Morgunblaðið - 09.03.1975, Side 46
4(3 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MARZ 1975
■wamMnrarariiR i iwcmMnnnPWTm'vu:!*^
Bréfadálkar
SíOunni hafa hurisl tvö hréf
og annaó all ítarlegt, eins og
sjá má. Ef reynt yrði að svara
báðum bréfunum út í ystu æs-
ar yrði senniiega lítiðeftir af
ö!Iu blaðinu fyrir annað. Svör-
in verða því að vera nokkuð
takmorkuð. Ln jafnframt vilj-
um við benda lesendum síð-
unnar á, að þessi bréía-dálkur
a-lli ekki eingöngu að vera í
forminu „spurt og svarað",
heldur er þessi dálkur hugsað-
ur til að opna lesendum sfð-
unriar leið inn í blaðið til að
lála í Ijós skoðanir sínar og
áiit á hverju þvi, sem snertir
krikmyndir eða kvikmynda-
skrif. Ég er viss um að það
lui.ia einhverjir á skömmum
— eða hrósi um eitlhvað. Látið
það bara koma.
En snúum okkur þá að fyrir-
spurnunum:
„Lg verð nú að byrja með
því að hrósa ykkur, sem standa
fyrir þessum dálki, ail ra-ki-
lega , þvf að þetla var einniitt
það sem vantaði. Kynning á
kvikmyndum er nauðsynleg
Ln ég hef nokkrar spurningar
l'ram að færa:
1) Hvenær verður fram-
haldsmyndin af „Borsalino &
Co.“ (sem var á frösnku kvik-
myndavikunni) sýnd hér,
þ.e.a.s. þriðja myndina að ég
held?
2) Ilafið þið nokkra hug-
mynd um hvað aðallagið í
myndinni heitir?
2) Ilvað getið þið fraitt mig
um Alan I)elon?
Vatnsberinn
f Reykjavík."
1) Borsalino & to. er rétti-
lega önnur Borsalino-myndin
og var frumsýnd seinl á síðasta
ári í París. I*ó framhaldi hafi
verið lofað í þessari mynd, hef
ég ekki heyrt, að það hafi verið
byrjaðá þriðju myndinni.
2) Því miður, en höfundur
tónlistarinnar er Claude Boll-
ing, ef það kemur að einhverju
gagni.
3) I fyrsta lagi að Alain er
skrifað með i. í öðru lagi það
sem uppsláttarhókin segir um
hann: Fa-ddur 8. 11. 1935, kom
fyrst fram á næturklúbbum,
byrjaði að leika í kvikmyndum
1957, í smáhlutverkum en fékk
fyrsta stóra hlutverkið í Roeeo
og bræður hans (19(>0) og hef-
ur leikið aðalhlutverk sfðan.
Þekktastur fyrir útlitið, enda
verið fengin hlutverk í sam-
ræmi við það. Stofnaði eigið
framleiðslufyrirtæki 1964, er
nefnist Adel. Hefur m.a. fram-
leitt báðar Borsalino-
m.vndirnar, sem gefur skýr-
ingu á því, hvers vegna Bel-
mondo var kálað í fyrstu
myndinni en ekki Delon, sem
ég persónulega hefði þó verið
sáttari við.
1 þriðja lagi slúðursögur:
Delon hefur verið nefndur f
sambandi við ýmis óþa*gileg
mál, svo sem eins og morðið á
Iffverði hans, en það mál var
nærri búið að koma Delon í
fangelsi, þar eð hann var jafn-
vel talinn standa á bak við
þetta morð. Annars er rétt að
benda Vatnsberanum á að not-
færa sér sambönd sín sem
Vatnsbera og hlusta eftir frek-
ari slúðursögum.
Þar sem við höfum mikinn
áhuga á kvikmyndum vildum
við gjarnan leita svara hjá
ykkur við nokkrum spurning-
um um málefni, sem okkur
leikur forvitni á að vita:
1) Hvaða ár var kvikmyndin
„Marooned" frá Columbia
Pictures og sýnd var í Stjörnu-
bíói undir nafninu „Geimfarar
í háska", framleidd?
2) Hvað hlaut kvikmyndin
„Cabarett" mörg Oscarsverð-
laun?
3) Hvað hafa verið fram-
leiddar margar myndir í
myndaflokknum um Apaplá-
netuna?
4) Hvað eru mörg Oscars-
verðlaun veitt árlega og fyrir
hvað?
5) Hvað hafa verið gerðar
margar James Bond myndir og
hvað heita þær?
6) Hvaða myndir Walt Disn-
eys fengu Oscarsverðlaun?
7) Verður Mary Poppins
endursýnd?
8) Voru persónurnar í
teiknimyndinni Kohin Ilood
teiknaðar eftir að Walt Disney
lést?
Með kærri þökk fyrir birt-
inguna á fyrra bréfi annars
okkar og mjög góð svör.
Pétur Eggerz
Pétursson
og Baldur
Ragnarsson.
Svo mörg voru þau orð. Jæja,
við reynum.
1) Erumsýnd 1969, í fram-
leiðslu frá 1967.
2) 7 Oscarsverðlaun. Ileim-
ildum ber þó ekki alveg sam-
an, þau ga:tu verið 8. En ef til
vill munið þið hvort Cabarett
eða Godfather far kjörin bezta
mynd ársins 1973?
3) 4 mér vitanlega. Planet
of the Apes, Beneath the I’lan-
et of the Apes, Escape from
Planet of the Apes og Con-
quest of the I’lanet of the
Apes.
Alain Delon, maðurinn með
útlitið.
4) Síðasta ár voru veitt 21
verðlaun. Besta mynd, besta
leikstjórn, besti leikari, besta
leikkona, besti aukaleikari,
besta aukaleikkona, bcsta
handrit (byggt á sögu eða leik-
riti), besta handrit (frumsam-
ið), besta kvikmyndataka,
besta sviðsmynd, bestu bún-
ingar, besta klipping, besta
frumsamda lagið, besta útsetn-
inga á eldra lagi, besta frum-
samda tónlistin, besta hljóð,
(hljóðupptaka og hljóðsetn-
ing), besta heimildarmynd í
fullri lengd, besta stutta lieim-
ildarmyndin, besta erlenda
myndin, besta stutt-myndin,
besta teiknimyndin. Síðan eru
einnig veitt þrenn verðlaun,
sem ekki falla undir heitið
Oscar.
5) Níu alis. Þær eru: Dr. No
(’62), Erom Russia with Love
(’63), Goldfinger (’64),
Thunderball (’65), Vou only
Live Twice (’67), allar með
Sean Connery. Síðan kemur
ein með George Lazenby, On
Her Majesty’s Secret Service
(’69), þá Connery aftur í Dia-
monds are Forever (’71) og
sfðan tekur Roger (Dýrlingur-
inn) Moore við í myndunum
Live and Let Die (’73) og The
Man with the Golden Gun
C74).
6) Walt Disney og myndir
hans hafa i samciningu fengið
37 Oscarsverðlaun, 17 fyrir
teiknimyndir, 7 fyrir heimild-
armyndir, 4 fyrir Mary Popp-
ins, 2 fyrir Eantasiu, 4 verð-
laun fyrir aðrar myndir og
persónulega 3 sérstök verð-
laun. Að fara að telja upp
nöfnin á þessum myndum
væri óðs manns æði.
7) Gamla Bió mun kaupa
nýtt sýningareintak af Mary
Poppins þegar þeim býðst það,
og verður myndin annað hvort
sýnd seint á þessu ári eða ein-
hvern tíma á þvi næsta að sögn
Hafliða Halldórssonar, for-
stjóra Gamla Bíós.
8) Walt Disney dó seint á
árinu 1966, en um aðiid hans
að Robin Hood veit ég ekkert.
SSP.
Stórmynd um
stórmenni
ir if if Kvikmynd um líf
Winston Churehills á yngri ár-
um hlýtur að vekja athygli, þó
að mynd um síðari æviár hans
vekti sennilega enn meiri at-
hygli. í þessari mynd er rakin
fjölskyldusaga Winstons, sam-
skipti hans við föður og móður,
skólaganga hans og þátttaka
sem fréttaritara i Búastríðinu, í
Sudan og á Indlandi. í lok
myndarinnar er ferill hans sem
stjórnmálamanns að hefjast.
Það hlýtur að vera erfitt að
velja og hafna efni í mynd sem
þessa, þar sem allt skiptir ein-
hverju máli. En leíkarinn og
(hér) leikstjórinn Richard Att-
enborough er yfirleitt stuttorð-
ur og gagnorður, fer hæfilega
hratt yfir sögu og kemur þó
persónunum vel til skila, jafn-
vel þeim, sem stysta viðdvöl
Simon Ward, sem Young
Winston.
hafa í myndinni. Sem sagt slétt
og felld kvikmynd, fagmann-
lega unnin og einstaka sinnum
rúmlega það. T.d. er blóðbaðið í
Sudan (Omdurman-bardaginn)
frábærlega gert atriði frá hendi
leikstjórans, kvikmyndatöku-
mannsins og klipparans. Og í
heildina er kvikmyndataka
Gerry Turpins mjög góð, sér-
staklega i bardagasenunum og
hópatriðum. Upphaflega var
myndin Young Winston 157
mín. á lengd og það veldur mér
nokkrum vonbrigðum, að útgáf-
an sem hér er sýnd skuli aðeins
vera um 130 mín. Hálftíma
stytting, hlýtur að hafa í för
með sér röskun á efni svona
myndar, breytingin getur verið
til batnaðar en samt sakna ég
þessa hálftfma. Sennilega hafa
Bretar sjálfir útbúið styttri út-
gáfu til sölu utan Bretlands. En
var þá ef til vill einnig hægt að
fá lengri útgáfuna til sýningar?
SSP
Donatas Banionis f SOLARIS
Menn í búri
ir if Höfundur handritsins er
Truman Capote, þekktur fyrir
bókina og myndina „Með köldu
blóði". Capote er ofarlega í
huga hér eins og áður glæpur
og refsing. En þó myndin, sem
gerist öll í fangelsi, lýsi gjör-
spilltu ástandi, sem þrír menn
kynnast samtimis, tveir sem
fangar og einn sam fangavörð-
ur, er engin tilraun gerð til að
taka neina afstöðu. Fangavörð-
urinn labbar að vísu út i lokin,
burt frá þessu brjálæði, yfir-
kominn af ógeði á þessari spill-
ingu, þar sem fangar og verðir
þeirra eiga jafnan hluta að
máli. En það er anzi lítil lausn.
Ef við lítum á fangelsið sem
stærri samfélagsheild er það
lítill ávinningur fyrir einstakl-
inginn að draga sig í hlé. Miðað
við hina skörulegu afstöðu, sem
Truman tók gegn dauðarefs-
ingu i bókinni „Með köldu
blóði” er þetta mikil afturför,
þar sem ódýrt drama er látið
skyggja á kjarna málsins. The
Glass House var upphaflega
gerð fyrir sjónvarp, og þegar
hún var sýnd i CBS hlaut hún
nokkurt lof sem raunsæ og
vekjandi.
SSP.
Solaris
A morgun, mánudag, mun
MlR gangast fyrir kvikmynda-
sýningu í Háskólabíó og verður
þar sýnd myndin Solaris. Verða
aðalleikarar myndarinnar, þau
Donatas Banionis og Natalja
Bondartsjúk, viðstödd sýning-
una. Er myndin sýnd hér á veg-
um Sovexportfilm og verslunar-
fulltrúans við sendiráð Sovét-
ríkjanna á íslandi, en innan
ramma þess kynningarmánað-
ar, sem félagið MÍR efnir til nú
i mars, í tilefni 25 ára afmælis
sins, segir i fréttatilkynningu
frá félaginu. Kvikmyndin Sol-
aris er byggð á vísindaskáld-
sögu eftir pólska rithöfundinn
Stanislas Lem og ér gerð sem
svar rússa við mynd Kubricks,
2001, A Space Odyssey. Höf-
undur myndarinnar er Andrei
Tarkovsky, en hann hefur aflað
sér mikillar frægðar þótt hann
hafi aðeins gert þrjár myndir
eftir að hann lauk námi 1960.
Myndin, sem hann gerði á und-
an Solaris, Andrei Rublev
(1966), beið á hillunni í all-
mörg ár, áður en hún var sýnd i
Rússlandi og ýmsar ástæður
eru taldar fyrir því, sem ekki
verða raktar. En þar sem er-
lendir gagnrýnendur hafa þeg-
ar jafnað Tarkovsky við helstu
snillinga í kvikmyndagerö til
þessa, er vert fyrir kvikmynda-
unnendur að setja sig ekki úr
færi við að kynnast verki eftir
þennan umtalaða höfund og
hagnýta sér þetta einstæða
tækifæri.
Abending
Á miðvikudagskvöldið 12,
mars, verður sýnd í sjónvarp-
inu heimildarmynd er nefnist
„Augað heyrir, eyrað sér”, sem
vert er að bendaáhugafólkium
kvikmyndir að sjá. Segir mynd-
in frá starfiogverkum Norman
MacLarens, sem er einn af
þekktustu höfundum teikni-
mynda og ýmissa smámynda, er
hagnýta sérstaka tækni kvik-
myndavélarinnar.
Sólskin
if Love Story var ákaflega velsótt
mynd, og átti það mikilli auglýsingu
að þakka Hvers vegna höfundar
Sunshine fóru að puða við að gera
þessa mynd, er sennilega að kenna
eintómri gróðavon þeirra og trausti
á áhorfendum Love Story, sem
mundu nú koma aftur með fleiri
vasaklúta til að vaeta Sagan er svo
tíl sú sama, umhverfið er ofurlitið
breytt en til að bæta það upp, eru
leikararnir hafðir eins líkir þeim Ry-
an O'Neal og Ali McGraw eins og
hægt er. Það má náttúrlega alltaf
reyna
SSP