Morgunblaðið - 26.01.1975, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1975
Guðmundur E. Hannesson
yfircerkstjóri — Minning
F. 12. 9. 33.
D. 17.1. 75.
Vinur minn, Guðmundur E.
Hannesson, yfirverkstjóri hjá .
Rafmagnsveitum ríkisins, er lát- j
inn og verður jarðaður á morgun, !
mánudaginn 27. janúar.
Guðmundur var upprunninn í
Holtum í Rangárvallasýslu, sonur '
Hannesar bónda á Arnkötlustöð- {
um Friðrikssonar og konu hans
Steinunnar Bjarnadóttur frá
Efra-Seli á Landi. Hann var fædd-
ur 12. sept. 1933 og því aðeins 41
árs er hann fórst.
Ungur að aldri réðist hann til
starfa við línubyggingar hjá Raf-
magnsveitum ríkisins og varð það
hans ævistarf sem nú hefur feng-
ið ótímabæran endi.
Guðmundur hófst af sjálfum
sér. Hann lærði vinnubrögð við
línubyggingar I flokki Einars M.
Einarssonar og hjá Hannesi And-
réssyni. Þeir eru nú báðir látnir
en þóttu engir veifiskatar á sínum
tíma.
Það hefur löngum verið svo í
vinnuflokkum að þeir menn sem
skara framúr af dugnaði og verk-
hyggni verða flokkstjórar og síð-
an verkstjórar enda varð Guð-
mundur snemma verkstjóri.
A árunum 1955—1964 byggöi
Guðmundur margar háspennulín-
ur með flokki sínum, m.a. mest-
allt 30 kv. kerfið á Vestfjörðum.
A þessum árum var mikið um
að vera í línubyggingum, verið
var að rafvæða Austfirði og Vest-
firði, auk umfangsmikilla fram-
kvæmda í rafvæðingu sveitanna.
Það voru engir aukvisar sem völd-
ust til verkstjórnar hjá þvi harð-
snúna liði, sem þarna var að verki
og ekki laust við að kapp og metn-
aður væri í mönnum á stundum.
Þar lét Guðmundur hvergi sinn
hlut eftir liggja.
Guðmundur hafði alla eigin-
leika góðs verkstjóra. Hann var
velvirkur maöur og stórvirkur,
glöggskygn, gerhugull og kapp-
samur þrekmaður. Hann varð
aldrei ráðalaus. Honum varó vel
til manna, þeir menn sem hann
vildi hafa vildu iíka vera hjá hon-
um.
Ur hópi verkstjóranna valdi Eð-
varð heitinn Árnason verkfræð-
ingur Guðmund, tii að hafa meó
höndum útstikun á línum, og
skipti það engum togum, að eftir
skamman tíma hafði Guðmundur
það verkefni, að hafa umsjón með
öllum mælingum og útstikunum
hjá Rafmagnsveitunum. Seinna
bættist í hans verkahring áætl-
anagerð um línubyggingar og síð-
an enn til viðbótar að hafa yfir-
verkstjórn yfir öllum linulögnum.
Þannig hófst Guðmundur E.
Hannesson af sjálfum sér með
störfum sínum, þótt ekki hlyti
hann þá skólagöngu sem hæfileik-
um hans hefði hæft, og í dag er
vandfyllt það skarð sem orðið er,
þegar hann er horfinn.
Eftir Guðmund liggur mikið
starf. 1 öllum landsfjórðungum
standa mikii mannvirki sem hann
hefur ýmist byggt eða hannað.
Við Guðmundur vorum nánir
samstarfsmenn hjá Rafmagns-
veitum rikisins á árunum
1966—1969 en bæði áður og síðan
áttum við góð kynni. Oft leitaði ég
ráða hjá honum.
Mér er í minni fyrsta turnbrotið
í Búrfellslinu. Þar var staðið
frammi fyrir erfiðu verkefni sem
þurfti að leysa án hiks. Þá þótti
það vera ráð að leita til Guðmund-
ar og hans aðstoð brást ekki frek-
ar en endranær.
Guðmundur átti því láni að
fagna í lífinu að eignast þá konu,
sem honum var samboðin, Sól-
veigu Halblaub, dóttur hjónanna
Jónínu og Agústs Halblaub, vél-
stjóra, og meó henni þau börn
sem erft hafa mannkosti foreldr-
anna, Elísabetu, 16 ára, Ágúst, 14
ára, Hannes, 12 ára og Arnheiði, 9
ára.
Að þeim er nú mikill harmur
kveðinn og einnig öldruðum for-
eldrum Guðmundar og öðrum ást-
vinum. Við sem þekktum Guð-
mund frá vettvangi starfsins og
vorum vinir hans, munum nefna
nafn hans með virðingu.
Tryggvi Sigurbjarnarson.
Guðmundur Ilannesson var
mér nákomnastur þeirra fjögurra
starfsfélaga hjá Rafmagnsveitum
ríkisins, sem fórust föstudaginn
17. janúar sl. Kynni okkar voru
orðin gömul, hátt á annan áratug.
Við unnum að vísu hvor á sinni
stofnuninni, Orkustofnijn og Raf-
magnsveitum rikisins, sem verið
hafa í nánum tengslum hvor við
aðra, en það voru rafvæðingarmál
sveitanna, sem tengdu starf okkar
saman.
Við fyrstu kynni af Guðmundi
varð mér ljóst, að hann var ein-
staklega úrræðagóður maður.
Hann var verkstjóri af guðs náð
+ Þökkum hjartanlega öllum þeim, sem sýndu okkur vináttu og samúð
við andlát og jarðarför elskulegrar eiginkonu minnar, ömmu, systur og
fóstursystur.
GUÐBJARGAR LILJU TUBALS,
frá Múlakoti.
Jón Guðjónsson, Halldóra Lilja Helgadóttir,
Soffia Túbals, Ágústa Túbals,
Soffía Gísladóttir, Vigdís Eyjólfsdóttir.
+
Þökkum samúð og hlýhug við andlát og útför
SIGRÍÐAR PÁLSDÓTTUR
simstöðvarstjóra, Hveragerði.
Vandamenn.
+ Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför
móður, tengdamóður, ömmu og langömmu okkar
SIGRÍÐAR KRISTÍNAR SIGURÐARDÓTTUR,
Suðurgötu 100, Akranesi
Ríkharður Jóhannsson, Helgi Kristján Sveinsson,
Guðbjörg Sigurðardóttir, Guðmundur Sveinsson,
Margrét Ríkharðsdóttir, Guðný S. Haraldsdóttir,
Jóhann Ríkharðsson, Kristján Guðmundsson.
Sveinn Jóhannsson, Sigríður Kr. Sveinsdóttir,
Ingibjörg Kristjánsdóttir, Margrét Sveínsdóttir,
Jóhann Hiesel, Bjarni Sveinsson,
Vilborg Pétursdóttir, Berglind Sveinsdóttir,
Kristján Freyr Jóhannsson, Sveinbjörg Sveinsdóttir.
og fáa hefi ég þekkt, sem jafngott
var að leita til og vinna með, enda
var hann jafnan störfum hlaðinn,
svo sem títt er um mikilhæfa
starfsmenn. Það gilti einu hvort
hann vann að verkstjórn, mældi
fyrir háspennulínum, eða var á
skrifstofunni við útreikninga og
áætlanagerð, alls staðar var hann
hinn ágætasti starfsmaður og
vann öll verk hratt og létt. Ég veit
að ég halla ekki á nokkurn mann
þótt ég fyllyrði, að Guðmundur
Hannesson hafi verið einn dýr
mætasti starfsmaður Rafmagns-
veitna ríkisins, og verður vand-
fundinn maður í hans stað.
Guðmundur var glæsimenni,
karlmannlegur og friður sýnum.
Fas hans var létt og ljúfmannlegt
og þar sem hann fór var jafnan
gleði og gustur, en aldrei
lognmolla.
Guðmundur var einstakur
gæfumaður í hjónabandi sínu,
kona hans, Sólveig Halblaub, sem
lifir mann sinn, var honum fylli-
lega samboðin. Börn þeirra eru
fjögur og öll hin mannvænleg-
ustu. Þau hjónin voru alla tið
sérlega samhent og hefi ég
sjaldan eða aldrei kynnst jafn-
góðum félögum. Þau voru jafnan
saman á ferðalögum á sumrin
með börn sín öll, þegar Guðmund-
ur var í eftirlits- eða mælinga-
ferðum. Þá var oft gaman aó
heimsækja þau i hjólhýsið.
Guðmundar Hannessonar verður
djúpt saknað af fjölmörgum ung-
um og gömlum samstarfsmönnum
á Orkustofnun og munum við
jafnan minnast hans með
virðingu og þökk. Nú stöndum við
á vegamótum, leiðir skilja að
sinni. Farðu vel Guðmundur.
Sólveigu og börnunum vil ég og
fjölskylda mín votta innilega sam-
úð, um leið og við þökkum allar
góóar samverustundir á liðnum
árum.
Páll Hafstað.
A morgun, 27. janúar, fer fram
útför Guðmundar E. Hannessonar
yfirverkstjóra við linubyggingar
hjá Rafmagnsveitum ríkisins, en
hann lést af slysförum 17. þ.m.
Mig langar að minnast hans með i
örfáum kveðjuorðum. Guðmund-
ur fæddist á Arnkötlustöðum í
Holtahreppi 12. september 1933
og þar liðu hans æskuár. Hann
var þriðji i röðinni af sjö börnum
hjónanna Hannesar Friðriks-
sonar og Steinunnar Bjarna-
dóttur. 15 ára að aldri byrjaði
Guðmundur að starfa i vinnu-
flokki hjá Rafmagnsveitum rikis-
ins og úr því var ævistarf hans
ráðið. Árið 1954 varð Guðmundur
flokkstjóri og 1955 verkstjóri, þá
aðeins 22 ára að aldri. I því starfi
sýndi hann frábæran dugnað og
útsjónarsemi, enda veitti ekki af,
því árið eftir 1956 var hann
sendur til Vestfjarða, þar sem
honum var falið að byggja línur
við mjög erfiðar aðstæður og
hefur margur haft orð á, hvernig
það hafi verið hægt. I þeim lands-
hluta vann Guðmundur næstu
árin og síðan víða um landið við
linubyggingar, þar til árið 1963,
en þá tók hann til starfa á Raf-
orkumálaskrifstofunni, og síðan
var honum falið að staðsetja há-
spennulínur og sjá um mælingar
fyrir þeim á öllu landinu, og nú
síðustu árin einnig yfirverkstjórn
með vinnuflokkum byggingar-
deildar.
Guðmundur var hár maður
vexti og karlmannlegur. Hann var
fágætur persónuleiki, bar alltaf
hressandi blæ hvar sem hann
kom. Ég kynntist honum fyrst
árið 1949 og hafa okkar kynni
vaxið meó hverju ári siðan, og
aldrei borið skugga á. Ef Island
ætti marga slika syni I dag væri
bjart að horfa fram. En nú hefir
syrt í lofti í stórri fjölskyldu, en
minning um góðan dreng, sem
öllum vildi vel og reyndi að greiða
götu samferðamanna, mun sefa
þá miklu sorg er nú situr að völd-
um. Við sem þekktum hann best
vitum hvern mann hann hafði að
geyma og reynum að ylja okkur
við þær góðu stundir, sem víð
áttum saman, en þær voru
margar. Þann fjársjóð er gott að
eiga.
Árið 1958 kvæntist Guðmundur
Sólveigu Halblaub og stofnuðu
þau heimili að Hjallavegi 18,
Reykjavík, og eiga þau fjögur
börn, 9—16 ára. Sólveig hefir
ávallt verið manni sínum hægri
hönd bæði á heimilinu og á vinnu-
stöðum um landsbyggðina. Ég og
mín fjölskylda vottum henni og
börnunum samúð okkar og
biðjum Guð að styrkja þau i sorg
þeirra, og einnig öldruðum for-
eldrum, sem nú sjá á eftir elsta
syninum.
Ég þakka Guðmundi fyrir allar
okkar samverustundir og bið al-
föður að gefa ástvinum öllum
þrek og dug um ókomin ár.
Hannes Hannesson.
Aldrei er svo bjart
yfir öðlingsmanni,
að eigi geti syrt jafn
sviplega sem nú.
Aldrei er svo svart yfir
sorgarranni
að eigi geti birt fyrir
eilífa trú.
Það má með sanni segja að nú
hafi öðlingsmaður fallið í valinn.
Engin orð mega að lýsa til-
finningu okkar við slíka harma-
fregn, og vera staddur erlendis
gerir mann enn vanmáttugri.
Þegar vinur okkar og jainframt
yfirmaður i fjölda ára er svo
skyndilega og sviplega burtu hrif-
inn. Fjölskyldu hans, vinum og
starfi er ólýsanlegur missir að
slíkum mannkostamanni.
Kynni okkar við Guðmund
hófust, er við byrjuðum að starfa
sem linumælingamenn hjá
RARIK á sumrin. Við tókum strax
eftir hinu frábæru skipulagshæfi-
leikum og dugnaði Guðmundar,
þar fór enginn meðalmaður.
Hann hafði næmt auga fyrir starf-
inu og athyglisgáfa hans var ein-
stök. Þessir eiginleikar hans urðu
okkur oft til hjálpar í starfi.
Reyndist hann okkur sérstaklega
góður yfirmaður og ekki minni
vinur.
Hin létta lund Guðmundar
orsakaði, að hann var hrókur alls
fagnaðar hvar og hvenær sem var
og minnumst við með ánægju
samverustunda okkar og annarra
mælingamanna í nærveru hans.
Enga var betra heim að sækja
en þau hjón Guðmund og Diddu.
Kom þar í ljós samheldni þeirra
og umhyggja við að skapa hlýlegt
og traust heimili, þangað sem all-
ir voru velkomnir.
Það var heldur ekki ósjaldan,
sem við mælingamenn komum
þreyttir heim af mörkinni. Gott
var þá að líta við í litla hjólhýsinu
þeirra og mæta hlýjunni og alúð-
inni sem þar ríkti.
Ekki bara í starfi gaf Guðmund-
ur okkur því ungum og litt mótuð-
um gott fordæmi, heldur líka
hvernig sannur heimilisfaðir á að
vera. Við erum þakklátir fyrir að
hafa kynnst slíkum manni.
Við og eiginkonur okkar,
Guðrún og Lilja, vottum Diddu og
börnunum okkar dýpstu samúð.
Minningin um góðan dreng mun
lifa í hjörtum okkar allra.
Eiríkur Briem,
Þórður H. Olafsson.
Mánudaginn 27. janúar verður
jarðsunginn frá Fossvogskapell-
unni i Reykjavik Guðmundur E.
Hannesson yfirverkstjóri, Hjalla-
vegi 18, en hann lézt af slysförum
föstudaginn 17. janúar.
Guðmundur fæddist að
Arnkötlustöðum í Holtum hinn
12. september 1933. Foreldrar
hans eru hjónin Hannes Friðriks-
son og Steinunn Bjarnadóttir.
Hann ölst upp hjá foreldrum sín-
um á bæ þeirra, ásamt sex syst-
kinum, við sterk fjölskyldubönd
sem héldust alla tið. Árið 1958
kvæntist hánn Sólveigu Halblaub,
sem nú syrgir mann sinn, ásamt
börnunum fjórum, Elíabetu 16
ára, Ágústi 14 ára, Hannesi 12 ára
og Arnheiði, sem er aðeins 9 ára.
Við kynntumst Guðmundi
Hannessyni fyrst fyrir 18 árum,
við Laxárvirkjun, þegar hann
kom þangað til að kynnast tilvon-
andi tengdaforeldrum sinum og
fjölskyldu þeirra, en hann hafði
þá fundið konuefni sitt, Sólveigu í
þeim hópi. Hann hafði þá þegar
hafið störf á þeim vettvangi er
hann vann á ætíð siðan, en raf-
væðing í sveitum landsins var þá
nýlega hafin og verkefnin sem
framundan lágu voru nær
óþrjótandi. Þrátt fyrir nokkra
hlédrægni leyndi sér ekki að hinn
ungi verkstjóri bjó yfir miklum
lífsþrótti og muni ekki víla fyrir
sér, þótt nokkuð blési í móti. Yfir-
menn Rafmagnsveitna rikisins
munu skjótt hafa séð að ungi mað-
urinn hafði auk þess ótvíræða
+
Eiglnmaður minn og faðir okkar,
BJÖRN JÓNSSON,
vélstjóri,
Breiðabliki Seltjarnarnesi,
sem andaðist 1 9, þ.m, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudag-
inn 28. janúar kl. 1 3:30
Ingibjörg Stephensen
og synir.
+
Þökkum öllum nær og fjær auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför,
GUÐMUNDAR HELGASONAR
vólstjóra,
Miðstræti 23, Neskaupstað.
Aðalheiður Árnadóttir,
Jónhildur Guðmundsdóttir,
Önundur Jóhannsson og börn.
Við þökkum jarðarför. + af alhug samúðarkveðjur og vináttu við andlát og
SIGURÐAR 0. BJÖRNSSONAR
prentsmiðjustjóra.
Kristfn Bjarnadóttir
Geir S. Björnsson, Anita F. Björnsson,
Bjarni Sigurðsson, Kristjana Tryggvadóttir,
Sólveig Sigurðardóttir. Finnbogi Gislason,
Ingibjörg Sigurðardóttir, Kolbeinn Ólafsson,
Ragnar Sigurðsson. Valgerður Tómasdóttir,
Oddur Sigurðsson, Kolbrún Hjaltadóttir,
Þór Sigurðsson, Herdis Stefánsdóttir.