Morgunblaðið - 30.01.1975, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANUAR 1975
Selnrinn hefnr mannsanp:
Birgir Sigurðsson Eyvindur Erlendsson J6n leikmyndagerðar-
maður
SlÐUSTU 10 árin hefur dreifbýlið jafnt
og þétt látið til sín taka i æ ríkari mæli
og jafnhliða hefur þéttbýlisfólk fengið
meiri áhuga á högum byggðafólks og
sveitafólks og jafnvel hefur maður oróið
var við að margir þéttbýlismenn, sem
annað reyna daglega, vildu vera i þess
sporum. Leikrit Birgis Sigurðssonar, Sel-
urinn hefur mannsaugu, sem Iðnó hefur
nú aftur tekið til sýninga eftir að það var
flutt fjórum sinnum á Listahátíð s.l.
sumar, er annað leikrit Birgis, en hann
vakti verðskuldaða athygli með fyrra
verki sínu, Pétri og Rúnu, sem Leikfélag
Reykjavíkur sýndi einnig fyrir tveimur
árum.
Um leið og Selurinn er mjög Ijóðrænt
leikrit með ákveðna sögu er hann snörp
ádeila á þá sem vilja leggja niður land-
búnað á Islandi, eingöngu að því er
virðist vegna þess að þeir þekkja hann
ekki. Þeir hinir sömu vilja ef til vill
einnig að öllu mannlífi á Islandi verði
lifað í þar til gerðum kommóðuskúffum
undir eftirliti sérfræðinga eða
menningarjarðýtna.
Selurinn er á skáldlegan hátt áróður
fyrir byggðastefnu um leið og hann
tekur fyrir og tekur á mörgum agnúum
islenzk þéttbýlisþjóðfélags í dag. Og þar
er reyndar um alvarlegra mál að ræða en
agnúa, því víða, bæði i opinberum
rekstri og öðrum, er kerfið orðið svo
mikið kerfi að fólk er þess þrælar i stað
þess að kerfið ætti að vera til hagræðis
fyrir fólkið sem í þessu landi býr.
Selurinn berst fyrir manneskjulegri
lifsviðhorfum, en sumir þættir velferð-
arþjóófélagsins bjóða upp á.
Birgir Sigurðsson er Reykvíkingur,
alinn upp á styrjaldarárunum, þegar Is-
lendingar öðluðust nýtt verðmætamat og
við fórum öll að keppa að meiri lífsþæg-
indum en þjóðin hafði áður þekkt.
Maðurinn og afstaða hans til þessa
nútimaþjóðfélags eru Birgi ofarlega í
huga í skáldverkum hans. Áður en hann
fór að skrifa fyrir leiksvið hafði hann
getið sér orð sem ljóðskáld. Ljóðabók
hans Réttu mér fána kom út hjá Al-
menna bókafélaginu árið 1968. Auk
annarra ljóða, sem birtzt hafa í blöðum
og tímaritum, hefur hann samið texta,
sem liggur fyrir í fjölriti, við kantötu
eftir Gunnar Reyni Sveinsson, Kantatan
nefnist A jörð ertu kominn, einörð
áskorun til allra manna að varðveita sem
bezt sjálfa sig og frið sín i milli.
Birgir er kennari að menntun og hefur
auk kennslu stundað ýmis störf, m.a.
blaðamennsku. Um tíma lagði hann
stund á söng. Hann var nemandi Göggu
Lund, sem innleiddi hann í heims-
menninguna og í framhaldi af því dvaldi
hann vetrarlangt í Hollandi við söng-
nám.
Birgir Sigurðsson er nú skólastjóri í
Ásaskóla í Hreppum.
Leikstjóri sýningarinnar er Eyvindur
Erlendsson, en hann er nú leikhússtjóri
Leikfélags Akureyrar á Akureyri. Leik-
myndina gerði Jón Þórisson, en tónlist
sem er flutt milli atriða samdi Áskell
Másson.
Hann hefur að undanförnu vakið
athygli fyrir tónlist sem hann hefur
samið fyrir tslenzka listdansflokkinn.
Leikdansinn Eldtröllið var settur á svið
fyrir nokkru, og á Listahátíðinni 1974
kom Islenzki listdansflokkurinn fram
með nýjan ieikdans, Höfuðskepnurnar,
við tónlist eftir Áskel. Tónverk hans,
Silja, samið fyrir Ungnordisk Musikfest
var flutt í Svíþjóð s.l. sumar.
Þær breytingar hafa nú verið gerðar á
hlutverkaskipan frá í vor, að Helga
Stephensen tekur við hlutverki Systu,
sem leikin var af Valgerði Dan, og Jón
Sigurbjörnsson bregður sér i hlutverk
„Gamla“, sem var í höndum Steindórs
Hjörleifssonar, en hann er nú í ársfríi.
Hlutverk I leiknum eru annars tólf og
með þau fara Guðmundur Pálsson,
Guðrún Asmundsdóttir, Pétur Einars-
son, Kjartan Ragnarsson, Helgi Skúla-
son, Þóra Borg, Sigurður Karlsson, Karl
Guðmundsson, Jón Hjartarson og Harald
G. Haraldsson.
Nokkrar breytingar hafa verið gerðar
á leikritinu Selurinn hefur mannsaugu
og það hefur verið stytt nokkuð síðan
það var flutt á Listahátíð.
Við skulum grípa niður í kafla í
leikritinu frá æfingu í Iðnó. Sviðið er
heima hjá Hönnu og Hans, en mamma
Framhald á bls. 21.
Kjartan og
Helgi í hlut-
verkum sínum
(Ijósm. Mbl.
Arni Johnsen.)
Guðrún og Pét-
ur f hlutverk-
um sínum.