Morgunblaðið - 15.03.1975, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1975
7
Þróunaraðstoð
til kúgara
Julius
Nyerere
Hvað fór
úrskeiðis í
Tanzaníu?
Þannig hljóðar fyrirsögn greinar í norska vikuritinu „Farmand" 25. jan.
s.l. og stendur reyndar orðið „norsk" fyrir framan hana. Þegar Tryggve
Bratteli. forsætisráðherra Noregs, kom hingað á fund Norðurlandaráðs,
var hann nýbýinn að vera í opinberri heimsókn I Tanzanlu i sólskininu þar
og er að þeirri væntanlegu för vikið í greininni. I sjónvarpsviðtali við Olof
Palme hér á dögunum var hann spurður um aðstoð Svia við þróunarlönd-
in, og hvert hún rynni helzt, og taldi hann þá fyrst upp Tanzaníu, hvort
sem það var tilviljun eða ekki.
Talsvert er rætt og ritað um það á Norðurlöndum og viðar, hvort aðstoð
iðnaðarrikja við þróunarlöndin komi að tilætluðum notum og hvort
nægílegt eftirlit sé haft með þvi, hvernig þvi fé er varið i hinum ýmsu
löndum. Til fróðleiks um þær umræður er grein þessi birt hér, en hún er
eftir fréttamann. sem sérstaklega hefur fylgzt með þessum málum á
staðnum.
Dar-es-Salaam íjanúar.
Ég skammast min ekki fyrir að
viðurkenna, að ég var einn af
bjartsýnismönnunum, þegar
Tanzania (sem þá hét Tanganyika)
varð sjálfstæð 1961. Þar virtust
deilur 'milli ættflokka ekki vera
iskyggilega miklar, viljinn til þess
að byrja uppbygginguna á réttum
enda var greinilega fyrir hendi og
um fram allt virtist Julius Nyerere
vera íhugull og geðþekkur stjórn-
málama ður.
Nú eru senn liðin 14 ár siðan
mér var bjartsýni efst i huga i
Tanzaniu, og á þeim tima, sem
siðan er liðinn hef ég heimsótt
landið oftlega. Í hvert skipti hefur
bjartsýnin dofnað nokkuð, og nú
er sárt að þurfa að viðurkenna, að
flestar vonirnar frá 1961 hafa
brugðizt.
Oftsinnis hefur verið bent á
Tanzaniu sem dæmi um lýðræðis-
legan sósialisma. og ef menn eru
sannfærðir um það, að eins-
flokks-rikið sé eina stjórnarkerfið,
sem dugi riki, sem sé á þvi
þróunarstigi sem Tanzania hefur
verið á, þá hefur landið alls ekki
verið svo slæmt dæmi.
En eitthvað hefur farið úr-
skeiðis. Tanzanía er nú á barmi
efnahagslegs hruns. íbúarnir, sem
voru fullir áhuga brautryðjandans
og ættjarðarunnandans, eru nú
óánægður fjöldi þrárra fótgöngu-
liða. Spilling, mútuþægni og tóm-
læti eru alvarlegur dragbítur i
þjóðfélagskerfinu, og eins-
flokks-rikið hefur þróazt i kerfi
pólitisks eftirlits. sem metnaðar-
gjarn flokkserindreki i tiunda
hverju húsi um allt landið annast.
Eftirlitið er svo nákvæmt, að
útlendingur þarf aðeins að láta
falla nokkur orð gagnrýni eða efa-
semdar i garð Tanzaniu á bar i
Dar-es-Salaam til að vera visað úr
landi með 24 tima fyrirvara.
Margir norskir sérfræðingar gætu
einnig sagt frá njósnum, sima
hlerunum og bréfaskoðunum, en
skiljanlegur og nauðsynlegur
sjálfsagi varnar þeim að tala hátt
um slíka hluti.
Tanzania hefur smám saman
orðið mikilvægasti gagnaðili
Noregs, hvað hina tvihliða
þróunaraðstoð snertir, og þess
vegna getum við ekki látið okkur
á sama standa um þessa ógn-
vekjandi þróun mála. Og jafnframt
hlýtur það að vera litt öfundsvert
vandamál fyrir hin norsku yfirvöld
að glima við, hversu lengi eigi að
loka augunum fyrir þessu, áður en
neitt er reynt til þess að koma
einhverri leiðréttingu á.
Þróunaraðstoð okkar við
Tanzaniu minnir um margt á snjó-
bolta. Og nú á Bratteli, forsætis-
ráðherra, að koma hingað i opin-
bera heimsókn i febrúar, og við
eigum að fá sendiráð i Dar-
es-Salaam i fyrsta sinn. Það mun
enn treysta sambandið milli landa
okkar. og spurningin er sú, hvort
norska stjórnin einblinir ekki um
of á að aðstoðin skuli skilyrðislaus
ef hún bara lætur snjóboltann
velta áfram án þess að láta sig
neinu verða stefnuna eða áfanga-
stað.
Það ætti að vekja menn til um-
hugsunar, að jafn hlutlaus aðili og
Alþjóðabankinn er meira að segja
farinn að verða smeykur, þegar
um er að ræða vissar veigamiklar
hliðar á hinni efnahagslegu og
þjóðfélagslegu stefnu Tanzaniu.
Að visu samþykkti stjórn bankans
i desember nýtt lán til Tanzaniu að
upphæð 30 milljónir dollara. en
rannsóknarnefnd. sem fyrirfram
hafði kannað jarðveginn, var svo
hvóss i gagnrýni sinni i nefndar-
álitinu, að stjórnarsamþykktin
gegnir allmikilli furðu. Hið eina
sem getur skýrt samþykktina, er
einmitt sama klipa og norsk yfir-
völd eru i, það er að ákveða,
hvenær eigi að segja: Hingað og
ekki lengra!
Athugasemdir nefndarinnar ná
langt til að svara spurningunni um
það, hvað hafi farið úrskeiðis i
Tanzaniu. Það er framkvæmd
hinnar frægu u j a m a a -stefnu í
landbúnaðinum. Ujamaa er vitt og
illskiljanlegt hugtak sem á að
tákna sósíalisma i Tanzaniu, og i
þessu sambandi táknar það stofn-
un svokallaðra skipulagðra þorpa,
þar sem ibúunum er smalað
saman i stærri einingar, til að
stunda landbúnað á samyrkju-
grundvelli.
Meiningin með þvi aðstuðla að
hagræðingu í landbúnaði á
þennan hátt. er út af fyrir sig alls
ekki svo vitlaus, en framkvæmdin
verður að byggjast á tveimur mjög
veigamiklum forsendum. Í fyrsta
lagi þeirri, að ibúarnir sjálfir vilji
og hafi áhuga á slikri nýskipan, og
í öðru lagi að þessi þorp séu nægi-
lega vel skipulögð.
Hvorug þessara forsendna er
fyrir hendi í Tanzaníu i dag. Til
örþrifaráða hef ur verið gripið til að
reyna að auka afköst i landbúnaði,
og hafa þau verið fólgin i þvi að
hraða sem mest framkvæmd
ujamaa-áætlunarinnar. Til þess
hefur fólk verið flutt nauðungar-
flutningi langar leiðir, en heimili
þeirra i gömlu þorpunum verið
rifin niður og brennd.
Að sjálfsögðu er þetta ekki
leiðin til að hvetja menn til að
leggja sig alla fram fyrir þjóðar-
heildina, og ekki bætir það úr
skák, að mörg hinna skipulögðu
þorpa hafa verið reist i slikri
skyndingu. að það skortir enn jafn
nauðsynlegar þjónustugreinar og
vatnsveitu. skóla og heilsugæzlu.
Fólk hefur verið flutt nauðugt,
þeirra eigið heimili hefur verið
lagt i rúst og kjör þess i hinum
nýju þorpum eru mun lakari en
þau voru áður.
Það er þvi ekki að undra, þótt
framleiðsla landbúnaðarvara hafi
dregizt saman, svo að horfir til
ófarnaðar. Yfirvöldin hafa reynt
að kenna þurrkum um ástandið en
maður þarf ekki að vera lengi i
Dar-es-Salaam til að skilja hinar
raunverulegu ástæður.
Ég hef sjálfur heimsótt nokkur
hinna mikilvægustu landbúnaðar-
héraða i Tanzaniu undanfarið, og
það er hryggileg sýn, sem þar
blasir við augum. Ég get ekki
annað en likt þorpunum þar við
það, sem ég hef séð þar sem
bardagar hafa geisað i Vietnam,
— mannlaus hús með brunnin
þök og göt á veggjum. Það er
sannarlega hörmulegt að horfa á
þessi dapurlegu minnismerki um
pólitik. sem i upphafi lofaði svo
góðu.
Ég hef ennþá mikla samúð með
Nyerere, forseta, jafnvel enn meiri
en áður, af þvi að hann er á
leiðinni að verða Don Quijote
Afriku. Forseti verður að sjálf-
sögðu að taka á sig ábyrgð á ollu
þvi, sem á sér stað i hans pólitiska
kerfi, en á hinn bóginn er það
greinilegt, að svíkin byggjast ekki
á Nyerere.
Þau eiga sér stað úti um landið,
þar sem ötulir flokksforingjar
djöflast við að hrinda i fram-
kvæmd óraunhæfri ujamaa-
áætlun til að geta gefið skýrslur
um byggingu sem allra flestra
skipulagðra þorpa. Það er þessi
áætlun, sem Noregur er að styðja,
og ef það ólíklega myndi gerast,
að Bratteli, forsætisráðherra,
myndi gera sér rétta grein fyrir
þvi, sem er að gerast, meðan á
heimsókn hans stendur, öfunda ég
hann ekki af þeim persónulegu og
pólitísku þjáningum, sem hann
hlyti að verða að þola.
Ujamaa-áætlunin hefur reist
múr á milli Nyerere, forseta og
þjóðar hans. Það spáir ekki góðu
fyrir Tanzaniu, og fyrir Nyerere er
þetta persónulegur harmleikur.
Hann á betra skilið.
— svá —
Pipulagnir Hitaveitutengingar. Viðgerðir og nýlagnir. Danfosskranar settir á ofna. Sími 82762 og 21743. Springdýnur Tökum að okkur að gera við springdýnur samdægurs. Sækjum og sendum ef óskað er. Opið til 7 alla daga. KM springdýnur, Helluhrauni 20, Hafnarfirði. Simi 53044.
íbúð til leigu Til leigu frá 1. april n.k. 2ja herb. glæsileg ibúð á jarðhæð i nýrri blokk i Fossvogi. Útsýni. Tilb. sendist Mbl. merkt: „Fyrir- framgreiðsla 7152" Takið eftir Hjónamiðlun, svarað i sima 2- 66-28 milli kl. 1 —2 alla daga. Geymið auglýsinguna.
Barnasokkabuxur nýkomnar. Litir: Rautt, hvítt, gult. Stærðir: 0, 2, 4. Verzl. Karfan, Hofsvallagötu 16. Til sölu Plymouth Satelliete station árg. '71. Ekinn 79 þús. km. 6 cyl. beinskiptur. Skipti á ódýrari bil koma til greina. Upplýsingar i sima 50508.
Flygill Vandaður flygill August Roth til sölu. Upplýsingar í sima 83942. Til sölu Ódýr barna og ungiinga skrifborð- sett til sölu. Tilbúin undir bæs og málningu. Opip yfir helgina. Smíðastofan, Hringbraut 41, simi 16517.
Hver er stúlkan sem um miðjan þennan mánuð átti fertugsafmæli (eða 24 eða 25 ára afmæli) og vill skrifast á við ógiftan, efnaðan menntamann með hjónaband fyrir augum. Svar (ásamt mynd sem verður endur- send) sendist Sunder-ThG Póst- hólf 1 1 59, Reykjavík. Húsgögn til sölu Borðstofuhúsgögn (Hepplewithe) úr pólereðu mahom. Samstæðan er borð með 8 stólum, skenkur og skápur. Tilboð óskast. Uppl. í s. 35131. Vil kaupa vel með farmn bil gegn 3ja ára skuldabréfi. Uppl. i sima 44608 eftir kl. 20.00.
Skólahljómsveit Kópavogs.
fónleikar
Skólahljómsveit Kópavogs, eldri og yngri deild
og Hornaflokkur Kópavogs, halda tónleika í
Háskólabíói á laugardaginn kl. 3.
Kynnir: Jón Múli Árnason.
Stjórnandi: Björn Guðjónsson.
Aðgöngumiðasala í Háskólabiói.
Skólahljómsveit Kópavogs
(----------------;—;-------\
Ferðaskrifstofan ÚTSÝN
ÚTSÝNARKVÖLD
„ÍTÖLSK HÁTÍÐ"
í Súlnasal Hótel Sögu
sunnudaginn 16. marz
t-------------------------------------------------------N
ýy Kl. 19.00 — Húsið opnað — Svaladrykkir og
lystaukar.
jt Kl. 1 9.30 — Hátiðin hefst: Lúffengir ítalzkir réttir.
Verð aðeins kr. 895.-. Einn af beztu söngvurum
landsins syngur vinsæl ítölsk lög, meðan á borð-
haldi stendur.
jr Kl. 20.30 Stutt kvikmynd tekin ,í Ítalíuferðum
Útsýnar s.l. sumar.
jf Fegurðarsamkeppni: Ungfrú ÚTSÝN 1975 —
forkeppni.
Ferðabingó: 3 Útsýnarferðir til sólarlanda.
jf Dans — Hin vinsæla hljómsveit Ragnars Bjarna-
sonar.
V_________________________________________________________/
Missið ekki af þessari óvenjulegu, glæsilegu en
ódýru skemmtun.
Ath. að veizlan hefst stundvíslega og borðum
verður ekki haldið eftir kl. 1 9.30.
Tryggið ykkur borð hjá yfirþjóni á föstudegi frá
kl. 1 5.00 í síma 20221 .
VERIÐ VELKOMIN — GÓÐA SKEMMTUN:
Ferðaskrifstofan ÚTSÝN
V_______________________________________________/