Morgunblaðið - 26.01.1975, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JANUAR 1975
Á fimmtudag I síðustu viku
voru liðin 100 ár frá fæðingu
eins helzta frumherja kvik-
myndanna, David Wark Griff-
ith. Efnt var til sýninga á verk-
um Griffith bæði í Washington
og New York honum til heið-
urs, og bandaríska póstmála-
stjórnin gaf út nýtt 10-centa
frímerki með andlitsmynd
Griffith í tilefni dagsins. 1
Hollywood var hins vegar fátt
um dýrðir.
Afmæli Griffith gleymdist með
öllu 1 kvikmyndaborginni
miklu, sem hann hafði átt svo
stóran þátt í að gera að því
veldi sem hún er á okkar dög-
um.
Sennilega hefði áhugaleysi
Hollywood-borgar ekki komið
Griffith sjálfum á óvart. Hann
mátti muna tímanna tvenna frá
viðskiptum sínum við þá borg,
þar var honum hossað og þar
féll hann í gleymsku. Griffith
hóf feril sinn 1908 og fram til
ársins 1915 gerði hann um 500
STRAUMAR
eftlr BJORN
VIGNISIGURPÁLSSON
Aldarafmœli
Griffith
stuttar þöglar myndir og óx
stöðugt 1 áliti. Hátindi frægðar-
innar náði hann árin 1915—16
með myndunum Birth of á
Nation og Intolerance, en síðan
fór að halla undan fæti, Griff-
ith hvarf smám saman úr sviðs-
ljósinu og lézt öllum gleymdur
1948. Það er meira að segja á
huldu hver hafi verið síðasta
mynd Griffith. Samkvæmt
opinberum skýrslum er það
The Struggle frá árinu 1931, en
almannarómur hefur lengi
haldið því fram að hann hafi
verið hinn ónefndi leikstjóri á
bak við One Million Years B.C.
sem varð ein af vinsælustu
kvikmyndum vestan hafs árið
1941.
Þvi hefur verið haldiðTram af
kvikmyndafræðingum nú á
seinni árum, að líklega hafi
enginn einn maður lagt meira
af mörkum til mótunar mynd-
máls og frásagnarstíls kvik-
myndarinnar og D. W. Griffith.
Hann var við upphaf ferils síns
vel lesinn f verkum 19. aldar
rithöfunda og þá þekkingu
færði hann sér í nyt er hann
leitaði áhrifaríkustu frásagnar-
tækninnar fyrir þennan hvít-
voðung listarinnar. Hann þafði
einnig mikið dálæti á málara-
list Viktoríutímans og þau
kynni komu honum aðliði I leit
hans að nýrri leið til að auka
myndrænu kvikmyndanna og
treysta myndbyggingu ein-
stakra tökuskota — dýpt og
samleik ljóss og skugga. Þyngst
vegur þó framlag Griffith til
klippingar kvikmyndarinnar.
Edwin Porter hafði í The Great
Train Robbery sýnt fram á að
byggja mátti kvikmyndina upp
á stuttum samstæðum atriðum
en Griffith mótaði nú aðferð til
að klippinga innan hvers atrið-
is, deildi hverju atriði niður í
þætti, einangraðar einingar
ófullkomnar í sjálfu sér en sem
mynduðu saman skiljanlega
atriðisheild. Hann uppgötvaði
að með því að nota slfka mynd-
þætti gat hann dregið fram mis-
munandi áherzlur milli töku-
skota og stjórnað þannig
dramatískri áherzlu og mögnun
atriða sinna. Þegar Griffith
kom til starfa fór kvikmynda-
takan fram með einni kyrr-
stæðri vél sem stóð ætíð í sömu
fjarlægð frá mótífinu. Griffith
er eignað að hafa orðið fyrstur
til að hreyfa kvikmyndavélina
meðan á töku stóð, að hafa
fundið upp á þvi að brjóta upp
hvern myndþátt með skipting-
um milli langskots, miðskots og
nærskots (Clous-up) og hafa
orðið fyrstur til að nota bakskot
(Flash-back) og víxlklippingu
milli tveggja tengdra atburða-
rása. Allt hafði þetta geysileg
áhrif á framvindu dramatisks
frásögustíls kvikmyndaritinar
og þessi stílbrögð Griffith eru
fyrir löngu orðin sjálfsagður
hluti af tjáningamáli kvik-
Lillian Gish og Robert Harron 1 einni af myndum Griffith — True
Heart Susie.
myndarinnar. En þessum
manni gleymdi Hollywood og
má nú sitja undir háðulegum
glósum frá velunnurum kvik-
myndanna.
Bergman
og Óskarinn
Annars á Hollywood ekki góða
daga um þessar mundir og nú
situr jafnvel helzta stássstofn-
un kvikmyndaborgarinnar —
Bandariska kvikmynda-
akademian er veitir Öskars-
verðlaunin víðkunnu á ári
hverju — undir skæðadrifu
mótmæla og gagnrýni. Astæðan
er sú ákvörðun Akademíunnar
að kvikmynd Ingmar Bergmans
— Senes from á Marriage, sem
hann vann upp úr hinum
þekkta sjónvarpsmyndaflokki
sínum fyrir bandarískan mark-
að — komi ekki til álita við
útnefningu beztu mynda liðins
árs innan Akademíunnar. Ber
Akademían fyrir sig gömul
reglugerðarákvæði eitthvað á
þá leið að myndir sem hljóti
frumsýningu í sjónvarpi séu
ekki gjaldgengar til verðlauna.
Mikil umræða hefur sprottið
út af þessari ákvörðun í Banda-
ríkjunum. Aðalkvikmynda-
gagnrýnandi New York Times
reið á vaðið og átaldi Akademí-
una harðlega fyrir að halda í þá
bábilju sem reglugerðar-
ákvæðið væri og taldi blóðugt
ef Liv Ullman yrði af Öskars-
verðlaununum fyrir þann
stjörnuleik sem hún sýndi i
þessari mynd. í vikunni sem
leið bárust síðan fregnir af því
að 20 þekktir kvikmyndaleik-
stjórar hefðu sent Akademí-
unni undirritað mótmælaskjal
vegna þessa. Meðal undir-
skriftamanna voru nokkrir
leikstjórar sem koma til álita
við næstu útnefningu Akademi-
unnar, svo sem Fellini, Francis
Ford Coppola, Peter
Bogdanovich, Billy Wilder og
Bob Fosse. I mótmælaskjali
sínu telja leikstjórarnir reglu-
gerðaákvæði Akademíunnar
úrelt og út í hött.
Senes from a Marriage hefur
fengið frábæra dóma og viðtök-
ur vestan hafs og var útnefnd
mynd ársins af samtökum
bandarískra kvikmyndagagn-
rýnenda.
Austrið og
vestrið í
eina sæng
Varla getur ólíkari hliðstæður
en bandariskan kvikmyndaiðn-
að annars vegar og sovézkan
kvikmyndaiðnað hins vegar að
allri náttúru, þó að markmiðin
séu ef til vill ekki svo ólík. Og
trúi því hver sem vill, nú hafa
vestrið og austrið gengið í eina
sæng og að meðgöngutíma lokn-
um verður afsprengið væntan-
lega stórmyndin Blái fuglinn.
Kvikmyndataka hófst í Lenín-
grad fyrir skömmu en myndin
er fjármögnuð af 20th Century
Fox og Lenfilm í sameiningu.
Leikstjóri er einn af reyndustu
leikstjórum Hollywood, George
Cukor, en í hlutverkum eru
meðal annarra Jane Fonda, Liz
Taylor en með aðalhlutverkið
fer helzta ballettdansmær Rúss-
ana — Nadezhda Pavolova.
Myndin er byggð á aldamóta-
leikriti belgíska rithöfundarins
Maurice Maesterlinck.
Watergate
Robert Redford hefur keypt
kvikmyndaréttinn að metsölu-
bók blaðamanna Washington
Post — Allt the Presidents
Men, en þeir áttu sem kunnugt
er mikla hlutdeild í að afhjúpa
Watergate-hneykslið i Banda-
ríkjunum. Redford hyggst sjálf-
ur Ieikstýra myndinni og jafn-
framt fara með hlutverk Bob
Woodward, annars blaða-
mannsins, en Dustin Hoffman
annast hlutverk hins, Carl
Bernstein. Taka myndarinnar
mun vera komin vel á veg.
Get bætt við mig múrverki flisalögn o.fl. Upplýsingar i sima 42080 eftir kl. 6 á daginn. íbúð óskast 2ja til 3ja herb. ibúð óskast á leigu. Upplýsingar í sima 831 90.
Óska eftir að kaupa Volkswagen árg. '66 til '68. Uppl. i sima 41361, eftir kl. 7. Skíðaskór fundust fyrir utan Háskólabíó mið- vikudagskvöldið 15. janúar. Upplýsingar í miðasölunni.
Óska eftir góðri ibúð í Reykjavik i skiptum fyrir góða ibúð i Keflavik. Upplýsingar i sima 2734, Keflavik. Brotamálmur Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. Staðgreiðsla. NÓATÚN 27. Simi 25891.
Buick appalo '74 6 cyl. sjálfsk., vökvast, læst drif, litað gler, veltist. Skipti eða skuldabr að hluta kemur til gr. Sími 1 6289, Skattframtöl Veiti aðstoð við gerð skattframtala fyrir einstaklinga og atvinnu- rekendur. Pantið tíma sem fyrst i sima 1 2023.
Til sölu spil í trillu, ásamt afdráttarkalli og lagningsrennu tvö þúsund króka 4 millimetra af nylonlínu. Upplýs- ingar í síma 92-6561 á kvöldin. Milliveggjaplötur vorar eru nú aftur fyrirliggjandí. Athugið að nákvæmni i stærð og þykkt sparar pússningu. Steypustöðin hf., simi 33603.
„Lúðvík" Vantar atvinnu fyrir hádegi. Hef stúdentspróf og bíl. Tilboð sendist Mbl. merkt „Lúðvík — 7364” fyrir miðvikud. (29.1.). Diesel rafstöð 10 kw til sölu. Vélin er ný yfirfarin og í mjög góðu ástandi. Nánari uppl. í síma 86050 alla virka daqa kl. 1 3 •) g
Volga 1973 mjög góður bill til sölu. Má borg- ast með 3—5 ára skuldabr. eða eftir samkomul. Skipti koma til greina. Simi 1 6289. Timbur til sölu nálægt 1000 m. 1 ”x4”, 200 m 1 ”X5”, 500 m 2”X4”. Uppl. í s. 40278 eftir kl. 7 á kvöldin og um helgar.
Pappirsskurðarhnífur óskast til kaups Þarf að vera hentugur i litla prent- smiðju. Æskileg borðbreidd 70—90 sm. Upplýsingar i sima 72141. Tvítug reglusöm stúlka óskar eftir vinnu, helst i barnafata- verzlun eða skartgripaverzlun. Margt kemur til greina. Uppl. í sima 36079.
Mercury Comet '71 mjög góður. Vökvastýri. Beinskipt- ur, til sölu. Samkomulag með greiðslu. Skipti koma til greina. Einnig 2—3ja ára skuldabréf. Sími 1 6289. Óska að taka á leigu húsnæði undir sérverzlun ca. 20.—35 fm. Helzt við góða verzlunargötu eða í verzlanamið- stöð. Uppl. í símum 34916 — 73779,
Tvistsaumurinn kominn Mikið úrval af tvistsaumi t.d. Flótt- inn, Betlehem o.fl. vinsælar mynd- ir, púðar og strengir. Hof, Þingholtsstræti 1. Saumaklúbbar Lítið á fallegu listaverkamyndirnar. Yfir 60 gerðir. Tilvalið i sauma- klúbba. Opið á laugardögum. Hannyrðaverzl. Erla.
Byggingafyrirtæki Fjársterkur meðeigandi óskast að byggingafyrirtæki á Suðurnesjum. Góðir möguleikar. Tilb. sendist Mbl. i R.V.K. merkt Trúnaðarmál 7130. Skattframtöl Veitum aðstoð við skattframtöl. Lögfræðingar Gestur Steinþórsson og Sigurður Sigurjónsson. S. 22691 og 27798 eftir kl. 1 7.00 oq um heloar.
Skattframtöl — reikningsskil Þórir Ólafsson, hagfr. s. 2301 7. Magnús Sigurðsson, lögfr. s. 13440. Skrifstofa Öldugötu 2 5. Opið i dag. Klæðum og gerum við ; stoppuð húsgögn. Form bólstrun, Brautarholti 2, sími 1 2691. Gunnar Mekkinósson.
Skattframtöl Veiti aðstoð við skattframtöl. Pantið tíma sem fyrst. Haukur B|arnason hdl. Bankastræti 6. Símar 1 5528 og 26675. Til sölu Benz 1618 árg. '67 með Scania búkka. Upplýsingar i sima 97- 8377.
Skrifstofustjórar athugið Háskólagengin enskumælandi stúlka, óskar eftir hálf- eða heil- dags skrifst.st. Vön öllum alm skrifstofust. Áreiðanleg og reglu- söm. Allt kemur til greina. Vinsam- lega hringið i 10964.
Springdýnur Tökum að okkur að gera við springdýnur samdægurs. Sækjum og sendum ef óskað er. K.M. Springdýnur, Helluhrauni 20, Hafnarf., simi 53044.
Framtalsaðstoð Veitum aðstoð við gerð skattfram- tala fyrir einstaklinga og atvinnu- rekendur. Tölvis h.f. Hafnarstræti 1 8, simi 22477. Kvöldsímar 2631 1 og 10036. Húsmæðrafélag Reykja- vikur 1 tilefni af 40 ára afmæli félagsins verður afmælishóf í Þingholti fimmtudaginn 30. janúar kl. 7.30. Þátttaka tilkynnist i sima 17399 — 43290 — 23630. Stjórnin.