Morgunblaðið - 15.03.1975, Síða 1

Morgunblaðið - 15.03.1975, Síða 1
32 SIÐUR 60. tbl. 62. árg. LAUGARDAGUR 15. MARZ 1975 Prentsmiðja Morgunbiaðsins. Ljósmynd: Sigurgeir. LOÐNAN — Heildaraflinn á loðnuvertíðinni fór í gærkvöldi yfir 400 þús. lestir og þessi þrjú skip, sem sjást á þessari mynd eiga ekki svo lítinn hlut í þessum afla. Skipin eru frá vinstri Gísli Árni, Börkur og Sigurður og hafa þau raðað sér í efstu sætin á þessari loðnuvertíð. MethaUi hjá stióm Dana Frá Jörgen Harboe Kaupmannahöfn í gær. EFNAHAGSÁÆTLUN stjórnar Anker Jörgensens forsætisráð- herra hefur verið samþykkt en nú er komið að skuldadögunum og reikningurinn verður hár. Fjárlögin verða tekin fyrir í þinginu í næstu viku og þar er gert ráð fyrir haila sem nemur 8,6 milljónum dönskum krónum. Hallinn á fjárlögunum sem voru samþykkt i tíð minnihluta- stjórnar Poul Hartlings nam „aðeins“ 5,1 milljón d.króna. En Jörgensen hefur ekki viljað sam- þykkja ýmis aparnaðaráform fyr- irrennara síns og hyggur auk þess í fjárfrekar ráðstafanir tii að auka atvinnu. Stjórn Hartlings vildi skera niður barnalífeyri, en það vildi Jörgensen ekki. Sósíaldemókrat- ar vilja heldur ekki takmarka námsstyrki ungs fólks. Hagfræðingar, sem hafa kynnt sér fjárlagafrumvarpið, spá þvi að hallinn verði ennþá meiri. Til dæmis er gert ráð fyrir því í frum- varpinu að atvinnuleysi sé 4% en samkvæmt síðustu útreikningum verður5% atvinnuleysi 1975—76. Dönsk blöð ræða mikið um væntanlegan methalla á fjárlög- unum. „Jyllandsposten" talar um gengisfellingarótta. „Þeim ótta er aðeins hægt að eyða,“ ségir blað- Framhald á bls. 31 Bankar í Portúgal þjóðnýttir Spinola á leið tii S-Ameríku Lissabon 14. marz Reuter. NTB. — byltingarrAðið í Portúgal gaf f dag út tilskipun þess efnis að flestir bankar í land- inu skyldu þjóðnýttir og tók ráðið þar með ótvíræða vinstri sveigju. Tilskipunin er undirrituð af með- limum byltingarráðsins sem leysti í gærkvöldi upp hið svo- kallaða fyrrverandi þjóðarráð. — Mikill viðbúnaður hersins í Portúgal hefur verið fyrirskipað- ur vegna stöðugra frétta um erlenda íhlutun i Portúgal sem allar hafa verið bornar til baka og vegna þess, að óttazt er að óeirðir brjótist út. — Spinola fyrrverandi forseti landsins lagði af stað frá Spáni i dag ásamt eiginkonu sinni og nokkrum herforingjum, sem hann hafa stutt. Hann mun ætla til Suður-Ameríku, sennilega Argentinu eða Brasilíu, en þar búa ýmsir þeirra fyrrverandi valdamanna Portúgals, sem hann átti hlut aé því að steypa af stóli í fyrra. Meðal þeirra er Marcel Caetano. Forystumenn Sósíalistaflokks- ins, Mario Soares utanríkisráð- herra og kommúnistaleiðtoginn Alvaro Cunhal áttu með sér lang- an fund í - dag í aðalstöðvum Atvinnuleysi eykst í Japan Tókíó 14. marz Reuter. ATVINNULEYSI í Japan hefur vaxið mjög upp á sfðkastið og í janúarmánuði var tæp milljón manns atvinnulaus. Var þetta í fyrsta skipti í átta ár að hlutfall atvinnulausra hefur náð 2%. kommúnistaflokksins. Eftir því sem áreióanlegar heimildir hafa fyrir satt ræddu þeir um mögu- leikana á þvi að mynda sameinaða fylkingu, en ekki eru þó áform á prjónunum um að flokkarnir bjóði fram sameiginlegan lista i kosningunum í næsta mánuði. Síðustu tvo mánuði hefur gert vart við sig alvarlegur ágrein- ingur milli sósíalista og kommúnista, sérstaklega varð- andi stöðu verkalýðsfélaga. Bankar þeir sem verða þjóð- nýttir í Portúgal samkvæmt yfir- lýsingu stjórnarinnar hafa verið í eigu sterkríkra fjölskyldna. Ekki var sagt til um, hvort eigendum yrðu greiddar bætur. Útibú erlendra banka verða að svo stöddu ekki þjóðnýtt. Þrír bankar í Portúgal voru þjóðnýttir á fyrra ári. Sérfræðing- ar telja að þjóónýtingin muni hafa mjög mikil áhrif á efnahag landsins þar sem ýmsar iðngrein- ar í landinu eru undir eftirliti bankanna. Ekkert hefur verið látið uppi um það hvort Miðdemókrata- flokkurinn verði bannaður. Þykir það heldur ósennilegt sem stend- Framhald á bls. 31 Thatcher vinsælust London 14. marz. Reuter. MARGARET Thatcher er vinsælasti stjórnmálamaður Bretlands að liðnum 31 degi sem formaður thaldsflokks- ins. Kemur þetta fram í nið- urstöðum tskoðanakönnunar Louis Harris stofnunarinn- ar. Aðspurðir um hvern kjós- endur vildu sem forsætis- ráðherra kváðust 48% vilja Thatcher, en 31% studdi Wilson. Þá nýtur thalds- flokkurinn nú stuðnings 47H% kjósenda á móti 39‘A% sem fellur í skaut Verkamannaflokksins. 99 Strauss kallaður gáfaður hryðju- verkamaður” Bonn 14. marz Reuter. NTB STJÓRNARANDSTAÐAN á sam- bandsþinginu í Bonn gekk út úr þingsalnum í gærkvöldi eftir að leiótogi þingfiokks jafnaðar- manna, Herbert Wehner, hafði lýst Franz Josef Strauss sem „gáf- uðum hryðjuverkamanni". Var þessi yfirlýsing gefin þegar tólf tíma umræðum um innlend ör- yggismál var að ljúka og lét Wehner ekki þar við sitja heldur sagði að meiri hlutinn af starfs- bræðrum Strauss væru áróðurs- meistarar á borð við Göbbels. Fulltrúar CDU og CSU risu þá úr sætum og gengu í áttina til veitingasalarins. „Skál,“ hrópaði Wehner þá á eftir þeim „því að ég býst við að þið ætlið þangað." „Ákaflega erfitt oghættulegt mál” — sagði dr. Max Euwe forseti FIDE í sam- tali við Mbl. „ÞETTA er ákaflega erfitt og hættulegt mál og ég hef ekki minnstu hugmynd um hver úr- slit atkvæðagreiðslunnar verða, en eins og málin horfa við tel ég jafnar likur,“ sagði dr. Max Euwe forseti Alþjóða skáksam- bandsins, FIDE, í samtali við Morgunblaðið f gær um auka- þing FIDE, sem haldið verður í Hollandi næsta þriðjudag, til að fjalla um kröfur Bobby Fischers um breytingar á regl- unum um heimsmeistaraein- vígið í skák. Við spurðum dr. Euwe hvað hann héldi, að sovézka skák- sambandið myndi gera, ef þing- ið samþykkti að verða viö kröf- um Fischers. „Það er ekki hægt að segja um það, Sovétmenn- irnir hafa gagnrýnt FIDE mjög mikið fyrir þetta aukaþing, en ég tek það ekki til mín persónu- lega, því að ég er alveg á sama máli og þeir, en ég hef ekki atkvæðisrétt og komst ekki hjá því að boða þetta aukaþing. Ég var á móti því og ráðfærði mig við marga lögfræðinga og þeir voru allir sammála um að FIDE gæti skipað mér að boða til þingsins. Ef þriðjungur aðild- arfélaga FIDE fer fram á að slfkt þing verði haldið, verður forseti FIDE að verða við beiðninni. Alls sækja þingið fulltrúar 60 aðildarríkja og þarf einfaldan meirihluta til að afgreiða mál. Við spurðum dr. Euwe hvort hann teldi einhverja mögu- leika á málamiðlunarlausn, en hann svaraði því til, að eins og málin horfðu við nú, neitaði Fischer að ræða slíkt og Rússar mættu ekki heyra á það minnzt. „Þetta er ákaflega erfitt og mun valda okkur erfiðleikum, sama á hvorn veginn atkvæða- greiðslan fer. Ég er sjálfur full- viss um að Fischer muni ekki tefla, ef hans krafa verður felld, þrátt fyrir hin gífurlegu verðlaun, sem í boði eru. Erfitt er að segja um hver afstaða Rússanna verður ef Fischers- menn sigra á þinginu."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.