Morgunblaðið - 15.03.1975, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1975
Halli og Laddi skemmta
börnunum.
Barnaskemmtun í
Austurbæjarbíói
BARNASKEMMTUN á vegum
Félags einstæröa foreldra
verður endurtekin i Austur-
bæjarbíói i dag, laugardag, kl.
2 e.h. Er þar fjölbreytt
skemmtiskrá og má nefna að
Halli og Laddi skemmta, And-
arungakórinn syngur, börn
sýna föt frá verzlunum Elfi og
Evu, fluttir verða leikþættir,
nemendur í dansskóla Sig-
valda sýna dans, Baldur
Brjánsson sýnir töfrabrögð,
vinaleg tröllabörn koma í
heimsókn og tveir kátir trúðar
kynna skemmtiatriði.
Allur ágóði af skemmtuninni
rennur í Styrktarsjóð Félags
einstæðra foreldra. FEF hélt
tvær barnakemmtanir á svip-
uðum árstíma í fyrra og tókust
þær mætavel.
Miðasala hefst í Austurbæj-
arbíói kl. 11 f.h. og taka má
fram að hver miði gildir einnig
sem happdrættismiði og eru
leikföng, bækur o.fl. meðal
vinninga.
Þrjár sýn-
ingar í dag
ÞRJÁR sýningar verða opnað-
ar í Reykjavík í dag. 1 Bogasal
Þjóðminjasafnsins er sýning,
sem haldin er í tiiefni af 100
ára ártfð Sigurðar Guðmunds-
sonar málara á sfðasta ári, á
Kjarvalsstöðum er yfirlitssýn-
ing á verkum Guðmundar Ein-
arssonar frá Miðdal og f Norr-
æna húsinu heldur Eyborg
Guðmundsdóttir listmálari
sýningu á myndum sfnum.
Nánar verður greint frá þess-
um sýningum f blaðinu á
morgun.
Skrúfudagur
Vélskólans
í dag
HINN árlegi skrúfudagur Vél-
skólans verður haldinn f dag
15. marz. Dagskráin hefst með
hátfðarfundi í hátíðarsal Sjó-
mannaskólans kl. 14.00. Að
loknum hátíðarfundi hefst svo
kynning á starfsemi skólans og
stendur kynningin til kl. 17.00.
Kaffiveitingar verða á vegum
Kvenfélagsins Keðjunnar í
veitingasal Sjómannaskólans
frá kl. 14.00.
Forráðamenn Flugleiða um þotukaupin:
„Hagkvæmast fyrir Flugleiðir
ef kaupin fara fram núna”
FORRAÐAMENN flugleiða hf.
boðuðu f gær til blaðamannafund-
ar, þar sem rætt var um fyrirhug-
uð flugvélakaup félagsins, ríkis-
ábyrgðina og fleiri máf. Fyrir
svörum voru Örn O. Johnson, Al-
freð Elíasson og Sigurður Helga-
son úr stjórnarnefnd fyrirtækis-
ins, Kristján Guðlaugsson, stjórn-
arformaður og Sveinn Sæmunds-
son blaðafulltrúi. Á öðrum stað í
blaðinu er skýrt frá ýmsu sem
fram kom á fundinum, en hér
verður aðallega rætt um flugvéla-
kaupin og ríkisábyrgðina.
í upphafi fundarins var lögð
fram eftirfarandi fréttatilkynn-
ing:
Flugleiðir h.f. hafa sótt um rík-
isábyrgð á láni að upphæð kr. 13.5
milljónir dollara, sem félagið
hyggst taka til kaupa á tveim þot-
um af gerðinni DC-8-63. Þessi
kaup eru undirbúin samkvæmt
leigu/kaupsamningi, sem Loft-
leiðir gerðu við eigenda flugvél-
anna, Seaboard World Airlines.
Samningur um fyrri þotuna var
undirritaður 1.7. 1971 og um þá
síðari 1.5.1972.
Umsamið verð fyrri þotunnar
var $11.000.000 en þeirrar síðari
$10.700.000.
Upphaflegt verð á þotum af
gerðinni DC-8-63 var um 12 millj.
dollara. Vegna þess hve hag-
kvæmar þessar þotur eru í rekstri
og vinsælar jafnt meðal farþega
sem flugfélaga, hafa þær ekki
lækkað í verði og er það enn svip-
að á frjálsum markaði.
Samkvæmt samningi rennur
ákveðinn hundraðshluti leigu
þeirrar sem Loftleiðir/Flugleiðir
greiddu fyrir afnot af þotunum
upp í væntanleg kaup. Vegna
þessa eiga nú Flugleiðir h.f. þess
kost að kaupa báðar þessar þotur
fyrir um 13.5 millj. dollara, þrátt
fyrir að markaðsverð beggja er
nú um 22. millj. dollara.
Vegna þessara fyrirhuguðu
kaupa hafa Flugleiðir h.f. leitað
eftir láni, sem tekið yrði í Banda-
ríkjunum, að upphæð 13.5 millj.
dollara og ríkisábyrgð. íslensk
stjórnvöld fjalla nú um málið. Að-
ur hefur verið unnið að öflun
gagna, gerðar framtíðarspár fyrir
rekstur og fjárhag Flugleiða h.f.
og málin könnuð frá ýmsum hlið-
um.
Þotur af gerðinni DC-8-63, sem
Flugleiðir hyggjast nú kaupa,
hafa verið í notkun hjá Loftleið-
um síðan félagið hóf þotuflug
hinn 14. maí 1970 Þessi þotuteg-
und hefur reynst félaginu mjög
vel og hentar einkar vel á flug-
leiðum þess. Auk þess að flytja
249 farþega í ferð, bera þoturnar
nokkrar lestir af vörum jafn-
framt. Þær hafa mikið flugþok og
geta auðveldlega flogið milli meg-
inlanda, hindri veður lendingu á
íslandi.
DC-8 þotur eru framleiddar hjá
McDonnell Douglas flugvélaverk-
smiðjunum í Kaliforníu. Fyrsta
þotan af þessari gerð flaug 30.
mai 1958. Af DC-8 þotum eru til
Ljósmynd Sv. Þorm.
FLUGLEIÐIR — Frá blaðamannafundi Flugleiða hf. í gær. Lengst til vinstri er Kristján Guðlaugsson.
Við borðsendann sitja Alfreð Elíasson, þá Örn O. Johnson, Sigurður Helgason og við hliðina á honum er
Sveinn Sæmundsson.
átta mismunandi gerðir með mis-
jafnlega mikið burðarþol og flug-
þol. Sú gerð sem hér um ræðir,
DC-8-63, er sú stærsta og burðar-
mesta í þessum fiokki. Þotur þær
sem Flugleiðir hafa á leigu/kaup-
samningi voru framleiddar árið
1968. DC-8-63 er fjögurra hreyfla
þota. Hreyflar af gerðinni Pratt &
Whittney JP3D-7. í flugtaki fram-
leiðir hver hreyfill 19 þúsund
punda kný. Flughraði er um 900
km á klst. Flugþol þotanna er
rúmlega 8000 km. Eldsneytis-
Friðrik við heimkomuna:
TefB frekar á svæðamóti
en einhveiju öðru móti
Fer á sterkt mót á Kanaríeyjum í apríl
FRIÐRIK Olafsson, stórmeist-
ari, kom heim 1 gærkvöldi frá
Rússlandi, en sem öllum er
kunnugt þá náði hann einstak-
lega góðum árangri á skákmót-
inu f Tallin. í samtali við Morg-
unblaðið við heimkomuna
sagði Friðrik, að gott væri að
vera kominn heim eftir þetta
mót. Hann sagði að aðstaðan
fyrir keppendur hefði getað
verið skárri, helzt hefði næðið
þurft að vera meira. Annars
sagði hann að Eistlendingar
væri mjög vinalegir og hefðu
reynt að gera allt fyrir alla.
Við spurðum hann að þvf
hvort verðlaunin á mótinu
hefðu verið há. Friðrik sagði að
verðlaun á skákmótum f Rúss-
landi væru aldrei mjög há, auk
þess sem þau væru greidd f
rúblum. Hann hefði ekki farið
á þetta mót þeirra vegna heldur
til að tefla á sterku móti. Það
væri oft sagt, að erfitt væri að
tefla við Rússa á heimaslóðum
og þvf gæti hann að sjálfsögðu
verið mjög ánægður með árang-
urinn. Það hefðu einkum verið
tvær skákir, sem hefðu valdið
sér vonbrigðum, einkum sú síð-
asta, sem reyndar var spurning
um hvort honum tækist að ná f
1. sætið ásamt Keres.
Þá sagði hann, að næsta skák-
mót, sem hann tæki þátt f, yrði
haldið á Kanarfeyjum og hæf-
ist f byrjun apríl. Það mót verð-
ur álfka að styrkleika og mótið
í Tallin, og verða þar einir 10
stórmeistarar.
Að lokum spurðum við Frið-
rik hvort hann hefði áhuga á að
taka þátt f svæðamóti hér á
landi. Hann sagðist ekki vera
sérstaklega áfjáður í það, en
hann hefði samt lýst þvf yfir,
að hann myndi frekar tefla á
svæðamóti en einhverju öðru
móti, og víst væri hægt að tefla
á verri stöðum en tslandi, en
hér væri álagið á vissan hátt
meira.
geymar rúma 92 þúsund lítra (74
tonn). Mesti þungi til flugtaks er
161 lest. DC-8-63 er 57,1 m á
lengd, 45,2 m milli vængenda og
hæðin er 12,9 m.
Þotur þær sem Flugleiðir
hyggst nú festa kaup á eru með
stórum vörudyrum og útbúnaði til
þess að breyta þeim í vöruflutn-
ingaflugvélar að einhverju eða
öllu leyti. Séu t.d. þrir vörupallar
í framrými eru sæti fyrir 204 far-
þega í farþegarými.
Þoturnar tvær eru með öllum
fullkomnustu siglingatækjum,
sem nú eru í notkun, þ. á m.
Inertia flugleiðsögutækjum. Þá
eru báðar þoturnar með nýjum
innréttingum.
Forráðamennirnir sögðu, að
vélarnar yrðu skrásettar hér á
landi ef af kaupunum yrði. 1
leigukaupasamningunum sem
gerðir voru á sínum tíma hafi
Framhald á bls. 31
Flóamarkað-
ur í dag
KRISTILEG skólasamtök og
Kristilegt stúdentafélag efna til
kökubasars og flóamarkaðar í
húsi KFUM við Holtaveg í dag kl.
15—17. Starfsemi þessara sam-
taka hefur aukizt mjög á siðustu
árum og verður ágóðanum varið
til að standa straum af henni.
Góður markaður fyrir
grásleppuhrognin nú
„MARKAÐUR fyrir grásleppu-
hrogn er góður um þessar mund-
ir, og ég sé ekki fram á annað en
að við munum geta selt allt það
magn sem framleitt verður hér á
landi á vertíðinni," sagði Olafur
Jónsson, aðstoðarframkvæmda-
stjóri sjávarafurðadeildar Sam-
bandsins, þegar Morgunblaðið
leitaði upplýsinga hjá honum um
markaðshorfur varðandi
grásleppuhrognin.
Helztu markaðslöndin varðandi
grásleppuhrognin eru eftir sem
áður Danmörk, Þýzkaland og
Frakkland en á vertíðinni í fyrra
nam heildarútflutningurinn á
hrognum um 10 þúsund tunnum
og fengust fyrir hann um 154
milljónir króna að sögn Olafs.
Nýlega hefur verið ákveðið lág-
marksverð á grásleppuhrognum
fyrir væntanlega hrognkelsaver-
tíð og hækkar það um 50 dollara
frá því í fyrra eða úr 175 dollur-
um í 225 dollara. Þss ber þó að
gæta, að dollarinn hefur á undan-
förnum mánuðum heldur farið
lækkandi gagnvart danskri krónu
og þýzku marki.
Hrognkelsaveiðin er enn ekki
hafin, eftir því, sem Morgunblað-
ið aflaði sér upplýsinga um í gær,
en búizt er við því að veiðin hefj-
ist hjá Norðlendingum nú upp úr
miðjum þessum mánuði. Hér
sunnanlands ætti hrognkelsaveið-
in venju samkvæmt að hefjast síð-
an um mánuði síðar eða seinni
partinn í apríl eða byrjun maí.