Morgunblaðið - 09.03.1975, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MARZ 1975
47
Manntjón í
jarðskjálfta
Teheran, 8. marz. Reuter.
SEX manns að minnsta kosti fór-
ust i jarðskjálfta sem varð i suð-
urhluta írans í gær. Fréttir bár-
ust ekki af atburðunum fyrr en í
dag. Vitað er að níu manns slös-
uðust og er óttast að miklu fleiri
hafi grafist undir rústum. Tvö
þorp skemmdust mikið, um sex
hundruð íbúðarhús eyðilögðust
eða skemmdust og vinna björg-
unarsveitir Rauða ljónsins að því
að grafa í rústunum og hreinsa til.
Þorpin eru í grennd við hafnar-
borgina Bandar Abbas við Persa-
flóa.
Myndlistarkenn-
arar styðja FÍM
EFTIRFARANDI fréttatilkynn-
ing hefur Mbl. borizt frá Félagi
fslenzkra myndlistarkennara:
„Á fundi hjá Félagi íslenskra
myndlistarkennara 22. febr. 1975
var samþykkt að lýsa yfir fullum
stuðningi við Félag islenskra
myndlistarmanna í deilu þess vió
borgaryfirvöld Reykjavikur.
Félagið furðar sig á íhlutun
borgarráðs vegna ákvörðunar
meirihluta sýningarráðs um
strangt gæðamat á þeim mynd-
verkum er sýnd skulu á Kjarvals-
stöðum."
Norðurland en
ekki Norðurlönd
í listasprangi í blaðinu s.l. föstu-
dag urðu tvær misritanir í grein
um Skólakór Menntaskólans í
Hamrahlíð. Var þar sagt að
kórinn hefði sungið fyrir skömmu
i Bústaðakirkju en þar átti að
standa Langholtskirkju. Þá var
sagt að kórinn hefði farið í söng-
ferðalag til Norðurlanda á s.l. ári,
en þar átti að standa til Norður-
lands, en móttökur Norðlendinga
rómuðu kórfélagar mjög.
— Kirichenko
Framhald af bls. 48
embætti á islandi þá vakti
mikla athygli bæði vegna
stjórnmálaaðstæðna hér þá og
vegna hins að Kirichenko er
tengdasonur eins valdamesta
manns Sovétríkjanna, Gret-
skos, varnarmálaráðherra. Með
jafnskjótum hætti er nú ákveð-
ið, aó Kirichenko fari til Osló á
sama tíma og Sovétríkin virðast
leggja vaxandi þrýsting á Noró-
urlönd, með kröfu um að Norð-
urlöndin verði kjarnorku-
vopnalaust svæði og að Sovét-
ríkin fái einhvers konar aðild
að Noróurlandaráði.
— Friðrik
Framhald af bls. 48
Lombardf, og hafði hann einnig
svart. Þá á Keres ólokið skák
sinni gegn Espig úr 13. umferð,
og stendur hann því bezt að vfgi
allra keppenda.
Urslit annarra skáka í 14. um-
ferð urðu þau, að Lengyel vann
Espig, Lombardi vann Rantanen
og Nei vann Hernandez. Öðrum
skákum lauk með jafntefli. Stað-
an fyrir 15. og siðustu umferðina
var þá sú, að þeir Friðrik og Ker-
es voru með 9'á vinning, Breon-
stein var með 9 vinninga, Hort 8,'
Spasskí og Gisplis 7'á vinning,
Lombardi 7lA, Maravic og Nei 7
vinninga, Espig 6‘á, Taimanov 5'á,
Rytov 5, Rantanen og Langyel 4á,
Hernandez 4 og Kyarner 3‘á.
— Kissinger
Framhald af bls. 1
Stjórnmálasérfræðingar eru
þeirrar skoðunar að málið sé nú
komið á það stig aó bæði Egyptar
og ísraelar telji að einhvers konar
samningur sé eina lausnin sem
dugi. Aftur á móti sagði Sadat i
dag að enda þótt ástæða væri til
nokkurrar bjartsýni væri nauð-
synlegt að menn sýndu þolinmæði
þar sem mikla undirbúnings-
vinnu ætti eftir að inna af hendi
áður en niðurstaða fengist. Látið
var að því liggja að Kissinger
mundi þurfa að dveljast í Mið-
austurlöndum næstu tvær til
þrjár vikurnar við störf sin.
— Danmörk
Framhald af bls. I
mun strangara verðlagseftirliti og
takmörkun á greiðslu arðs af
hlutabréfum. Þá mun rfkisstjórn-
in beita sér fyrir því að bilið milli
innláns- og útlánsvaxta minnki,
að öllum líkindum með því að
lækka útlánsvexti.
Kommúnistar, sem formennsku
gegna i verkalýðsfélögum í Dan-
mörku, hafa gagnrýnt þetta frum-
varp harkalega og hvöttu á föstu-
dag til mótmælaaðgerða og verk-
falla. Áður þegar þessi hópur hef-
ur hvatt til slíkra aðgerða hafa
tugir þúsunda verkafólks tekið
þátt i aðgerðunum, en nú mættu
aðeins milli 2—3000 manns for-
svarsmönnunum aðgerðanna til
mikilla vonbrigða.
Samtök atvinnurekenda hafa
látið i ljós létti vegna þess aó
sæmilegur friður og stöðugleiki
verður tryggður á vinnumarkað-
inum næstu 2 ár og að atvinnufyr-
irtæki viti nú að hverju þau
gangi. Hins vegar hafa samtök
iðnrekenda látið í ljós áhyggjur
yfir því að launahækkanir skuli
yfirleitt leyfðar og að vísitalan
verði látin halda sér nær óbreytt.
— Prestskosning
Framhald af bls. 3
Theological Seminary í New York
borg 1970— 71. Ólafur var eftir
það settur kennari við gagnfræTia-
skóla Reykjavíkur. Hann hóf
kennslu í siðfræði við Mennta-
skóla Reykjávikur, er hún var
tekin þar upp sem kjörgrein
veturinn 73—74. Ólafur Oddur
Jónsson er kvæntur Eddu Björk
Bogadóttur.
— 25 ára
Framhald af bls. 19
sjá mð af þvl, aS hingaS koma heims-
frægir hljómlistarmenn til aS spila.
syngja og stjórna og telja þaS ekkert
tiltökumál.
Ég er ekki viss um aS fólk geri sér
þetta fyllilega Ijóst — eSa kunni til
fulls aS meta þaS, sem hefur veriS
gert. Til dæmis finnst mér ungu tón-
skáldin stundum heldur ósanngjörn,
þau fá þó verk sín flutt, sem hefSi
veriS óhugsandi ekki alls fyrir löngu.
Fyrir mig þýSir þessi breyting, aS
mér líSur vel hér ! Reykjavík, aS þvi
leyti, aS hér er nú fastmótaS allgott
tónlistarlíf. AuSvitaS væri æskilegt
aS geta spilaS oftar opinberlega meS
hljómsveit, þaS verSur svo mikiS
átak aS koma fram þegar þaS er gert
svona sjaldan — en þaS yrSi þá aS
vera víSar um landiS, ég er ekki viss
um, aS ég vildi leika oftar ! Reykja-
vfk meS hljómsveitinni.
A8 sjálfsögSu mð tónlistarlif okkar
heldur ekki staSna, og margt þyrfti
aS breytast, til dæmis vissar aSstæS-
ur. Tökum til dæmis Háskólabió, þaS
er gersamlega óþolandi hljómleika
hús, sérstaklega vegna þeirra trufl-
ana, sem hljómleikagestir og hljóm-
listarmenn verSa aS búa þar viS. ÞaS
er fráleitt, aS hljómleikahús sé
þannig úr garSi gert, aS hvaSa krakki
sem er, geti meS ópum og ólátum úti
fyrir eySilagt heilu hljómleikana og
bókstaflega hrakiS heimsfræga snill-
inga út af sviSinu — ég hef séS þaS
gerast og skiptir raunar ekki máli,
hvort ! hlut eiga frægir menn eSa
ekki. Vafalaust er erfitt aS samræma
kvikmyndahús og hljómleikasal, en
þegar til þess er hugsaS. aS þetta
hús var reist meS hljómleikahald
fyrir augum jafnframt kvikmynda-
sýningum, var algert skilyrSi aS ein-
angra þaS svo vel aS flytjendur og
áheyrendur fengju friS fyrir alls
konar ólðtum úti fyrir — og þaS
hefur alls ekki tekizt! Háskólabfói.
— mbj.
- Verkalýðsskóli
Framhald af bls. 2
hann að gera nokkra grein fyrir
skólahaldinu. Hann sagði: Skól-
inn hefst 20. marz n.k. og stendur
í fjóra daga eða til sunnudagsins
23. marz n.k. Skólinn verður hald-
inn í Miðbæ v/Háaleitisbraut og
hefst kennsla kl. 9.00 og stendur
til hádegis, en að loknu matarhléi
er byrjað á ný kl. 13.30 og haldið
áfram til kl. 19.00. Námsgreinar
hafa verið rækilega auglýstar, en
þar er fjallað um helstu viðfangs-
efni í verkalýðsmálum, stjórnmál-
um og félagsmálum. Sérfræðing-
ar á hverju sviði flytja fyrirlestra
og annast kennsluna að öðru leyti.
Auk þess verða nemendum af-
hentar ýmsar upplýsingar um þau
mál, er fjallað verður um.
Aðspurður um tilgang skóla-
halds af þessu tagi, sagði Þorvald-
ur:
Megintilgangurinn með verka-
lýðsskóla Sjálfstæðisflokksins er
að veita þátttakendum aukna
fræðslu um verkalýðsmál og
starfsemi verkalýðsfélaganna og
gera þá hæfari til þátttöku í þeim,
um leið og við reynum að veita
nemendum dýpri innsýn í stjórn
mál en menn eiga kost á daglega
og gera þeim grein fyrir bæði
hugmyndafræðilegu og starfrænu
baksviði stjórnmálanna. Við
kynnum jafnframt fyrir nemend-
um á hvern hátt fagleg verkalýðs-
barátta er nátengd stjórnmálun-
um á hverjum tíma. Mikilvægur
þáttur í skólahaldinu er að þjálfa
nemendur i að koma fyrir sig orði
og taka þátt í almennum umræð-
um, en þjálfun af því tagi er yfir-
leitt ekki hægt að fá I skólum
landsins, en með þessu móti vilj-
um við gera fólk hæfara til þátt-
töku í stjórnmálum og almennum
félagsmálum.
Þarf það sjálfstæðisfólk, sem
áhuga hefur á skólahaldinu aó
vera flokksbundið, eða eru sett
einhver skilyrði fyrir þátttöku?
Nei, það eru engin skilyrði sett
til þátttöku í verkalýósskólanum.
Skólinn er opinn öllu sjálfstæðis-
fólki hvort sem það er flokks-
bundið eða ekki. Ástæða er til að
árétta alveg sérstaklega að hann
er opinn fólki á öllum aldri úr
hvaða verkalýðsfélagi sem er.
Að lokum vildi Þorvaldur taka
fram: Nú þegar hafa margir skráð
sig til þátttöku í skólanum og ég
hvet menn til þess að gera það
sem allra fyrst, þar sem þátttaka
er takmörkuð, en allar nánari
upplýsingar um skólann eru veitt-
ar í síma: 17100 og 18192.
I skólanefnd verkalýðsskólans
eiga sæti: Þorvaldur Mawby, for-
maður, Pétur Maak verzlunar-
maður, Guðmundur Hallvarðsson
sjómaður, Hilmar Jónasson
verkamaður og Guðmundur
Gunnarsson rafvirki.