Morgunblaðið - 09.03.1975, Side 1
48 SIÐUR
55. tbl. 62. árg.
SUNNUDAGUR 9. MARZ 1975
PrentsmiSja MorgunblaSsins.
Stjórnleysingjum
vísað frá S-Jemen
Vestur Berlín,
8. marz. NTB. Reuter.
BADER-Meinhof félögunum
fimm, sem látnir voru lausir f
skiptum fyrir Peter Lorenz, leið-
toga Kristilegra demókrata f
Vestur Berlín, hefur nú verið
skipað að fara frá Suður-Jemen.
Það var sendiráð Suður-Jemens f
Austur-Berlín, sem greindi frá
þessu seint í gærkvöldi.
Sagði í tilkynningu sendiráðs-
ins að stjórnleysingjarnir fimm
hefðu aðeins fengið leyfi- til að
koma til Suður-Jemen vegna þess
að flugvélin sem þeir tóku til
ferðarinnar var í þann veginn að
verða eldsneytislaus. Hafi þeim
aldrei verið lofað þar búsetu til
frambúðar.
Orðsending þessi kom mjög á
óvart, þar sem stjórnleysingjarnir
fimm munu hafa túlkað orð
stjórnvalda í Suóur-Jemen á þá
lund að þeir fengju að setjast að í
landinu. Aður en þangað kom
höfðu Libia, Irak, Sýrland,
Lfbanon og Eþfópfa neitað stjórn-
leysingjunum um lendingarleyfi,
hvað þá dvalarstað, í þessum lönd-
um.
Kissinger vill f á
raunhæfan árangur
Ljósmynd Sv. Þorm.
KAPPAR — Að visu eru rúmir tveir mánuðir þar til islandsmeistaramótið í knattspyrnu hefst, en það
er vissara að vera kominn i þjálfun fyrir keppnistímabilið.
Danmörk:
Efnahagsmálafrumvarp rílds-
stjómarinnar afgreitt á morgun
Kaupmannahöfn, 8. marz, einkaskeyti til Mbl.
frá Gunnari Rytgaard.
1. UMRÆÐLJ um heildarlausnaráætlun dönsku ríkisstjórnarinnar f
efnahagsmálum þjóðarinnar lauk f gær f danska þjóðþinginu og urðu
umræður mun styttri og rólegri en margir höfðu búist við. Við lok
umræðunnar sagði Anker Jörgensen forsætisráðherra að hann teldi að
frumvarpið hefði fengið mjög jákvæðar viðtökur. Fyrir utan sófalfska
þjóðarflokkinn, kommúnista og vinstri sósfalista voru fulltrúar allra
þingflokka sammála um nauðsyn þess að þingið gripi til ráðstafana til
að koma f veg fyrir allsherjarverkföll, sem yfir vofðu sfðar f mánuð-
inum.
Henning Christophersen for-
mælandi Venstre, sagði þó, að
frumvarpið bæri með sér flýtis-
brag og væri ekki í samræmi við
efnahagslegar þarfir landsins.
Hins vegar bæri að koma í veg
Gerald Ford
ætlar fram
Washington, 8. marz. Reuter.
FORD Bandaríkjaforseti
skýrði þjóðarnefnd repúblik-
anaflokksins frá því f dag, að
hann hefði hug á því að verða
forsetaefni flokksins við kosn-
ingarnar f Bandarfkjunum á
næsta ári. Þessi yfirlýsing
hans kom ýmsum á óvart, þar
sem margir hafa álitið að hann
ætlaði að vfkja og láta Nelson
Rockefeller eftir að bjóða sig
fram til forseta.
fyrir allsherjarverkföll, en frum-
varpið myndi hafa í för með sér
15—16% verðhækkanir.
Þegar að umræðunni lokinni
var það tekið til meðferðar i
nefndum, efnahags- og stjórn-
málanefnd, atvinnumálanefnd,
launanefnd og félagsmálanefnd
og eiga allar nefndirnar að skila
áliti fyrir miðnætti i kvöld,
sunnudag, en fengist hefur sam-
þykki fyrir þvi að frumvarpið
verði afgreitt við 2. og 3. umræðu
á morgun, mánudag, sem lög frá
þinginu.
Kjarninn í frumvarpinu er
sáttatillaga í deilunni á vinnu-
markaðnum, sem sáttasemjari
lagði fram, en báðir aðiljar höfn-
uðu. Er þar gert ráð fyrir samn-
ingum til tveggja ára. Skv. frum-
varpinu mun timakaup hinna
lægst launuðu hækka um 40 aura
1. marz og 1. september, auk þess
sem almennt timakaup hækkar
um 35 aura 1. desember, er 40
stunda vinnuvika tekur gildi og
vaktavinnufólk fær auk þess um
10 aura hækkun.
Visitölugrundvellinum verður
breytt, en sjálfkrafa hækkun visi-
tölunnar helzt þó óbreytt. Sá visi-
tölugrundvöllur sem nú gildir
var ákveðinn 100 stig 1971, én er
nú 147,2 stig. Skv. frumvarpinu
verður hann ákveðinn á nýtt 100
stig frá 1. janúar sl. og þannig
seinkar vísitöluhækkunum á laun
Lissabon, 8. marz.
Reuter. NTB.
MILLI fjögur og fimm hundruð
andófsmenn sitja nú um aðal-
stöðvar lögreglunnar í hafnar-
borginni Setubal, en þar særðust
að minnsta kosti 16 manns af
skotsárum f gærkvöldi. Málsatvik
eru þau að nokkur hundruð
vinstrisinnar þustu inn f fundar-
sal f Setubal f gærkvöldi, þar sem
Lýðræðislegi þjóðarflokkurinn
var að halda kosningafund.
Kairó, 8. marz NTB. Reuter
HENRY Kissinger, utanrfkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði við
komuna til Kairó i gærkvöldi, að
hann væri staðráðinn f að dvelja í
þessum heimshluta þar til raun-
hæfur árangur hefði náðzt f við-
ræðunum um nýtt samkomulag
milli Egyptalands og Israel.
Kissinger hóf viðræður við
Sadat Egyptalandsforseta fyrir
hádegi laugardagsmorgun, og
mun hann æskja tillagna Sadats.
Þær tillögur flytur hann siðan til
Jerúsalem á morgun, sunnudag.
um 3—4 mánuði. I staðinn fyrir
þetta mun visitölugreiðsla á tíma-
kaup hækka úr 40 aurum i 60
aura. Það sem mesta athygli vek-
ur I frumvarpinu, er að þar er
kveðið á um að allir skuli fá sömu
vísitöluhækkun, en fram til þessa
hafa þeir, sem hæst laun hafa,
fengið hlutfallslega meiri hækk-
anir.
Þá gerir frumvarpið ráð fyrir
Framhald á bls. 47.
Komust mennirnir framhjá lög-
reglunni og inn f salinn, þar sem
um tvö þúsund manns voru fyrir.
Lögreglulið sem var við fundar-
staðinn beitti kylfum og segir f
fréttum að vinstrisinnarnir hafi
byrjað skothrfð og svaraði lög-
reglan henni.
Ljóst var í morgun að líðan ým-
issa þeirra sem særðust er mjog
alvarleg og er óttast um líf sumra
þeirra. Með umsátri sinu um lög-
reglustöðina í Setubal segjast
Hann mun einnig fara þann dag
til Sýrlands.
Framhald á bls. 47.
Lon Nol vill
nýja stjórn
Phnom Penh, 8. marz.
Reuter.
LON NOL, forseti Kambodiu,
hefur beðið forsætisráðherra
landsins, Long Boret, að
mynda nýja ríkisstjórn sem
væri hæfari til þess en sú
stjórn sem nú situr að hrinda
árásum skæruliða á borgina,
segir í Reuterfréttum í morg-
un. Engin staðfesting hefur
fengizt á þeim orðrómi að Lon
Nol ætli að segja af sér til þess
að freista þess að fá Banda-
ríkjamenn til að veita landinu
meiri aðstoð.
Eldflaugaárásum skæruliða
á Phnom Penh er haldið áfram
og lentu þrjár á suðurhluta
borgarinnar f nótt og sex eld-
flaugum var skotið á
Pochentongflugvöllinn.
Fimmtíu manna starfslið úr
bandariska sendiráðinu f borg-
inni var f gær flutt á brott, að
því er talsmaður utanríkis-
ráðuneytis Suður-Vfetnam
sagði í morgun. Verður flutn-
ingum á bandarískum borgur-
um frá Phnom Penh væntan-
lega haldið áfram um helgina.
andófsmenn vilja láta i ljós viður-
styggð sina á afhæfi lögreglunnar
ígærkvöldi.
Fréttamaður Reuters náði tali
af lögreglustjóranum í Setubal i
síma og vildi hann gera sem
minnst úr málinu, en sagði að
lögreglumenn sem eru inni i stöð-
inni myndu ekki freista útgöngu
að sinni til að æsa ekki fólksfjöld-
ann upp.
í borginni Setubal búa um
sextíu þúsund manns.
Sexjtán manns særðust
í óeirðunum í Portúgal