Morgunblaðið - 30.01.1975, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANUAR 1975 35
| iÞBdntfRÉniR M0WM8SIIIS
Almenniiigíýtt
til hliðar?
36 lið munu keppa um
Islandsmeistaratitla
FJÖLDI þeirra sem stunda skfða-
fþróttina sér til ánægju og heilsu-
bótar hefur farið mjög vaxandi að
undanförnu, og þarf ekki annað
en að fara á skfðasvæði þau sem
Reykjavíkurborg og Reykjavfkur-
félögin hafa yfir að ráða tii þess
að sannfærast um það. Má ætla,
að skfðafþróttin sé nú komin til
jafns við sundið sem almennings-
fþrótt fbúa höfuðborgarsvæðisins,
og vfða úti á landi eru skfðafþrótt-
ir aðalalmenningsíþrótt yfir vetr-
armánuðina.
Að undanförnu hafa allmargir
komið að máli við íþróttafréttir
Morgunblaðsins og kvartað yfir
aðstöðuleysi til skíðaiðkana í ná-
grenni höfuðborgarinnar. Ekki
yfir því, að skfðalöndin séu ekki
út af fyrir sig nægiieg, heldur yfir
hinu, að þeir telja að almenningi,
sem er á skíðum sér til ánægju, sé
algjörlega þokað til hliðar fyrir
þeim sem stunda íþrótt þessa með
keppni fyrir augum. Þeir virðist
hafa algjöran forgang í skíðalyft-
urnar, og fái auk þess yfirráð yfir
bezta skíðalandinu. Ekki sé nóg
með það. Séu gerðar athugasemd-
ir við þetta, þá mæti fólki ekkert
annað en ókurteisi og frekja.
Einn þeirra sem kvartaði við
Morgunblaðið nefndi sem dæmi,
að fimmtudag í fyrri viku hefði
hann farið á skíði i Hveradali og
sagðist hann ekki hafa vitað betur
en það væri opið almenningi til
skíðaiðkana. Til að byrja með
hefði allt farið þar fram með friði
og spekt. Fólk hefði farið í skipu-
legar biðraðir við lyftuna og siðan
rennt sér niður. Skíðasvæðið
hefði raunar verið takmarkað, en
eigi að síður hefði þar hver og
einn getað fundið þar svæði við
sitt hæfi. Eftir að hafa verið
þarna nokkra stund, sagði hann
að unglingahópur hefði komið á
staðinn, greinilega með það mark-
mið í huga að æfa sig. Eftir það
hefði enginn friður verið fyrir
aðra. Brautir hefðu verið settar
upp á bezta skíðasvæðinu, og fólk-
ið hrakið þaðan. Ekki hefði verið
um biðraðir að ræða við lyftuna
eftir þetta. Unglingarnir hefðu
jafnan troðist framfyrir þá sem
biðu, og væri gerð athugasemd,
var einungis svarað með glósum
og skætingi. Gat viómælandi
blaðsins þess sérstaklega að i hópi
unglinganna hefði verið þjálfari
þeirra, og hefði hann enga at-
hugasemd gert við framkomu
unglinganna.
Annar sem kom að máli við
blaðið sagði sínar farir ekki slétt-
ar af heimsókn á skíðasvæði KR-
inga við Skálafell. Hann kvaðst
hafa farið þangað sunnudag þann
sem nýja lyftan var opnuð, enda
auglýst fyrirfram að í tilefni dags-
ins væri ókeypis í skíðalyfturnar,
og sér hefði virst allt gert sem
unnt var til þess að hvetja fólk til
að heimsækja svæóið. Sagðist
hann hafa notfært sér nýju lyft-
una og haft hina beztu skemmtun
af því að renna sér í góðum brekk-
um. En þetta gaman tók brátt
enda. Án þess að fólki sem þarna
var, væri nokkuð tilkynnt um það,
var farið að leggja braut í brekk-
urnar vió nýju lyftuna. Varð um-
ræddur skíðaáhugamaður ekki
var við það fyrr en hann var að
renna sér niður og var stöðvaður
af starfsmönnum við brautarlagn-
inguna. Vönduðu þeir honum
ekki kveðjurnar fyrir að vera að
„þvælast" i braut hinna útvöldu.
Kom að engu gagni þótt þeim
væri bent á það á móti, að ekki
hefði verið úr vegi, að tilkynna
fyrirfram um brautarlagningu
þessa, eða hreinlega að loka lyft-
unni, eftir að lagning hófst.
Nú er það út af fyrir sig mjög
skiljanlegt að félög þau sem hafa
skíðaíþróttina á stefnuskrá sinni
og ráða þjálfara fyrir skíðafólk
sitt, leggi mikla áherzlu á að búa
sem bezt aó keppnisfólkinu. Sam-
keppnin er hörð i baráttunni um
sigra og verðlaun í skfðamótum
ekki síður en i annarri íþrótta-
keppni. Og vist er, að aðstaða
þeirra Reykvikinga, sem stunda
skíðaíþróttina með keppni fyrir
augum, hefur alls ekki verið til
jafns við þaó sem gerist víða ann-
ars staðar og má nefna ísafjörð,
Akureyri og Sigluf jörð sem dæmi.
Hinu má þó alls ekki gleyma né
missa sjónar af, að keppnisfólk
þetta á enga samleið með þeim
sem eru á skiðum sér til gamans
og heilsubótar, og það verður að
taka fullt tillit til þeirra og sjá þvi
fyrir eins góðri aðstöðu og mögu-
legt er. Það er mjög skiljanlegt að
menn séu ekki ánægðir með að
vera reknir burt af skíóasvæði
eða útilokaðir frá sæmilegustu að-
stöðunni, þegar umrætt svæói á
að vera öllum opið. Það er eins og
einn þeirra, er kvartað hafa til
blaðsins, komst að orói, eyðilegg-
ing á þeirri ánægju og hressingu
sem skíðaferðirnar veita, að þurfa
að standa í rifrildi og þrasi við
lyfturnar eða vera reknir burtu,
jafnvel með hinum versta munn-
söfnuói.
A því hefur borið (m.a. á siðum
Mbl.) að menn hafi verið að fetta
fingur út á það, að Asgeir Sigur-
vinsson hlaut sæmdarheitió
iþróttamaður ársins 1974 í ný-
kunngjöróu kjöri íþróttafrétta-
manna. Ástæðan fyrir þessum
fingrafettum virðist vera sú ein,
að Ásgeir er nú um tíma atvinnu-
maður í íþrótt sinni, knattspyrn-
unni, og eigi því ekki að vera
hlutgengur i þessu kjöri. Hann,
með öðrum orðum, þiggur laun
fyrir að sýna kunnáttu sína og
leikni með erlendu liði, í staó þess
að gera það fyrir ekkert annað en
eigin ánægju hér heima á Islandi
— siðasta bænum i dalnum, þar
sem búa einu eftirlifandi áhuga-
mennirnir í Iþróttum.
En jafnvel frá þessum „einbú-
um“ á norðurhjara veraldar koma
öðru hverju fram á sjónarsviðið
afburða iþróttamenn, íþrótta-
menn sem geta með sóma staðið
jafnfætis öðrum íþróttamönnum
annarra og stærri þjóða. Þó svo að
þessir iþróttamenn hafi til að
bera slíka hæfileika, að erlend
stórfélög vilja gjarnan borga stór-
ar fjárhæðir til þess að fá þá í
sinar raðir, þá breytir það engu til
um þaó, að þeir eru iþróttamenn.
Eða vill einhver i alvöru halda
öðru fram?
Einn leikur eystra
MJÖG erfiðlega hefur gengið að
koma á leikjum í Austurlandsriðl-
inum i 3. deildar keppni Islands-
mótsins í handknattleik, sökum
ófærðar og samgönguerfiðleika.
Keppninni í riðlinum á að vera
lokið fyri^ 1. marz n.k., en hingað
til hefur aðeins einn leikur af 12
farið fram. Þá sigraði Huginn frá
Seyðisfirði Austra á Eskifirði
með 21 marki gegn 19.
ISLANDSMÖTIÐ f knattspyrnu
innanhúss fer fram dagana 1. og
2. febrúar n.k. f Laugardalshöll-
inni. Hefst keppnin laugardaginn
1. febrúar kl. 13.00, en verður
fram haldið kl. 10.00 á sunnu-
dagsmorgun, og er áætlað að mót-
inu ljúki um kl. 22.00 þá um
kvöldið.
Islandsmótið hefur undanfarin
ár verið haldið um páskana, en
Auðvitað má hver hafa sina
skoðun á hvaða máli sem er. En
ekki get ég sætt mig við slík
fornaldarsjónarmið, að okkar eini
atvinnumaður í íþróttum (skyldu
þeir ekki finnast fleiri ef grannt
yrði skoðað), eigi ekki að hafa
sömu möguleika og aðrir til viður-
kenningar sem þeirrar er hér um
ræðir. Við lifum í nútíð, ekki satt,
og því skulum við líka hugsa i
nútið. Iþróttamenn okkar eru
bara íþróttamenn. Ekki vondu
karlarnir sem fá peninga og góðu
börnin sem strita fyrir ánægjuna,
þetta eru allt bræður og systur I
leik. Sumum gengur aðeins betur
en öðrum.
Menn skulu ekki halda annað
en að þeir íþróttamenn, sem fara
út i atvinnumennsku með stór-
félögum erlendis, séu afburða-
menn i sinni íþrótt, jafnvel þó
aðeins sé miðað við okkar staðal.
Þessi félög koma ekki hingað til
þess að finna sér einhverja
skussa, heldur menn sem hafa
ríka hæfileika.
Ásgeir Sigurvinsson er slfkur
íþróttamaður. Auk þess er hann
alkunnur fyrir áhuga, ástundun,
járnvilja, ásamt einstakri reglu-
semi og prúðmennsku. Betri full-
trúa á islenzk íþróttahreyfing
vart kost á. Ásgeir Sigurvinsson
er fyllilega verður þess heiðurs
sem honum hefur nú hlotnast og
hann mun áfram varpa ljóma á
islenska knattspyrnu. Ekki þarf
að efast um að Ásgeir mætir til
leiks fyrir land sitt, ef hann er til
þess kvaddur og það er i hans
valdi. Það hefur hann þegar sýnt
og sannað. Ég veit að fjöldinn er
sammála vali iþróttafréttamanna,
úrtölumennirnir tilheyra þröng-
um hópi óskhyggjumanna sem
einfaldlega varð ekki að ósk sinni.
Hermann Kr. Jónsson
talsverðrar óánægju hefur gætt
hjá félögunum með það fyrir-
komulag, sérstaklega hjá þeim
sem eiga lið i 1. eða 2. deild, þar
sem það hefur færst í vöxt að
félögin noti páskana til æfinga.
Var tekið tillit til óska þessara
félaga og ákveðið að hafa keppn-
ina um þessa helgi.
Keppt er í meistaraflokki karia
og kvenna. 27 karlalið hafa boðað
þátttöku, sem er 5 liðum fleira en
i fyrra, og kvennaliðin eru 9, eða
sami f jöldi og í fyrra.
Að þessu sinni koma nokkur lið
i karlaflokki til keppni i fyrsta
sinn, og má þar nefna UMF Þór
frá Þorlákshöfn, íþróttafélagið
Þór á Akureyri og Knattspyrnufé-
lag Siglufjarðar.
Dregió hefur verið í riðla og
verða þeir þannig skipaðir í
keppninni:
A-riðill:
Hrönn, Fylkir og Valur
B-rióill:
Akranes, Þór Akureyri og
Reynir í Sandgerði
C-riðill:
Afturelding, Fram og Víðir I
Garði.
1 FYRRAKVÖLD héldu Akureyr-
arfélögin KA og Þór og Iþrótta-
bandalag Akureyrar sameiginleg-
an fund, þar sem fjallað var um
þau áform að skilja félögin að
skiptum I meistaraflokki i knatt-
spyrnu, en sem kunnugt er hafa
þau keppt undir merki ÍBA. Var
tekin um það ákvörðun á fundi
þessum, að framvegis kæmu fé-
lögin fram undir eigin merkjum
og keppa þvi tvö Akureyrarlið í
meistaraflokki næsta sumar.
D-riðill:
KR, IR og Leiknir
E-riðill:
Ármann, Selfoss og Vikingur
F-riðill:
Grindavík, FH og Þróttur, Nes-
kaupstað.
G-riðill:
Breiðablik, Stjarnan og Magni
H-riðill:
Haukar, ÍBK og KS
I-riðill:
Þróttur Reykjavík, Þór Þorláks-
höfn og Grótta.
Kvennaflokkur:
A-riðill:
Haukar, FH og Armann
B-riðill:
Breiðablik, IBK og Fram
C-riðiIl:
Þróttur Reykjavík, Grindavik
og IA.
Sem fyrr greinir hefst keppnin
kl. 13.00 laugardaginn 1. febrúar
og leika þá fyrst Valur og Hrönn í
A-riðli. Síðan rekur hver leikur-
inn annan, en úrslitakeppnin á að
hefjast kl. 16.00 á sunnudag.
Núverandi Islandsmeistari i
karlaflokki er Valur, en Ármann í
kvennaflokki.
Akureyrarliðið féll niður i 2.
deild s.l. sumar, eftir úrslitaleik
við Víking. Er ekki vitað, á þessu
stigi málsins, hvort félögin veróa
látin keppa sín á milli um hvort
skuli leika í 2. deild og hvort i 3.
deild, eóa hvort bæði verða látin
leika i 3. deild, sem er ekki
ósennilegt. Veróur úr þvi máli
skorið alveg á næstunni, þar sem
mótanefnd KSÍ er nú að raða nið-
ur leikjum i íslandsmeistaramót-
inu næsta sumar.
Frjálsíþróttamótin í vetur
Gengið hefur verið frá móta-
skrá Frjálsíþróttasambands ís-
lands i vetur og verða keppnis-
staðir og dagsetningar sem hér
segir:
2. febrúar í Kópavogi:
Sveina-, meyja-, pilta- og telpnameist-
aramót Islands innanhúss.
15. febrúar í Garðahreppi:
Drengja- og stúlknameistaramót
tslands innanhúss
22. — 23. febrúar í Reykjavík:
Meistaramót tslands innanhúss
2. marz í Hafnarfirði:
Meistaramót Islands f stökkum án
atrennu
6. aprfl í Reykjavík
Viðavangshlaup lslands.
Mótanefnd er að vinna að mótaskrá
fyrir sumarid 1975. Mjög lftið hefur borizt
af tilkynningum frá sambandsaöilum. og
er því skorað á þá að senda niðurstöður
hið fyrsta til FRl í pósthólf 1099, og f
sfðasta lagi fyrir 15. febrúar n.k.
(Frétt fráFRh
Islenzk íþróttahreyfíng
á varla betri fulltrúa
KA og Þór skilia