Morgunblaðið - 08.03.1975, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 08.03.1975, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MARZ 1975 ' IÞROTTAFBETTIR MORGUNBIABSINS Nú fer að hylla undir vertíðar- lokin i Islandsmótinu í hand- knattleik. Nú um helgina fara fram tveir leikir í 1. deildar keppninni og að þeim loknum eru aðeins þrjú leikkvöld eftir. Fer sfðasti leikur mótsins fram mið- vikudaginn 19. marz og verða það Valur og FH sem þá leika — liðin sem skipuðu fyrsta og annað sæti í Islandsmótinu f fyrra. Annað kvöld verðúr leikið i Hafnarfirði og mætast þá fyrst Haukar og Ármann og síðan FH og Vikingur, þar sem ætla má að verði stórleíkur, sem miklu ræður um úrslitin i mótinu. Vinni Vik- ingar þann leik má næstum bóka þá sem Islandsmeistara. Þá verða þeir komnir með 21 stig og eiga eftir einn leik, en Valsmenn sem nú eru í öðru sæti hafa 16 stig, — möguieika á 18 ef þeir vinna kær- una gegn Armanni og geta því hiotið samtals 22 stig í mótinu með þvi að vinna bæði Víking og FH, sem er þó heldur ólíklegt að takist. Leikur Hauka og Ármanns hefst kl. 20.15 og verður hann dæmdur af Birni Kristjánssyni og Öla Olsen. Hefur leikur þessi ekki þýðingu i baráttunni á botni og toppi, þar sem bæði liðin eru án möguleika á titlinum og geta heldur ekki fallið. I fyrri leik liðanna, sem fram fór í Laugar- dalshöllinni, unnu Haukarnir yf- irburðasigur 22—13, og sýndu þá sinn bezta leik í vetur. Síðan þetta gerðist hafa Ármenningar hins vega tvíeflst og má mikið vera ef þeim tekst ekki að launa Haukun- um lambið gráa í leiknum á sunnudaginn. Fyrri leik Víkinga og FH sem fram fór í Laugardalshöllinni lauk með sigri FH-inga, 19—18, i miklum baráttuleik þar sem flest ir voru sammála um að FH-ingar hefðu verið heppnir að krækja í bæði stigin. FH-liðið hefur heldur verið á niðurleið að undanförnu, en Víkingar hins vegar haldið sinu striki og unnið hvern leikinn af öðrum. Eru Víkingar heldur sigurstranglegri í leiknum annað kvöld, en allt getur þó gerst, og FH-ingar munu örugglega ekki láta sinn hlut baráttulaust. Leik- urinn hefst kl. 21.30, og dómarar í honum verða þeir Jón Friðsteins- son og Kristján Örn Ingibergsson. 2. deild Akureyrarliðið KA kemur suð- ur til keppni um helgina og lýkur þar með leikjum sínum i keppn- inni í ár. Á laugardaginn leikur KA við Fylkí í Laugardalshöllinni og hefst sá leikur klukkan 15.30. Á sunnudaginn keppir liðið svo við Stjörnuna og fer sá leikur fram í Ásgarði í Garðahreppi og hefst kl. 14.00. Fyrir norðan sigraði KA bæði þessi lið næsta auðveldlega, Fylki 24—15 og Stjörnuna 31—15. Hitt Akureyrarliðið í 2. deild, Þór, verður KA-mönnum sam- ferða suður og keppir tvo leiki. Kl. 15.30 á laugardag leikur liðið við Stjörnuna í Garðahreppi og á sunnudag kl. 15.35 leikur Þór við Kylki í Laugardalshöllinni. Eru þetta siðustu leikir Þórsara í keppninni í ár. Fyrir norðan sigr- uðu þeir Stjörnuna 25—19 og Fylki 23—16. Auk leikja Akureyrarliðanna mætast LFBK og ÍBK í Asgarði kl. 16.30 á laugardaginn. 1. deild kvenna: íslenzkar handknattleikskonur hafa einnig nóg að starfa um helg ina. Auk landsleiksins við Banda- ríkin á sunnudagsmorgun fara fram tveir leikir í 1. deild í Laug- ardalshöllinni í dag. Fram leikur við FH kl. 16.45 og KR leikur við Val kl. 17.45. Valur og Fram standa nú langbezt að vígi í 1. deildar keppninni,Valur þó betur, en liðið hefur engum leik tapað til þessa. HANDKNATTLEIKSVERTIÐINNI — fer senn að ljúka, en mikið hefur verið um að vera að undanförnu. Mynd þessa tók Friðþjófur í leik Islands og Tékkóslóvakiu á dögunum og sýnir hún Einar Magnús- son gera tilraun til markskots. Einar leikur með félögum sinum í Vikingi gegn FH á morgun og er það leikur sem mun ráða miklu um hvaða lið hlýtur íslandsmeistaratitilinn i ár. BIK ARURSLIT í S JÓNVARPINU ASTON VILLA—NORWICH CITY Stöðvar FH sigur- göngu Víkinga? Golfnámskeið NVLOKIÐ er fyrsta námskeiði vetrarins f golfskóla Þorvalds Ásgeirssonar. Þátt- takendur voru 24 nýliðar. Auk þess hafa nokkrir sem lengra eru komnir í fþrótt- inni komið til skrafs og ráðagerða. Annað námskeið er nú að hefjast. Kennt er mánudaga til föstudaga kl. 17.00 til 19.00, og eftir samkomulagi. Hægt er að taka 2—3 saman í tfma. Pantanir f síma 42410 fyrir hádegi. Fyrir rúmu ári byrjaði Þorvaldur með bréfaskóla f golfi, eins og tfðkast vfða erlendis. Var sú nýbreytni aðallega hugs- uð fyrir golfleikara úti á landi. Óski menn eftir þessari þjónustu Þorvalds, má skrifa honum f pósthólf 596 f Reykja- vík og biðja um staðlað spurningabréf, sem hann sfðan svarar gegn 1.000,00 kr. gjaldi. V I N N I N G U B ~-íbúd ad vordmœti kr. 5.0 VlO KRUMMAHÖIA • I RtYKJAVfK \ *B<jr t< si*iii'.*Á- úmtim |vti fy'HDVR V % MUNIÐ íbúðarhappdrætti H.S.Í. 2ja herb. íbúð að verðmæti kr. 3.500.000. Verð miða kr. 250. í DAG sýnir íslenzka sjón- varpiö úrslitaleikinn í ensku deildarbikarkeppn- inni milli 2. deildar liðanna Aston Villa og Norwich City, en þessi leikur fór fram á Wembley- leikvanginum í Lundúnum sl. laugardag að viðstödd- um 100.000 áhorfendum. Var þarna um mjög skemmti- lega baráttu aö ræóa eins og jafn- an í úrslitaleikjum á Wembley. Aston Villa sigraði i leiknum meó marki sem Graydon skoraði eftir að markvörður Norwich hafði hálfvarið vítaspyrnu frá honum í seinni hálfleiknum. Liðin sem leika i dag eru þannig skipuð: Aston Villa Norwich Nr. 1 Cumbers Keelan Nr. 2 Robson Machin Nr. 3 Aitken Sullivan Nr. 4 Ross Morris Nr. 5 Nicholl Forbes Nr. 6 McDonald Stringer Nr. 7 Graydon Miller Nr. 8 Little MacDougall Nr. 9 Leonard Boyer Nr. 10 Hamilton Suggett MYNDIR: Markið sem færði Villa deildarbikarinn. Á efri myndinni sést markvörður Norwich City, Kevin Keel- an, kasta sér og slá skot Ray Graydon í stöngina, en Nr. 11 Carrodus Powell Varam: Evans Steele Dómari í leiknum er G. Hill. þaðan hrökk knötturinn út á völlinn aftur og Graydon var manna fljótastur að átta sig og sendi knöttinn í markið, þrátt fyrir góða tilburði Keelans, sem aftur kastaði sér á eftir honum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.