Morgunblaðið - 30.01.1975, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANUAR 1975
HLJÓMSVEITIN Pelican héll
sl. sunnudag til Bandarfkjanna
til að hljóðrita nýjar plötur og
til að leika á hljómleikum og á
skemmtistöðum. Mun hljóm-
sveitin vinna að upptökunum f
þrjár vikur, en aðrar þrjár
vikur verður hún á ferð og
flugi um austurströnd Banda-
ríkjanna og leikur opinberlega
samtals 16 sinnum.
A blaðamannafundi, sem
hljómsveitin efndi til á dögun-
★ Pelican og Ámundi skála fyrir gullplötunni og Amerfkuferðinni.
Pelican í Bandaríkjunum:
Taka upp þrjár plötur
og leika á hljómleikum
um vegna utanferðarinnar,
skýrði Ómar Valdimarsson,
framkvæmdastjóri hljómsveit-
arinnar, frá helztu atriðunum í
sambandi við ferðina og verða
þau rakin hér á eftir.
Hljóðritunin fer fram í
Shaggy Dog-stúdíóinu í Stock-
bridge í Massachusetts, en þar
var fyrri plata Pelican, „Upp-
teknir“, einnig hljóðrituð, svo
og „Hljómar ’74“. Pelican
leggur áherzlu á að vanda nýju
plöturnar sem mest og er ljóst
að heildarkostnaðurinn við
gerð þeirra verður ekki undir
þremur milljónum króna.
Hljóðrituð verða 17—18 lög og
verða þau síðan gefin út á stórri
plötu og tveimur litlum. Er
stefnt að þvi að stóra platan
komi á markað i maímánuði
nk., en fyrri litla platan komi út
um svipað leyti og hljómsveitin
kemur heim úr Bandarikja-
ferðinni, þ.e. um miðjan marz.
Hljómsveitin gefur þessar nýju
plötur út sjálf, en fyrri plötur
hljómsveitarinnar gaf fyrir-
tækið Á.Á.-hljómplötur út. Til
samanburðar má geta þess, að
til upptöku á „Uppteknir" fóru
60 stúdíótímar, en til nýju plöt-
unnar er áætlað að verja um
180 stúdíótimum.
Hljómsveitín verður fyrst
tvær vikur i stúdíóinu til hljóð-
ritunar, en tekur siðan viku hlé
og leikur þá þrisvar opinber-
lega í Boston og nágrenni.
Síðan verður haldið í stúdióið á
ný til hljóðblöndunar platn-
anna, en að því loknu verður
haldið í hljómleikaferð um
austurströndina og leikið
opinberlega alls 13 sinnum á
14 dögum. Verður upphaf og
endir þeirrar ferðar i einum
kunnasta klúbbi New York-
borgar, sem Bottom Line
nefnist. Einnig verður leikið á
hljómleikum i nokkrum háskól-
um og verður Pelican þá aðal-
hljómsveitin, en aukahljóm-
sveit verður bandaríska hljóm-
sveitin Morning Sky, ung
hljómsveit, sem leikur jass-
kennda popptónlist. Að sögn
Ömars er lágmarksgreiðsla til
Pelican fyrir hverja hljómleika
eða leik á skemmtistöðum 500
dollarar, en getur farið allt upp
í 1000 dollara. Þá á hins vegar
eftir að greiða ýmiss konar
kostnað, svo sem flutnings-
kostnað, laun rótara, leigu á
söngkerfi, og fæði og gistingu
að hluta.
1 þessu sambandi má nefna,
að til að fá að taka laun fyrir
Björgvin —gamall draumur
rætist
Björgvin
í Change
HLJÓMSVEITINNI
CHANGE hefur nú
bæst góður liðsauki
þar sem Björgvin
Halldórsson er. Mun
ákvörðun um inn-
göngu Björgvins í
spilamennskuna þarf Pelican
atvinnuleyfi i Bandaríkjunum
og sl. fimmtudagskvöld var
hljómsveitin ekki enn búin að
fá það leyfi. Var þar um að
kenna seinagangi bankakerfis-
ins ytra í sambandi við sím-
sendingu peninga héðan til
Bandaríkjanna, þar sem þeir
áttu að berast til lögfræðiskrif-
stofu í Boston, sem ætlaði að
útvega hljómsveitinni atvinnu-
leyfið. Hafi þessi seinagangur
hljómsveitina hafa
verið tekin skyndilega
nú um áramótin er
þeir félagar í Change
voru hér heima í jóla-
leyfi en um svipað
leyti hættu Hljómar
störfum og var Björgv-
in því laus og liðugur.
Hljómsveitin Change
vinnur nú að gerö
nýrrar hljómplötu í
London og hélt
Björgvin utan til
starfa fyrir u.þ.b. hálf-
um mánuði. Þessi nýja
plata er ætluð fyrir al-
þjóðamarkað og að
sögn aðstandenda
Change mun Björgvin
koma til með aö eiga
drjúgan þátt þar í.
H.B. Barnum, banda-
ríski upptökumeistar-
inn, verður væntan-
lega við stjórnvölinn
við upptöku plötunnar
sem hinnar fyrri, en sú
plata fékk sem kunn-
ugt er góða dóma ekki
síst vegna upptökunn-
ar sem þótti afbragðs-
góð, a.m.k. á íslenskan
mælikvarða.
valdið því, að leyfið barst ekki í
hendur hljómsveitarinnar áður
en hún hélt utan, var ætlunin
að hljómsveitin spilaði kaup-
laust á hljómleikunum. Slagsíð-
unni er ekki kunnugt um, hvort
leyfið barst 1 tæka tíð, en það
mál skýrist væntanlega siðar.
Á hljómleikum mun Pelican
nota nýtt töfratæki, sem
APHEX heitir og er framleitt
og fundið upp af sænskum hug-
vitsmanni Curt Knoppel að
nafni. Fróðir menn hafa sagt að
tækið eigi eftir að valda
straumhvörfum í hljóðupptöku-
gæðum og hljómflutnings-
gæðum. Er kostum tækisins
gjarnan lýst þannig, að segja
megi, að hver hljómsveit, sem
ekki notar tækið, leiki bak við
tjald, en þegar tækið sé sett í
samband við söngkerfi hennar,
sé líkast því sem tjaldið sé
dregið frá. Svo miklu tærara og
skýrara verður hljóðið, þegar
það hefur farið í gegnum
APHEX. Stóra Hljóma-platan
var fyrsta platan í sögunni,
sem gerð var með aðstoð þessa
tækis, og Pelican-platan „Upp-
teknir“ önnur í röðinni. Tæki
þetta er ekki selt heldur leigt
út og t.d. kostar notkun þess 50
dali fyrir hvert lag, sem rennt
er í gegnum þaó í upptöku-
stúdióinu. Shaggy Dog-stúdióið
er eina stúdíóið i heiminum,
sem ræður yfir slíku tæki, en
tilvist tækisins varð til þess, að
þegarhefja átti hljóðblöndun og
klippingu um 120 óbirtra laga
með Jimi heitnum Hendrix, var
ákveðið að gera það i Shaggy
Dog.
Fyrirtækið, sem rekur
Shaggy Dog-stúdíóið, hyggst nú
færa út kvíarnar og hefja plötu-
útgáfu og hefur í því sambandi
keypt 5.000 eintök af „Upp-
teknir" til sölu á Bandaríkja-
markaði. Er heildarupplag plöt-
unnar þá að nálgast 13 þúsund
eintök.
Tvö bandarísk hljómplötufyr-
irtæki hafa sýnt áhuga á að fá
næstu plötu Pelican til útgáfu,
þ.e. Vanguard, sem gefur m.a.
(Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.)
út plötur Joan Baez og Country
Joe, og United Artists, eitt af
stærstu fyrirtækjum Banda-
rikjanna á sviði hljómplötuút-
gáfu. Er starfandi hjá U.A.
stúlka, sem áður vann hjá
Shaggy Dog — og gildir þar
vestra svipað lögmál og hér, að
gott sé að þekkja mann, sem
þekkir mann....
Þá hafa plötufyrirtæki á
Norðurlöndum og í Bretlandi
einnig sýnt áhuga á útgáfu
platna Pelican, þ. á m. CBS í
Danmörku, Polydor í Sviþjóð
og Decca í Bretlandi. Ekki
hefur þó komið til ítarlegra við-
ræðna við fyrirtækin um þessi
mál, að sögn Ömars. Decca
hafði meira að segja tilgreint
hvaða lög það vildi fá til útgáfu
á tveggja laga plötu, þ.e. hraða
kaflann úr Sunrise to Sunset og
síðan annað hvort Golden
Promises eða Á Sprengisandi.
Var sú plata einkum stiluð upp
á diskótekin. — Þá má geta
þess að Pelican-platan „Upp-
teknir“ hefur verið spiluð alloft
í Radio Luxembourg og eitt
sinn, er liðsmenn Pelican hlust-
uðu á stöðina, heyrðu þeir lag
af plötu sinni kynnt sem lag
„from the Happy Pen album“,
en þar hefur baksíðuauglýsing-
in frá Pennanum á plötuhulstr-
inu eitthvað ruglað plötu-
snúðinn. Hefði hann líklega
heldur ekki treyst sér til að
bera fram heitið „Uppteknir",
en engu að síður mun það nafn
haldast á plötunum, sem seldar
hafa verið til Bandaríkjanna.
Sem fyrr segir verður Pelican
um sex vikur í Bandaríkjunum,
en engar áætlanir eru uppi um
frekari spilamennsku þar í
landi í náinni framtið, enda
þótt ailt sé opið gagnvart sliku,
að sögn Ómars. Hljómsveitin
hefur hins vegar uppi miklar
áætlanir um spilamennsku hér
heima i vor og í sumar, m.a.
kynningarhljómleika vegna
nýju platnanna og ferðalag um
landið. Þá er einnig verið að
kanna möguleika á Færeyja-
ferð hljómsveitarinnar á Ólafs-
vöku í sumar, en hljómsveitin
fór til Færeyja í síðasta mán-
uði og lék þar á dansleikjum í
eina viku.
Að lokum spurði Slagsíðan
liðsmenn Pelican, hvort þeir
væru ekkert hræddir um að
önnur hljómsveit með nafninu
Pelican væri til í Bandaríkjun-
um.
„Þeir um það“, svaraði Pétur
Kristjánsson þá um hæl.
—sh.