Morgunblaðið - 30.01.1975, Síða 1

Morgunblaðið - 30.01.1975, Síða 1
36 SÍÐUR 24. tbl. 62. árg. FIMMTUDAGUR 30. JANUAR 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Frú Vera Olsen frá Hellerup, stuðningsmaður Venstre, afhendir Poul Hartling forsætisráðherra blðmvönd, er hann kom frá þvf að biðjast lausnar hjá Margréti drottningu I gær. Frakkar selja Egyptum Mirageþotur París, 29. janúar. AP — Reuter’ FRAKKAR hafa fallist á að selja Egyptum orustuþotur af gerðinni Mirage F-l. Sadat Egyptalands- forseti skýrði frá þessu á fundi með fréttamönnum f dag, skömmu áður en hann lagði af stað heim til Kaíró, að lokinni þriggja daga opinberri heimsókn f Frakklandi. Er fréttamenn spurðu Sadat um friðarhorfur í Miðausturlöndum nú, sagði hann að þeir hefðu aldrei verið betri en nú á sl. 26 árum. Það væri hins vegar alger- lega undir Israelum komið hvort friður héldist. Sadat sagði að ástandið væri mjög alvarlegt og soðið gæti upp úr hvenær sem væri, en Israelar gætu komið í veg fyrir slika sprengingu með því að draga herlið sín lengra á brott frá vopnahléslínunum í Sinaieyðimörkinni, Golanhæðum og vesturbakka árinnar Jórdan. Sadat lagði á það áherzlu, að Egyptar væru reiðubúnir að und- irrita friðarsamning, þar sem við- urkenndur væri réttur tsraela til að búa innan tryggra landamæra. mjög margt umfram aðrar orustu- þotur á markaðnum. Ekki er vitað um hve margar þotur er að ræða, en vitað er að þær eru langt undir tölunni 120, sem nefnd hefur verið í þessu sambandi. Simon Perez, varnarmálaráð- herra ísraels, sagði í sjónvarps- viðtali í Tel-Aviv í kvöld, að ísraelar gætu fallist á að draga herlið sitt 30—50 km frá núgild- andi línum í Sinaíeyðimörkinni, en þeir myndu ekki láta af hendi hin mikilvægu Mitla og Giddi- skörð né olíusvæðin i Abu Rudies, sem þeir náðu á sitt vald í 6 daga stríðinu 1967. Karl Skytte forseti danska þjóðþingsins: „Reyni að mynda meirihluta- stjórn á breiðum grundvelK” Sadat sagði fréttamönnum að hann hefði verið að falast eftir Mirageþotum sl. 6 mánuði, eða frá því að hann ákvað að reyna að afla Egyptum vopna frá öðrum aðiljum en Sovétmönnum. Hann sagði að Mirageþoturnar hefðu Forsætisráð- herra á fundi í Osló í dag og á morgun Ósló, 29. janúar. FUNDUR forsætisráó- herra Norðurlandanna hefst i Ósló í fyrramálið og verður einkum f jallað um samvinnu landanna á sviði orkumála. For- sætisráðherrarnir verða að þessu sinni aðeins fjórir vegna afsagnar Hartlings, forsætisráð- herra Danmerkur, í gær. í dag eru samstarfsráð- herrar Norðurlandanna á fundi til að undirbúa forsætisráðherrafund- inn, en samstarfsráð- herrarnir eru að þessu sinni iðnaðarráðherrar, nema Geir Hallgríms- son, forsætisráðherra Ís- lands, sem situr fundinn. Af hálfu Danmerkur sit- ur Natalie Lind dóms- málaráðherra, fundinn. Er fundurinn haldinn m.a. til undirbúnings þingi Norðurlandaráðs, sem hefst í Reykjavík 15. næsta mánaðar. Kaupmannahöfn, 29. jan. einkaskeyti til Mbl. Frá Gunnari Rytgaard. KARL Skytte, forseti danska þjóðþingsins, byrjar í fyrramálið (fimmtudag) tilraunir sínar til | að leysa stjórnarkreppuna í Dan- mörku með myndun nýrrar stjórnar. Skytte var falið þetta verkefni af Margréti Danadrottn- ingu, eftir ábendingu frá Paul Hartling, fráfarandi forsætisráð- herra, sem hafði þá rætt við leið- toga allra hinna 9 flokkanna, sem eiga þingmenn í þjóðþinginu. Margt bendir til þess, að næsta stjórn f Danmörku verði minni- hlutastjórn jafnaðarmanna og Róttæka vinstriflokksins undir forsæti Ankers Jörgensens, en þó eru engir möguleikar útilokaðir. Þetta er í fyrsta skipti í stjórn- málasögu Danmerkur, að forseta Þjóðþingsins er falið að hafa for- ystu um stjórnarmyndun. Skytte, sem er 67 ára að aldri og þingmað- ur Róttæka vinstriflokksins hefur setið á þingi í Danmörku í 28 ár Lissabon, 29. jan. Reuter. YFIRMENN Portúgalshers kvöddu f dag á fund sinn leiðtoga sósfalista og kommúnista til að ræða hvort fyrirhugaðar fjölda göngur og fundir á föstudag skuli fara fram. Bæði sósfalistar og kommúnistar ætluðu að gangast fyrir hópgöngum og fundum til að minnast uppreisnarinnar gegn konungsveldinu 1891, en mikill ótti rfkir um að til alvarlegra átaka kunni að koma, ef fundirn- ir verða leyfðir og þvf er talið að herforingjarnir muni banna þá, nema aðiljar geti komið sér sam- an um sameiginlegan fund. Þá hefur Maoistaflokkurinn i Portúgal lýst því yfir að hann og hann var landbúnaðarráðherra á árunum 1957—64. Hann hefur verið forseti þingsins sl. fimm ár og hefur orð á sér fyrir aó vera frábær samningamaður. Skytte var valinn til starfsins eftir að leiðtogar flokka, sem samanlagt hafa meirihluta á- þingi mæltust til þess. Skytte lýsti því yfir á fundi með fréttamönnum, að hann hefði engan áhuga á emb- ætti forsætisráðherra en bætti við „ef fulltrúarnir í þinginu biðja mig um það, neyðist ég líklega til að ihuga málið“. Skytte sagðist leggja út í viðræðurnar með það í huga „að mynda meirihlutastjórn á sem breiðustum grundvelli, eða breiða meirihlutastjórn". Fæstir telja miklar líkur á því að stjórnarkreppan leysist á næstu dögum og sem áður telja forystumenn stærstu flokkanna, Jafnaðarmannaflokksins og Vinstriflokksins, engan raunhæf- an grundvöll fyrir stjórnarsam- starfi sín i milli. Þvi er það að samstarf jafnaðarmanna og Rót- muni gangast fyrir hópgöngu upp á eigin spýtur, i trássi við vilja ríkisstjórnarinnar ef út í það færi. Mikil stjórnmálaspenna rikir nú í Portúgal í kjölfar óeirðanna í Oporto um helgina og skoðana- ágreinings milli samstarfsflokk- anna í ríkisstjórninni, kommún- ista og jafnaðarmanna, út af verkalýðslöggjöfinni. Jafnaðar- menn og þriðji samstarfsflokkur- inn i stjórninni, Lýðræðislegi þjóðarflokkurinn telja að komm- únistar og flokkar vinstri öfga- manna í landinu hafi ekki i hyggju að fylgja lýðræðislegum leikreglum í sambandi við fram tíðarstjórnarfyrirkomulag í land- inu. tæka flokksins er liklegasta lausnin. Þrátt fyrir að þar yrði um minnihlutastjórn að ræða með 67 þingmenn að baki sér af 179, er talið að slik stjórn myndi fá vinnufrið. Litlar líkur eru á, að að henni yrði ráðist af vinstri flokk- unum, í það minnsta ekki sósial- iska þjöðarflokknum, og hún myndi eiga góða samstarfsmögu- leika með flokkum, sem teljast til hægri í þinginu. Hún myndi væntanlega geta tryggt efnahags- málafrumvörpum sinum meiri- hluta með 10 atkvæðum sósialiska þjóðarflokksins, 9 atkvæðum Kristilega þjóðarflokksins og fjór- um atkvæðum Miðdemókrata- flokksins, eða alls 90 atkvæðum og meirihluta án stuðnings Venstre og Framfaraflokksins. Nánir samstarfsmenn Paul Hartlings, fráfarandi forsætisráó- herra, segja hann mjög vonsvik- inn, eftir að hafa orðið undir við vantraustsatkvæðagreiðsluna i gær með aðeins einu atkvæði Moskvu, 29. jan. AP ÁREIÐANLEGAR heimildir í Moskvu herrndu í dag, að Sovét- stjórnin mundi innan skamms hækka verulega verð á hráolíu og öðrum hráefnum sem seld eru til Austantjaldsþjóðanna. Sovétríkin munu selja um 57,3 milljónir lesta af hráolíu til þessara þjóða á þessu ári, verðið fyrir oliu á sl. ári var um 50% undir heimsmarkaðs- verði 86—85. Telja ýmsir að hann og flokkur hans, Venstre, muni kjósa að fara út i harða stjórnar- andstöðu ef flokkurinn verður ekki beðinn um að taka þátt í myndun meirihlutastjórnar. Hins vegar er hér eíngöngu um að Framhald á bls. 20 Yariv segir af sér Tel-Aviv, 29. janúar. Reuter. AHARON YARIV, upplýsinga- málaráðherra ísraels, sagði af sér i dag og lýsti þvi yfir, að rikis- stjórnarkerfi landsins veitti sér lítió svigrúm til starfa. Yariv, sem var áður yfirmaður leyniþjónustu ísraels, sagði i bréfi sínu til Rab- ins forsætisráóherra, að verka- skiptingin ásviði upplýsingamiðl unar meðal hinna einstöku ráóu- neyta væri slík, að hún gæfi upp- lýsingamálaráðherranum enga möguleika á að verða við þeim kröfum, sem almenningur gerði til hans. Á fundi með fréttamönn- um tók Yariv fram, að enginn stjórnmálalegur ágreiningur væri milli sín og forsætisráðherra og I hann myndi áfram sitja á þingi. Akvörðunin um þessa verð- hækkun mun hafa verið tekin á fundi framkvæmdanefndar efna- hagsbandalags kommúnistarikj- anna Comecon. Verður olíuverð og hráefnaverð nú látið fylgja „um það bil“ heimsmarkaðsverði og árið 1976 tekur gildi nýtt og sveigjanlegra verðlagskerfi innan Comecon, er nýjar 5 ára áætlanir taka gildi í aðildarlöndunum. Portúgal: Óvissa um útifundina Sovétmenn stórhækka olíuverð til Comecon

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.