Morgunblaðið - 30.01.1975, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 30.01.1975, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1975 Norsk æfintýri PresturÍlUl P. Chr. Asbjörnsen t # . og Moe: og hringjannn Jens Benedikts- son íslenzkaði „Búa hana, nei, veiztu nú hvaó húsbóndi góður,“ sagöi vinnumaöurinn. „Ekkert slúður,“ sagöi herramaðurinn reiður. „það verður að búa hana vel, láta hana bæði fá krans og brúðarkórónu.“ Vinnumaðurinn gekk nú í öngum sínum niður í eldhúsið og sagði við stúlkur þær, sem þar voru: „Heyrió mig nú stelpur nú verðió þið aó fara upp á loft og koma brúðarskarti á merargreyió, það lítur út fyrir a húsbóndinn blessaður ætli að láta boðsfólkið fá eitthvað til að brosa að.“ Stúlkurnar hengdu nú á hryssuna allt sem þær höfðu til og svo fór piltur til húsbóndans og sagði aö nú væri hún kominn með krans og kórónu. „Gott er það, komið meó hana,“ sagði herramaður- inn, ég skal sjálfur taka á móti henni í dyrunum." Leynilögreglumaður er hér að störfum. Hann hefur komist á slóð hins grunaða. Sér strax að hann hefur gengið við staf. Nú er það þitt að benda á manninn sem teiknarinn setti hér fyrir neðan, en þeir eru allir grunaðir; en hver er það? Það brast og brakaði í stigunum, eins og allt væri að hrynja, því hún var ekki neitt tiltakanlega léttstíg, — brúðurin þessi. En þegar dyrnar inn í stóru stofuna opnuðust og allir fínu gestirnir sáu brúðina, var ekki alveg laust við að sumum stykki bros. Og hvort það hefir verið af ánægju með brúðina eða einhverju öðru, þá var víst um það, að herramaðurinn fór ekki að reyna að biðja sér stúlku eftir þetta. Kolagerðarmaðurinn EINU SINNI VAR kolagerðarmaður, sem átti einn son, og hann var lika kolagerðarmaður. Þegar faðir- inn var látinn, kvæntist sonurinn, en hann var nú ekki beint viljugur að vinna, gætti illa gryf junnar, er hann brenndi kol, svo allt varð ónýtt, og að lokum vildi enginn maður nýta vinnu hans framar. Þá fór hann að brenna kol fyrir sjálfan sig, og einu sinni er hann hafði tekið rögg á sig og gert nokkuð af kolum fyrir sjálfan sig, fór hann nokkrum sinnum með kerruna sina til bæjarins og seldi kolin, og þegar siðasta kerruhlassið var selt, ranglaði hann um göturnar og litaðist um. Á heimleiðinni komst hann í hóp nágranna og annars fólks og sagði því dæma- lausar sögur um allt það, sem hann hefði séð í borginni. Það skrítnasta sem þar var, sagði hann, var hvað þar voru margir prestar, og allir, sem mættu þeim, tækju ofan fyrir þeim. „Ég vildi óska að ég væri líka prestur, þá myndi mér verða heilsað líka, en nú læst fólk ekki sjá mig,“ sagði hann. „Já, þó þú sért ekki annað, þá ertu nógu svartur til þess að vera prestur," sögðu nágrannarnir, „og úr því við erum á ferðinni hvort sem er, þá getum við farið á uppboðið eftir gamla prestinn og fengið okkur í staupinu um leið, en þú getur keypt hemp- una og kragann,“ sögðu þeir. Þetta gerðu þeir svo, og þegar kolagerðarmaðurinn kom heim, átti hann ekki skilding eftir. „Jæja, eitthvað hefirðu líklega haft upp úr þessari ferð,“ sagði kona kolagerðarmannsins, þegar hann kom heim. „Sjálfsagt bæði peninga og frama?“ DRÁTTHAGI BLYANTUREMN r Er það rétt, Öskar, að það sé peninganna vegna sem þú ætlar að eiga mig? Ég held þú sért ekki alveg vonlaus auðnulcysingi, þú stendur fyrir þinu sem slíkur og rúmlega það. Þetta er mjög gagnlegt, með því getið þér vökvað garðinn, fengið yður sturtubað, hár- lakksúðun og bilþvott.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.