Morgunblaðið - 30.01.1975, Side 20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANUAR 1975
20
40 ára
liannes Pálsson, núverandi formaður
ásamt þeim Einvarði Hallvardssyni
og Elfasi Halldórssyni, en þeir skipuðu
fyrstu stjórn S.I.B.
Skáttioltsfimdur um
staðinn og kristnina
Framhald af bls. 3
Norræna bankamannasam-
bandinu.
Fyrstu heildarsamningar,
sem S.I.B. gerði fyrir hönd
bankastarfsmanna, voru gerðir
árið 1956.
Samtökin gefa út Bankablað-
ið, sem hóf göngu sína í júli
1935 og hefur komið út óslitið
síðan og verður einnig 40 ára á
þessu ári. Þá sendir sambandið
frá sér fréttabréf til félaga
sinna einu sinni i mánuði.
Skrifstofa S.I.B. er nú til
húsa í 200 fm. húsnæði að
Laugavegi 103, en þar ei
Bankamannaskólinn einnig til
húsa.
Þá sagði Hannes, að Samband
ísl. bankamanna hefði alla tið
beitt sér fyrir fræðslumálum
bankamanna og var Banka-
mannaskólinn stofnaður árið
1959. I samræmi við siðustu
Landslíðið vann
pressuna 26-17
LANDSLIÐIÐ f handknatt-
leik sigraði pressuliðið f
gærkvöldi með 26 mörkum
gegn 17.
— „Rally”
Framhald af bls. 2
allir frægustu „rally“ ökumenn
heimsins mundu taka þátt i
keppni hér, ef efnt yrði til „rally“
umhverfis landið, eins og FlB
stefnir að, og þá keppni sagðist
hann vilja kalla „Fire and Ice
Rally“.
Lidden benti á, að „rally“ væri
alls ekki kappakstur heldur
frekar þolakstur oghraðinn væri
yfirleitt ekki mikill, að minnsta
kosti ekki þegar um væri að ræða
litla keppni. I Englandi sagði
hann, að meðalhraðinn væri
yfirleitt 45—50 km á klst., en á
sérstökum lokuðum vegarköflum
væri leyfður ótakmarkaður hraði.
Þar sagði hann þó yfirleitt ekki
ekið mjög hratt, því vanalega
væru valdir vondir og hlykkjóttir
vegir. I heimalandi Liddens er
„rally" mjög vinsæl íþrótt, og
nefndi hann sem dæmi um það, að
um næstu helgi yrði haldið
„rally" á átján stöðum á landinu.
— FÍM hvetur
listamenn
Framhald af bls. 2
gert ákvarðanir sýningarráðs að
engu. Þrátt fyrir þessa annmarka
þótti FlM rétt að hefja samvinnu
við Reykjavíkurborg sem fer
reyndar formlega um hendur
Bandalags íslenskra listamanna,
til þess að sjá hvernig til tækist.
Samvinna þessi hefur að mestu
gengið snurðulaust fram að
þessu. Ekki er því þó að leyna að
stjórn borgarinnar hefur verið
svo til áhugalaus um að gera Kjar-
valsstaði að virkri menningarmið-
stöð. Fram að þessu hefur
sýningarráð verið að mestu af-
greiðslustofnun á sýningarbeiðn-
um. öllum tillögum fulltrúa FlM í
sýningarráði um menningarlegt
frumkvæði hússins hefur verið
hafnað og peningaleysi verið bor-
ið við.
samninga milli S.I.B. og Sam-
vinnunefndar bankanna frá 16.
marz 1974 er í ráði að samband-
ið komi á fót þjálfunarkerfi fyr-
ir nýliða i bönkum.
Saga Sambands ísl. banka-
manna mun koma út 1 vor í
tilefni afmælisins, en hana hef-
ur ritað fyrrverandi forystu-
maður S.I.B. Einvarður Hall-
varðsson. Þá hefur stjórn Sam-
bands isl. bankamanna ákveðið
að minnast afmælisins með há-
tíðarhöldum dagana 22. og 23.
apríl n.k. en þá verður þing
sambandsins haldið. Efnt verð-
ur til hátíðarsamkomu 23. apríl.
Núverandi stjórn S.I.B.
skipa: Formaður, Hannes Páls-
son og aðrir i stjórn eru Einar
B. Ingvarsson, Stefán M. Gunn-
arsson, Guðmundur Eiríksson,
Þorsteinn Egilsson og í vara-
stjórn Jón G. Bergmann og
Unnur Hauksdóttir.
Nú gerist það, að aðili einn sæk-
ir um leyfi til að halda sýningu á
Kjarvalsstöðum sem meirihluti
sýningarráðs hafnaði eindregið,
taldi verk hlutaðeiganda ekkert
erindi þangað eiga sakir skorts á
listrænum gildum. Vegna þess
hver meirihlutinn reyndist mikill
var útséð um að áfrýjunarréttur-
inn dyggði. Þá grípur borgarráð
Reykjavfkur til þess óyndisúr-
ræðis 1 nafni valds sín og eignar-
heimildar að leyfa þessum aðila
engu að síður að sýna á Kjarvals-
stöðum með þeim smekklega
hætti að taka niður nýuppsetta
sýningu á verkum Jóhannesar
Kjarvals. Hér sýnist Reykjavíkur-
borg gefa slæmt stjórnsýslunar-
legt fordæmi. Gæti ekki mennta-
málaráðherra með lögkrókaslægð
skipað safnráði Listasafns tslands
að taka niður verk Ásgríms Jóns-
sonar og Jóns Stefánssonar af
veggjum safnsins og látið setja
upp frístundaiðju á borð við þá,
sem nú skal leysa verk Kjarvals
af hólmi.
Gæti ekki og hugsast að háttvirt
borgarráð hafi alls ekki hugað að
þeim reglum, sem það sjálft hefur
sett. I 5. gr. sýningarreglna
Kjarvalsstaða stendur m.a. eftir-
farandi: „Þegar um er að ræða
rekstur af þvi er tekur til list-
rænna þátta, t.d. val og röðun
mynda í austursal hússins, sem
nefndur er Kjarvalssalur, upp-
setningu myndverka í öðrum
hlutum hússins eða ráðstafanir,
sem hafa áhrif á útlit hússins t.d.
gerð varanlegra veggskreytinga,
skal slíkt rætt á fundi með full-
trúum bandalagsins í sýningar-
ráði, og er þeim skylt að vera til
ráðuneytis og samstarfs í þessum
efnum eftir því sem óskað verð-
ur“. Af því, sem framan greinir,
lítur FlM svo á að með fyrr-
nefndri samþykkt borgarráðs
Reykjavíkur séu forsendur fyrir
frekara samstarfi brostnar — f
bili að minnsta kosti — meðan
málum á Kjarvalsstöðum er ekki
skipað svo sem með menningar-
þjóðum.
FlM mun ennfremur hvetja
alla félagsmenn sína, svo og alla
félaga f Bandalagi fslenskra lista-
manna að sniðganga Kjarvals-
staði, sýna þar ekki, veita enga
listræna aðstoð meðan málum er
skipað sem raun ber vitni. FÍM
mun einnig senda Norræna list-
bandalaginu, sem FlM er aðili að,
fréttir af þessu framferði. Hins
vegar er FÍM hvenær sem er
reiðubúið að hefja viðræður við
Reykjavíkurborg um raunhæft
samstarf í sýningarmálum
Kjarvalsstaða.
I KVÖLD fimmtudagskvöld verð-
ur haldinn almennur fundur f
Skálholtsdómkirkju um efnið:
Framtfð Skálholts og kristninn-
ar f landinu.
Hefst fundurinn kl. 9 e.h. og
verða þessir frummælendur:
Agúst Þorvaldsson, fyrrv. alþing-
ismaður, Brúnastöðum,
Steinþór Gestsson, alþingismaður
Hæli,
Sveinn Skúlason, bóndi, Bræðra-
tungu,
Þórður Tómasson, safnvörður,
Skógum,
— Reynir
að mynda
Framhald af bls. 1
ræða ágizkanir og flestir eru sam-
mála um að engu sé hægt að slá
föstu um hver framvinda mála
verður á næstu dögum og alls
endis er óvíst um að Skytte takist
að leysa verkefnið af hendi.
Er togara-
útgerðin að
stöðvast?
Á FUNDI bæjarstjórnar Akra-
ness var í gær 28. janúar gerð
einróma eftirfarandi samþykkt:
Með þvf að sú hætta er yfirvof-
antíi að togaraútgerð á Akranesi
og víðar stöðvist á næstu dögum
vegna mjög alvarlegra rekstrar-
örðugleika vill bæjarstjórn Akra-
ness eindregið skora á ríkisstjórn-
ina að gera nú þegar nauðsynleg-
ar ráðstafanir til að fyrirbyggja
slíka stöðvun og tryggja rekstrar-
grundvöll þessarar útgerðar.
Bæjarstjórnin bendir á, að af
stöðvun þessara þýðingarmiklu
atvinnutækja mun leiða stórfellt
atvinnuleysi, ekki aðeins á Akra-
nesi, heldur á útgerðarstöðum um
allt land.
(Fréttatilkynning)
Guðmundur
tapaðí
Guðmundur Sigur-
jónsson tapaði skák
sinni í 12. umferð á móti
hollenzka alþjóðlega
meistaranum Enklaar,
og er nú í 10. sæti með 6
vinninga. 2 umferðir
eru eftir.
Minningarsjóð-
ur Guðmundar
Böðvarssonar
skálds
UM ÞESSAR mundir er unnið að
lagfæringum á húsi Guðmundar
heitins Böðvarssonar skálds á
Kirkjubóli i Hvítársíðu og er
reynt að ganga frá því sem allra
líkast þvf sem var, er þau hjón
bjuggu þar. Húsið hefur sem
kunnugt er verið gefið Rithöf-
undasambandi Islands.
Framlög i Minningarsjóð Guð-
mundar Böðvarssonar skálds og
bónda á Kirkjubóli og Ingibjargar
Sigurðardóttur konu hans, eru
frádráttarbær til skatts og er veitt
viðtaka í skrifstofu Rithöfunda-
sambands Islands, hjá Borgfirð-
ingafélaginu f Reykjavík og fram-
lög má leggja inn á gíróreikning i
Sparisjóði Mýrasýslu í Borgar-
nesi.
(Frá stjórn sjóðsins.)
Ingólfur Jónsson, fyrrv. ráðherra,
alþingismaður, og tveir nemend-
ur Lýðháskólans.
Biskup tslands og vígslubiskup
Skálholtsstiftis munu mæta á
fundinum.
Aður en fundurinn hefst leikur
frú Rut Magnúsdóttir, Sólbakka,
á orgel kirkjunnar 3 sálmalög eft-
ir Þorkel Sigurbjörnsson, Jón
Þórarinsson og Pál Isólfsson, þá 4
sálmalög frá siðbótartímum og
loks 3 stutt verk eftir Johann
Pachelbel (samin um 1700). Org-
Eldur í sovézkum
verksmiðjutogara
ELDUR kom upp f sovézkum
verksmiðjutogara f gær-
morgun, þar sem skipið var að
veiðum norður af Færeyjum.
Danska varðskipið Vætteren
kom á vettvang svo og annað
sovézkt skip. Ahöfninni 52
mönnum var bjargað og f gær
mun hafa átt að draga sovézka
verksmiðjuskipið inn til
Færeyja.
— Norglobal
Framhald af bls. 36
Ef gert er ráð fyrir að Norglo-
bal verði á Islandsmiðum í a.m.k.
40 daga og bræði að meðaltali um
2000 þús. lestir á sólarhring, þá
þýðir það að það bræðir 80 þús.
lestir á þessu tímabili, sem að
líkindum verður umframafli við
það sem annars mundi veiðast.
Norglobal mun sennilega koma
upp að Austfjörðum fyrst þvf þar
heldur flotinn sig nú og loðnan
virðist ganga ákaflega hægt suður
á bóginn. Ekki er því ósennilegt
að skipið muni leggjast fyrir í
mynni Reyðarfjarðar. Sextfu
manna áhöfn er á skipinu, og enn-
fremur verða nokkrir tslendingar
um borð, sem fulltrúar leigutaka.
— Heilasköddun
Framhald af bls. 3
með öllu sársaukalaus, bæði
fyrir móður og barn.
Blaðið skýrir frá notkun
þessa tækis á fæðingardeild
amtssjúkrahússins í Gentofte
en þar er hin nýja tækni notuð
undir umsjón yfirlæknisins
Jörgens Falcks Larsens. ,Hann
segir, að enn séu ekki til fleiri
tæki á spitalanum en svo, að
notkun þeirra takmarkist yfir-
leitt við tilfelli, þar sem búizt sé
við fæðingarerfiðleikum — „en
á því leikur enginn vafi,“ segir
hann, „að þetta tæki er svo
stórt skref i framfaraátt, að við
verðum að gera allt sem hægt
er til að þau verði almennt
tekin í notkun. Ég hef þá trú,
að það takist, því að þau tak-
mörkuðu útgjöld, sem tækja-
kaupin hafa í för með sér, geta
ekki einasta komið í veg fyrir
barnslát í fæðingu heldur og
ómælanlegan sársauka og eymd
síðar meir.“
Læknirinn segir frá nýlegu
tilviki f Gentofte, þar sem notk-
un tækisins kom í veg fyrir, að
barn yrði spastiskt í fæðingu.
Grunur lék á, að ekki væri allt
með felldu, og með notkun raf-
eindahlustunartækisins kom í
ljós, að hjartsláttur fóstursins
var ekki sem skyldi. Gerður var
keisaraskurður og þá
uppgötvaðist, að naflastrengur-
inn var þrfvafinn um háls
fóstursins. Án rafeindatækisins
hefði þetta ekki uppgötvazt svo
fljótt, sem raun bar vitni og er
fullvíst, að strengurinn hefði
hert svo að hálsi barnsins, að
heilinn hefði skemmzt af
súrefnisskorti.
elleikur frúarinnar hefst kl. 8:30
og mun hún flytja stuttar skýring-
ar á undan þáttunum.
Kl. 8 e.h. fer fram stutt altaris-
gönguguðsþjónusta, og geta þeir
sem koma snemma á staðinn feng-
ið te og brauð við vægu verði í
matsal Lýðháskólans (milli kl. 7
og 8).
Fundurinn er haldinn á vegum
Prestafélags Suðurlands, og er
öllum boðin þátttaka. Það er von
stjórnarinnar að sem flestir sjái
sér fært að koma.
(Fréttatilkynning frá stjórn
Prestafélags Suðurlands).
— I landhelgi
Framhald af bls. 36
en hinn 19. nóvejnber síðastliðinn
var skuttogarinn Snorri Sturlu-
son tekinn á alfriðaða svæðinu
norður af Kögri. Skipstjórinn var
dæmdur í 1.250 þúsund króna
sekt á Isafirði og voru afli og
veiðarfæri gerð upptæk, en mats-
verð þeirra var 5,3 milljónir
króna.
— Lúðrasveit
Hafnarfjarðar
Framhald af bls. 4
Hvað eftirtektarverðast er þó
framlag hennar til kynningar
landi og þjóð á erlendum vett-
vangi. Að frumkvæði og fyrir
áeggjan stjórnandans, Hans
Ploders, sem er Austurríkis-
maður, hefir tvisvar sinnum,
1971 og 1974, verið farið í tón-
leikaferð til meginlands
Evrópu. Var þá komið fram í
ýmsum stórborgum i Þýska-
landi, Austurríki og Svisslandi.
Þá hefir lúðrasveitin leikið fyr-
ir útvarp í Munchen, Frankfurt
og vlðar. Leikur lúðrasveitar-
innar i þessum ferðum hefir
fengið góða dóma, eins og t.d.
má marka af því, sem birtist í
einu dagblaðanna í Svisslandi
s.l. sumar, svohljóðandi í Isl.
þýðingu:
„Hljómleikar þeir, sem ís-
lenzka lúðrasveitin frá Hafnar-
firði hélt á mánudagskvöld,
voru fullkomlega heppnaðir frá
hljómlistarlegu sjónarmiði. I
fylgd með þessum fallega
• flokki hljómlistarmanna undir
stjórn Hans Ploder voru þokka-
fullar og aðlaðandi jslenzkar
konur, er klæddust ísl. búningi.
Lagaskráin var mjög fjölbreytt
og túlkunin fullkomin. Allt
þetta gerði þessi augnablik
ógleymanleg.“
Lúðrasveit Hafnarfjarðar
hefir gefið út fallega hljóm-
plötu með fimm lögum væntan-
leg er önnur plata með leik
hennar. Nú eru um þrjátiu
félagar I sveitinni. Verður 25
ára afmælisins minnzt með
hljómleikum i Bæjarbió á
morgun, 1. febrúar, og með
fagnaði þá um kvöldið.
Hafnfirðingar standa í mik-
illi þakkarskuld við þá sam-
borgara sína, sem verja tóm-
stundum til þess að geta veitt
öðrum ánægju með góðri, upp-
örvandi tónlist. Þótt bæjar-
félagið hafi stutt þessa þörfu
starfsemi með nokkru fjár-
framlagi á ári hverju, er hér
fyrst og fremst um fórnfúst
áhugamannastarf að ræða.
Það er örugglega mælt fyrir
hönd þorra Hafnfirðinga, þegar
Lúðrasveit Hafnarfjarðar eru
fluttar þakkir fyrir margar
veittar ánægjustundir og beztu
óskir um sem blómlegast fram-
tiðarstarf.
Arni Gunnlaugsson