að leggja fram á þingi frumvarp, þar sem ráð var fyrir þvf gert að Bandaríkin tækju að sér hlutverk völuvinnslustjórnar á alþjóðahafsvæðinu. Samkvæmt því skyldu Bandaríkin úthluta vinnsluhólfum til leigu og jafnvel innheimta leiguna fyrir hönd samfélags þjóðanna. Þessu hlut- verki Bandarfkjanna skyldi lokið, þegar komið hefði verið á laggirn- ar viðunandi alþjóðlegri stjórnar- stofnun. Loks gerði frumvarp þetta ráð fyrir því, að tæki ein- hvern tíma við stjórn alþjóðahaf- svæðisins alþjóðastofnun óvin- veitt Bandaríkjunum skyldi bandarískum námafyrirtækjum bættur sá skaði, sem hún kynni að valda þeim. Nú þegar hafa fjölmargir full- trúar þriðja heimsins lýst því af- dráttarlaust yfir, að samþykki bandarfska þingið frumvarp Met- calfs, verði á það litið sem ákvörð- un af bandarískri hálfu um að gera einhliða tilkall til hins sam- eiginlega arfs mannkynsins. Slík samþykkt myndi, að þvf er þeir segja, koma algerlega f veg fyrir samkomulag í öllum hinum marg- þættu atriðum hafréttarmálanna. Til þessa hefur Bandarfkjastjórn sjálf verið frumvarpinu andvíg, enda þótt bandarísku samninga- mönnunum á ráðstefnunni hafi ekki þótt með öllu illt að hafa það hangandi í bakgrunninum svona sem hvöt til alvarlegra umræðna. Þegar allt kemur til alls má draga í efa að sérstaklega brýn þörf sé fyrir hvort heldur er námafrumvarpið bandaríska eða hinar nákvæmu völuvinnsluregl- ur í hafréttarsamkomulaginu. Fyrirtæki á borð við Tenneco og Kennecott eru væntanlega fær um að spjara sig í ölduróti heims- viðskiptanna. Bæði fyrirtækin hafa þegar myndað samsteypur ásamt öðrum fyrirtækjum í Evrópu og Japan. Sennilega hafa flestar þjóðir 77-ríkja hópsins áhuga á því að völurnar verði unnar, þrátt fyrir áhyggjur málm- framleiðsluríkjanna þeirra á meðal. Ósennilegt er að það gerist án þess að bandarísk fyrirtæki fái þar sanngjörn tækifæri með sann- gjörnum skilmálum. Þar fyrir utan hafa önnur auðug völumið fundizt innan 200 mflna efnahags- lögsögu nokkurra rfkja og fái fyr- irtækin ekki viðunandi samninga hjá alþjóðlegu hafsbotnsstjórn- inni, ef og þegar hún kemst á laggirnar, geta þau sennilega átt betri kosta völ einhvers staðar annars staðar. SOGPRAMMI HOWARDS HUGHES Raunar hefur nýr áræðinn þátt- takandi komið fram á sjónarsvið- ið, þar sem er sá frægi maður Howard Hughes. Þegar Hughes hafði selt hlutabréf sín í Hughes Tool Co., árið 1972, stofnaði hann fyrirtækið SUMMA Corporation, sem hann á alveg sjálfur. Síðan fjárfesti hann, að talið er, um 100 milljón dollara til að ná og fara fram úr öllum keppinautum sín- um í völuvinnslutækni. Hann hefur látið smíða tvö furðufley, sem hafa gerzt æ tfðari gestir í höfnum á vesturströnd Banda- ríkjanna og í Hawaii. Annað þessara skipa, Hughes Glomar Explorer, lfkist venjulegu flutningaskipi nemá hvað yfir- byggingin er hið mesta völundar- hús með ógrynni af lyftikrönum, vörurennum og leiðslum. Hitt skipið er lauklaga prammi, sem líkist engu meira en fljótandi flugvélaskýli. Vitað er, að á þvf síðara er vökvaknúin botnsskafa, sem getur sogið völurnar af hafs- botni. En hönnun þessa tækja- búnaðar er ámóta dularfull og undir ámðta eftirliti og Howard Hughes sjálfur. SUMMA-skipin eru augljóslega enn að gera tilraunir með tækni- búnað en mönnum varð tíðrætt um athafnir þeirra í göngum Mið- garðs í Caracas. Framkvæmdastjóri SUMMA, Paul Reeves, er ekkert að fara í launkofa með, að Hughes Glomar Explorer og hinn furðulegi félagi hans muni leggja út á völumiðin að tæknitilraunum loknum án þess að bíða eftir þvi hver örlög frumvarps Metcalfs verða. „Þegar við erum tilbúnir til að hefja vinnslu, munum við gera það,“ segir Reeves. Sumir telja, að það geti orðið fyrir árslok 1975. 77-ríkja hópurinn hefur þegar gert ljóst, að hann muni telja Bandarfkjastjórn ábyrga fyrir gerðum Hughes. Samkvæmt gild- andi lögum hefur hún enga lög- lega leið til að stöðva hann. Vafa- laust gæti þingið sett slík lög en til þess eru litlar líkur eins og stemningin þar er um þessar mundir. Og þó slík lög yrðu sett, er eins lfklegt, að SUMMA létti einfaldlega akkerum og skrásetti skipin í einhverju öðru landi. Með þvf að ganga út frá afstöðu 77-ríkja hópsins í völumálinu, sem markast f æ ríkari mæli af tilfinningasemi, mætti gera sér í hugarlund athyglisverða mynd af þeim degi, er SUMMA hæfist handa. Mætti hugsa sér lítinn eftirlitsbát — segjum af sovézku gerðinni OSA, búinn Styx- flugskeytum og kannski mannaðan blandaðri áhöfn frá ýmsum málmvinnsluríkjum rómönsku Ameríku geysast á vettvang og og senda 100 milljón dala fjárfestingu Hughes til botns. Bezt að velta þvf ekki fyrir sér hvað síðan myndi gerast. HÓTANIR FISKIMANNA Sem stendur stafar hafréttar- viðræðunum þó ekki mest hætta af Howard Hughes eða Metcalf heldur af þeim glóðum elds, sem safnazt hafa að höfðum banda- rfskra þingmanna frá norðaustur og norðvesturströndinni, kröfun- um um, að stórvirkir fiskiskipa- flotar erlendra ríkja verði hraktir frá ströndum Bandaríkjanna. Þeir hafa borið bandarískan fisk- iðnað ofurliði á heimamiðum hans og valdið alvarlegri skerðingu sumra fiskstofna. 1 ágúst, meðan Caracas- ráðstefnan stóó enn yfir, af- greiddi verzlunarnefnd öldunga- deildar Bandaríkjaþings frum- varp, þar sem gert var ráð fyrir útfærslu bandarísku fiskveiðilög- sögunnar i 200 mílur. Flutnings- maður frumvarpsins var Warren Magnusson, formaður nefndar- innar, og eru talsverðar líkur á því taldar, að það verði samþykkt í öldungadeildinni i haust. Ekki er eins víst, að frumvarpið fari gegnum fulltrúadeildina en verði það að lögum, mun það vafalaust gera að engu þær líkur, sem enn kunna að vera fyrir nothæfu haf- réttarsamkomulagi. Þegar biða margar þjóðir óþol- inmóóar eftir þvi að setja fram kröfur um 200 milna lögsögu. Það er fyrst og fremst vegna tilmæla Bandaríkjanna, sem þær hafa ekki þegar látið verða af þessu og svo vegna þess, að þær hafa gert sér vonir um að hægt yrði að finna einhverja málamiðlun á grundvelli hugmyndarinnar um efnahagslögsögu. Mexikó hefur þegar látið að því liggja að samþykkt 200 mílna frumvarpsins í öldungadeildinni, hvað þá annað, muni hafa í för með sér útfærslu mexikönsku landhelginnar. Megi dæma af fyrri reynslu af yfirlýsingu Bandaríkjanna í landsgrunnsmálinu er sennilegt að samþykkt frumvarpsins mundi koma af stað keðjuverkun ámóta eða jafnvel enn stærri kröfum af hálfu annarra strandríkja og þar með verði siglingafrelsi, mengúnarvarnasamningum og öllum hinum góðu málunum kastað fyrir borð. Og með því að reka úr banda- rísku landhelginni erlenda fiski- rnenn,, sem flytja inn til okkar mikið af ódýrari tegundum freð- fisks, má búast við þvf, að frum- varpið hafi í för með sér verð- hækkun á fiski til bandarískra neytenda. VONBRIGÐI ICARACAS Hvort sem þetta frumvarp nær fram að ganga eður ei og hvort sem nokkur hafréttarsamningur sér dagsins ljós eður ei, er sú stefna, sem hafréttarsamninga- viðræðurnar hafa tekió, víðs fjarri því andrúmslofti, sem lék um fæðingu málsins fyrir sjö árum. I þéttriðnu neti þjóða heims, sem eru hver annarri háðar, höfðu margir alið með sér þá von, að samningurinn yrði fyrirmynd um það, hvernig unnt væri að ráðast á fjöldamörg vandamál önnur, til dæmis hvernig ákvarða mætti eignarrétt á Suðurskauts- landinu eða hvernig skipuleggja mætti matvælabirgðir og fóður- bæti til að ráða bót á hungrinu í heiminum. Það er ills viti, að þátttakendur í hafréttarviðræðunum hefur til þessa greint á um öll þau mál, sem þarfnast verulegrar sam- vinnu; þeir eru sundraðir af tor- tryggni og þráhyggju i sambandi vió fullveldi, tákn og eiginhags- muni. Dr. Arvid Pardo, sendiherra Möltu, maðurinn sem hleypti þessu máli af stokkunum lét í ljós vonbrigði sin yfir gangi ráðstefnunnar á göngum Mið- garðs í Caracas með þessum orðum: „Ég hugsa að betra hefði verið að hafa alls enga ráðstefnu og ekkert samkomulag.“ FRENDO-UMBOÐIÐ Á ISLANDI HEFUR TIL SÖLUMEÐFERÐAR TVO TOGARA í SMÍÐUM í NOREGI, 1.140 feta til afhendingar í des. 1975 2. 155fetatil afhendingar I jan. 1976. útgerðarmenn - sklpstlðrar Skuiiogarar Upplýsingar á skrifstofunni Klapparstíg 29, 3. hæð, Sími28450.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.