Morgunblaðið - 08.03.1975, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MARZ 1975
24 bátar með 8600
tonn af loðnu í gær
FRA miónætti í fyrrakvöld
og þar til á miðnætti í gær-
kvöldi höfóu 24 bátar til-
kynnt alls 8600 tonn af
loðnu. Þessir voru bátarn-
ir: Súlan með 550 tonn,
Óskuðu eftir
örbylgjustöð
í Siglufirði
SKIPSTJÓRAR á Norðurlandi og
margir skipstjórar af Vestfjöró-
um sendu póst- og sfmamálastjóra
skeyti fyrir nokkrum vikum þar
sem þeir óskuðu eindregið eftir
því að örbylgjustöð yrði sett upp
f Sigluf jarðarradíói, en Siglu-
fjarðarradfó er eina strandstöð
Landssímans með þjónustu allan
sólarhringinn og hefur ekki ör-
bylgjustöð. Hinar 24 stunda
stöðvarnar, sem hafa slfka stöð,
eru: Reykjavíkurradíó, Vest-
mannaeyjaradfó, Höfn f Horna-
firði, Neskaupstaður og Isafjörð-
Olíuskip slitn-
aði frá bryggju
Siglufirði, föstudag.
NORSKT olíuflutningaskip,
innan eða um 1000 tonna skip,
sem hingað kom í gær, varð að
yfirgefa höfnina um miðnætti í
nótt er komið var hið versta
veður. Lét skipið svo illa að það
kubbaði í sundur landfestar.
Tveir menn af áhöfn skipsins
voru á hafnargarðinum við að
reyna að treysta landfestar skips-
ins en allt í einu kubbuðust
festarnar og svo snögglega að
mennirnir tveir stóðu eftir á
bryggjunni í storminum og stór-
hríðinni. Tókst skipstjórnar-
mönnum þó að bjarga skipinu frá
því að hrekjast upp í fjöru að
austanverðu fjarðarins og fór
skipið út á leguna og þar bíður
það þess að veðrinu sloti. Menn-
irnir tveir eru ennþá í landi. —mj.
Tvö innbrot
TVO innbrot voru framin í fyrri-
nótt. Ur söluturni við Hólmgarð
var stolið sælgæti, sígarettum og
skiptimynt, og úr Dún- og fiður-
hreinsuninni á Vatnsstíg var
stolið tveimur útvarpstækjum.
Eru þau af Astra og Blaupunkt-
gerð. Ef einhver hefur orðiö var
við slik tæki er hann beðinn að
hafa samband við rannsóknar-
lögregluna.
ÞAWKASKIk-
Bergur 180, Alftafell 250,
Helga Guðmundsdóttir
380, ísleifur IV 170, Jón
Garðar 280, Þorri 160,
Börkur 800, Hafrún 240,
Höfrungur III. 240, Héðinn
420, Hamravík 130,
Sigurður 800, Helga II.
340, Heimir 420, Fífill 530,
Óskar Halldórsson 360,
Árni Sigurður 350, Óskar
Magnússon 530, Svanur
300, Gísli Árni 500, Örn
290, Víðir NK 230 og
Hinrik 200.
MEÐ FULLFERMI — Mynd þessa tók ljósmyndari I
Mbl. Sigurgeir, af tveimur loðnubátum með fullfermi í |
Vestmannaeyjahöfn.
Fara tilboð 1 opinberar
framkvæmdir lækkandi?
TILBOÐ, sem Innkaupastofnun
Reykjavíkurborgar hafa borizt,
hafa að sögn Torbens Friðriks-
sonar breytzt nokkuð frá því 1
fyrravor. Þannig eru þau til-
boð, sem berast í verk, sem
borgin þarf að láta vinna, um
15 til 20% lægri en kostnaðar-
áætlun, sem gerð er um verkið.
Var þessu öfugt farið f fyrra-
vor, er tilboðin voru yfirleitt
hærri en kostnaðaráætlun.
Torben sagði, að talsvert væri
um útboð á vegum Innkaupa-
stofnunar Reykjavíkurborgar
og ber þar hæst framkvæmdir
Hitaveitu Reykjavíkur í
Hafnarfirði, Kópavogi og
Garðahreppi. Þó sagði Torben
að vegna efnahagsástandsins
væri fyrirsjáanlegur samdrátt-
ur hjá Reykjavíkurborg i gatna-
gerðarframkvæmdum.
Ásgeir Jóhannesson hjá Inn-
kaupastofnun ríkisins sagði að
lítið hefði verið um mikil verk-
útboð á vegum stofnunarinnar
og engar umtalsverðar breyt-
ingar hefðu orðið á tilboðum í
verk. í janúar í fyrra var t.d.
áætlun um kostnaðarhlið verks
um 20% fyrir ofan lægsta til-
boð. I september siðastliðnum
hefði lægsta tilboð verið um
11% lægra en kostnaðaráætlun
og í febrúar 1975 kvaðst hann
hafa tvö tilvik og í öðru þeirra
væri eitt tilboóanna 14% undir
kostnaðaráætlun og í hinu um
10% undir kostnaðaráætlun.
Ásgeir sagði aó eina breyt-
ingin, sem orðið hefði væri sú
að fleiri tilboð bærust nú i verk
en áður. Ásgeir sagði að hlut-
fall tilboða miðað við
kostnaðaráætlun væri ekki hin
ákjósanlegasta viðmiðun, þar
eð ráðgjafaverkfræðingar, sem
gerðu áætlanirnar, kappkost-
uðu að sjálfsögðu að vera sem
nákvæmastir í áætlanagerð
sinni. Fylgdust þeir með
markaðinum og ef hann lækk-
aði — lækkuðu þeir áætlanir
sinar og öfugt. Þá kvað Ásgeir
fjölda tilboðsgefenda oft vera
meiri fyrri hluta árs, en þegar
líða tekur á árið.
Uppsagnir vegna samdrátt-
ar 1 bílainnflutningnum
FARIÐ ER að bera á uppsögnum
starfsfólks f stærri fyrirtækjum,
sem verzla með bifreiðar og reka
bifreiðaverkstæði. 1 tveimur
fyrirtækjum, sem Morgunblaðið
hafði samband við í gær, Volvo-
umboðinu Velti og Agli Vil-
hjálmssyni, hefur starfsmönnum
verið sagt upp og er samanlagður
fjöldi þeirra starfsmanna í þess-
um fyrirtækjum 23. í öðru fyrir-
tækinu höfðu menn þó ekki séð
fyrir endann á uppsögnum og
hafði ekki verið endanlega
ákveðið, hve mörgum yrði sagt
upp.
Ásgeir Gunnarsson hjá Volvo-
umboðinu sagði, að fyrirtækið
hefði þegar neyðzt til þess að
segja upp 9 manns vegna sam-
dráttar í bílainnflutningi. Kvað
hann starfsfólk þetta vera af
skrifstofu fyrirtækisins, úr sölu-
deild og af verkstæði. Þá hafði
H Rækju- og hörpudisksverð
YFIRNEFND Verðlagsráðs
sjávarútvegsins ákváð á fundi f
gær eftirfarandi lágmarksverð á
rækju og hörpudiski frá 18.
febrúar til 31. maf 1975.
Stór rækja, hvert kg ..kr. 53.00
Smá rækja, hvert kg ...kr. 31.00
Hörpudiskur, hvert kg .... kr 17.00
Stærðarmörk og afhendingar-
skilmálar eru óbreyttir frá því
sem verið hefur.
Verðið var ákveðið með
atkvæðum oddamanns og fulltrúa
seljenda. Fulltrúar kaupenda
greiddu atkvæði gegn verði á
hörpudiski, en greiddu ekki at-
kvæði um verð á rækju.
í yfirnefndinni áttu sæti:
Ólafur Daviðsson, hagfræðingur,
sem var oddamaður nefndar-
innar, Ingólfur Ingólfsson og
Kristján Ragnarsson af hálfu selj-
enda og Árni Benediktsson og
Marías Þ. Guðmundsson af hálfu
kaupenda.
fyrirtækið ákveðið að leggja
niður réttingaverkstæði sitt á
Hyrjarhöfða, þar sem rekstur
þess borgaði sig ekki. Við það
fyrirtæki störfuðu 7 manns, sem
sagt hefur verið upp, þannig að
alls eru uppsagnirnar 16.
Ásgeir Gunrfarsson sagði að það
væri neyðarráðstöfun að þurfa að
segja þessu fólki upp og ef eitt-
hvað myndi um hægjast sagðist
hann ráða þetta fólk aftur, þar eð
allt hefði þetta verið prýðisstarfs-
fólk. Fyrirtækið hefur ekki
neyózt til þess að segja upp starfs-
fólki vegna sairídráttar síðan
1967, en þá var 7 manns sagt upp
við fyrirtækið.
Matthias Guðmundsson hjá
Agli Vilhjálmssyni h.f. sagði að
ekki hefði verið fullákveðið hve
Framhald á bls. 20
„Unnt að taka
Kjarvalsmynd-
irnar til viðgerð-
ar,” segir brezki
sérfræðingurinn
SKYRSLA brezka sérfræðingsins
f viðgerð málverka, Anton
Stanczyk, um myndir Kjarvals f
vinnustofunni við Austurstræti,
hefur nú borizt til landsins og
leitaði Morgunblaðið upplýsinga
hjá Tove Kjarval um skýrsluna.
Tove sagði, að i skýrslu
Stanczyk, sem er sérfræðingur á
vegum brezka rikisins, kæmi
fram að hann teldi að þaó yrði að
taka myndirnar niður af veggjun-
um því það væri eini möguleikinn
til að gera vel við þær. Telur hann
ekki mikið vandamál að taka
myndirnar niður. Siðan útlistar
Stanczyk í skýrslunni hvernig
hann gerói við verkin ef honum
væri falið það og telur hann að þá
þyrfti að flytja þau til London til
viðgerðar.
Eftir er að dæma um eignarrétt-
inn á verkunum, um það hvort
þau teljast naglföst i byggingunni
eða eign ættingja Kjarvals. Er
niðurstöðu að vænta á næstunni.
Tove kvað því óvíst ennþá hvað
um verkin yrði, hvort þau verði
til frambúðar varðveitt i vinnu-
stofunni eftir viðgerð eða flutt á
annan stað.
Rándýrri
reim stolið
RANNSÓKNARLÖGREGLUNNI
var tilkynnt um það f gær, að
rándýrri reim af færibandi hefði
verið stolið frá fyrirtækinu
Stjörnumjöli f Örfirisey. Reimin
er notuð og er verðmæti hennar
talið vera 200—300 þúsund
krónur.
Reimin er hvít að lit og eru
slíkar reimar mjög eftirsóttar<í
„drullusokka“ á vöru- og sendi-
bíla. Ef einhverjir hafa orðið
varir við slíka reim eóa hluta úr
henni eru þeir beðnir að hafa
strax samband við rannsóknarlög-
regluna. Reimin er um 70 metrar
á lengd og rúm 21 tomma á
breidd. Hún var upprúlluð.
Hamrahlíðar-
kórinn í Saur-
bæjarkirkju
Skólakór Menntaskólans vió
Hamrahlíð syngur í Hallgríms-
kirkiu í Saurbæ á Hvalfjarðar-
strönd í kvöld, laugardagskvöld,
kl. 21. Til stóð að kórinn héldi
kvöldvöku á Akranesi, en það
breyttist og mun hann því syngja
i Saurbæ.
Laxness og Tómas mótmæla
úthlutun viðbótarritlaunanna
~NEI, HÚN ER AÐ MJGLKA
Fjölskyldu-
tónleikar í dag
FYRRI fjölskyldutónleikar
Sinfóniuhljómsveitar íslands
verða í Háskólabíói kl. 14 i dag.
Flutt verða verð eftir Mozart,
Jón Leifs, Atla Heimi Sveins-
son og Benjamin Britten.
Hljómsveitarstjóri er Páll P.
Pálsson, kynnir Atli Heimir
Sveirísson.
SEXTÁN höfundar hafa sent Al-
þingi mótmælabréf, þar sem þeir
segjast telja að hlutur þeirra hafi
verið ósæmilega fyrir borð borinn
og krefjast þeir endurmats á
störfum úthlutunarnefndar við-
bótarritlauna, sem þeir telja alls-
endis óviðunandi. Meðal þeirra
sem rita undir bréfið eru Tómas
Guðmundsson og Halldór Lax-
ness, en hann mótmælir á þeim
grundvelii, sem nefndin lýsti ýfir
í sjónvarpi, að umsókn hans hefði
verið hundsuð vegna þess, að hún
hefði verið undirskrifuð af lög-
fræðilegum umboðsmanni hans.
Texti mótmælabréfs rithöfund-
anna er svohljóðandi:
„Við undirritaðir höfundar sem
höfum gefið út verk á árunum
1970, 1971, 1972 og 1973 teljum
vinnubrögð úthlutunarnefndar
viðbótarritlauna allsendis óvið-
unandi og skorum eindregið á al-
þingi og sér í Iagi menntamálaráð-
herra, að það og ráðherra hlutist
til um að fram verði látið fara sem
allra fyrst endurmat á störfum
nefndarinnar árin 1973 og 1974.
Það er samróma álit okkar að
framkvæmdin á úthlutun við-
bótarritlauna nefndar hafi orðið
með öðrum hætti heldur en lög-
gjafinn ætlaðist til með fjárveit-
ingunni.
Samkvæmt framansögðu teljum
við að hlutur okkar hafi verið
ósæmilega fyrir borð borinn og
setjum traust okkar á réttsýni lög-
gjafarvaldsins og væntum þar
með afdráttarlausrar leið-
réttingar mála okkar.“
Rithöfundarnir, sepi undirrita
bréfið eru: Tómas Guðmundsson,
Halldór Laxness, Kristinn Reyr,
Jóhannes Helgi, Jón Björnsson,
Snjólaug Bragadóttir, Sveinn
Sæmundsson, Andrés Kristjáns-
son, Þórhallur Guttormsson,
Filippía Kristjánsdóttir, Hilda
Hinriks vegna Ingólfs Kristjáns-
sonar, Hilmar Jónsson, Magnús
Jóhannsson, Kristinn Reyr fyrir
hönd Eiríks Stefánssonar sam-
kvæmt umboði, Ragnar Þorsteins-
son og Jóhannes Helgi fyrir hönd
Sverris Kristjánssonar samkvæmt
umboði.