Morgunblaðið - 30.01.1975, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANUAR 1975
Halldór Þorvaldsson
fyrrum bóndi minning
F. 25. sept. 1895
D. 24. jan. 1975.
svæði; fjárhagsleg skilyrði og
fjárhagsleg takmörk, sem rafvæð-
ingu eru' sett i strjálbýlu landi
o.fl., stefnumarkandi ritgerð sem
síðar var rædd i Verkfræðinga-
félagi Islands. Samantalin eru
skrif Steingríms um orkumál
landsins mjög umfangsmikil, en
það skal ekki rakið hér.
Steingrimur Jónsson er
kvaddur með söknuði af öllum
þeim, sem samleið hafa átt með
honum og samskipti við hann
haft. Hann var öðlingsmenni.
drengur góður, sem öllum vildi
vel, og varð hvers manns hugljúfi,
sem honum kynntust. Og sá hópur
er ekki smár, því að auk þess að
stjórna um langa ævi stórfyrir-
tækjum, svo sem Rafmagnsveitu
Reykjavíkur og Sogsvirkjuninni,
tók Steingrimur mikinn þátt í
félagslifi, bæði tæknilegu og
verkfræðiiegu og varðandi hin
margvíslegustu önnur áhugamál,
sem voru ófá. Ég leyfði mér einu
sinni að komast þannig að orði, að
Steingrimur léti sér ekkert mann-
legt óviðkomandi vera. Og alls
staðar var hann kvaddur til
trúnaðarstarfa.
Söknuður kemur i huga okkar
margra, þegar við hugsum til
hinna mörgu ánægjustunda, sem
við áttum á heimili þeirra Stein-
gríms og frú Láru; þetta voru
alltaf hátíðastundir, veisla og
gleðskapur. En lífið gengur sinn
gang, og öll verðum við að búa
okkur undir að verða einhvern
tímann að kveðja líka.
Við hjónin vottum börnum,
tengdabörnum og barnabörnum
þeirra Steingríms og Láru
innilega samúð okkar.
Jakob Gíslason.
Kveðja frá Oddfellowreglunni
Steingrimur Jónsson, fyrrver-
andi rafmagnsstjóri, varð félagi í
Oddfellowreglunni á miðju ári
1921, og hefur frá því starfað þar
í tæp 54 ár og þar af hefur hann
átt sæti í yfirstjórn reglunnar i 18
ár, frá 1943 til 1961 er hann baðst
undan endurkosningu.
Allan þann tíma tók hann
virkan þátt i starfi reglunnar af
þeirri alúð, sem honum var eigin-
leg í öllum sinum störfum og átti
megin þátt i þeirri uppbyggingu
sem þá fór fram.
Steingrímur var mikilhæfur
maður, stórbrotin persóna og
starfsamur með afbrigðum og féll
honum aldrei verk úr hendi, enda
ávann hann sér traust og virðingu
allra sem hann átti samleið með.
Oddfellowreglan þakkar honum
allt sem hann þar vann á löngum
starfsdegi og óskar honum góðrar
ferðar með þeirri von að nú bíði
hans tækifæri til meira að starfa
guðs um geim.
Blessuð sé minning hans.
Júl. Björnsson.
Við andlát Steingrims þarf einn
hinna mörgu útlendinga, sem
hann í starfi sinu átti samleið með
að láta frá sér heyra.
Steingrimur var brautryðjandi
í þróun rafvæðingar á íslandi, en
hafði einnig opinn hug fyrir
annarri tækniþróun í landinu. Á
því er enginn vafi, að Steingrímur
vakti traust meðal erlendra
tækni- og fjármálamanna, þegar
kynntar voru framkvæmdir, sem
ráðast skyldi í. Hann hafði frá-
bæra hæfileika og vilja til
frjórrar samvinnu, bæði innan og
utan sinnar eigin stofnunar.
Hann var mjög réttsýnn maður,
sem var til dæmis fær um að taka
tillit til skilnings allra aðila á þvi
hvað í samningum fælist. Hann
vissi að „gögn“ um verkfram-
kvæmdir byggðu á tilteknum for-
sendum sem náttúran — og alveg
sérstaklega íslenzk náttúra stund-
um hafði að engu.
Steingrímur hafði áhuga á
mörgum sviðum og hafði ánægju
af að skrifa um áhugamál sin.
Með því hefir hann vafalaust
unnið íslenzkum verkfræðingum
mikið gagn.
Hann var áhugasamur, gestris-
inn og aðlaðandi maður —
heiðursmaður i einu og öllu og
dásamiega mannlegur. Dýrmætur
vinur var hann mér i 38 ár og
prýði fyrir þjóð sina. Minning
hans mun lengi verða uppi, bæði
meðal landa hans og vor útlend-
inga. Kay Langvad
Halldór Þorvaldsson var fædd-
ur að Hólum i Dýrafirði, 25. sept.
1895. Foreldrar hans voru hjónin
Kristín Halldórsdóttir og Þorvald-
ur Þorvaldsson, en þegar Halldór
var um það bil ársgamall fluttust
foreidrar hans til Önundarfjarðar
og hófu búskap að Vífilsmýrum
þar í sveit og bjuggu þar í nokkur
ár, en fluttust siðan að Efstabóli í
sömu sveit og bjuggu þar til árs-
ins 1920, en þá byrjar Halldór
búskap á Kroppsstöðum og flutt-
ust þá foreldrar hans til hans.
Halldór ólst upp við algeng
störf til sjávar og sveita, eins og
þá var algengt. — Á þeim tíma
var ekki auðvelt að afla sér
menntunar þar sem peningar
voru oft af skornum skammti,
þótt ekki vantaði viljann. Halldór
komst þó í Búnaðarskólann að
Hólum í Hjaltadal og stundaði þar
nám i einn vetur.
7. júní árið 1931 gekk Halldór
að eiga föðursystur mína, Agústu
Pálsdóttur, er fædd var 22. ágúst
1903, og bjuggu þau i góðu nábýli
við foreldra mína, þar til, Ágústa
lést 8. apríl 1946.
Börn þeirra hjóna eru: Páll
Skúli, búsettur i Reykjavík,
Kristín Lilja, búsett á Fáskrúðs-
firði, og Aðalheiður, búsett í
Reykjavik.
Eftir lát Ágústu konu sinnar,
festi Halldór ekki yndi i Önundar-
firði og fluttist búferlum haustið
1947 til Reykjavíkur.
Halldór var tvíkvæntur, og er
eftirlifandi kona hans Ingibjörg
systir fyrri konu hans og bjó hún
Halldóri og börnum hans gott
heimili. Þau áttu siðast heimili að
Stigahlíð 18 hér i borg eða frá
árinu 1959.
Ég, sem rita þessar linur, var
svo lánsamur að búa á heimili
þeirra hjóna og njóta þeirrar sér-
stöku góðvildar, sem þar ríkti.
Halldór var maður, eins og sagt
er, með hjartað á réttum stað,
aldrei mátti hann neitt aumt sjá,
þá var hann boðinn og búinn til
að gera allt, sem hann var fær um,
til hjálpar.
Halldór var hagmæltur vel og
naut sín vel meðal vina og ótaldar
eru vísurnar, sem hann orti til
vina og kunningja. Þungur harm-
ur er kveðinn að eftirlifandi
eiginkonu hans, sem nú liggur á
sjúkrahúsi og má nú sjá á bak
ástríkum eiginmanni sinum. Megi
Guð styrkja hana og styðja.
Börnum hans og fjölskyldum
þeirra, votta ég og fjölskylda mín
innilega samúð.
Halldóri þakka ég hjartanlega
það sem hann hefur verið mér og
mínum.
Guð blessi hann.
Höskuldur Stefánsson og fjöl-
skylda.
1 dag fer fram útför Halldórs
Þorvaldssonar, Stigahlíð 18,
Reykjavík, áður bónda á Kropps-
stöðum i Önundarfirði. Halldór
fæddist að Hólum i Dýrafirði 25.
september 1895. Foreldrar hans
voru Þorvaldur Þorvaidsson og
Kristin Halldórsdóttir. Þegar
+
Alúðarþakkir færum við öllum
þeim, sem auðsýndu okkur sam-
úð og vinarhug við andlát og
útför móður okkar
SIGRÍÐAR PÁLSDÓTTUR,
frá Hofi.
Sérstakar þakkir færum við lækni
og hjúkrunarkonu og öðru starfs-
fólki Hjúkrunarheimilinu Höfn
fyrir góða umönnun, Guð blessi
ykkur öll,
Hallbera Karlsdóttir,
Guðrún Karlsdóttir
og vandamenn
Halldór var ársgamall fluttu for-
eldrar hans til Önundarfjarðar og
hófu búskap að Vífilsmýrum og
síðar á Efstabóli. Þorvaldur og
Kristín eignuðust 8 börn og var
Halldór næstelstur. Eina dóttur
misstu þau hjón barnunga, en hin
komust öll upp og eru nú fimm
þeirra á lífi.
I æsku naut Halldór venju-
legrar barnafræðslu i heima-
byggð sinni og þar sem hugur
hans hneigðist til búskapar réðst
hann til náms í Búnaðarskólann á
Hólum I Hjaltadal og var þar einn
vetur.
Þessa vetrar minntist hann oft
og talaði gjarnan um „strákana",
skólabræður sína.
25 ára gamall hóf Halldór bú-
skap á Kroppsstöðum i önundar-
firði. Foreldra sína tók hann á
heimilið og nutu þau forsjár hans
meðan hann bjó þar.
Árið 1931 kvæntist hann
Agústu Pálsdóttur frá Kirkjubóli
i Korpudal. Sambúð þeirra var
einstaklega ástrík og góð. Attu
þau saman þrjú börn. Eru það
Páll Skúli, búsettur i Reykjavik,
Kristín Lilja, búsett á Fáskrúðs-
firði, og Aðalheiður, búsett í
Reykjavík.
Árið 1946 varð Halldór fyrir
þeirri þungu raun að missa sina
ágætu konu. Við það urðu þátta-
skil í lífi hans.
Hann undi ekki lengur í heima-
byggð sinni og fluttist til Reykja-
víkur árið 1947.
Þetta voru erfið ár, en margir
urðu til að hjálpa Halldóri og
börnunum. Sérstaklega ber að
geta Guðrúnar, systur Halldórs,
sem fluttist til hans á heimilið og
var til ómetanlegrar hjálpar þar
til Halldór kvæntist eftirlifandi
konu sinni, Ingibjörgu Pálsdótt-
ur, systur Ágústu. Ingibjörg
liggur nú sjúk á Landspitalanum
og er sárt fyrir hana að geta ekki
verið hjá Halldóri á kveðjustund.
Halldór og Ingibjörg áttu yndis-
legt heimiii hér í Reykjavík og
reyndist Ingibjörg börnum Hall-
dórs og systur sinnar mjög vel.
Ekki varð þeim barna auðið en
tóku á heimilið dóttur Aðalheiðar,
Ingibjörgu Jónu, og ólst hún upp
hjá þeim. Heimili Ingibjargar og
Óska eftir
2ja—3ja herb. ibúð í Reykjavík.
Upplýsingar i sima 16136 eftir kl.
6.
Seljum í dag
1974 Cout II V8 sjálfskiptur
með vökvastýri.
1974 Buick Apollo
1 974 Chevrolet Nova
1 974 Scout II 6 cyl beinskiptur.
1974 Ford Bronco sport V8
sjálfskiptur
1 974 Mazda 818 coupe
1974 Fiat 127
1 973 Buick Century.
1 973 Chevrolet Malibu
1 973 Chevrolet Nova
sjálfskiptur
1973 Mercury Comet
sjálfskiptur
1 972 Opel Record II
1972 Mercedes Benz 250
1971 Opel Caravan '
1 971 Volvo 1 64
1971 Chrysler 1 60
1971 Vauxhall viva.
Halldórs hér í Reykjavík var sér-
stakt. Þangað var gott að koma.
Gestrisni þeirra hjóna var mikil
og það fann ég glöggt er kynni
min hófust þar.
Halldór vann almenna verka-
mannavinnu hér i Reykjavík, en
lengst af starfaði hann i Ofna-
smiðjunni h/f, eða allt til þess er
hann veiktist af þeim sjúkdómi,
sem nú hefur lagt hann að velli.
Halldór var að eðlisfari glaðvær
og skemmtinn og var ekki síður
að skapi ungra en gamalla. Hall-
dór var góður hagyrðingur og hélt
oft uppi skemmtan með glettnum
og hnyttnum vísum og munu
félagarnir úr Ofnasmiðjunni oft
hafa notið samverunnar með
Halldóri. Það duldist engum sem
þekkti Halldór, að hann var vel
greindur. Hann hafði yndi af bók-
um og las mikið og vandaði val
þeirra bóka sem hann las.
I æsku hans voru ungmenna-
félögin í blóma og samvinnustefn-
an að ryðja sér til rúms. Alla ævi
sína trúði hann einlægt á mátt
samvinnunnar og hugsjónir ung-
mennahreyfingarinnar og breytti
eftir þvi. Ef lýsa ætti Halldóri
með fáum orðum kemur mér fyrst
i hug: „Hann var góður drengur,"
og góðir drengir eignast góða vini.
Þvi var Halldór vinamargur og
hvar sem hann kom var hann
kærkominn gestur, ræðinn og
skemmtinn. Hann var einn þeirra
manna, sem halda á loft því sem
gott er og göfugt. Nutu margir
hjálpsemi hans og góðvildar. Allir
sem umgengust hann fundu hve
grandvar og heiðarlegur hann var
og öllum þótti vænt um hann, sem
bróður eða náinn vin. Þvi sem
__________________________27_
honum var trúað fyrir mátti
treysta til fulls.
Ósjaldan dvöldust ungmenni á
heimili hans. Þau höfðu gott af
þeirri dvöl því áhrif frá mönnum
sem Halldóri hljóta að þroska og
bæta.
Kæri tengdafaðir. Þú varst mér
sem besti faðir og hjartahlýja þín
var svo mikil að hún umvafði mig
og fjölskyldu mína, þó við
byggjum viðs fjarri og samveru-
stundir okkar urðu færri en ég
sjálfur hefði viljað. Auðlegð
hjarta þíns og hugar var mikil.
Þeirrar auðlegðar nutu margir og
allt sem þú veittir mér og minni
fjölskyldu af auðlegt þinni — sem
við metum öðru meir — fylgir
minningunni um þig um ókomin
ár. Hafðu þökk fyrir þá hlutdeild
sem þú veittir mér og mínum i lifi
þínu.
Guð blessi minningu þína.
Þórólfur Friðgeirsson
Fáskrúðsfirði.
Það er svo margt, sem kemur
upp í hugann þegar ég i dag kveð
afa. Þakklætið er rikjandi, þakk-
læti fyrir þá umhyggju og ástúð,
sem hann sýndi mér alla tíð. Frá
fjögurra ára aldri ólst ég upp á
heimili þeirra ömmu að Stigahlíð
18, og nú sem 17 ára unglingur
finn ég hvernig ég hef mótast á
þessum árum og hvernig afi
miðlaði mér af sinni reynslu og
visdómi, sem ég veit að mun end-
ast mér alla ævi.
Góða og heilbrigða lífsviðhorf-
ið, sem var svo einkennandi fyrir
hann, er mér ómetanlegt vega-
nesti.
Minningarnar vakna hver af
annarri. Afi sem hrókur alls fagn-
aðar i hópi ættingja og vina heima
i Stigahlið. Stundirnar sem við
sátum saman, og hann sagði mér
frá lifi sinu í Önundarfirði þegar
hann var ungur maður, og ung-
mennafélagsstarfið átti hug hans
allan. Þegar hann ræddi við mig
um bækur, eða las fyrir mig ljóð,
oft eigin ljóð, því hagmæltur var
hann vel. Hann fræddi mig um
landið okkar, kenndi mér að meta
það og elska. Fallegur söngur, þá
ekki sízt ættjarðarljóðin, vöktu
gleði hans og ánægju.
Allt þetta, sem ég á svo erfitt
með að koma orðum að, en er
samt svo ríkt i huga mínum,
þakka ég afa minum.
Inga Jóna.
Tilboð óskast i smíði á eftirfarandi v/Vistheimilis að Vifilsstöðum:
Svefnbekkir — náttborð -— skrifborð — bókahillur — hillueiningar
— borðstofuborð — vinnuborð o.fl.
Útboðsgagna skal vitja á skrifstofu vora, gegn skilatryggingu kr.
3.000.-.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
Valhúsgögn
janúar-tilboð
sófasett á kr. 120 þús.,
á kr. 135 þús.
á kr. 155 þús.
Allt falleg og vönduð húsgöc
Gefið yður tír
og næði að bera saman verð og gæ
Valhúsgögn
Ármúla 4.