Morgunblaðið - 15.03.1975, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.03.1975, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1975 SCHM «Í1|1M Olifsson og Valdimar Örnólfsson Eina óhappið þegar Margrét viðbeinsbrotnaði Rætt við Gilbert Reinisch um Frakklandsferð íslenzks skíðafólks Fyrir skómmu kom til lands- ins 15 manna hópur skíða- manna, sem um tveggja vikna skeið æfði brun og stórsvig með frónskum skíðamónnum í F’rónsku Ölpunum. 1 þessum hópi voru átta Akureyringar, en fararstjóri var Frakkinn Gilbert Reinisch, sem um tveggja ára tímabil hefur kennt íslendingum á skfðum. Við hittum Gilbert að máli á dógun- um og báðum hann að segja okkur frá þessari æfingaför. „Þessi ferð komst upphaflega til tals í fyrravor, þegar átta Reykvíkingar fóru til Frakk- lands til að taka þátt í vornám- skeiði franskra skíðamanna, sem haldið er á einum jöklanna í Ölpunum. Þar var íslending- unum sagt, að þeir gætu verið með í brunnámskeiði, sem átti að haldast eftir áramótin i þorpinu Col St. Jean í S- Ölpunum. Við heimkomuna var haft samband við formann Skíðasambands Íslands, sem svo kom þessu á framfæri við öll skíðaráð landsins. Endaði þetta með þvi, að 8 Akureyring- ar og 5 Reykvxkingar voru skráðir í þessa ferð.“ — Ilvernig gekk ykkur svo í Col St. Jean? — Þegar við komum þangað var orðið svo til snjólaust í suðurhluta Alpafjallanna, og alls ekki hægt að halda nám- skeiðið í þessu þorpi eins og til stóð og við það breyttist málið nokkuð. Námskeiðið var sett á laggirnar af franska skíðasam- bandinu og þjálfararnir frönsku sögðu stráx, að við gæt- um ekki tekið þátt í nýju nám- skeiði, sem átti að halda t norðurhlíðum Alpafjalla, fyrst og fremst vegna plássleysis — það var víst ekki nóg pláss fyrir alla Frakkana. — Ilvaðgerðuð þið þá? — Ur því að við vorum komin til Frakklands, þá fór ég á stúfana og reyndi að finna stað, þar sem krakkarnir gætu skíð- að í bruni og stórsvigi, og fyrst og fremst stað, þar sem þau gátu skíðað hratt og lengi... Að lokum fundum við stað La Foux D'Allos, sem liggur ekki mjög iangt frá Nissa, í Suður- Ölpunum. A þessum stað hafði nýlega fallið mikill snjór og fimm skíöamót átti að halda þar á þeim tima, sem viö ætluðum að dveljast í Frakklandi. Fyrst ber að telja Bikarmeistaramót frönsku háskólanna (stúdenta- mót), tvær stórsvigskeppnir og 1 svigkeppni, þá var haldið 1 stórsvigsmót í líkingu við punktamótin okkar og ein brunkeppni, sem var aðalástæð- an fyrir dvöl okkar á þessum stað. Formanni skíðasambands- ins og formönnum skíðaráð- anna og þjálfurunum hér heima fannst mest um vert að vita hvernig krakkarnir væru undirbúin fyrir þær greinar, sem lítið er hægt að kenna eða æfa hér á landi eins og t.d. brun og okkur þótti litið til þess koma á láta krakkana æfa í svigi, þegar þau fóru aðallega til að æfa og keppa i stórsvigi og bruni.“ — Hvernig gekk svo í mótun- um? — íslendingunum var leyft að taka þátt i öllum mótunum og það merkilegasta var að við fengum alltaf hluta af beztu rásnúmerunum, þannig að nokkur hluti hópsins átti alltaf kost á því að ná fyrstu sætun- um, en við fengum alltaf nokk- ur rásnúmer frá 1 til 10. Frakk- arnir, sem tóku þátt í þessum mótum, voru nokkuð göðir, flestir í flokkunum 1-2-3 og 4 en í Frakklandi eru 8 flokkar fyrir utan A-B og C liðin, sem er landslið Frakka. Veðrið var gott alla daga, og aldrei ský á himnum og snjórinn var mjög góður, léttur og kaldur. — Hvernig var svo árangurinn? — Hann var góður. Laugar- daginn 15. febrúar kepptu krakkarnir í tveimur stórsvigs- mótum og í fyrri keppninni var Margrét Baldvinsdóttir í 2. sæti og Steinunn Sæmundsdóttir i 3. sætij Katrín Frímannsdóttir varð fimmta og Margrét Vil- helmsdóttir níunda. Steinunn Sæmundsdóttir fékk þarna sér- stök verðlaun fyrir sinn árangur, þar sem hún héfur ekki enn náð 16 ára aldri. Strákarnir veru ekki eins framarlega i röðinni og stúikurnar, en Guðjón Ingi Sverrisson varð áttundi, Jónas Sigurbjörnsson sextándi og Þorsteinn Geirharðsson seytjándi. Síðar um daginn í seinni stórsvigskeppninni náði Margrét Baldvinsdóttir 2. sæti, Steinunn Sæmundsdóttir 4. Katrín Frímannsdóttir 5. og Margrét Vilhelmsdóttir 7. Guðjón Ingi náði aftur bezta árangri piltanna og varð í Endi brunabrautarinnar, sem keppt var í Kristján Kristjánsson og Þorsteinn Geirharðsson fyrir eitt mótið sjöunda sæti, Þorsteinn Geir- harðsson nítjándi og Ingvar Thoroddsen tuttugasti. Fimmtán stúlkur mættu til leiks í stórsviginu og 56 piltar. Daginn eftir, var bæði keppt í svigi og stórsvigi. I sviginu sló Margrét Baldvinsdóttir í gegn og sigraði, var 3,5 sek. á undan næsta manni, Margrét Vil- helmsdóttir varð hins vegar fjórða. Guðjón Ingi varð annar i svigi karla, Þorsteinn Geir- harðsson sjötti, Ingvar Thor- oddsen níundi og Jónas Sigur- björnsson ellefti. 1 stórsviginu voru þær Margrét Baldvins- dóttir, Steinunn Sæmunds- dóttir og Katrín Frímanns- dóttir í 2., 5. og 6. sæti og Guðjón Ingi varð áttundi í karlaflokkinum. Um leið og þetta var einstaklingskeppni voru þessi mót einnig bæjamót, og Island var talið sem einn bær. Utkoman varð sú, að við urðum í öðru sæti, næstir á eftir Grenoble. — Hvernig varð framhaldið? — Vikuna á eftir var æft af miklum krafti í góðum snjó, og nú æfðum við svo til eingöngu brun. Þjálfarar voru ég og annar Frakki. Þetta gekk allt saman ljómandi vel, nema hvað Margrét Baldvinsdóttir varð fyrir þvi óhappi að vióbeins- brotna á fyrsta degi, en hún lét það ekki á sig fá og hélt sínu góða skapi alla vikuna. A miðvikudeginum komu sex karlar og sex konur úr B og C liði Frakka og æfðu brun með okkur og kenndu landanum hina svokölluðu bruntækni. Við náðum fljótlega þeim árangri, sem við vildum, sem sagt Is- lendingarnir urðu fljótlega vanir að renna sér á miklum hraða og um leið að fara geypi- langar brekkur án þess að stoppa." — Að lokum Gilbert? — Ekki annað en það, að and- rúmsloftið innan hópsins var ljómandi gott og krakkarnir sem flest voru ekki nema 16 og 17 ára gömul tóku þetta mjög alvarlega. Það kom varla fyrir að þau færu út á kvöldin. I þess stað héldum við skemmtilegar kvöldvökur á hótelinu okkar með Frökkunum, sem þar bjuggu. Þetta stutta námskeið Islendinganna á eflaust eftir að koma á enn betra sambandi milli íslenzkra og franskra skíðamanna, og ættu íslenskir skíðamenn að geta lært mikið af Frökkum í framtíðinni. Nokkur hluti hðpsins fyrir utan skfðaskála I Chamonix. Höfum opnað snyrtistofu okkar að Ármúla 32. /NGA OG RAGNHE/ÐUR SÍM/ 82340. SKÁKÞING ÍSLANDS 1975 Innritun hefst mánudaginn 17. marz í Skákheimilinu Grensásvegi 46. Keppni hefst i landsliðsfl fimmtudaginn 20. marz í meistarafl. laugardaginn 22. marz i I. — II. kvennafl. og öldungafl. sunnudaginn 23. marz Upplýsingar gefur Hermann Ragnarsson i sima 20662 á kvöldin. ÁRSHATIÐ Alþýðuflokksfélags Reykjavikur verður haldin i Átthagasal Hótel Sögu n.k. sunnudag og hefst með borðhaldi kl. 7 e.h SKEMMTIDAGSKRÁ: 1. Óperusöngkonurnar Guðrún Á. Simonar og Þuriður Pálsdóttir syngja einsöng og dúetta við undirleik Ólafs Vignis Albertssonar. 2. Gunnar Eyjólfsson, leikari skemmtir. 3. Didda og Sæmi sýna dansa. 4. Einleikur á pianó Veizlustjóri Gylfi Þ. Gislason. Alþýðuflokksfólk fjölmennið og takið með ykkur gesti. Miðasala i sima 15020 og 16724. Skemmtinefnd

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.