Morgunblaðið - 26.01.1975, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JANUAR 1975
31
ViÐGERÐARÞJÓNUSTA: VÉLAVERKSTÆÐIÐ VÉLTAK HF DUGGUVOGI 21, REYKJÁVÍK
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
@ Sjávarafurðadeild
SAMBANDSHÚSINU RVÍK, SÍMI 17080
Fimleika-
deild
Frúarleikfimi
Melaskóli:
Mánud. kl. 21.00—21.50 og
21.50—22.40.
Fimmtud. kl. 21.00—21.50 og
21.50—22.40.
Kennari Kristjana Jónsd.
Uppl. ! sima 83767.
Austurbæjarbarnaskóli:
Mánud. kl. 19.50—20.40.
Fimmtud. kl. 19.50—20.40.
Kennari Kolfinna Sigurvinsd
Uppl. í síma 38955.
Getum bætt
við
nokkrum
konum.
Mjög hentugur ! trilluna, vatns-
þéttur, 8 skalar niður á 360 m
dýpi, botnlína, til að greina fisk
frá botni, kasetta fyrir 6" þurr-
pappír, sem má tvinota.
SIMRAD
Bræðraborgarstig 1.
S. 14135 — 14340.
B3/K-121S
FV kerfid er þvottasamstæða frá verk-
smiðjum Frederiksons í Svíþjóð, er
hafa áratuga reynslu í gerð véla, sem
m. a. eru notaðar til að þvo fiskkassa.
Úr þessu kerfi má velja sér samstæóur eftir
þörfum, misjafnar að notagildi og mismun-
andi dýrar. Þar á meðal er B3K-121 geröin
á myndinni, sem forskolar, sápuþvær og
hreinskolar lítil og stór ílát, sem notuð eru
í fiskverkun, kjötiðju og mjólkurbúum.
Frederiksons þvottavélarnar eru búnar hinu
fullkomnasta úðakerfi, sem hreinsar hvern
smá-kima ílátanna, og er auk þess sparneyt-
ið eins og Skoti á heita vatnið, sem það kalda.
Allir hlutar Frederiksons vélanna eru úr rvð-
fríu stáli eða ryðvarðir.
Findus og Melby Fiskeindustri sem eru meðal
stærstu og þekktustu fiskiðnfyrirtækja i Noregi
fela Frederiksons vélum að annast hreinlætið.
Þessi stóru fyrirtæki treysta ekki hverjum
sem er til þess trúnaðarstarfs, enda vita þau
öðrum betur, að hreinlætið er fjöregg mat-
vælaiðnaðarins.
B3/12-64
BSRB óskar eftir við-
ræðum um kjaramál
við fjármálaráðherra
STJÓRN Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja hefur farið fram á
það við fjármálaráðherra að við-
ræður verði teknar upp milli
hennar og ráðherrans um þá
„hættulegu þróun“, sem átt hefur
sér stað I kjaramálum að undan-
förnu. Var eftirfarandi tillaga
samþykkt á fundi stjórnar BSRB
sl. miðvikudag:
„I gildandi kjarasamningum
opinberra starfsmanna er
ákveðið, að greiða skuli verðlags-
uppbót á öll laun eftir kaup-
greiðsluvísitölu, sem kauplags-
nefnd reiknar. Þetta samnings-
ákvæði hefur verið afnumið i
framkvæmd frá 1. júní 1974.
Ætla má, að 1. mars n.k. verði
kaupgjaldsvísitalan orðin svo há,
að greiða þyrfti 40—42% verð-
lagsuppbót umfram það, sem nú
er, ef fyrrgreint samningsákvæði
hefði ekki verið afnumið með lög-
um. Þar á móti kemur sú jafn-
launauppbót, sem ákveðin var
með bráðabirgðalögum i
september s.l.
Augljóst er, að af stöðvun
greiðslu verðlagsuppbótar leiðir
mjög alvarlega kjaraskerðingu
hjá opinberum starfsmönnum,
sem auðvitað er tilfinnanlegust
hjá láglaunamönnum, og þessi
kjaraskerðing fer sífellt vaxandi
vegna áframhaldandi verðlags-
hækkana.
Vegna þessarar hættulegu
þróunar i kjaramálum, samþykkir
stjórn BSRB að óska eftir við-
ræðum við fjármálaráðherra um
kjaramál rikisstarfsmanna. Jafn-
framt beinir bandalagsstjórn þvi
til stjórna félaga bæjarstarfs-
manna, að félögin óski eftir við-
*
I trilluna
ræðum um kjaramálin við hlutað-
eigandi sveitarstjórnir.
Slíkar viðræður gætu talist
undirbúningur að endurskoðun
kjarasamnings, sem heimil er
samkvæmt 7. gr. laga um kjara-
samninga opinberra starfs-
manna.“
Hótel Borgarnes auglýsir
hinn vinsæla þorramat fyrir félagasamtök og einstaklinga.
20 tegundir í kassa
( SÚRMATNUM BLÓÐMÖR — LIFRAPYLSA — LUNDABAGGAR — BRINGUKOLLAR_GRÍSATÆR_
SELSHREIFAR — SVIÐALAPPIR — SVIÐASULTA — SVÍNASULTA — KVIÐSVIÐ _ HANGIKJÖT _
SALTKJÖT — NÝ SVIÐASULTA — HÁKARL — HARÐFISKUR — MARENERUÐ SÍLD_HVEITIKÖKUR
— FLATKÖKUR — SMJÖR — GRÆNMETISSALAT — RÓFUSTAPPA.
Pantið í tíma
HOTEL BORGARNES
ÞM
Hreinlætið er fjöregg
fiskiðnaðarins
(og reyndarallrar
matvæla-
framleiðslu)