Morgunblaðið - 27.02.1975, Page 28
FIMMTUDAGUR 27. FEBRUAR 1975
nuGLVsmcnR
«gL*-»224B0
JHorjimliIíitiiíi
nuGivsmcnR
£j£*-*22480
Loðna veidd-
ist í gær út
af Reykjanesi
Sólarhringsaflinn yfir 12 þús. tonn
LOÐNA fannst skyndilega á
sjötta veidisvæöi eða um 10—12
mílur vestsuðvestur af Garð-
skaga. 1 gærkvöldi höfðu þrír bát-
ar tilkynnt um afla á þessu svæði
— Bára GK 30 tonn, Hrafn Svein-
bjarnarson og FIosi IS en það var
hann sem fann þessa loðnu f gær.
Á þessu svæði voru fjórir ioðnu-
bátar í gærkvöldi —Svanur, Ljós-
fari, Ásborgin og Guðmundur RE
auk fáeinna smábáta. Mjög góð
loðnuveiði var annars f gær og
alls tilkynntu 45 bátar um afla
samtals 12.390 tonn, þar af var
Sigurður RE með langhæstan sól-
arhringsafla eða 1000 tonn.
Eftirtaiin skip tilkynntu annars
um afla frá því á miðnætti í fyrra-
kvöld og fram til kl. 10 í gær-
kvöldi: Dagfari 270 tonn, Húna-
röst 180, Fífill 500, Þórður Jónas-
son 370, Víðir 260, Héðinn 410,
Örn KE 290, Þorri 170, Höfrungur
III, 260, Árni Magnússon 190,
Sveinn Sveinbjörnsson 250, Sig-
urður RE 1000, Faxi GK 200, Ölaf-
ur Sigurðsson 250, Eldborg 530,
ísleifur 240, Álsey 130, Álftafell
250, Ólafur Magnússon 200,
Hamravík 130, Helga 2. 330, Ósk-
ar Halldórsson 390, Arnarnes 190,
Rauðsey 440, Magnús 270, Guðrún
80, Náttfari 260, Arney 130, Ás-
geir 310, Hinrik 220, Bjarnarey
110, Þorsteinn 330, Helga RE 280,
Pétur Jónsson 360, Jón Finnsson
450, Bára GK 30 á 6. veiðisvæói,
Isleifur IV. 190, Skógey 240,
Vörður ÞH 230 tonn, Hrafn Svein-
bjarnarson 280 af sjötta svæði,
Gunnar Jónsson 150, Glófaxi 150,
Flosi ÍS 250 af 6. svæði, Krist-
björg VE 270, og Harpa RE 330.
Á þriðjudag tilkynntu 25 skip
afla, samtals 8190 lestir. Hilmir
var með 380 lestir, Hinrik 120,
Framhald á bls. 27
Sex ára dreng-
ur slasast mikið
SEX ára drengur varð fyrir bif-
reið á Vífilsstaðavegi laust eftir
klukkan 8 i gærmorgun. Var
drengurinn að koma út úr strætis-
vagni og gekk hann út á götuna, í
veg fyrir bílinn. Hann handleggs-
og lærbrotnaði og hlaut innvortis
meiðsli. Var hann skorinn upp á
Landspitalanum í gærdag. Þegar
Mbl. hafði samband við spítalann
í gærkvöldi fengust þær upplýs-
ingar, að aðgerðin hefði gengið
vel og væri líðan drengsins eftir
atvikum. Hann er ekki talinn í
lífshættu.
Er rækjudeil-
an að leysast?
RÆKJUDEILAN við Húnaflóa
mun vera í þann veginn að leys-
ast. Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið hefur aflað sér
mun samkomulag í þessari deilu,
sem staðið hefur í nokkra mán-
uði, vera á næstu grösum og að-
eins eftir að ganga frá formsatrið-
um.
vinnslu á Blönduósi og löndun
rækjubáta frá Blönduósi. Fyrir
nokkru boðaði sjávarútvegsráðu-
neytið oddvita þeirra sveitarfé-
laga við Húnaflóa, sem hlut eiga
að máli til fundar i Reykjavík, þar
sem rætt var um þetta ágreinings-
mál og síðan munu frekari við-
ræður hafa farið fram milli deilu-
aðila með þeim árangri að nú eru
taldar allar líkur á því að lausn sé
á næsta leiti.
Loðnubátur tók hana upp og eigendur hans
neita að láta baujuna nema gegn greiðslu
LOÐNUSKIPIÐ Arsæll KE 77
kom til Keflavíkur um hádegis-
bilið f gær með torkennilegan
hlut, dufl eða bauju, sem skip-
verjar höfðu fundið á reki um 10
mfiur austur af Skarðsf jöru kl. 18
á þriðjudaginn. Hluturinn er með
áletrunum á ensku og segir þar
m.a. að hann sé smfðaður árið
1966 af fyrirtækinu B.T.R. Ltd.
Hluturinn er nú geymdur f salt-
fiskgeymslu f Keflavfk, og sagði
útgerðarmaður Ársæls, Hörður
Falsson, f samtali við Mbl. f gær,
að hann teldi að eigendur bátsins
ættu hlutinn. Yrði hann ekki iát-
inn af hendi nema gegn greiðslu
og væri óskað eftir tilboðum f
hann.
Þegar Arsæll kom til hafnar í
gær gerðu skipverjar lögreglunni
í Keflavfk aðvart um hlut þennan
og lét lögreglan Landhelgisgæzl-
una vita um fund hans. Rann-
sóknarlögreglan tók skýrslu af
skipverjum, þar á meðal Þorsteini
Árnasyni skipstjóra. John Hill
rannsóknarlögreglumaður í
Keflavfk tjáði Mbl. f gær, að um-
ræddur hlutur væri kassalaga,
rúmlega 2 metrar á lengd, öllu
minni á breiddina og um 70—80
sentimetrar á þykkt. Út úr öðrum
enda hlutarins stendur stöng og
út úr hinum endanum kapalbút-
ur. Hluturinn virðist vera úr stáli
en kopar er með röndum hans og
hefur verið borinn á hlutinn
svartur litur. Hluturinn hefur
augsýnilega verið nokkuð lengi í
sjó. Á honum er málmplata með
áletrunum á ensku. Efst stendur
A.L.K. Buoy, en sfðasta orðið þýð-
ir bauja. Fyrir neðan stendur að
raðnúmer hlutarins sé 39 og
smíðaár 66, sem þýðir að öllum
líkindum 1966 og þar fyrir neðan
stendur að framleiðandi sé B.T.R.
Ltd. Þá stendur ennfremur að
hlut þennan megi ekki flytja í
flugvél sem sé ekki útbúin tækj-
um til loftþrýstijöfnunar. Styrkir
það þá skoðun sumra, að hlut
þessum sé ætlað að vera á miklu
dýpi. Engin skýring hefur fengist
á því hvert hlutverk hans er,
hvort hann er útbúinn til hlustun-
ar eða einhvers annars. Þá liggur
ekkert fyrir um það hvaðan hann
er.
Engin ákvörðun hafði verið tek-
in um það af íslenzkum yfirvöld-
um í gærkvöldi hvað gert yrði við
hlutinn, þegar blaðið hafði sam-
band við ráðuneytisstjórana
Pétur Thorsteinsson og Baldur
Möller, svo og Pétur Sigurðsson
forstjóra Landhelgisgæzlunnar.
Töldu tveir þeir sfðarnefndu að
líklega yrði varnarliðinu á Kefla-
víkurflugvelli falin rannsókn
þessa hlutar eins og rússnesku
duflanna sem fundist hafa rekin á
fjörur landsins undanfarna daga.
Um hugsanlegan eignarrétt út-
gerðar Ársæls KE á hlutnum
vildu þeir ekkert tjá sig á þessu
stigi málsins.
Vestmannaeyjar:
Þarf ríkið að borga fyrir af-
not af einkahúsum í gosinu?
EIGENDUR þriggja fbúðarhúsa
við Höfðaveg f Vestmannaeyjum
hafa höfðað mál á hendur rfkinu
og krefja það um greiðslu á leigu-
gjaldi fyrir hús sín, sem notuð
voru í þágu iögregiunnar f bæn-
um á meðan gos stóð þar yfir og
nokkru eftir að því lauk. Ríkið
telur sig ekki þurfa að greiða
leigu fyrir húsin á þessu tímabili,
vegna þess að á þessum tíma hafi
ekki verið greidd leiga fyrir
önnur hús þar í bæ. Þessu vilja
eigendurnir ekki una, og hafa
þeir höfðað mál gegn fjármála- og
dómsmálaráðuneytunum fyrir
Borgardómi Reykjavíkur og
stefnt Viðlagasjóði til
réttargæzlu.
Það var upp úr miðjum febrúar
1973 að lögreglan i Vest-
mannaeyjum varð að flytja sig um
set vegna hættu af eiturgufum
sem höfðu myndast í gosinu og
gerðu dvöl i vissum hlutum Vest-
mannaeyjabæjar hættulega.
Ljósm. Heimir Stfgsson.
BAUJAN — Þetta er baujan sem Ársæll KE 77 fann á reki undan Skarösfjöru.
Torkennileg bauja á reki
Flutti lögreglan sig í þrjú íbúðar-
hús við Höfðaveg. Húsið númer
18 var gert að lögreglustöð, en
húsin númer 17 og 19 voru notuð
sem svefnstaðir. Ekki eru aðilar
sammála um hvort eigendunum
var tilkynnt þetta áður en
flutningurinn fór fram eóa ekki.
Eigandi hússins númer 18 vill fá í
leigu 30 þúsund krónur á mánuði
tímabilið 19. febrúar til 19.
nóvember, samtals 270 þúsund
krónur. Eigendur hinna húsanna
vilja fá 17 og 16 þúsund krónur á
mánuði fyrir sama tímabil, eða
samtals 297 þúsund krónur. Alls
eru kröfurnar þvi 567 þúsund
krónur. Ríkið vill sem fyrr segir
enga leigu greiða, en til vara
greiða leigu fyrir þann tíma sem
húsin voru notuð eftir að talið var
að gosinu væri lokið. Talið er, að
ríkið muni óska eftir því, aó mats-
menn verði kallaðir til að meta
hugsanlega þóknun fyrir afnoí af
húsunum.
FULLFERMI AF LOÐNU — Myndin er af loðnuskipinu Árna Sigurði AK sem kom
með fullfermi af loðnu til Reykjavíkur í gær.