Morgunblaðið - 27.02.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1975
3
Félag
ísl. síma-
manna
60ára
1 dag eru liðin 60 ár frá stofnun
Félags íslenzkra símamanna
(F.Í.S.). Stofnfélagar voru
tuttugu, en nú eru i félaginu milli
ellefu og tólf hundruð manns.
Tveimur mánuðum eftir stofn-
un félagsins hóf það útgáfu Síma-
blaðsins og hefur það komið út
óslitið síðan. Jafnframt því að
vera málgagn símamanna og
þýðingarmikið í hagsmunabar-
áttu þeirra hefur blaðið flutt
fræðilegt efni. Lengst af hefur
Andrés G. Þormar verið ritstjóri
blaðsins eða í rúm 40 ár.
F.I.S. var stofnað áður en ríkis-
starfsmenn höfðu myndað með
sér stéttarfélög, en árið 1919 stóð
félagið að stofnun Sambands
starfsmanna ríkisins. Þau samtök
urðu ekki langlíf, en árið 1941
voru símamenn aðilar að stofnun
fulltrúaráðs opinberra starfs-
manna, sem síðar varð að Banda-
lagi starfsmanna ríkis og bæja.
A 20 ára afmæli félagsins árið
1935 voru staðfestar starfsmanna-
reglur Landssímans, en aðrir rík-
isstarfsmenn fengu ekki viður-
kennd hliðstæð réttindi fyrr en
með lagasetningu árið 1954.
Það var nýjung á sviði félags-
mála hér á landi þegar Starfs-
mannaráð Landssíma íslands var
stofnað fyrir tilstuðlan F.I.S., en
ráðið er skipað fulltrúum stofn-
unarinnar og félagsins. Siðan
hafa orðið miklar umræður um
nauðsyn þess að koma á slíkum
samstarfsnefndum í opinberum
stofnunum og einkafyrirtækjum
með atvinnulýðræði að markmiði.
F.Í.S. á orlofsbústaói m.a. vió
Apavatn i Laugardal og i Munað-
arnesi, en fyrsti bústaðurinn var
reistur við Elliðavatn árió 1931.
Innan F.Í.S. eru margar deildir
víðs vegar um land. Fyrsta stjórn
félagsins var skipuð Ottó B. Arn-
ar, sem var formaður, Adolf Guð-
mundssyni og Kristjönu Blöndal.
Núverandi formaður er Asgeir
Geirsson, er að öðru leyti er
stjórnin þannig skipuð: Jón Tóm-
asson varaformaður, Jóhann L.
Sigurðsson ritari, Bjarni Ólafsson
gjaldkeri og Brynjólfur Björns-
son meðstj.
Á fundi Borgarstjórnar
Reykjavíkur hinn 20. febrúar
1975 var samþykkt einum rómi,
með 15 samhljóða atkvæðum að
gera Kristján Sveinsson lækni
að heiðursborgara í Reykjavík.
I tilefni af heiðursborgara-
kjörinu hélt borgarstjórn
Kristjáni Sveinssyni kaffisam-
sæti í gær og hafði Birgir Isleif-
ur Gunnarsson borgarstjóri orð
fyrir borgarfulltrúum. Skýrði
hann frá samþykkt borgar-
stjórnar og afhenti hinum ný-
kjörna heiðursborgara bréf
borgarstjórnar um kjör hans.
Kristján Sveinsson læknir
þakkaði síðan með stuttri ræðu.
Bréf borgarstjórnar er ritaö
af Halldóri Péturssyni list-
málara, en sérstök skinnmappa,
sem bréfinu fylgir, er gerð af
Þresti Jónssyni bókbindara.
Hér fer á eftir ræð'a sú er
Birgir ísleifur Gunnarsson
borgarstjóri flutti í hófi aó
Ljosmynu av. porin.
Kristján Sveinsson læknir og heiðursborgari Reykjavfkur flytur þakkarávarp f hófi borgarstjórnar
að Höfða f gær.
Krístján Sveinsson læknir
heiðursborgari Reykjavíkur
Birgir Isleifur Gunnarsson borgarstjóri afhendir Kristjáni Sveins-
syni lækni heiðursskjal Reykjavfkurborgar.
Höfða í gær þegar Kristjáni
Sveinssyni var afhent heiðurs-
skjal borgarstjórnar:
„Borgarstjórn Reykjavíkur
hefur mælt sér mót við þig hér í
Höfða í dag i tilefni þess, að s.l.
fimmtudag, 20. febrúar, sam-
þykkti borgarstjórn með 15
samhljóða atkvæðum að gera
þig að heiðursborgara Reykja-
víkur.
Læknir, sem starfað hefur í
Reykjavík i 43 ár og reyndar
lengur, ef námsár eru talin
með, hefur séð tímana tvenna.
Á þeim tíma hefur Reykjavik
breytzt úr bæ í borg, íbúafjöldi
margfaldast, húsakynni öll
batnað til hins betra, atvinnu-
lífið orðið fjölþættara og þjón-
usta á hinum ólíkustu sviðum
batnað.
Allt þetta hefur þó ekki gerzt
átakalaust og í þessu ölduróti
siðustu áratuga hefur e.t.v. ver-
ið nauðsynlegra en nokkru
sinni fyrr að eiga menn, sem
líknuðu og hugguðu af þeirri
hjartagæzku, sem einkennt
hefur störf Kristjáns Sveins-
sonar.
Störf hans hafa verió marg-
vísleg. Hann hefur verið augn-
læknir við Landspítalann og
Landakostsspitalann, dósent
við Háskóla Islands í sérgrein
sinni, ritað margt um augn-
lækningar, og ég nefni einnig
hér, að hann var varabæjarfull-
trúi í Reykjavik 1950—1958.
Flestir hafa þó sennilega notið
þjónustu hans á læknastofunni
við Skólabrú. Þangað hafa
þúsundir Reykvíkinga komið i
gegnum árin og enginn farið
bónleiður’ til búðar. Þar og
reyndár alls staðar, þar sem
hann hefur hitt sjúklinga sína,
hafa þeir notið frábærrar
lækniskunnáttu og blessunar-
rikra huggunarorða Kristjáns
Sveinssonar. Hann hefur ávallt
í orði og verki komið fram sem
einlægur vinur þeirra, sem
líknar þurftu með, — hlýr og
minnisstæður persónuleiki,
sem óþreytandi hefur ausið úr
brunni manngæzku sinnar og
mildi. Enn í dag, aó nýafstöðnu
75 ára afmæli Kristjáns Sveins-
sonar, er bióstofan við Skóla-
brú full af fólki, sem leitar
þjónustu hans.
Þótt kveikjan að ákvörðun
borgarstjórnar um þessa
heiðursborgaraveitingu sé að
sjálfsögðu störf og mannkostir
Kristjáns Sveinssonar, hefur
hún í sér fólgið ákveóið tákn.
Hún er tákn þess, að borgar-
stjórn vilji virða og meta störf
þeirra borgarbúa, sem dag
hvern ganga hljóðlátir og hóg-
værir til sinna starfa. Það hefur
Kristján Sveinsson ávallt gert.
Hann hefur unnið sín störf í
kyrrþey, oftast langan vinnu-
dag, og forðast allt umtal og
umstang, þegar hann sjálfur
hefur átt i hlut.
Borgarstjórn Reykjavikur
vill í dag fyrir hönd borgarbúa
þakka þér þín mikilvægu störf í
þeirra þágu.
Til staðfestu samþykkt
borgarstjórnar bið ég þig að
veita viðtöku skjali, þar sem
ákvörðun borgarstjórnar er
skráð og undirrituð af öllum
borgarfulltrúum. Megir þú
heill njóta þessarar sæmdar og
borgarbúar njóta sem lengst
þinnagóðu starfskrafta."
BÓKAMARKAÐUR 0P1NAÐUR í DAG
Brettingur Og Páll Pálsson hlíð við hlið Ljusm. Sverm raissuu.
BÓKSALAFÉLAG tslands opnar
I dag bókamarkað, sem að þessu
sinni er haldinn í kjallara nýja
Iðnaðarmannahússins við Hall-
veigarstíg.
Þetta er í fimmtánda sinn, sem
félagið heldur bókamarkað og
eru bókatitlar nú fleiri en nokkru
sinni eða hátt á fimmta þúsund.
Verð bókanna er misjafnt eins
og gefur að skilja, en elzta og
jafnframt ódýrasta bókin, sem
vitað er um á markaðnum nú er
Lúthers-minning Helga Hálfdán-
arsonar, sem kom út árið 1896, og
kostar 22 krónur. Sú nýjung er nú
á bókamarkaði að veittur er 10%
afsláttur á verði ritsafna, sem
kosta 10 þúsund krónur eða þar
yfir.
Bækur á bókamarkaði eru yfir*
leitt allar tveggja ára og eldri og
sögðu þeir Jónas Eggertsson og
Lárus Blöndal, sem eins og und-
anfarió hafa veg og vanda af
bókamarkaðnum, að alltaf biðu
margir með bókakaup þar til bæk-
ur væru komnar á markaðinn og
verðið hefði lækkað.
Bókamarkaóurinn verður opinn
alla daga nema sunnudag kl. 9—6,
en þriðjudaga og föstudaga verð-
ur opið til kl. 22. Markaðurinn
verður opinn út þessa viku og þá
næstu aó minnsta kosti.
/
Ur lífshœttu
LITLA stúlkan, sem varð fyrir
bifreið í Vesturbergi fyrir nokkru
og slasaðist lífshættulega, er nú
mjög á batavegi, að sögn lækna
Borgarsjúkrahússins. Er hún úr
lifshættu og hefur verið flutt af
gjörgæzludeild sjúkrahússins.
Japani kominn til að
líta á vélar togaranna
JAPANSKUR vélaverkfræðing-
ur, Kong að nafni, kom til lands-
ins í gær til að líta á vélarnar í
japönsku skuttogurunum, sem
bilað hafa að undanförnu. Hann
er sérfræðingur við Niigata-
verksmiðjurnar, sem framleiddu
vélarnar I togarana. Hann mun
einnig ræða um hugsanlegar bæt-
ur vegna bilana og galla I vélun-
um.
Að sögn Sigurðar Brynjólfs-
sonar hjá Asíufélaginu, sem er
umboósaðili fyrir togarana, er
viðgerð lokið á Brettingi. frá
Vopnafirði og fór hann frá Akur-
eyri i fyrrakvöld. Nú er unnið að
viðgerð á Páli Pálssyni, Hnffsdal í
Slippstöðinni á Akureyri.
I Reykjavík er unnið að viðgerð
á vél Hvalbaks frá Breiðdalsvík,
en i vél hans fannst járnsvarf.
Rannsókn á vélum Arnars, Skaga-
strönd, Ölafs Bekks, Ölafsfirði,
Drangeyjar, §áuðárkróki og
Rauðanúps, Raufarhöfn leiddi
ekkert alvarlegt í ljós, en eftir er
að athuga vélar skuttögaranna
Vestmannaeyjar, Vestmannaeyj-
um, Bjarts, Neskaupsstað og
Ljósafells, Fáskrúðsfirði.