Morgunblaðið - 15.03.1975, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 15.03.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1975 3 Ljosm. öv. t'. NEMENDURNIR úr Vélskólanum sem unnu að athuguninni á Akranesi. Lengst til hægri er kennarinn Ólafur Eiríksson. Spara má450milljónir á ári með betrí stiUingu hitatækja Niðurstaða athugunar nemenda Vélskóla Islands BEKKJARDEILD í Vélskóla Islands gerdi fyrir nokkru könnun á ástandi katla, sem notaðir eru til húskyndingar og iðnaðarnota. Varð ákveðið svæði á Akranesi fyrir valinu og þar kannaðir 56 katlar. Er skemmst frá því að segja, að bæta mátti nýtingu allra katl- anna nema eins. Tókst nemend- unum að auka meðalnýtingu þessara katla um 9,2%. Telja þeir, að vanir menn geti bætt nýtingu katla um 12—13% og þannig sparað þjóðinni 450 milljónir króna á ári í olíu- kostnað ef allir katlar væru stilltir einu sinni á ári. Nem- endurnir sem gerðu þessa athug un og stilltu katlana undir stjórn kénnara sfns, Ölafs Ei- ríkssonar, sögðu fréttamönnum í gær, að þetta hefði verið einn liður í námi þeirra og væru þeir stórum fróðari um þessi mál á eftir. Hins vegar væri aðalatriðið að benda á þann sparnað sem mætti fá fram á þennan hátt og væri það nú þeirra mat að ríki og sveitar- félög ættu að ganga inn í málið. 1 veglegri skýrslu um athug- anir sínar segja nemendurnir m.a.: Meðalnýtnisaukning sem fram kom við þessa könnun er 10% og beinn sparnaður 1,5 milljón á ársgrundvelli. Við teljum að hægt sé að gera betur. Ef meiri tími hefði gefist til þessarar könnunar, teljum við að hægt hefði verið að koma þessari tölu upp í allt að 12—13%. Samkvæmt athugun um hita- veitu á Akranesi gerðri af verk- fræðistofunni Vermi sf árið 1968, auk áætlaðrar aukningar síðan, er árleg olíunotkun til kyndingar á Akranesi nú um 6,5 milljónir litra. Arlegur sparnaður á Akra- nesi yrði þá — miðað við að olíuverð sé 20,20 kr. pr. lítra — með 10% sparnaði 13,1 milljón króna. Ef nýtnisaukningin færi upp í 12%, væri árlegur sparn- aður 15,7 milljónir króna. Með 13% yrði sparnaðurinn 17 milljónir króna. Árlegur sparnaður á hvern íbúa á Akranesi yrði því um 2,900 krónur. Sé þessi sparn- aður heimfærður á aðra staði á landinu, yrði sparnaður t.d. á Ísafirði 8,9 milljónir kr., Akur- eyri 33,1 milljón, Hólmavik 1 milljón, Ólafsvík 3,1 milljón og Stykkishólmi 3,2 milljónir króna. Heildarinnflutningur á gas- olíu var í árslok 1974 399,66 milljónir lítra. Af því fóru 46,6% til húsakyndingar, eða 186,4 milljónir lítra. Ef miðað er við aðeins 10% sparnað í olíunotkun landsmanna til hús- hitunar, yrði heildarsparnaður miðað við núverandi verð (20,20 kr/1) 376,1 milljón króna. Könnun þessi var gerð í þeim tilgangi að sýna fram á að hægt sé að bæta nýtni kynditækja. Við teljum að sá katlafjöldi sem mældur var, gefi nokkuð glögga Framhald á bls. 31 Tónleikar yngri deildar Tónlistarskólans á morgun Tónleikar yngri deildar Tón- listarskólans í Reykjavík verða haldnir í Austurbæjarbíói á morgun, sunnudag, og hefjast þeir kl. 1.30 s.d. A tónleikunum leikur hljóm- sveit yngri deiidar undir stjórn Hlifar Sigurjónsdóttur, en síðan munu 15 ungir nemendur leika einleik í verkum eftir Beethoven, Turina, Gossec, Gluck, Milford, Chopin, Rachmaninoff og Hándel, svo að einhverjir séu nefndir. Um margt af þessu. unga fólki má segja, að því sé tónlistin í blóð borin, þar eð í þessum hópi eru a.m.k. fimm börn þekktra tón- listarmanna, svo sem Vladimir Stefán, sonur Þórunnar og Ashke- nazy, Mist Þorkelsdóttir (Sigur björnssonar), Elísabet Waage (Einarsdótt-ir), Tómas Ponzi (sonur Guðrúnar Tómasdóttur), Jónas Sen (Jónsson) og einnig má nefna Þórhall Birgisson, bróð- ur píanóleikarans unga Snorra Birgissonar. Auk þeirra leika á þessum tónleikum Ragnar Þor- grimsson, systkinin Sverrir Guðmundsson og Þórdis og Anna Guðný Guðmundsdætur, Kristinn Andersen, Bryndís Pálsdóttir, Ás- laug Heiða Pálsdóttir, Guðni Franzson, Dagný Björgvinsdóttir, Birna Bragadóttir og Ingibjörg Þorsteinsdóttir. Öllum velunnurum skólans er heimill aðgangur að tónleikunum svo lengi sem húsrúm leyfir. 4 millj. kr. hafa safnazt tíl Norðfirðinga í Eskilstuna UM 4 milljónir króna hafa safn- azt í Norðfjarðasöfnun þá, sem nú stendur yfir í vinarbæ Neskaup- staðar i Sviþjóð, Eskilstuna. Olof Loirin, ritstjóri, sagði þegar við höfðum samband við hann i gær, að söfnuninni lyki í næstu viku og enn ættu háar fjárhæðir eftir að berast, — fyrst og fremst frá iðnaðarfyrirtækjum. Stærsti gef- andinn til þessa er bæjarsjóður Eskilstuna, sem gaf 25 þús. krón- ur sænskar. Hann sagði að söfnunarféð yrði afhent sendiherra Islands í Stokkhólmi, Guðmundi í. Guð- mundssyni, sem síðan kæmi því áfram til réttra aðila. Líffræðileg athug- un á umhverfi jám- blendiverksmiðju MEIRIHLUTI iðnaðarnefndar efri deildar Álþingis hefur mælt með samþykkt framkomins frum- varps um járnblendiverksmiðju f Hvalfirði, með nokkrum breyt- ingum, sem hér á eftir verður gert grein fyrir. Að meðmælum með frumvarpinu og umræddum breytingartillögum standa full- trúar þriggja þingflokka: Alþýðu- flokks, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Alþýðubanda- lagið hefur tekið afstöðu gegn frumvarpinu. Samtök frjáls- iyndra og vinstri manna eiga ekki fulltrúa í efri deild Alþingis, svo þingflokkur þess tekur ekki formlega afstöðu til frumvarps- ins fyrr en það kemur til kasta neðri deildar. Meginatriði í breytingartillög- um meirihlutans við frumvarpið eru þessi: I. Við 11. gr. Greinin orðist svo: Hlutafélaginu ber að gera var- úðarráðstafanir til að varna tjóni á umhverfi verksmiðjunnar við Grundartanga af hennar völdum, og skulu hönnun verksmiðjunnar, bygging og rekstur i öllu vera i samræmi við núgildandi og síðari lög og reglugerðir hér á landi varðandi mengunarvarnir og ör- yggi, náttúruvernd, heilbrigði og hreinlæti á vinnustað og þá staðla, sem settir eru samkvæmt þeim. Áður en framleiðsla hefst skal á kostnað fyrirtækisins og sam- kvæmt tillögum Náttúruverndar- ráðs gerð líffræðiieg athugun á Framhald á bls. 31 Kabarett og bingó til styrktar löm- uðum og fötluðum KVENNADEILD Styrktarfé- lags lamaðra og fatlaðra heldur kabarett og bingó n.k. sunnu- dagskvöld í Sigtúni við Suður- landsbraut. Stjórnandi verður Svavar Gests. Meðal vinninga verða þrjár utanlandsferðir, tvær til sólar- landa og ein til London. Auk þess verður fjöldi annarra vinninga, allir að verðmæti frá 10—55 þús. kr. Þar á meðal eru fimm málverk, húsgögn, hrein- lætistæki, matvara og allskonar vöruúttekt. Skemmtiatriði annast Ómar Ragnarsson og Elín Sigurvins- dóttir. Félagið lét á s.I. ári af hendi rakna 600—700 þús. kr.,bæði með styrkjum til sjúkra og iðjuþjálfara, til Æfingastöðvar- innar við Háaieitisbraut og starfseminnar í Reykjadal. Það sem af er þessu ári hefur félag- ið veitt einn styrk til viðbótar þeim þremur, sem fyrir eru og nemur hann kr. 100.000,00. Einnig hefur það gefið tvö þrekhjól til æfingastöðvarinn- ar og gólfteppi upp í Reykja- dal. Félagið hefur nú fengið stærra húsnæði til skemmtunar þessarar en undanfarin ár vegna þess að margir hafa orðið frá að hverfa. Félagskonur treysta því að velunnarar fé- lagsins fjölmenni nú eins og áður og styðji með þvf gott og göfugt málefni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.