Morgunblaðið - 09.03.1975, Side 48
m®rjs*i*ii>Iaí»í&
RUGivsmcnR
^Ur^»22480
nuGivsinGnR
^£^-»22480
55. tbl. 62. árg.
SUNNUDAGUR 9. MARZ 1975
55. tbl. 62. árg.
Sovézki sendiherrann á förum:
Kirichenko
fer til Oslo
YUHI A. Kirichcnko, sem verirt
hefur sendiherra Sovétríkj-
anna á Islandi um nokkurt
skeið, er á förum og mun taka
við sendihérraembætti i ösló
innan skamms. Frá þessu er
skýrt í norska dagblaðinu
Morgenl>ladet i gær. Sovézki
sendiherrann i Osló, Roman-
ovski, hefur verið kallaður
heim til Sovétrikjanna. Sam-
Tékkhefti stolið
á Tékkalandsleik
TÉKKHEFTl var stolið af manni
nokkrum s.l. þriðjudagskvöld, er
íiann var að horfa á handknatt-
leikslandsleik Tékka og Islend
inga. 1 heftinu voru 6 blöð, og
hafa 4 þeirra komið fram og var
búið að falsa þær ávísanir. Ekki
var um háar upphæðir að ræða.
Þá var í veskinu ávisun að upp-
hæð 30 þúsund krónur, stiluð á
Inga Þorbjörnsson. Eru menn
beðnir að vara sig á þeirri ávisun.
Allir þeir sem einhverjar upplýs-
ingar geta gefið um þennan þjófn-
að eru beðnir að hafa samband
við rannsóknarlögregluna.
Reynt að ná
ísleifi út
BJÖRGUNAKSKIPIÐ Goðinn
ætlaði að reyna að ná Isleifi VE af
strandstað vestan Ingólfshöfða á
háflóði i gær. Þegar Mbl. hringdi
þangað austur síðdegis, voru
menn bjartsýnir á að tækist að ná
bátnum á flot. Háflóð var um
klukkan 17.
kvæmt upplýsingum sem Morg-
unblaðið hefur aflað sér verður
nýr sovézkur sendiherra hér
maður að nafni Fara Fonou.
Frá 1972 hefur hann verið að-
stoðaryfirmaður Norðurlanda-
deildar utanríkisráðuneytisins
i Moskvu, en áður var hann
næstæðsti maður sovézka sendi-
ráðsins í Helsingfors.
Brottför Kiriehenko frá Is-
landi ber að með jafnskjótum
hætti og koma hans hingað.
Hann var skipaður sendiherra
Sovétríkjanna hér með mjög
skömmum fyrirvara á timum
vinstri stjórnarinnar í ágúst
1973, þegar Sovétrstjórnin
gerði sér vonir um, að banda-
ríska varnarliðið hyrfi af landi
brott. Skípan hans í sendiherra-
Framhald á bls. 47
Ljósm. Helgi Olafsson.
BRUARFOSS, — skip Eimskipafélags íslands, strandaði síðastliðinn miðvikudag
við Raufarhöfn. Myndin er tekin af skipinu á strandstað, en þaó losnaði fyrir eigin
vélarafli samdægurs.
Gott verð og mikil eftirspurn
eftir skreið á Nígeríumarkað
— Líkur á að innflutningsleyfi fáist fyrir
alla framleiðslu Norðmanna og íslendinga
GÖÐ og mikil eftirspum er nú
eftir skreið fyrir Nígeríumarkað
og fæst gott verð fyrir skreið til
Nígeríu að sögn Stefáns Gunn-
laugssonar sendiherra í London
og Bragi Eiríksson hjá Sölusam-
lagi skreiðarframleiðenda eru ný-
komnir úr ferðalagi til Nígerfu til
þess að kanna ástand og horfur á
skreiðarmarkaðinum og var
Bragi væntanlegur heim í gær-
kvöldi.
Stefán sagði að samkvæmt þeim
upplýsingum sem lægju fyrir
væri ekki útlit fyrir að innflutn-
ingur á skreið til Nígeríu yrði
gefinn frjáls eftir 1. apríl eins og
5 skuttogarar
seldir úr landi?
— Pólsku 750 tonna togararnir
5 stórir íslenzkir skuttogarar eru
nú á söiulista erlendis og er verið
að kanna hvaða möguleikar eru á
að selja þá og fyrir hvaða verð. Að
sögn eins útgerðarmannsins er
aðalástæðan sú að enginn rekstr-
argrundvöllur er fyrir þessa tog-
ara. Hér er um að ræða póisk-
smfðuðu skuttogarana Baldur
Pétur H.J. Jakobsson
yfirlœknir iátinn
PETUR H.J. Jakobsson, prófessor
og yfirlæknir við fæðingardeild
Landspftalans, lézt f fyrrinótt
tæplega sjötugur að aldri.
Pétur Jakobsson fæddist á
Húsavík 13. nóvember 1905,
sonur hjónanna Jóns Ármanns
Jakobssonar kaupmanns og Val-
gerðar Pétursdóttur. Hann varð
stúdent 1927 og lauk prófi í lækn-
isfræði við Háskóla Islands 1933.
Að loknu læknisfræðiprófi fór
Pétur til framhaldsnáms í Dan-
mörku og síðan Þýzkalaridi. Arið
1948 varð hann forstöðulæknir
fæðingardeildar Landspítalans og
1957 yfirlæknir deildarinnar.
Hann kenndi kvensjúkdómafræði
við Háskóla Islands og var skóla-
stjóri Ljósmæðraskóla Islands.
Pétur skrifaði talsvert um sér-
grein sína innan Iæknisfræð-
innar.
Kona Péturs Jakobssonar er
Margrét Einarsdóttir hjúkrunar-
kona og áttu þau tvö börn, sem
bæði eru uppkomin.
EA, Engey, Guðstein, Hrönn og
Ver, en þeir eru allir um 750 tonn
að stærð.
Einhverjir af útgerðaraðilum
þessara togara eru að kanna sölu
á skipum sfnum með það fyrir
augum að kaupa minni skip, en
eitthvað mun hafa borist af fyrir-
spurnum í þessa togara frá Aust-
ur-Evrópulöndum, Kuwait og
fleiri löndum, en engar ákvarðan-
ir hafa verið teknar í þessu sam-
bandi.
í lífshættu
MBL. hafði sfðdegis í gær sam-
band við gjörgæzludeild Borgar-
sjúkrahússins og spurðist fyrir
um Ifðan þeirra tveggja sem iagð-
ir voru inn á deildina á föstudag
eftir slys. Fékk blaðið þær upp-
lýsingar, að 9 ára stúlkan sem
varð fyrir bifreið á Kleppsvegi
væri á batavegi, en tvftugi piltur-
inn sem varð undir vegg í Kvista
landi er meira slasaður en óttast
var í fyrstu og er hann talinn f
Iffshættu.
búizt hafði verið við og því yrði
innflutningur áfram háður inn-
flutningsleyfum. Hins vegar væri
reiknað með leyfum fyrir allt það
magn sem bæði Islendingar og
Norðmenn vildu flytja inn. Þessi
mál munu þó væntanlega skýrast
enn betur þegar Govon Nigeríu-
forseti flytur fjárlagaræðu sína 1.
apríl n.k. 1 marzlok og aprílmán-
uði er aðal upphengingartími
fyrir íslenzka skreið.
Friðrik gerði jafn-
tefli við Bronstein
FRIÐRIK Olafsson tefldi við
Bronstein f 14. umferðinni á
skákmótinu f Tallin, en umferðin
var tefld f fyrrakvöld. Skákinni
lauk- með jafntefli. Keres tefldi
við Spasskf, og lauk þeirri skák
einnig með jafntefli. Voru þeir
Friðrik og Keres efstir og jafnir
með 9!4 vinning fyrir sfðustu um-
ferðina sem tefld var seinnipart-
inn í gær. Höfðu ekki borist
fregnir af þeirri umferð þegar
blaðið fór í prentun í gær. Friðrik
átti að tefla gegn Gipslis og hafði
svart. en Keres átti að tefla gegn
Framhald á bls. 47
Hvassafell og
Flatey mannlaus
Skipverjar og björgunarsveitar-
menn tit Húsavíkur í gœr
LAUST fyrir hádegi í gær fóru
síðustu menn frá borði á Hvassa-
fellinu á strandstað við Flatey, en
ekki var talin ástæða til þess að
vera lengur um borð þar sem ekk-
ert var hægt að gera og sama
hrfðarveðrið hélzt á með 7—8
vindstigum af norðaustri.
I fyrrinótt barðist skipið nokk-
uð harkalega á strandstað því
brotsjóar stóðu á skipinu. Var það
farið að snúast í gærmorgun og
var því ákveðið að taka skipverja
til lands í björgunarstól. Við höfð-
um talstöðvarsamband við mb.
Svan frá Húsavík um hádegisbil i
gær þar sem hann lá í Flateyrar-
höfn.
Ingvar Hólmgeirsson, skipstjóri
á Svan, sagði að síðustu skipbrots-
mennirnir 8, sem voru um borð,
væru á leiðinni suður Flatey
ásamt björgunarsveitarmönnun-
um 16 og síðan átti að halda með
allan mannskapinn til Húsavíkur
og skilja skip og ey mannlaus
eftir.
„Það var ágætt að liggja hérna
inni við Flatey i nótt,“ sagði
Ingvar, „en fyrir utan höfnina er
vaðandi brimgarður. Ég veit ekki
ennþá hvort að við komumst út úr
höfninni í gegn um brimgarðinn,
þvi sortinn og hríðarkófið er svo
rnikið hér, en við kíkjum á það
þegar mannskapurinn er kominn
um borð. Það eru hér 7—8 vind-
stig af norðaustri og spáin er sú