Morgunblaðið - 09.03.1975, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MARZ 1975
7
Eftir alla deyfðina undanfar-
in ár eru ýmis teikn þess að
jassinn sé aftur að rétta úr
kútnum og öðlast fyrri vin-
sældir meðal almennings.
Töluverð endurnýjun hefur
átt sér stað í jassínum — í
sjálfri tónlistinni, um leið og
honum hafa bætzt nýir kraft-
ar og hlustendur, ungt fólk
sem margt fylgdi framþróun
pop-tónlistarinnar á endastöð
en átti þá naumast i annað
hús að venda en jassins.
Samfara þessari endurnýjun
hefur sviptivinda tekið að
gæta í jassheiminum, deilt er
um leiðir innan jassins og eins
og dæmin sanna hefur það
löngum verið þessari grein
tónlistar heillamerki. Styrj-
öldin stendur að þessu sinni
milli rafmagnssinnaðra tón-
listarmanna jassins og hinna
sem aðhyllast hefðbundinn
jasshljóðfæri. Bendir ýmis-
legt til þess að úr geti orðið
töluvert hatrömm deila,
kannski hin hatrammasta frá
því að be-bopparnir (Charlie
Parker, Dizzy Gillespie) lögðu
undir sig jassinn.
Ágreiningurinn nú á rætur i
tilraunum jasstónlistarmanna
til að hrinda árás rokksins á
sjöunda áratugnum með því
að aðlagast rokktónlistinni,
taka upp á arma sina raf-
mögnuð hljóðfæri (sérstak-
lega píanó og bassa — gítar-
inn kom fyrr) sem þá voru
orðin kjölfesta rokktónlistar-
innar. Oftast var þetta gert í
hreinni örvæntingu, stundum
þó af listrænni hugmynda-
auðgi en heldur var þetta
stefnulaus viðleitni allt til
þess að Miles Davis, mestur
áhrifamaður jassins nú í
seinni tið, veitti rafmögnun-
inni blessun sína fyrir nærri
áratug.
I
eftir BJÖRN VIGNI
SIGURPÁLSSON
hljómplata hans — „Solo Con-
serts“ kjörin jassplata ársins
af sama hópi manna.
Jarrett virðist allur hafa færzt
í aukana við þessa traustsyfir-
lýsingu og nýlega kastaði
hann stríðshanzkanum; fór
niðrandi orðum um rafmagns-
píanóið og þá sem á það leika.
„Ég þarfnast ekki flókins
kerfis stiliitakka til að láta í
mér heyrast," segir hann þar.
„Þegar ég sit við píanóið þá er
það samband mitt við hljóð-
færið sem máli skiptir, ekki
sambandið við stillitakkana.
Með rafmagnspíanóinu nærðu
engum yfirtónum, og maður
getur 'ekki notað líkamann.
bandarisk kvikmyndafélög til
að leggja 9 milljónir Banda-
ríkjadala í kvikmyndina, og
Fellíni getur því tekið upp
þráðinn að nýju.
„Auðvitað er ég himinlifandi,“
sagði Fellíni nú nýverið i við-
tali við gagnýrnandann John
Francis Lane hjá The
Daily American í Róm. „Þetta
táknar að heilt ár
er ekki farið i súginn, eins
og ég óttaðist. Cineriz-
kvikmyndafélagið hefur kom-
ið ákaflega illa fram við mig.
Ég var búinn að vinna í fjóra
mánuði gagngert að skera nið-
ur kostnaðaráætlun myndar-
innar og hafði tekizt að koma
henni niður í sem svarar 6,4
milljónum Bandaríkjadala,
auðvitað á kostnað fjölda per
sónanna og með því að fækka
sviðsmyndum og búningum.
En það var útilokað að ganga
lengra og þrátt fyrir það
ákvað Rizzoli, (en faðir hans
framleiddi fyrir mig La Dolce
Vita og Atta-og-hálfan) að fyr
irtæki hans stæði ekki að gerð
þessarar myndar. Síðan hef
ég ekkert heyrt frá Rizzoli.“
Fellíni og lögfræðingar hans
voru að undirbúa málshöfðun
gegn Rizzoli þegar Grimaldi
bauð honum að taka yfir
framleiðslu myndarinnar.
Fellíni segir, að sér hafi virzt
það beztu málalokin — „Eg
hef áður unnið með Grimaldi.
Hann framleiddi „Satyricon"
STRAUMAR
J assinn
dafnar
á ný
Hljómsveit Miles Davies hefur
á þeim árum sem síðan eru
liðin hrundið fram i sviðsljós-
ið þremur píanóleikurum,
sem verulega hafa látið að sér
kveða. Tveir þeirra, Herbie
Hancock og Chick Korea
sögðu algjörlega skilið við
gamla góða píanóið eftir að
þeir fóru frá Miles og settu á
laggirnar jass-rokk hljóm-
sveitir, þar sem þeir léku
sjálfir á rafmagnspíanó og
nutu auk þess liðsstyrks fleiri
rafmagnshljóðfæra. Þessar
hljómsveitir hafa leikið inn á
nokkrar hljómplötur, sem orð-
ið hafa mjög vinsælar, þótt
þær séu nú orðið ekki í mikl-
um metum hjá hinum strang-
trúaðri jassunnendum.
Þriðji píanóleikarinn, Keith
Jarrett, hefur aftur á móti eft-
ir tveggja ára veru hjá Miles
lýst órjúfandi tryggð við þetta
venjulega, gamla góða píanó,
sem jassinn hefur hingað til
reitt sig á og látið rafmagnið
lönd og leið. Svo virðist sem
stór hluti iassunnenda kunni
þessari ákvörðun vei og það
segir sina sögu að Jarrett var
kjörinn pianóleikari ársins í
kosningu jassgagnrýnenda
um víða -eröld i ‘imaritinu
Down beat og einnig var
Maður getur látið líta út sem
svo Sé en í raun notar maður
stillitakkana. Svo er líka önn-
ur — innri ástæða getum við
sagt — fyrir því að nota
venjulegt píanó. Við getum
litið á hvaða mann sem er,
sem leikur á píanó og er tal-
inn mikill listamaður á því
sviði af fólki sem hefur vit á
þeim hlutum. Til dæmis
Rubinstein. Reynið svo að sjá
hann fyrir ykkur sitjandi við
rafmagnspíanóið!"
FELLÍNSKUR
CASANÓVA
Fellíni er í dágóðu skapi um
þessar mundir. Allar horfur
eru á þvi að kvikmynd hans
um Casanóva, sem hann hefur
gengið með i maganum árum
saman, verði að veruleika.
Raunar hafði Fellíni unnið að
undirbúningi myndarinnar í
eitt ár, þegar hinn ítalski
framleiðandi myndarinnar
hætti vió allt saman, svo að
útlit var fyrir að Fellíni sæti
eftir með sárt ennið. En þá
bárust þær fregnir frá Holly-
wood, að þar hefði öðrum
landa hans i röðum kvik-
myndaframleiðenda, Alberto
Grimaldi, tekizt að fá ónefnd
sem ég tel eina af beztu mynd-
um minum og ég er viss um að
okkur á eftir að koma vel sam-
an aftur.“
Grimaldi er annars í hópi
þeirra ítölsku framleiðenda
sem mesta athygli hafa vakið
á undánförnum árum, sér-
staklega vegna þess að hann
tekur einatt að sér leikstjóra,
sem eru þekktir fyrir aðsóps-
miklar myndir i listrænum
skilningi frémur en peninga-
legum. Hann er Napólíbúi, 58
ára að aldri og fyrrum lög-
fræðingur að atvinnu, en af-
skipti af kvikmyndafram-
leiðslu hóf hann við spaghetti-
vestra og framleiddi m.a.
þann fyrsta sem Sergio Leone
er skrifaður fyrir. Síðan hefur
hann framleitt þrenningu
Pasólíni — Decameron, Kant-
araborgarsögur og Þúsund og
eina nótt, Síðasta tangó i
París eftir Bertolucci og um
þessar mundir vinna þeir
raunar saman að gerð „1900“
sem greint hefur verið frá hér
í þættinum. Að því búnu ætl-
ar Grimaldi að snúa sér að
næstu mynd Pasólíni, svo að
þéir Fellini fara varla af stað
fyrr en síðar á árinu eða hinu
næsta.
Til sölu er 3VÍ2 tonna dekkuð trilla. Þarfn- ast viðgerðar á vél og dekki. 40 grásleppunet fylgja. Upplýsingar í síma 95-5453. Efnalaug — Fatahreinsun. Vil kaupa góðar vélar, til notkunar í efnalaug. Tilb. sendist afgr. Mbl. merkt „Vélar — 6628"
Springdýnur Tökum að okkur að gera við springdýnur samdægurs. Sækjum ög sendum ef óskað er. Opið til 7 alla daga. KM springdýnur, Helluhraum 20, Hafnarfirði. Sími.53044. Brotamálmur Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. Staðgreiðsla. NÓATÚN 27. Simi 25891.
Húsdýraáburður Ökum húsdýraáburði á lóðir og dreifum úr ef óskað er. Ódýr og góð þjónusta. Uppl. í síma 1 7472. Milliveggjaplötur fyrirliggjandi. Athugið að nákvæmni í stærð og þykkt sparar pússningu. Steypistöðin hf., sími 33603.
Barnagæzla Tek ungabörn til dagvistunar, Bý i Langholtshverfi. Hef leyfi. Sími 83829. Hörgshlíð Almenn samkoma — boðun fagnaðarerindisins i kvöld sunnudag kl. 8.
Trillubátur 2'h tonn til sölu. Bátur og vél hvort tveggja mjög nýlegt. Uppl. i sima 21 71 2 eftir kl. 20 á kvöldin. Til sölu Jóns Sigurðssonar gullpeningur. Tilboð sendist Mbl. merkt: „J- 7138'.
íbúð óskast Tvær flugfreyjur óska eftir 3ja herb. ibúð. Uppl. i sima 20842. íbúð til leigu Rúmgóð 2ja herb. íbúð til leigu i 5 mán. (apríl — ágúst) með öllum húsbúnaði. Tilboð sendist Mbl. fyrir 20 þ.m. merkt: „Hliðar 9689 ",
Barngóð kona óskast til að gæta ársgamals drengs, helst í Breiðholti. Uppl. i sima 741 15. Ráðskona Óska eftir ráðskonustöðu. Er með eitt barn. Upplýsingar i sima 92- 2538.
íbúð óskast Reglusöm skrifstofustúlka í góðri vinnu með dreng óskar eftir 2ja herb. íbúð. Ennfremur óska ég að taka að mér heimav. S. 43263. Grásleppunet. Til sölu 30 ný og uppsett grá- sleppunet með blýum á neðri teini. Möskvastærð 11”. 7 mm nælon- lina i teinunum. Verð aðeins kr. 2.650 - netið. Upplýsingar i sima 22838.
Pianó óskast Óska eftir að kaupa píanó. Nánari uppl. í síma 26726. Til sölu Einbýlishús við Selbrekku í Kópa- vogi. Stærð um 160 fm. Hitaveita. Innbyggður bílskúr. Dr. Gunnlaug- ur Þórðarson hrl., Bergstaðastræti 74, sími 16410.
Húsnæði óskast Ung reglusöm stúlka utan að landi, sem stundar nám í Fóstru- skóla ísland0 ósknr eftii 1 —2ja . herb'. íbúð. Fyrirframgreiðsla ef óskað er. Uppi. í síma 361 13. LE5IÐ Wa em oiuldunga -atoa DHCLECD
rw
HJÓLH ÝSA TJÖLD
★ NOTIÐ FORTJÖLD Á HJÓLHÝSIN
★ TVÖFALDIÐ FLATARMÁLIÐ
PAMTID TÍMAMI FDA FYRIR SllMARIfí,
E. TH. MATHIESEN H.F.
. STRANDGÖTU 1—3, HAFNARFIPÐI. — SÍMI 51919 ,
Hörpun og mölun
jarðefna, fyllingar
Tökum að okkur að harpa og mala jarðefni hvar
sem er á landinu. Tökum að okkur stærri og
smærri fyllingarverk.
Malaður bruni, úrvals grús, sandur og möl.
Milliveggjaplötur fyrirliggjandi á lager.
Steypustöðin h / f,
sími 33600.