Morgunblaðið - 26.01.1975, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JANUAR 1975
15
geta orðið snögg umskipti, ef ár-
ferði versnar eins og reynslan
sannar. Það er óhyggilegt að mínu
mati að tala um þessa litlu um-
frajnframleiðslu í landbúnaði
sem efnahagslegt vandamál. Á
þessum viðsjárverðu timum er
þvert á móti ástæða til þess að
leggja áherslu á aukna matvæla-
framleiðslu.
— Hvað er reiknað með að
margir hafi atvinnu af landbún-
aði og þjónustustörfum, er hon-
um fylgja?
— Ég hygg að þessum þætti sé
oft gleymt, þegar rætt er um land-
búnaðarmál. Það eru þúsundir
manna, sem eiga atvinnu sina
undir landbúnaði. I greinargerð
Framleiðsluráðs landbúnaðarins
um þetta efni er þvi haldið fram,
að 40 þúsund manns eigi fram-
færslu sina undir landbúnaði, þ.e.
framleiðslu, vinnslu og dreifingu
og annarri þjónustu. Þessi tala
mun vera reist á könnun, er
Stéttarsamband bænda gerði í 7
sýslum landsins að kaupstöðum i
þeim sýslum meðtöldum. Hér er
þess einnig að geta, að sjávar-
þorpin viðsvegar um landið eru
að miklu leyti háð landbúnaðar-
starfsemi nágrannasveitanna.
Margir útgerðarstaðir væru vart
byggilegir, ef ekki væru hæg
heimatökin við öflun landbún-
aðarvara.
— Þú minntist á afkomu bænda
og þýðingu hennar fyrir land-
búnaðarframieiðsluna. Hafa
bændur í raun sambærilegar tekj-
ur og verkamenn, iðnaðarmenn
og sjómenn?
— Þess er náttúrulega að geta
að tekjur bænda fara nokkuð eft-
ir árferði hverju sinni. Á undan-
förnum árum hefur árferði verið
gott, en tekjur bænda hafa ekki
hækkað sem skyldi af þeim sök-
um, vegna verðbólgunnar og
hækkunar á rekstrarvörum.
Bændur hafa ekki náð sömu tekj-
um og viðmiðunarstéttirnar. Best-
ur varð árangurinn árin 1964 og
1965. Arið 1964 höfðu þeir 83,1%
af tekjum viðmiðunarstéttanna
og árið 1965 höfðu þeir 86,2%.
Árið 1973 var þetta hlutfall 79,3%
og búist er við að afkoman hafi
verið lakari á síðasta ári.
Búin munu stækka
— Þó að mikilvægi landbúnað-
arins sé ekki dregið I efa, verða
menn ekki eigi að síður að viður-
kenna ýmsar brotalamir i skipu-
lagi hans og rekstri? Erum við
t.d. ekki með allt of litlar fram-
leiðslueiningar, of dýrar og óhag-
kvæmar í rekstri?
— Auðvitað þarf að lagfæra
fjölmargt í landbúnaðinúitl í sam- •
ræmi við breytta tima, staðhætti
og tækninýjungar. Þess ber að
geta, að á undanförnum árum hef-
ur litlum búum fækkað mikið og
meðalbústærðin stækkað. Með
nýrri tækni hefur bændum revnst
kleyftað stækka búin þótt fólkinu,
sem unnið hefur að Tramleiðsl-
unni, hafi fækkað. Við verðum að
stefna að þvf að búin verði af
hagkvæmri stærð til þess að fram-
leiðslukostnaðurinn á hverjum
tíma verði í lágmarki. 1 þessu efni
er enn margt ógert.
— Það á sem sagt ekki að borga
mönnum milljón fyrir það eitt að
bregða búi?
— Nei, og þótt við höfum drepið
hér á nokkur mikilvæg atriði
landbúnaðarmálanna, er enn af
mörgu að taka og vert væri að
gera mörgum þáttum betri skil.
En ég er fyrst og fremst bjartsýnn
á framtið landbúnaðar á Islandi.
íslendingar þekkja sinn vitjunar-
tíma og þeir munu halda áfram að
rækta landið. Það er undirstaðan
undir blómlegan landbúnað, og
sem betur fer hefur skilningur á
gildi ræktunarstefnunnar aukist.
Segja má, að það hafi vérið stað-
fest á Alþingi sl. sumar, þegar
alþingismenn samþykktu i einu
hljóði fjárframlög til gróður-
verndaráætlunarinnar. Ræktun
landsins og útfærsla landhelginn-
ar í 200 sjómilur eru skyld mál og
hafa bæði mikla þýðingu fyrir
framtíð og velgengni íslensku
þjóðarinnar.
Fiskverkunarhús — Iðnaðar-
hús
Fiskverkunarhús til leigu í Grindavík, húsnæðið
mætti einnig nota til annarra starfssemi j.d
ýmiskonar iðnaðar. Lítil íbúð gæti fylgt með.
Uppl. í síma 92 —1950 milli kl. 1 —7.
Nötið fristundirnar
Vélritunar- og
hraðritunarskólinn
Vélritun — blindskrift, uppsetning og
frágangur verzlunarbréfa, samninga o.fl.
Úrvals rafmagnsritvélar.
Dag- og kvöldtímar. Upplýsingar og inn-
ritun í síma 21 768.
Hildigunnur Eggertsdóttir — Stórholti 27 — sími
21768.
Gullverðlaunahafi — The Business Educators'
Association of Canada.
Málmiðnaðarfyrirtæki
Til sölu er gamalgróið málmiðnaðarfyrirtæki í
fullum rekstri. Gott fyrirtæki, sem aðeins er selt
af persónulegum ástæðum eigenda.
Ragnar Tómasson hdl.
Austurstræti 7 7.
Litlir bilar eru vinsæliro vegna þess að þeir eru ódýrir Það er engin tilviijun að Ford Escort er mesti sigur-
og spara kaupendum sínum peninga. Að þessu leyti er vegari í kappakstri á vegum og hefur unnið meira en
Ford Escort í flokki með smábílum. 200 sigra í slíkri keppni á síðustu árum.
En þegar kemur út á vegina, kemur munurinn í Ijós. Ford Escort sameinar þægindi og hagkvæmni fjöl-
Þótt Ford Escort kosti ekki meira en aðrir ódýrir bílar, skyldubílsins með rúmgóðum sætum og gólfrými — og
eru þetta samt allt önnur kaup. hins vegar hraða og öryggi sportbílsins.
Ford Escort er afburða bíll, ekki sízt á misjöfgum veg- Kynnið ykkur Ford Escort, og hann sannartyfjrburði
um. Auðveldur og öruggur í akstri, stöðugur á beygj- sína í reynd.
um og lætur vel að stjórn. Fordumboðin á íslandi eru seljendur að Ford Escort
Ford visar veginn