Morgunblaðið - 26.01.1975, Qupperneq 32
32
------1--------------------------—------
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1975
Ibúð óskast
Fyrirtæki í Rvk. óskar eftir að taka á leigu
einbýlishús eða 5 — 6 herb. íbúð. Góð um-
gengni, tímanlegar greiðslur. Tilboð sendist
Mbl. merkt: í—8563.
Trésmiðjan K-14
Innréttingar, sólbekkir, baðskápar, gluggar, úti-
hurðir. Sögum og heflum efni í innveggi o.fl.
Trésmiðjan K-14,
Mosfellssveit.
Sími 66430.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Fréttabréf
austan úr
Holtum
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Mykjunesi, 5. jan.
Nýja árið gekk í garð með
veðraham, því segja má að hver
hrinan hafi rekið aðra, ýmist með
snjó eða regni, en frost hafa ekki
verið stíf. Klakinn sem var á veg-
inum er horfinn og ágætis færð
um alla vegi. Hér eru allar skepn-
ur búnar að vera á fullri gjöf
síðan seint í nóvember. Meira að
segja hross hafa ekkert haft af
jörð vegna þess hve allt hefur
verið klökugt. Þetta ástand mið-
ast við uppsveitir hér, annars
staðar hefur verið betra. Snjór er
ekki mikill eins og er en veður
óstöðug svo að með eindæmum
má telja. En þrátt fyrir kuldann
síðustu vikur ársins, verður þó
ekki annað sagt en að árið 1974
hafi verið gott ár, veturinn var
mildur og sumarið sólríkt og
hlýtt. Heyfengur varð að vísu fyr-
ir neðan meðallag en nýting mjög
góð. Ekki mun vera færra fé á
fóðrum en s.l. ár, en kindum er
alltaf að fækka. Hér í Holtahreppi
eru um fimmtfu bændur, en ekki
nema átján sem hafa mjólkursölu
og útlit fyrir að um meiri fækkun
mjólkurframleiðenda verði að
ræða á næstunni. Hitt er svo að
þróunin er í þá átt að kúabúin
verði miklu stærri en þau hafa
verið, að því stefnir hér með þá
fáu sem eftir verða með kýr,
Ferðakynning-Bingo
SUNNUDAGINN 26 JAKI SIGTUN
Húsiðopnaðkl. 8
Dagskrám hefst kl. y. Wj|helm Kristinsson,
Kynnir kvöldsms verður
fréttamaður niafsson. Vinningar
1. Bingó.Stjórnand.Friðm ^ vikudvö, i
m.a. 2ja vm
London, Afrikuferö.
FRÁBÆR SKEMMTUN OG
MÖGULEIKI Á
GÓÐUM BINGÓVINNINGI!
. or cjóndar verða stuttar
^ tíílfl áfangastöðum. m.a. tM'"
Túnis 8úlgaríu og Spám.
3 ^^^''"öltis- aTJinsrúllugiald.
Aðgangur ókeypis
Hi
Ferðamiðstöðin hf.
Aðalstrœti 9, símar 11255 og 12940
þannig að kúnum fækkar ekki,
ekki eins og tala mjólkurframleið-
enda gæti gefið tilefni til að
halda.
Ekki er á þessu stigi hægt að
segja neitt um framkvæmdir á
nýbyrjuðu ári. A liðnu ári voru
miklar byggingaframkvæmdir
hér og er ekki alls staðar lokið, að
sjálfsögðu verður því lokið sem
ógert er hvað sem meira verður.
En vitað er um að ræktunarfram-
kvæmdir verða dýrar vegna hins
geysiháa áburðarverðs sem nú
blasir við.
Um áramót er eðlilegt að nema
staðar og litast um, horfa til baka
og þakka það liðna, einnig fram á
veginn og vona það bezta. Það er
þó ekki hægt að loka augunum
fyrir því að ýmsir erfiðleikar
blasa við. Það gefur nokkra vis-
bendingu að opinberar stofnanir
ganga á undan meó stórfellda
hækkun á sinni þjónustu, t.d.
póstur og sími. Munu ekki allir
aðrir telja sig þurfa að feta í sömu
slóð?
Gleðilegt ár!
M.G.
Verkakvennafélag
Keflavikur
og Njarðvtkur
heldur bingó þriðjudaginn 28.
janúar kl. 9. Félagskonur fjöl-
mennið og takið með ykkur gesti.
Skemmtinefnd.
Hjálpræðisherinn
Sunnudag kl. 11: Helgunarsam
koma. Kl. 14: Sunnudagaskóli. Kl.
20.30: Hjálpræðissamkoma.
Söngur og hljóðfærasláttur.
Brigader Ingibjörg og Óskar Jóns-
son stjórna.