Morgunblaðið - 09.03.1975, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MARZ 1975
13
Auður Bjarnadóttir
í Þjóðleikhúsinu
Guðmunda Jóhannesdóttir
örn Guðmundsson
þann mund heim úr verslunar-
ferðinni, og rekur Franz umsvifa-
laust í burtu. Dr. Coppelius
verður undrandi þegar hann sér
að húsdyrnar standa opnar. En þá
uppgötvar hann að hann hefur
týnt lyklinum sínum. Fullur tor-
tryggni gengur hann inn í húsið.
2. þáttur.
Verkstæði dr. Coppeliusar.
Svanhildur og vinkonur hennar
ganga inn, mjög taugaóstyrkar.
Svanhildur herðir þó upp hugann
og dregur giuggatjöldin frá. Viti
menn, út við gluggann situr
Coppelia! Svanhildi verður þá
ljóst að stúlkan sem hafði töfrað
Franz, var ekki annað en vél-
brúða. Ótti stúlknanna hverfur og
þær setja allar vélbrúðurnar af
stað.
Skyndilega birtist dr.
Coppelius. Stúlkurnar flýja út,
því nú er öldungurinn orðinn
ævareiður, — allar nema Svan-
hildur — hún hefur falið sig bak
við gluggatjöldin. Dr. Coppelius
hefur varla náð andanum þegar
hann kemur auga á Franz sem er
að skríða inn um svalagluggann.
Hann gripur piltinn á staðnum og
krefst skýringar á framferði
hans. Franz játar að hann sé ást-
fanginn af Coppeliu. Sá gamli
gerir sér ljóst að hann muni geta
haft gagn af Franz til að blása lífi
í vélbrúðuna og býður honum vin-
glas. Hann hellir i tvö glös, en
með leynd hellir hann niður vín-
inu úr sinu glasi. Franz verður
alldrukkinn og f ellur síðan fram á
vinnuborð galdramannsins, með-
vitundarlaus.
Dr. Coppelius leitar ráða i
galdrabókinni sinni, síðan ekur
hann Coppeliu inn i hjólastól.
Hann beitir töfrabrögðum eftir
fyrirmælum bókarinnar og gerir
tilraun til aó flytja lif úr Franz
yfir í brúðuna. Það tekst, á undur-
samlegan hátt; smátt og smátt
vaknar Coppelia til lífs og verður
mannlegri og mannlegri.
Hún lifnar ekki eingöngu við,
heldur fer hún einnig að hegða
sér illa. Hún er bæði ókurteis og
kenjótt. Doktorinn reynir að siða
hana til og stingur upp á að hún
dansi fyrir sig. Hún dansar „a
l’espagnol" og síðan „Skotch Jig“
af krafti og ónákvæmni. Fram-
koma hennar öll er mjög ófáguð
og dr. Coppelius lætur hana
hverfa aftur á bak við glugga-
tjöldin.
Franz kemst smámsaman til
meðvitundar á ný og doktorinn
vfsar honum á dyr. En allt í einu
fara allar brúðurnar að dansa.
Svanhildur, sem hafði tekið á sig
gervi Coppeliu þegar öldungur-
inn gerði lífgunartilraunirnar, er
búinn að setja þær allar af stað.
Svanhildur og Franz hafa sæst
heilum sáttum og gera gys að dr.
Coppeliusi, sem grætur beisklega
af skömm og reiði.
3. þáttur.
Annarsstaðar á torginu, nokkr-
um dögum siðar. Ungmennin eru
að skreyta sviðið með silkiborðum
í tilefni af giftingu Franz og Svan-
hildar. Brátt koma brúðhjónin út
úr kirkjunni í fylgd með vinum
sínum, ásamt borgarstjóranum og
prestinum.
Þorpsbúar færa hinum
hamingjusömu ungu hjónum nyt-
samar brúðkaupsgjafir:
(a) Stúlkurnar gefa klukku,
svo þau megi eiga „góðar stundir
(b) Brúðarmeyjan lukt, sem tákn
um „ljós og birtu." (c) Tvær bestu
vinkonur Svanhildar færa þeim
tvo róðukrossa, svo þeim auðnist
„andleg sæla.“ (d) Fjórir aðrir
vinir færa þeim efnisstranga, svo
þau megi búa við „góð efni“ (d)
Aðrir vinir færa þeim brúðar-
tertu, sem tákn um „fullt hús
matarý
Dr. Coppelius kemur skyndi-
lega æðandi inn á sviðið, yfir-
þyrmdur af angist. Hann upplýsir
að brúðan sín hafi verið rænd,
fötin hennar eru horfin.
Svanhildur og Franz færa
honum gjöf, — föt brúðunnar.
Brúðan öðlast fegurð sína á ný og
gamli maðurinn gleði sína. Þegar
Franz og Svanhildur hafa dansað
saman „Pas de deux“, tekur sá
gamli þátt í lokadansinum, geisl-
andi af fögnuði.
Og það má kannski skjóta því að
i framhjáhlaupi hér i lokin að
Coppelia virðist eiga miklum vin-
sældum að fagna úti í hinum stóra
heimi um þessar mundir. Hjá
New York City Ballet settu þau
George Balanchine og Alexandra
Danilova í sameiningu upp
Coppeliu nú nýverið með þeim
McBride og landa okkar Helga
Tómassyni i hlutverkum Svan-
hildar og Franz. Er skemmst frá
því að segja að þessi uppfærsla
hefur fengið frábæra dóma. Hjá
The National Ballet of Canada er
nú á ferðinni annáluð sýning á
Coppelíu í uppfærslu danska
ballettfrömuðarins Eriks Bruhn,
og þar mun Rudolf Nureyev taka
við hlutverki Franz með vorinu,
er ballettflokkurinn fer sýningar-
för til Evrópu og til Bandaríkj-
anna. Raunar hefur Bruhn tekið
upp þá nýlundu í þessari sýningu
á Coppeliu að skeyta saman fyrsta
og öðrum þættinum og beina
þannig athyglinni meira að
persónu dr. Coppeliusar sjálfs.
Við þetta gjörbreyttist öll drama-
tísk framvinda verksins að því er
sagt er, ekki sizt eftir að Bruhn
brá sér sjálfur í hlutverk dr.
Coppelíusar.
—á.j.
Þórarinn Baldvinsson og Júlia Clairex f hlutverkum Svanhildar og Franz
■
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
LANDSPÍTALINN:
AÐSTOÐARLÆKNAR. Tveir aðstoðarlæknar
óskast til starfa á lyflækningadeild frá 1. mai n.k. Stöð-
urnar veitast til 1 árs. Nánari upplýsingar veita yfirlaeknar.
Umsóknarfrestur til 9. april n.k.
AÐSTOÐARLÆKNAR. Tveir aðstoðarlæknar
óskast til starfa á handlækningadeild frá 1. maí n.k.
Stöðurnar veitast til 1 árs. Nánari upplýsingar veita
yfirlæknar. Umsóknarfrestur til 9. apríl n.k.
KLEPPSSPÍTALINN:
AÐSTOÐARLÆKNAR. Tveir aðstoðarlæknar
óskast til starfa nú þegar eða frá 1. april n.k. Stöðurnar
veitast til 6 eða 12 mánaða. Nánari upplýsingar veita
yfirlæknar.
FÓSTRA óskast til starfa á dagheimili fyrir börn
starfsfólks spitalans nú þegar eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar veitir forstöðukonan simi 381 60.
HJÚKRUNARKONUR óskast til starfa á hinum
ýmsu deildum spítalans. Vinna hluta úr fullu starfi kemur
til greina. Upplýsingar hjá forstöðukonu, simi 38160.
Reykjavik, 7. marz 1975.
SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5, SÍM111765
Brjóstahöld
stutt og síð
Buxnabelti
með & án ská/ma
Buxnakorse/ett
Slankbelti
Litir: hvítt, svart
& og mislitt.
ÚRVALS LÍFSTYKKJAVÖRUR