Morgunblaðið - 26.01.1975, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 26.01.1975, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JANUAR 1975 HVAÐ ER Á SEYÐI „Lygin er frá á fæti,“ segja menn í Kreml um fréttir á Vesturlönd- um um erfiðleika Leonid Brezhnevs og fara síðan háðuleg- um orðum um „svokallaða Kremlarfræðinga" sem eru sagðir breiða út lygina. Kremlarfræðing- arnir eru sagðir „velta sér — eins og lófalesarar — upp úr alls kon- ar spádómum sem séu ekkert nema staðlausir stafir.“ Freud kunni betri skýringu á því hvern- ig Kremiarfræðingum tekst að svipta hulunni af dýpstu leyndar- dómum Kremlar. Hann sagði einu sinni sögu af því hvernig austur-evrópskur Gyðingur — og sumir okkar eru beztu Kremlarfræðingarnir — fylgdist með ungum manni sem ferðaðist með honum í járn- brautarlest. Gyðingurinn var á leið til þorpsins sem hann bjó í og Brezhnev hóstar. Er hann aðeins meó inflúensu eða er hann haldinn ólæknandi sjúkdómi? þangað virtist ferð unga manns- ins líka heitið. Þeir sátu einir saman í klefa og Gyðingurinn fór t að vfelta vöngum yfir hinum ókunna samferðarmanni sinum. j Hann reiknaði dæmið þannig: „1 þorpinu búa aðeins smábændur l og Gyðingar. Eftir klæðaburðin- um að dæma er hann hvor- I ugt, en þó er hann að lesa bók og hlýtur því að vera Gyðingur. En hvers vegna er j hann að fara til þorpsins okk- ar? Þar búa aðeins 50 fjöl- skyldur og þær eru flestar fátæk- ar. En, bíddu við. Shmuel, kaup- maðurinn, á tvær dætur og hefur leitað að eiginmanni handa ann- arri þeirra. Shmuel er ríkur og upp á síðkastið hefur hann verið að gera sig merkilegan, svo hann mundi ekki telja nokkurn úr þorpinu nógu góðan handa dóttur sinni. Hann hlýtur að hafa beðið hjónabandsmiðlarann að finna tengdason handa sér annars stað- ar. En Shmuel er orðinn gamall og getur ekki tekið sér ferð á í hendur til þess að kynnast nýrri fjölskyldu svo hann vill sennilega I fá tengdason úr fjölskyldu sem hann þekkir. Það merkir að sú ■ fjölskylda hiýtur að hafa búið í O o o , O' ' * O ©c Brezhnev- ráðgátan ..Ki'fitt t‘i' kannski úgerniiigur að segja til um hvar baráttan- um viildin endar og baráttan uin stefnuna byrjar. Til þess að framkvæma þá stefnu, sem menn vilja að verði fylgt, verða þeir að bafa vald, og til þess að ná völdunum í Kreinl verða mennirnir þar að fá stuðning mikilvægra hópa embættismanna úr skrifstofukgrfinu við þá stefnu. sem barist er fyrir." þorpinu en flutzt í burtu. Hvaða fjölskylda getur það verið? Cohen-hjónin áttu son. Fyrir tutt- ugu árum fluttust þau til Búdapest. Hvað getur Gyðinga- strákur gert þar? Orðið læknir. Shmuel mundi vilja fá lækni í fjölskylduna. Læknir verður að fá mikinn heimanmund. Pilturinn sem situr á móti mér er snyrtileg- ur en ekki vel klæddur. Sem sagt Cohen læknir. En í Búdapest væri ekki nógu fínt að heita Cohen. Sennilega hefur hann skipt um nafn. Sjáðu nú 01, i Búdapest. Auðvitað Kovacs — það er eins algengt nafn hjá Ungverjum og Cohen hjá Gyðingum." Þegar lestin nálgaðist þorps- stöðina sagði gamli Gyðingurinn við unga manninn: „Fyrirgefðu, Kovacs læknir, ef Shmuel biður ekki eftir þér á stöðinni skal ég fylgja þér heim til hans og kynna þig fyrir tilvonandi unnustu þinni." Ungi maðurinn svaraði furðu lostinn: „En hvernig veiztu hver ég er óg hvert ég er að fara? Við höfum ekkert talað saman." „Hvernig ég veit það?“ sagði gamli maðurinn brosandi. „Það liggur í augum uppi.“ Þannig hafa Kremlarfræðingar í helztu leyniþjónustum Vestur- landa og utan þeirra stundað starf sitt árum saman, setið við skrif- borð með eintak af Pravda og mestmegnis starað á það annars hugar. Þessa stundina gæti vel verið að þeir væru að leita að yfirlýsingunni frá Kreml þar sem farið er hörðum orðum um Kremlarfræðinga en þeir fyndu hann ekki þar því henni var dreift frá Tass til erlendra blaða eingöngu, ekki til sovézkra blaða. „Hvers vegna?" mundu þeir spyrja. Hvað er Kreml aö reyna að fela? Þar sem Brezhnev er veikur — þótt frá því hafi ekki verið skýrt í sovézkum blöðum — liggur i augum uppi að ríkiserfð- irnar eru á dagskrá í Kreml. Hvaða menn væru líklegastir til að taka við af honum? Þrír aðalkeppinautar Liklegt er að þrir menn komi við sögu þeirrar baráttu sem nú er að hefjast um völdin eftir að Brezhnev hverfur úr sögunni og í þeim hópi fer mest fyrir Andrei Kirilenko sem venjulega gegnir starfi Brezhnevs þegar hann er ekki i Moskvu. Leyniþjónustusérfræðingum ber saman um að Kirilenko — sem er níu mánuðum eldri en Brezhnev er hélt nýlega upp á 68 ára afmæli sitt — sé langhraust- legasti og þróttmesti fulltrúinn í stjórnmálaráðinu. En aldursins vegna er líklegra talió að hann kæmi á laggirnar ein§“ konar bráðabirgóastjórn óg reyndi að búa í haginn fyrir Fyodor Kulakov, sjálfan skjólstæðing Brezhnevs — sem er 56 ára — þar Eftir Victor Zorza Ilöíúnd jjessurar'Ri'fiiiar þari vart aö kyntfa t'yrir k'senduni Mbl.. {>\ í et'tir harm lu’t'ur birzt f jölcli yreina um mákdní kommúnistarikja með einkaleyí'i. .En X'ietor Zorza er nú aöstoðarprói'essor við alþ.jóðamála- slof'nun John ’ Hopkins-háskólans í WashinRton oy; yreinar hans birtast að staðaldri i blijöum eins■ oy \\ ashinyton Fost i Bandaríkjunum og The öuardian i Bretlandi. ° til hann fengi nógu mikla reynslu og aflaði sér nógu mikils álits til þess að taka við stjórnartaumun- um. Flestir sérfræðingar eru sam- mála um að Alexander Shelepin, sem sýndi þess glögg merki fyrstu árin sem Brezhnev var aðalritari flokksins að hann ágirntist þá stöðu, hafi verið lækkaður svo mikið i tign að hann komi ekki i alvöru til greina eins og stendur. Hann er 56 ára gamall, aðeins nokkrum mánuðum yngri en Kulakov og er talinn sennilegasti keppinautur þess manns sem Brezhnev tilnefnir eftirmann sinn þegar fram líða stundir — það er að segja ef þeir menn sem óttast metnaðargirnd hans leyfa honum að halda sæti sínu í stjórn- málaráðinu það lengi. Þetta er sem sé sú speki sem er almennt viðurkennd — og ef allt fer eins og Brezhnev ætlast til getur verið að þetta verði það sem gerist. Brezhnev hefur raunar reynt að búa svo um hnútana að eitthvað i þessa áttina verði uppi á teningnum með því að fela Kirilenko að annast mikið af dag- legri stjórn mála og með því að ota Kulakov — sem í starfi sínu sem flokksritari fer með stjórn landbúnaðarmála og er jafnframt stjórnmálaráðsfulltrúi — smátt og smátt í valdamikil embætti. En þróun ríkiserfða kemur sjaldan heim við það sem til er ætlazt af leiðtoga sem hverfur af sjónarsviðinu nema því aðeins að hann hafi í raun og veru afsal- að sér völdum áður en hann dreg- ur sig i hlé í hendur þeim manni sem hann hefur valið og gefið honum nægan tima til þess að festa sig i sessi. Þetta hefur Brezhnev látið undir höfuð leggj- ast, kannski vegna þess aó hann óttast að Kirilenko gæti notað slik völd til að bola sér í burtu áður en hann er reiðubúinn til þess — líkt og Brezhnev losaði sig við Nikita Krúsjeff sem hafði falið stað- gengli sfnum of mikil völd. Krúsjeff var orðinn kærulaus á efri árum, sumpart vegna þess að hann reyndi að gera of margt i einu svo að hann varð að afsala sér mjög miklum völdum ef stefna hans átti að bera árangur. En sé það ósennilegt að Brezhnev hafi ekki látið sér þetta að kenningu verða getur verió að vegna veikindanna neyðist hann til að dreifa völdum sinum og afsaia sér nokkrum völdum á sama hátt og Krúsjeff þótt ástæð- urnar séu aðrar. Raunar er vand- séð hvernig hann getur skotið sér undan þvi öllu lengur þar sem nú er vitað samkvæmt áreiðanlegum sovézkum heimildum að heilsa hans er svo bágborin að hann hefur neyðzt til þess aó fækka vinnudögum sinum i þrjá á viku. Ef Kirilenko ryðst upp á tind- inn framhjá sjúkum aðalritara flokksins þarf það ekki endilega að stafa af ótryggð. Sá maður sem fer með stjórnina i Kreml verður að sýna aó hann sé sá sem valdið hafi ef stefnan sem hann ákveður á að bera árangur og starfsmenn skrifstofukerfisins eiga að fást til að framkvæma stefnu hans. Kirilenko þyrfti að setjast i sæti Brezhnevs eins fljótt og kostur er ef árangur á að verða af starfi hans meóan Brezhnev er veikur — og verið getur að Brezhnev sé haldinn langvinnum og ólækn- andi sjúkdómi — og til þess að vera viss um að geta orðið æðsti maður bráðabirgðastjórnar. Leikreglurnar sem gera þetta nauðsynlegt eru ekki bundnar við Kreml eingöngu. Siðasta dæmið Þessar myndir sýna hvernig Shelepin hefur komizt til aukinna metorða í Kreml án þess að Leonid Brezhnev hafi getað komió í veg fyrir það. Efri myndin var tekin við opinbera athöfn i Kreml. Þar er Shelepin lengst til hægri í öftustu röð en þar hefur hann orðið að dúsa síðan Brezhnev stjakaði honum þangað 1965. Skjólstæð- ingur Brezhnevs, Fyodor Kulakov, er lengst til vinstri í annarri röð. En á myndinni fyrir neðan, sem var tekin í síðasta mánuði er Shelepin (auðkenndur með hring) aftur kominn í næstfremstu röð en Kulakov (einnig auðkenndur með hring, efst til vinstri), er nú kominn í öftustu röð. 1 fremstu röð eru eins og ævinlega (talið frá vinstri): Andrei Kirilenko, Mikhail Suslov, Podgorny forseti, Kosygin forsætisráð- herra og Brezhnev.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.