Morgunblaðið - 27.02.1975, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 27.02.1975, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1975 Guðmundur Þórðarson, læknir: Heiðarleg blaðamennska? Morgunblaðið státar einatt af þvf að vera frjálslynt og heiðar- legt blað, og snuprar ósjaldan önnur blöð fyrir óheiðarlega blaðamennsku. Vissulega má það rétt vera, að Morgunblaðið sé frjálslynt og heiðarlegt blað, eftir þeim skilningi, sem lagður er f það hugtak f fslenzkri blaða- mennsku. En svo bregðast krosstré sem önnur tré, og skal reynt að finna þeim orðum stað hér. Á undanförnum vikum, jafn- vel mánuðum, hefur varla liðið sá dagur, að Morgunblaðið hafi ekki flutt greinar eða fréttir af „rækjustrfðinu" svonefnda við Ilúnaflóa. Hefur þar, einkum f fréttaflutningi blaðsins sjálfs, mjög verið hallað á einn veg, og má furðu gegna hvað annar deiluaðilinn, „rækjumennirnir á Blönduósi", hafa átt greiöan aðgang að blaðinu f fréttadálk- um þess. Hefur þetta gengið svo langt, að f frásögnum af málarekstrin- um út af þessari deilu hefur blaðið birt málflutning ákærðu svo rækilega, að við borð ligg- ur, að skrifari réttarins hafi getað notað Morgunblaðið við bókanir sfnar. t beinu framhaldi af þessari þjónustu við „rækjumennina á Blönduósi" gerir Morgunblaðið sig sekt um að stinga undir stól veigamiklum atriðum f þessu deilumáli. Hinn 12. febrúar s.I. segir dagbl. Vfsir frá þvf, að nemend- ur f Vélskóla Islands og Stýri- mannaskólanum hafi undir- ritað mótmæli gegn „afskiptum stjórnvalda" af rækjuveiðun- um f Húnaflóa, og segir jafn- framt frá þvf, að nemendur 4. bekkjar B f Vélskólanum hafi neitað að skrifa undir þessi mótmæli, en f þess stað „LÝST UNDRUN OKKAR A ÞVt AT- HÆFI NOKKURRA ÓPRUTT- INNA BUSINESSMANNA I REYKJAVlK AÐ ÆTLA AÐ LEITA STUÐNINGS I VÉL- SKÓLA ISLANDS VIÐ AFTURHALD OG SKIPU- LAGSLEYSI A NYTINGU sjAvarafla INNAN IS- LENZKRAR LANDHELGI". Næst gerist það, að dagbl. Tfminn og Þjóðviljinn birta þann 14. febr. s.l. yfirlýsingu frá stjórn Skólafélags Vélskóla tslands, þar sem undirskrifta- söfnun þessi er vftt mjög hörð- um orðum. Sama dag, þann 14. febr., birtir Morgunblaðið smágrein undir fyrirsögninni „Nemend- ur Vélskólans álykta“. Eru þar komin mótmæli þeirra nem- enda, sem Vfsir sagði frá 12. febr. UM MÓTMÆLI NEMENDA I 4. BEKK B 1 VÉLSKÖLANUM ER EKKI AÐ FINNA ORÐ I MORGUNBLAÐINU NÉ HELDUR UM VlTUR STJÓRNAR SKÓLAFÉLAGS VÉLSKÓLANS. Það „heiðarlegasta" við mál- flutning Morgunblaðsins f þessu máli er þó etv. klausan, sem er inngangur fréttarinnar „Nemendur Vélskólans álykta,“ en klausan er svona: „MORGUNBLAÐINU HEFUR BORIZT EFTIRFARANDI FRÉTTATILKYNNING FRA UTGERÐ M.B. NÖKKVA HU 15:“ Mótmælaskjal nemenda f Vélskólanum og Stýrimanna- skólanum fær greiðlega inni f Morgunblaðinu, EFTIR AÐ ÞAÐ HEFUR FYRST VERIÐ SENT NORÐUR A BLÖNDU- ÖS OG SlÐAN AFTUR. Það er ekki orðin góð og gild vara fyrir Morgunblaðið fyrr en UT- GERÐ NÖKKVA hefur sent það til baka. En mótmæli nemenda f 4. bekk B og vftur stjórnar skóla- félagsins, hafa ekki á sér gæða- stimpil Nökkva og þykja þvf sennilega ekki fréttnæm f Morgunblaðinu. Ef þetta er heiðarleg blaða- mennska, finnst mér, að rit- stjórar og fréttamenn Morgun- blaðsins ættu að fara að endur- skoða mat sitt á hugtakinu heiðarleiki. Þessi málsmeðferð Morgun- blaðsins og margvfsleg skrif þess f viðkvæmu deilumáli, eru þvf furðulegri, þegar þess er gætt, að flestir héldu, að Morgunblaðið væri málgagn þess flokks, sem á sjávarútvegs- ráðherrann í núverandi rfkis- stjórn. Reykjavfk, 25. febrúar 1975. Guðm. Þórðarson Drápuhlíð 44 R. HEIMDALLUR Skemmtikvöld Heimdallur S.U.S: heldur skemmtikvöld í Miðbæ við Háaleitisbraut (norðaustur enda) fimmtudaginn 27. febrúar kl. 20.30. TIL SKEMMTUNAR: Halli og Laddi Dans Fjöldasöngur Dans HEIMDALLUR skemmtinefnd. Þeir meta lestarborðin árlega í Bretlandi, en hér? Góðkunningi minn i Vestur- bænum, sem áratugum saman hefur verið við sjávarsíðuna eins og það er kallað, haft mikil og náin kynni af togurum og togara- útgerð, kom að máli við mig um siðustu helgi. Hann sagði: „Þú sem blaðamaður og reyndar allir, sem fylgjast eitthvað með í frétt- um, hafa tekið eftir þvi hve títt það hendir loðnuskipin að farm- urinn kastast til og þau leggjast á hliðina og þá stundum mjög hætt komin. Nærtækt er dæmið um loðnuveiðaskipið sem lagðist á hliðina og sökk. Við sjóprófin hef- ur svo komið fram, að skipverjar telja fullvíst aó ástæðan til þess að slagsíða kom á skipið hafi verið sú, að lestarborð hafi brotnað eða sprungið undan þunganum. I Bretlandi, sagði þessi gamli Vesturbæingur, eru mjög strang- ár reglur í gildi varðandi lestar- borðin i fiskiskipunum, a.m.k. togurunum. Þar er reglan sú, auk endurnýjunar á lestarborðum eft- ir daglegum þörfum, að árlega fer fram mat á ástandi lestarborð- anna. Hvert einasta lestarborð er metið af mönnum sem þekkingu Framhald á bls. 27 Ferðaskrifstofan ÚTSÝN ÚTSÝIMARKVÖLD GRÍSAVEIZLA í Súlnasal Hótel Sögu sunnudaginn 2. marz kl. 19.00 ★ ★ ★ ★ ★ ★ Kl. 19 — Húsið opnað Kl. 1 9.30 — Hátíðin hefst: Svaladrykkur Sangría, alisvín, kjúklingar og fleira. Verð kr. 895.- Kl. 20.30 — Kvikmyndasýning, ný mynd frá Costa del Sol. Fegurðarsamkeppni: Ungfrú Útsýn 1975. forkeppni Stórkostlegt ferðabingó — 3 Útsýnarferðir til sólarlanda. Nýstárlegt skemmtiatriði. Dans — Hin vinsæla hljómsveit Ragnars Bjarnasonar. Missið ekki af þessari glæsilegu en ódýru skemmtun. Ath. að veizlan hefst stundvíslega og borðum verður ekki haldið eftir kl. 1 9.30. Tryggið ykkur borð hiá yfirþjóni á föstudeqi frá kl. 1 5.00 isíma 20221. VERIÐ VELKOMIN — GÓÐA SKEMMTUN: Ferðaskrifstofan ÚTSÝN / hœfileíkana Skólinn er strangur. En vel valið nesti er mikill styrkur í baráttunni. Ostar og smjör innihalda fjörefni, steinefni og eggjahvítuefni í ríkum mæli. Efni, sem efla eðlilega starfsemi taugakerfisins (ekki veitir af í nær daglegum prófum) og styrkja sjón- ina, sem mikið mqfðir á. Veljið nesti, sem ekki aðeins mettar I fT'Tj magann, heldur örvar einnig \ |i ,11 j hæfileikana. 1 0?SS‘

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.