Morgunblaðið - 09.03.1975, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MARZ 1975
Bandarísk grafíksýning
GRAFlKSÝNING verður opnuð í
Menningarstofnun Bandarfkj-
anna á morgun. Þar eru 30 verk
eftir 17 bandaríska nútímalista-
menn og eru öll verkin unnin á
árinu 1973.
Á sýningunni gefst gott tæki-
færi til að skoða hvernig nota má
fjölbreyttar aðferðir við gerð
grafikmynda og prentun.
M.a. gefur að lita tréskurðar-
myndir, koparstungur, silkiprent
og litógrafiskar myndir, svo og
myndir, unnar með aðstoð ljós-
myndavéla.
Ein myndanna á sýningunni er
i eigu ísiendings. Er hún eftir
Stanley W. Hayter. Hann er mjög
þekktur listamaður og starfaði í
Atelier 17 í París.
Grafíksýningin verður opin alla
daga kl. 14—20 og lýkur henni
n.k. föstudag.
VERKAL YSSKOLI SJALF
STÆÐISFLOKKSINS
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
hefur undanfarin þrjú ár haldið
stjórnmálaskóla í Reykjavfk, þar
sem veiít hefur verið fræðsla um
margs konar félagsleg og stjórn-
málaleg efni. Þátttakendur í
stjórnmáiaskólanum hafa komið
skólinn skuli starfa frá 20. til 23.
marz n.k.
I tilefni þess sneri Morgunblað-
ið sér til formanns skólanefndar-
innar, Þorvalds Mawby, og bað
Framhald á bls. 47.
Bindandi sanuiingar
eða falskar forsendur?
Rœtt við Einar Guðjohnsen, framkvœmdastjóra Ferða-
féiags Islands, og Sigurð Jóhannsson, formann þess
FYRSTI fundurinn í stjórn
Ferðafélags Islands eftir aðal-
fundinn í lok síðasta mánaðar
var haldinn sl. miðvikudag.
Morgunblaðið leitaði af því til-
efni til formanns félagsins,
Sigurðar Jóhannssonar, vega-
málastjóra, og Einars Guðjohn-
sens, framkvæmdastjóra þess,
um viðhorfin nú að loknum
aðalfundi og fyrsta stjórnar-
fundi nýkjörinnar stjórnar.
Einar kvaðst hafa það eitt i
hyggju að láta af framkvæmda-
stjórastarfinu hið fyrsta, enda
hafði verið samþykkt á aðal-
fundinum að einn og sami
maðurinn ætti ekki að sitja í
stjórn félagsins og vera fram-
kvæmdastjóri — án nokkurra
fyrirvara. Kvaðst Einar þannig
telja óhjákvæmilegt að hann
léti svo að segja strax af
störfum en hann ætti hins
vegar inni 6 mánaða laun hjá
Ferðafélaginu.
Er Einar var spurður um af-
drif hinna frönsku ferðahópa
svaraði hann þvi til, að á
stjórnarfundinum á miðviku-
dag hefðu stjórnarmenn látið
það 1 ljós, að þeir væru reiðu-
búnir að taka á móti þessum 16
ferðamannahópum, er hann var
búinn að semja um. Sagði Einar
því einsýnt að baráttan sem
hefði farið fram í félaginu fyrir
aðalfundinn hefði þannig verið
á fölskum forsendum — hún
hefði ekki verið um stefnuna
gagnvart þessum frönsku ferða-
hópum heldur gegn sér per-
sónuleta.
Sigurður Jóhannsson, for-
maður félagsins, sagði að enn
væri allt óráðið um það hver
tæki við framkvæmdastjóra-
starfinu af Einari, en því sagði
Einar af sér þegar úrslit á aðal-
fundinum lágu fyrir. Sigurður
mótmælti hins vegar algjörlega
staðhæfingum Einars um að
kosið hefði verið á fölskum for-
sendum innan félagsins, enda
þótt það yrði að taka við
frönsku ferðahópunum í
sumar. Benti Sigurður á, að
framkvæmdastjórinn hefði
bundið hendur stjórnarinnar
án hennar samráðs hvað snerti
þessa frönsku hópa. Stjórnin
teldi samningagerð fram-
kvæmdastjórans bindandi en
hún hefði haft samband við
hina frönsku ferðaskrifstofu til
að fá ferðum hennar hingað nk.
sumar fækkað. A það hefði þó
ekki verið fallizt svo að stjórn
Ferðafélagsins væfi tilneydd að
standa við gerða samninga. Hitt
væri eins vfst að í framtiðinni
yrði ferðunum fækkað, enda
hafi aðalfundurinn markað þá
stefnu.
Kvöldvaka
KVÖLDVAKA verður haldin á
vegum Norræna félagsins í
Hafnarfirði sunnudaginn 9. marz
1975 í Iðnaðarmannahúsinu við
Linnetsstíg og hefst kl. 9 e.h. Páll
Kr. Pálsson organleikari segir frá
norska tónskáldinu Edvard Grieg,
og leikin verður tónlist eftir hann
á hljómplötum. Þá verður
sýndur síðari hluti Hafnarfjarðar-
kvikmyndar, en fyrri hluti henn-
ar var sýndur á kvöldvöku félags-
ins 17. nóvember í vetur.
Dagana 8.—11. maí n.k. verður
haldið vinabæjarmót i Bærum i
Noregi — en Bærum er vinabær
Hafnarfjarðar — og hefur Bær-
um lokalag — en svo heitir
norræna félagið þar — boðið
Hafnarfjarðarfélaginu að senda
fulltrúa og gesti á það mót. Með
þessari kvöldvöku lýkur 17.
starfsári Hafnarfjarðardeildar
Norræna félagsins.
Félagsmönnum er velkomið að
taka með sér gesti á kvöldvökuna.
Kaffi fæst keypt á staðnum við
vægu verðí.
r
Birgir Isleifur Gunnarsson á fundi borgarstjórnar:
Minnihlutafulltrúarnir vilja firra sig
ábyrgð á aðgerðum til lausnar
Athyglisvert framtak
SVO sem alþjóð er kunnugt
rekur rfkið hæli fyrir vanheilt
fólk, hvaðanæva að af landinu,
f Kópavogskaupstað. Kópavogs-
hælið var stofnað árið 1952 og
hefur starfsemi þess sffellt
verið að aukast sfðan enda vita
allir að þörfin er brýn til hjálp-
ar í þessum efnum.
Innan hælisins er nú starf-
ræktur þroskaþjálfaskóli, en
þar er sérmenntað fólk til
starfa fyrir vanheilt fólk í land-
inu. Þá eru og á hælinu starf-
andi læknar, kennarar, sjúkra-
þjálfi og aðsloóarfólk. Starfs-
fólkið allt er á annað hundrað,
en vistfólk um tvö hundruð.Svo
sem þessar tölur sýna má Ijóst
vera að á Kópavogshæli er
mikið starf unnið. En starfið er
ekki aðeins mikið á þessu stóra
heimili, heldur er samstarfs-
vilji fólksins óvenjulegur og vil
ég með þessum Ifnum vekja
athygli á einum þætti þessa
vilja.
Hinn 1. júnf sl. stofnaði
starfsfólk hælisins „leiktækja-
og ferðasjóð“ fyrir hina sjúku
sem það þjónar með vinnu
sinni. Þetta framtak er athygl-
isvert og einstakt og lýsir betur
en mörg orð innræti og áhuga
þessa fóiks sem velur sér starfs- \
vettvang meðal þessara
systkina okkar. Skömmu eftir
sjóðsstofnunina gekkst það
fyrir kaffisölu og söfnuðust þá
yfir 100 þús. kr. sem varið var
til kaupa á rennibrautum,
klifurgrindum og tjöldum. Og
nú skal enn meira gjört, þvf
starfsfólkið hefur undirbúið
hiutaveltu sem á að halda n.k.
sunnudag 9. mars kl. 14:00 f
Félagsheimilinu f Kópavogi.
Þar verða margir eigulegir
munir á boðstólum fyrir 50 kr.,
einnig flugferó og leikhúsferð.
Eg vil eindregið hvetja fólk til
að koma á hlutaveltuna og veita
með þvf þessu fórnfúsa starfs-
fólki uppörvun f framtakssemi
sinni. Þá mega aðstandendur
sjúklinganna og allir velunnar-
ar vel muna eftir þessum þarfa
sjóði, ef þeir geta látið fé af
hendi rakna f hann.
Sýnum f verki þökk okkar til
starfsfólks Kópavogshælis og
vistfólksins þar.
Arni Pálsson sóknarprestur.
—- r
Sr. Arni Pálsson:
Kópavogshæli — Myndin er tekin handan við Kópavoginn.
víða að af landinu og verið 30 f
hvert skipti. Mjög góð reynsla
hefur verið af skólahaldi stjórn-
málaskólans. Miðstjórn Sjálf-
stæðisflokksins ákvað s.l. haust
aó efna til verkalýðsskóla með
svipuðu sniði og stjórnmálaskól-
inn. Nú hefur verið ákveðið að
A FUNDI borgarstjórnar sl.
fimmtudag gerðu fulltrúar
minnihlutaflokkanna að umtals-
efni tillögu, sem þeir höfðu flutt
á fundi borgarráðs um aukafund f
borgarráði til að fjalla um endur-
skoðun á fjárhagsáætlun Reykja-
víkurborgar í ljósi þess vanda,
sem fyrir höndum er í efnahags-
málum. Skv. tillögunni átti borg-■
arráð að samþykkja að marka
þcgar þá meginstefnu, sern fylgt
yrði við endurskoðunina, og er
séð hefði verið eins nákvæmlega
og unnt væri hve mikið fé vantaði
til að endar næðu saman miðað
við gildandi fjárhagsáætlun og
óbreyttar framkvæmdir ákvæði
borgarráð hvernig vandanum yrði
mætt eftir einhverjum eða öllum
eftirtöldum leiðum. 1. Auknum
tekjum, 2. auknum eða breyttum
lánum, 3. sparnaði f rekstri, 4.
niðurskurði framkvæmda.
Borgarstjóri flutti við þetta
breytingartillögu, sem fulltrúar
minnihlutans vildu halda fram að
væri alger synjun um samstarf.
sem þeir hefðu verið að bjóða
með fyrrgreindri tillögu. Var til-
laga borgarstjóra samþykkt með
þremur atkvæðum gegn tveimur í
borgarráði. Á fundi borgarstjórn-
ar vísaði Birgir ísleifur Gunnars-
son borgarsjóri þessari gagnrýni
algerlega á bug og sagði að ef
fulltrúar minnihlutaflokkanna
hefðu haft hug á samstarfi, hefðu
þeir samþykkt sína tillögu, sem
væri i samræmi við þau vinnu-
brögð, sem ætíð hefðu tíðkast í
borgarstjórn og enginn hefði
hingað til haft neitt við að athuga.
Taldi borgarstjóri að eitthvað
annað en samstarf lægi að baki
tillögu minnihlutans, þ.e.a.s., að
með því að þeir hefðu ekki fengið
sína tillögu samþykkta teldu þeir
sig hafa frjálsar hendur til að
sýna ábyrgðarleysi við afgreiðslu
fjárhagsáætlunarinnar.
Skýrði borgarstjóri síðan frá
hvernig unnið væri að undirbún-
ingi endurskoðunar fjárhagsáætl-
unar.
1. Sparnaðarnefnd hefur verið
falið að yfirfara rekstraráætlun
borgarsjóðs í samráði við for-
stöðumenn allra stofnana borgar-
innar og mun að því loknu gera
borgaráði grein fyrir hennar áliti
á möguleikum til sparnaðar i
rekstri, svo og nauðsynlegum
rekstarhækkunum.
2. Borgarhagfræðingur vinnur
nú að athugun á eignabreytinga-
áætlun borgarsjóðs og kannar
m.a. kostnað allra þeirra verka,
sem í gangi eru, og leitast við að
gera sér raunhæfa grein fyrir
framkvæmdakostnaði þeirra
verka, sem ekki er byrjað á.
3. Borgarverkfræðingur vinnur
að sams konar athugun á gatna-
gerðarverkefnum.
4. Könnun fer nú fram á því
hvort unnt er að fá breytt láns-
kjörum á láni borgarsjóðs frá því
á s.l. hausti, þannig að greiðslu-
byrði vaxi ekki frá því sem áætlað
var, þrátt fyrir gengislækkun.
Síðan sagði borgarstjóri: „Enn
eru nokkur atriði óljós, áður en
unnt er að fá heildarmynd af
vanda borgarsjóðs. Má þar nefna
samninga á vinnumarkaðnum,
sem vafalaust koma til með að
hafa áhrif á útgjöld borgarsjóðs,
svo og hugsanlegar útsvarslækk-
anir i tengslum við þá samninga,
sem geta skert tekjur borgarsjóðs.
Þá er enn óvíst hvaða áhrif boðað-
ur niðurskurður á framkvæmdafé
rikisins hefur á framkvæmdir
borgarinnar. Jafnóðum og þessar
upplýsingar liggja fyrir mun
borgarráð fjalla ítarlega um stöð-
una og marka þá meginstefnu,
sem fylgja þarf til lausnar vand-
anum, eins og jafnaði hefur verið
gert um allar meiri háttar ákvarð-
anir við gerð fjárhagsáætlunar.
Borgarráð samþykkir þvi að halda
aukafund um þetta mál og fleiri
fundi eftir þörfum til að fjalla um
þennan vanda.“