Morgunblaðið - 08.03.1975, Side 36

Morgunblaðið - 08.03.1975, Side 36
LAUGARDAGUR 8. MARZ 1975 nuGivsincnR ^^•22480 2ttor$tmbtabib nucivsmcnR 4gL*-«22480 stjóra um borð í Hvassafellinu „SKIPIÐ fékk á sig brotsjó og tók samtímis niðri mjög harkalega f brimgaróinum f svarta myrkri og byl,“ sagði Jón Kristinsson skip- stjóri á Hvassafellinu f talstöðvar- samtali við Morgunblaðið f gær- kvöldi, en hann var þá ásamt 7 öðrum um borð f Hvassafellinu, en 11 skipverjar voru þá farnir frá borði og til lands. Þegar við ræddum við Jón var háflóð kl. 20 f gærkvöldi og við spurðum hann hvcrnig skipið léti á strandstað. „Það ber dálítið harkalega," sagði hann, „enda rótarbrim. Það lætur mun verr nú á flóðinu, en það gerði á fjörunni f dag. Skipið liggur nú á réttum kili um 20—30 metra frá fjörukamhinum, en þegar það tók fyrst niðri mun það hafa verið um það bil 500 metra utan við ströndina. Það tók vfða harkalega niðri á þessari 500 metra leið sem það hefur borizt, enda virðast víða vera grjótflákar f botninum eða stórir steinar.“ „Hvernig er ástatt hjá ykkur um borð?“ „Það er svipað og verið hefur i dag, við höfum Ijós og hita. Ljósa- vélin er á efri pöllum f vélarrúm- inu, en sjórinn sem er kominn í vélarrúmió nær rétt upp á aðal- vélina. Gat virðist vera komið á olfutanka f vélarrúmi og eitthvað af sjó í lest I, en það er þó mjög erfitt að ganga úr skugga um það. Þá eru komin göt á botntanka. Við verðum áfram um borð f skip- inu, a.m.k. f nótt. Okkur virðist engin hætta búin hér, við erum komnir svo langt inn fyrir brim- garðinn, enda aðeins steinsnar frá f jörukambinum þar sem björgunarsveitarmenn hafast við. Við vorum að senda þeim gúmmf- björgunarbát með þaki til þess að hafast við í á kambinum, þvf það er ruddaveður hér. Við erum einnig að senda björgunarsveitar- mönnum heitan mat. Annars er lítið hægt að segja, þvf ekki er hægt að gera sér fulla grein fyrir stöðunni fyrr en lægir sjóinn.“ Um borð í Hvassafellinu í gær- kvöldi voru auk Jóns skipstjóra Andrés Gilsson 1. stýrimaður, Jón Örn Ingvarsson 1. vélstjóri, Lúð vík Jónasson 2. vélstjóri, Jóhann Sigurjónsson 3. vélstjóri, Garðar Guðmundsson bátsmaður, Pálmi Ingólfsson loftskeytamaður og Þórhalla Sveinsdóttir eiginkona skipstjórans, en hún sá um mats- eldina um borð í gær. Hjörtur Hjartar framkvæmda- stjóri skipadeildar SlS sagði í við- tali við Morgunblaðið f gær að ekki væri hægt að gera sér neina grein fyrir aðstæðum á strandstað fyrr en veður gengi niður. Skip eins og Hvassafellið kvað hann 600—700 miilj. kr. virði, en skipið er tveggja og hálfs árs, um 1800 Framhald á bls. 20 i'm Þessi mynd var tekin af Hvassafellinu skömmu eftir að það kom til Iandsins. Ljósmynd: Kári Birgir Skipbrotsmenn af Isleifi f gúmmíbjörgunarbátnum á strandstað, en myndin var tekin þegar fárviðrinu,12 vindstigum, hrfð og gaddi, hafði slotað, en gúmmfbáturinn veitti þeim blautum og sjóhröktum skjól, sem getur hafa ráðið úrslitum fyrir þá sem blotnuðu mest. Reynt að draga ísleif VE út í dag Tíu menn sváfu 10 MENN sváfu um borð í isleifi frá Vestmannaeyjum á strand- stað vestan Ingólfshöfða f nótt, en f gær unnu þeir að þvf að gera bátinn kláran fyrir björgunartil- raunir f dag, en þá mun Goðinn reyna að draga tsleif á flot. Enginn sjór hefur komizt f ísleif og hann hefur ávallt staðið á réttum kili á strandstaðnum þótt • • TAKMORKUNUM A GJALDEYR- ISSÖLU AÐ MESTU AFLÉTT RlKISSTJÖRNIN hefur ákveð- ið í samráði við Seðlabanka Islands að aflétta að mestu þeim takmörkunum, sem verið hafa á afgreiðslu gjaldeyris að undanförnu. Er stefnt að þvf að gjaldeyrisbankarnir afgreiði á næstunni gjaldeyri til kaupa á frflistavörum með eðlilegum hætti eins og áður var. Áfram verða takmarkanir á afgreiðslu gjaldeyris til kaupa á bifreiðum, húsgögnum, innréttingum, kexi og annarri brauðvöru. Morgunblaðinu barst í gær fréttatilkynning frá viðskipta- ráðuneytinu um þessi gjaldeyris- mál og hljóðar hún svo: „Að undanförnu hefur verið talið óhjákvæmilegt vegna gjald- eyrisástandsins að takmarka sölu á gjaldeyri og hefur það leitt til þess að afgreiðsla á einstökum yfirfærslum hefur tafizt nokkuð. með gengislækkuninni og tak- mörkun á bankaútlánum standa vonir til að hægt verði að koma á meiri jöfnuði í gjaldeyrisvið- skiptum. Hefur því ríkisstjórnin í samráði við Seðlabankann ákveðið að aflétta að mestu þeim takmörkunum, sem gilt hafa í gjaldeyrisviðskiptum að undan- förnu. Stefnt er að því að gjald- eyrisbankarnir afgreiði á næst- unni gjaldeyri til kaupa á frílista- vörum með eðlilegum hætti eins og áður var. Þó munu gjaldeyris- bankarnir enn um sinn hafa eftir- lit með gjaldeyrissölu vegna sér- stakra vörukaupa, svo sem bif- reiða, vinnuvéla, húsgagna, inn- réttingá, kex og annarra brauð- vara. Þessar vörur verða þó áfram á frílista og er þess vænzt að hægt verði að selja gjaldeyri fyrir inn- flutningi þeirra án nokkurra verulegra tafa. Þá hefur einnig verið ákveðið að gera nokkrar breytingar á regl- um um erlendan greiðslufrest í því skyni að draga úr innflutningi á meðan núverandi erfiðleikar standa yfir. Verður greiðslu- frestur styttur frá því, sem verið hefur, m.a. vegna innflutnings á stórvirkum vinnuvélum og tækj- um, dráttarvélum, vörubifreiðum, sendiferðabifreiðum og bif- reiðum, sem greiðslufrestur hefur verið heimilaður fyrir. Ekki hefur verið talið ráðiegt að takmarka frekar greiðslufrest vegna innflutnings annarra vöru- tegunda." um borð í nótt hann hafi færzt til um 200 metra með briminu á flóðinu. Morgunblaðið ræddi í gær- kvöldi við Sigurjón á Hofi í Öræf- um, en hann var þá nýkominn af strandstaðnum. Kvað hann 6 skip- verja af ísleifi nú vera um borð, tvo ýtustjóra, en tvær jarðýtur eru komnar á strandstað og einnig gistu um borð tveir full- trúar tryggingafélaga. Björgunar- menn á strandstað biðu daglangt í gær eftir Goðanum, en hann hafði orðið að fara inn til Vestmanna- eyja í fyrrinótt eftir að brotsjór hafði laskað talstöð og fleira um borð. Kom Goðinn ekki á strand- stað fyrr en um kl. 5 í gær og var þá orðið of rökkvað til að skjóta linu í land og ekki unnt að sigla á gúmmíbjörgunarbát i gegnum brimgarðinn, en á strandstað var logn og sólskin f gær og 8 stiga hiti. í býtið í morgun átti að hefjast handa um að koma taug yfir í ísleif og sfðan mun Goðinn reyna að snúa bátnum á strandstað Framhald á blr. 20 Sáttafundur SAMNINGAFUNDI aðila ASl og vinnuveitenda með sáttasemjara lauk kl. 7.15 í gærkvöldi, en hann hófst kl. 4 f gær. Torfi Hjartarson sáttasemjari kvað ekki unnt að greina frá gangi fundarins, en hann hefði verið betri en enginn fundur. Annar sáttafundur verður kl. 5 f dag. 9 ára stúlka stórslasaðist NÍU ára stúlka varð fyrir bifreið á Kleppsvegi laust fyrir kl. 13 f gær og slasaðist hún alvarlega. Lærbrotnaði hún og hlaut inn- vortis meiðsli, rifu á lifur. Var hún skorin upp á Borgarspftalan- um f gær og gekk aðgerðin vel, betur en á horfðist f fyrstu. Var hún þungt haldin f gærkvöldi, en með rænu og ekki talin f Iffs- hættu. Sýndi hún mikinn dugnað eftir aðgerðina. Foreldrar stúlk- unnar eru á ferðalagi á Spáni og dvaldi stúlkan á meðan hjá ömmu sinni, sem býr við Kleppsveg. Slysið átti sér þannig stað, að stór amerísk bifreið ók suður Kleppsveg og að sögn ökumanns- ins hljóp stúlkan skyndilega út á Framhald á bls. 20 „Brotsjór reið yfír og skíp- ið strandaði í brimearðinum” Rætt við Jón Kristinsson skip- ___

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.