Morgunblaðið - 26.01.1975, Page 39

Morgunblaðið - 26.01.1975, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1975 39 forystuhæfileika og þvi ráðið hann til verkstjórnar við byggingu háspennulína, rúmlega tvitugan að aldri. Hinn mikli áhugi, framkvæmdasemi og áunn- in þekking á öllum aðstæðum hvarvetna á landinu, leiddu til þess að honum voru stöðugt falin ábyrgðarmeiri störf sem yfirverk- stjóra yfir byggingu allra línu- lagna rafmagnsveitna rikisins. Vinnustaðurinn var oft ekki lengi á sama stað, og hlaut það að leiða til þess að líf ungu hjónanna yrði með nokkuð öðrum hætti en hjá mörgum öðrum. En þau voru mjög samhent. Ekkert aftraði Diddu frá því, að fara með Guðmundi og búa á vinnustaðn- um, jafnvel meðan börnin voru smá, og einnig seinna þegar skólar voru úti á vorin. Þannig bjó hún þeim heimili oft á fögrum stað í fallegri sveit. Guðmundur bjó í haginn eins og aðstæður frekast leyfðu, og smiðaði fljót- lega traust og gott hjólhýsi, er gerði ferðalögin þægilegri fyrir fjölskylduna. Börnin gátu því fylgzt með störfum pabba síns, sem þau dáðu svo mjög, og notið ástrikis og umönnunar beggja foreldra sinna. Samrýndari fjöl- skyldu getum við vart hugsað okkur, og við eigum margar ánægjulegar endurminningar frá heimsóknum til þeirra. En heima- höfnin, vinalegt hús þeirra að Hjallavegi 18, sem þau hjónin eignuðust í upphafi búskapar síns var engu að síður vel haldið og Guðmundur lét sér mjög annt um að hlúa þar að fjölskyldunni, og víst hefur hlýleiki heimilisins orðið honum mikils virði er hann kom heim úr erfiðum ferðum. Á Hjallavegi 18 hefur oft verið gest- kvæmt, enda voru dyrnar ekki alltaf lagðar fast að stöfum, þegar fjölskyldan var heima. Við minnumst þess þegar skyldfólkið var að flytja til borgarinnar um 1960, að oft var mannmargt í hús- inu og öllum fannst sjálfsagt að svo væri. Þrátt fyrir að vinnustaður var oft langt frá heimilinu, var hver stund notuð til að endurnýja og fegra í húsinu við Hjallaveg og undanfarin sumur voru nokkrar lausar stundir notaðar til að byggja sumarbústað. Þar hefur skyidfólkið og vinir haft ánægju af að koma og eiga góðar stundir með Diddu og Guðmundi. Þannig var daglegt lif þeirra viðburðaríkt alla tíð. Guðmundur hafði ánægju af að skipuleggja og framkvæma og fylgja eftir framkvæmdum af krafti og það þótti sjálfsagt að hann hefði forystuna og trúlega vildi hann sjálfur vera i farar- broddi. Hann var og ákaflega samvizkusamur og munu þvi fáir dagar hafa liðið svo, þó enginn vinnutími væri, að haryi hefði ekki samband við starfsmenn sína til að fylgjast með störfum þeirra og greiða úr vandamálum þeirra. Margir ungir menn hófu starfs- feril sinn undir leiðsögn Guðmundar, og fengu þar gott veganesti. Oft urðum við þess vör að þeir mátu hann mikils og að hann hafði ánægju af að hitta þá og fylgjast með þeim siðar. Starf Guðmundar var orðið mjög eril- samt nú siðustu árin og stöðug ferðalög um allt land, þar sem verið var að reisa raflínur eóa fyrirhugað var að gera það. Það þurfti að kanna staðhætti og velja leiðir og fylgjast með fram- kvæmdum. Þessar ferðir voru erfiðar, og þær varó að fara á öllum árstímum, oft var farið fót- gangandi eða á ýmsum farartækj- um. An efa er áhættan við störf sem þessi meiri en við mörg önn- ur störf. En ekki var okkur neitt slikt í huga er okkur barst hin mikla harmafregn, að Guðmund- ur væri horfinn okkur og við gát- um vart trúað að svona væri kom- ið. En þessu verður ekki breytt hversu sorglegt sem það er. En þyngst er sorg Diddu og barnanna fjögurra, að sjá á bak ástrikum eiginmanni og föður. Við biðjum þeim blessunar og biðjum Guð að gefa þeim huggun og styrk. Að öldruðum foreldrum hans og systkinum er þungur harmur kveðinn. Biðjum við þeim huggunar. Til allrar blessunar er til algóður faðir, sem líknar og græðir sárin og við biðjum að hann muni einnig sinna öllum þeim er sakna og syrgja núna. Minningin um góðan dreng mun lifa meðal okkar. H.J., S.H. Náttúruöflin hafa verið okkur islendingum óblíð og miskunnar- laus að undanförnu, eins og svo oft áður, og minnt okkur rækilega á, með margvíslegum hætti, hve búseta í þessu landi er oft á tiðum erfið og áhættusöm. Enda þótt tækniþróunin hafi létt okkur, sem nú búum í landinu, byrðarnar á ýmsa lund frá því sem forfeður okkar áttu við að búa heldur bar- átta okkar við náttúruöflin áfram á margvíslegan hátt, barátta sem meðal annars er háð til þess að gera okkur lífið sem bærilegast í þessu hrjóstruga og veðrasama landi. Með tilkomu hinnar miklu tækniþróunar undanfarna ára- tugi hér á landi hafa skapast mörg ný og erfið verkefni til úr- lausnar í glímunni við óblíða nátt- úru á sjó og landi. Raforkan telst nú orðið til brýn- Minning: Fæddur 15. nóvember 1886 Dáínn 18. janúar 1975. Á morgun verður gerð .útför Axels Andersens klæðskerameist- ara, Viðimel 38. Axel var sonur Hans Andersens, sem ungur nam hér land á síðara hluta 19. aidar. Hans var ættaður frá Norður- Svfþjóð, klæðskerameistari, og hefur sannarlega verið góður landnámsmaður og fljótur til að verða íslendíngur; atorkusamur og stórhuga. Móðir Axels var Helga Jónsdóttir prests (siðast) I Glæsibæ í Skagafirði. Hans Andersen byrjaði strax með fataverzlun og klæðasaum við Aðalstræti, í húsi sem stóð þar sem hinn forni Ingólfsbær stóð, og munu þessi fyrirtæki hans fljótt hafa notið mikilla vinsælda og verið í fararbroddi á sínu sviði í áratugi. Hans dó á miðjum aldri en var þá búinn að skila ótrúlega miklu ævistarfi og byggja stór- hýsi sem ennþá nýtur sin vel i hinum gamla miðbæ innan um yngri byggingar. Þau hjón Hans og Helga eignuð- ust 15 börn, 3 sem dóu í æsku og 8 syni og 4 dætur sem upp komust og öll urðu þekktir og mætir borg- arar. Axel var fjórði elztur sinna systkina sem upp komust. Hann lærði klæðskeraiðn i fyrirtæki föður síns, en dvaldi um árabil í Kanada við frekara nám, og mun eftir það hafa tekið virkan þátt í rekstri og stjórn þessa stóra og velmetna fyrirtækis, sem hélt reisn sinni og vinsældum langa tið eftir fráfall hins þróttmikla stofnanda þess, sem vissulega hlýtur að hafa verið mikið áfall fyrir það stóra heimili og um- svifamiklu viðskipti. En fyrir dugnað frú Helgu og þá einnig samheldni hinnar stóru fjöl- skyldu var fyrirtækið H. Ander- sen & Sön starfrækt óbreytt þar til frú Helga andaðist á 4. tug þessarar aldar og síðustu áratug- ina undir stjórn Axels, sem þá eignaðist það einn og rak áfram um áratugi. Ég hef hér lítillega minnzt á foreldra Axels, enda þótt þeim séu engan veginn gerð nein skil. En það er erfitt að finna orðum sínum stað ef rætt er um manninn Axel Andersen sem gæddur var svo miklum mannkostum, án þess að skyggnast ofurlítið til uppruna og uppeldis. Axel var gagnheiðarlegur mað- ur, jafnt í viðskiptum sem dag- legri umgengni, orðvar og óhlut- drægur um annarra skoðanir og gerðir; prúður, kurteis og hlé drægur, en vakti þó alla tfð at- hygli fyrir glæsilegan persónu- leika og höfðinglega framkomu, ustu þarfa landsmanna og telur sig helst enginn geta án hennar verið stundinni lengur. Mikil verkefni hafa því skapast á þessum vettvangi á undangengn- um áratugum, í byggingu orku- vera, byggingu háspennulina og dreifikerfa um allt land, ásamt viðgerðum og viðhaldi þessara mannvirkja, oft við hin erfiðustu skilyrði, i vondum veðrum og illri færð. Margur maðurinn hefur helgað sig þessum störfum alla sina starfsævi, og er einn þeirra Guðmundur E. Hannesson, yfir- verkstjóri línubyggingardeildar hjá Rafmagnsveitum ríkisins, er lést i hinu hörmulega þyrluslysi þann 17. þ.m. í Hvalfirði. Guðmundur byrjaði ungur að árum hjá Rafmagnsveitum ríkis- ins, aðeins 15 ára gamall, árið 1948 og starfaði hjá þeim til dauðadags við hin margþættustu störf að raflínulögnum um land allt. Starfsferil Guðmundar við þessi störf ætla ég ekki að rekja hér. Það verður gert af öðrum. Ég átti því láni og þeirri ánægju að fagna, að hafa meiri og minni samskipti við Guðmund, vegna starfa okkar hjá fyri'rtækinu, í nær öll þessi ár. Guðmundur tókst eða f fáum orðum sagt hann var sannur „aristókrat" af gamla skól- anum. Hann hélt sínum virðuleika og andlegu þreki, jafnframt sjón og heyrn til dauðadags, þrátt fyrir langvarandi vanheilsu, sem smám saman dró úr likamlegum þrótti. Þetta vissu nánustu vinir hans einir, þvf að aldrei kvartaði hann. Það var alltaf mannbætandi að umgangast hann og ræða við hann um dag og veg. Hann naut sfn vel á gleðistund- um, átti fallegt og friðsamt heim- ili og fékk að deyja f rúmi sínu, sáttur við alla menn, einn með sfnum trausta lífsförunauti, eftir langa og farsæla sambúð. Árið 1925 kvæntist Axel eftir- lifandi konu sinni Guðbjörgu Þótt nokkuð sé um liðið síðan minningarathöfn um vin minn Snorra Þorvaldsson fór fram í Berunesskirkju, þá langar mig til að kveðja hann með fáeinum línum. Ég kynntist Snorra ekkert að ráði fyrr en árið 1961, en eftir það unnum við saman, aðallega til sjós, til ársins 1972. Ég þekki ekki nægilega vel fyrrihluta ævi Snorra til að fara nákvæmlega rétt með, en væri það vissulega þess virði. Með sanni má segja að hann hafi skilað meira ævistarfi en margir jafnaldrar hans, þótt líkamsheilir væru. Sjö ára að aldri mun Snorri hafa verið þegar hann varð fyrir þeirri dapurlegu reynslu að fá lömunarveiki og var upp frá því rneð lamaðan vinstri handlegg. Snorri var við prentnám á Seyðisfirði um nokkurt skeið en varð að hætta þvf vegna þess, að faðir hans, sem var bóndi á Karls- stöðum á Berufjarðarströnd, veiktist mikið og varð þá Snorri að fara heim og hjálpa til við búskapinn. Hann tók við búinu eftir að faðir hans lést og bjó þar á annan tug ára og stundaði jafn- framt sjóróðra á opnum báti og fiskaði á við aðra. Eftir það lá leiðin eingöngu til sjós á fiskibáta í ýmsum ver- stöðum. Mun Snorri hafa starfað svo til eingöngu á sjó sfðustu tuttugu árin. Eftir því sem ég kynntist Snorra betur, dáðist ég meira og meira að þrautseigju og kjarki hans, áhugasemi og hér á við æði stórbrotið og erfitt verkefni, að vinna að lagningu þúsunda kílómetra af háspennu- lfnum, vfðsvegar um þetta erfiða land. En hér var ávallt gengið hiklaust til verks, og beitt þeirri miklu þekkingu á landi og veðr- um, sem Guðmundur átti yfir að ráða og þroskaðist sífellt með árunum og aukinni starfsreynslu, ásamt kunnáttu sem numin var af bókum, mönnum, kynnisferðum, námskeiðum og hverju því öðru sem að gagni mætti koma við það verkefni, sem hann hafði helgað ævistarf sitt. Hann hafði lfka náð ótrúlega góðum tökum á hinum flóknustu þáttum þessa verk- efnis, enda þótt aldrei gæfist tími til langskólagöngu á æviskeiðinu. Guðmundur var hamhleypa til verka og ósérhlifinn og mátti einu gilda hvert verkið var: líkamleg vinna við línubygginguna, verk- stjórn viðamikilla verka, val á línuleiðum, mælingar úti í náttúr unni, hverskonar hönnunar- og skrifstofustörf. Við þessi verkefni eða skyndiferðir um fjöll og aðrar óbyggðir á hverskonar farartækj- um sem á þurfti að halda í það og það skiptið, til könnunar á snjóa- Grfmsdóttur bónda á Kirkjubóli við Steingrímsfjörð. Þau bjuggu í Andersenshúsinu við Aðalstræti til ársins 1938 að þau fluttu á Víðimel 38 þar sem þau gerðust sameigendur okkar hjóna og hafa búið þar síðan. dugnaði. Hann mun snemma hafa sett sér það að vera ekki eftir- bátur annarra þótt heilhentir væru og honum tókst það, því þótt læknar gæfu út, að hann væri 65% öryrki, þáði hann engar bætur nema tvö siðustu árin. Snorri var vinur vina sinna, bráðvel gefinn og minnugur, enda sá besti tafl- og bridgemaður sem ég hef kynnst. Hann var alltaf léttlyndur og skapaði alltaf góðan „anda“ um borð i þeim skipum sem hann var á. Eitt var það í fari Snorra sem ég lengi minnist og það var, að öll þau ár sem við vorum saman, man ég ekki til, að hann talaði illa um einn einasta mann. Sýnir það best hans innri mann. Snorri var skipverji á bát frá Suðurnesjum f haust sem leið og tók þá út af bátnum sem staddur var í Faxaflóa. Hvílir hann þar í votri gröf ásamt bróður sinum lögum og ísingarhættu vegna væntanlegra raflínulagna um þessi svæði, hvar sem handtaka var þörf hverju sinni, ávallt sami brennandi áhuginn á að verk- efnið væri fljótt og vel af hendi leyst. Guðmundi tókst ævinlega að safna að sér ótrúlega góðu starfs liði til þessara erfiðu verka, og einnig á þeim tímum, sem hvað erfiðast var um starfsmenn, vegna mikillar eftirspurnar. Honum tókst þvi að ná miklum og góðum árangri i þessari sérhæfðu byggingargrein. Rafmagnsveitur ríkisins, hverj- um hann helgaði starfskrafta sína, allt frá því að hann var ungl- ingur og til dauðadags, eða í um 27 ár, munu lengi búa að giftu- drjúgum störfum Guðmundar E. Hannessonar, við raflínulagnir um byggðir og öræfi Islands, þótt hið sviplega fráfall hans hafi borið að á miðjum starfsaldri. Hann varð islensku þjóðinni giftudrjúgur þegn með starfi sinu. Við hjónin vottum fjölskyldu hans innilega samúð. Guðjón Guðmundsson. Þau hjón eignuðust eina kjör- dóttur, Ásu Andersen, og tvær dótturdætur, Guðbjörgu Ásu, sem að nokkru hefur alizt upp hjá afa og ömmu og hefur ásamt mömmu sinni og eiginmanni verið eldri hjönunum notaleg og hjálpsöm i erfiðum veikindum þeirra hin síð- ari ár, og Regfnu sem enn er barn að aldri. Sambýlið við þessi hjón Guð- björgu og Axel Andersen sem nú hefur varað í 37 ár hefur verið með þvílfkum ágætum, að fá munu vera þess dæmi. Ymsir árekstrar sem víða er kvartað um hafa aldrei orðið hér, né aðrar snurður hlaupið á þráðinn. Um leið og við kveðjum Axel Andersen viljum við hjónin þakka honum og Guðbjörgu, fyrir okkar hönd og barna okkar, þeirra ljúfu og vinsamlegu fram- komu í okkar sambýli, og frábæra viðkynningu. Við vottum Guð- björgu, dóttur og dótturdætrum, systrum Axels og öðru venzlafólki þeirra hjóna innilega samúð og biðjum þeim blessunar. Guðfinnur Þorbjörnsson Eiriki, kunnum skipstjóra er fórst í Faxaflóa fyrir mörgum árum, en Eirík bróður sinn dáði Snorri mjög mikið. Snorri var fæddur 26. desember 1913 og hefði nú orðið 61 árs f desember hefði hann lifað. Blessuð sé minning hans. Svanur Sigurðsson. Sérverzlun Til sölu lítil sérverzlun staðsett við miðbæinn. Kaupendur sendi tilboð til augl.d. Mbl. fyrir 1. febrúar merkt: „Sérverzlun — 7307". Axel Andersen klœðskerameistari Snorri Þorvaldsson Karlsstöðum -Minning

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.