Morgunblaðið - 15.03.1975, Page 12

Morgunblaðið - 15.03.1975, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1975 BRIAN Holt, ræóismaður Breta hér á landi, hefir í nokkur ár verið félagi í Myntsafnarafélagi íslands. Það er Anton, sonur hans, einnig. Anton Holt nemur nú sagnfræði við Háskóla ís- lands og hyggst rita myntsögu íslands sem prófverkefni. Brian Holt á fágætt safn af brezkum afreksorðum, en söfn- un þeirra hóf hann fyrir tæp um 20 árum. Safnaraeðlið er honum í blóð borið. Faðir hans hafi safnað einstæðu safni af einkennismerkjum herdeilda, sem staðsettar höfðu verið á Irlandi fram að árinu 1901. Safn þetta er nú i eigu Brians Holt. Einkennismerkin eru nú afar fágæt þvi flestar þéssar herdeildir, sem áður fyrr voru undir sjálfstæðri stjórn hver og ein, hafa verið sameinaðar og mynda nú brezka fastaherinn. Brian Holt hefir safnað af- reksorðum óbreyttra her- manna: A hverja orðu er ritað nafn þess manns, er orðuna fékk, af hvaða tilefni, í hvaða bardaga o.s.frv. Ekki er þetta þó alveg nóg fyrir Brian. Hann hefir aflaó sér upplýsingar um nærri hvern þann mann sem afreksorðuna hefir fengið, og stendur í miklum bréfaskrift- um við brezka Þjóðskjalasafnið og aðrar þær stofnanir á Bret- landseyjum, sem veitt geta upp- lýsingar um æviferil þessara manna. Það er því æviágrip flestra mannanna, sem gefur hverri afreksorðu svo mikið gildi. Þarna er um menn að ræða, sem tekið hafa þátt í sjó- eftir RAGNAR BORG orrustunni við Trafalgar, Waterloo-bardaganum, eða bar- izt á Indlandi, Kína, Rússlandi, Suður-Afríku, Mið-Afríku, í Asíu, Evrópu, ja satt að segja hvar sem er í heiminum. Brezka heimsveldið var í mótun á seínustu öld. Það kostaði mörg stríð og margar frægar orrustur og mikið blóð, en þetta er jafnframt kafli í mannkyns- sögunni. Á spjaldi einu hefir Brian Holt raðað 52 afreksorð- um. Sú elzta er frá árinu 1793. Sú nýjasta er frá 1972. Kjör hermanna hafa verið knöpp á seinustu öld. Mikill munur var á kjörum yfirmannæ og undir- manna. Um aldamótin 1800 fékk brezkur hershöfðingi í sinn hlut af herfangi 100.000 sterlingspund. Menn reikni þetta til nútímaverðs og taki til athugunar að verðlag hefir breytzt mikið á Englandi und- anfarin 175 ár. Öbreyttir dátar hjá þessum sama hershöfðingja höfðu í sinn hlut af herfanginu eitt sterlingspund á mann. En semsagt Brian Holt ætlar að halda fyrirlestur um og sýna þetta ágæta safn sitt á fundi Myntsafnarafélagsins, sem haldinn verður klukkan hálf þrjú i dag í Templarahöllinni. Veit ég að Brian hefir frá mörgu að segja svo mikils fróð- leiks sem hann hefir aflað sér um hverja einstaka afreksoróu. Fyririesturinn verður að sjálf- sögðu fluttur á íslenzku. Að fyr- irlestrinum loknum mun Brian Holt svara fyrirspurnum, en að þeim loknum verður uppboð. Verða meðal númera nokkrir 10 eyringar, íslenzkir, frá 1922 til 1939, þar af nokkrir í háum gæðaflokki. Ennfremur nokkr- ir 25 eyringar frá sömu árum og krónupeningar frá 1925 og 1929. Heilt sett af íslenzkri mynt frá 1922—1974 í flokki 01—1. 10 krónu seðill frá 1904, krónuseðill frá 1920 í flokki O þ.e. fullkomið eintak. Minnis- peningar Anders Nyborg frá 1973, Heimaey og Grænland. Auk þess eru norskir, sænskir, enskir, þýzkir og júgóslavnesk- ir peningar og seðlar á uppboð- inu. Hér eru nokkur sýnishorn og má lesa á orðunum fyrir hva J þær eru. Brian Holt heldur fyrirlestur og hefir sýningu á brezkum afreksorðum á fundi Myntsafnarafélagsins Afreksorðusafn Brian Holts. Hirðing handanna HENDUR og negiur þurfa llka sfna umönnun eins og allir vita. Það er auðvitað ákjósanlegast að geta farið í handsnyrtingu hjá snyrtisérfræðingum við og við. En sé þess ekki kostur, má reyna sjálfur, og er þá gott að fá dálitla leiðbeiningu. Hér kemur þvl lýsing á leikmanns handsnyrtingu: 7) Naglalakkið borið á með þremur strokum, fyrst í miðju og síóan til hliðanna. Lakkið látið þorna vel áður en annað lag af lakki er borið á. Bezti tími til að lakka negl- urnar svo lakkið endist er rétt fyrir svefninn. Þá er lakkið orð- ið glerhart að morgni, þegar störf hefjast. Sjálfsagt er að hlífa höndun- um eins og kostur er með þvl að nota gúmmíhanzka við grófari verk. Sápulegir og önnur hrein- gerningarefni eru misjafnlega mild og fara mjög misjafnlega með hendurnar. En það er sjálfsagt að reyna fleiri en eina tegund til að fikra sig áfram og finna það bezta. Það má benda á, að gott er að hafa naglaþjöl við höndina I eldhúsinu eða á öðrum vinnustöðum. Má þá oft bjarga nöglum, sem rifnar upp I. Einnig er sjálfsagt að hafa handkrem við höndina og bera á sig eins oft og hægt er. 1) Byrjað er a pvi ao nreinsa vel af naglalakkið, sem fyrir er. Síðan er farið yfir neglurnar með þjöl frá hlið að miðju. 2) Naglabandakrem er borið á böndin. Gott er að nudda dálítið við rætur og hliðar naglanna til að mýkja húðina. Tízkan 3) Bómull sett á smápinna, dif- ið í naglabandaeyði og ýtt á naglaböndin. Dautt skinn hreinsað af og neglurnar hreinsaðar. Síðan eru hendurn- ar settar ofan í milt, heitt sápu- vatn. 4) Hendurnar þerraóar, nagla- böndum ýtt upp með handklæð- inu um leið og þurrkað er. 5) Góðu handkremi nuddað vel inn i hendurnar. 6) Borið á neglurnar undirlag, „base-eoat“, sem á að styrkja þær. Dökkblátt pils, jakki og blússa hvít-blá röndótt, frá Dior. Þessir litir eru mjög í tízku um þessar mundir. Efnið í jakka og pilsi er flannell, en í blúss- unni Crepe de Chine.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.